Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAiMÐ, LAUGAKDAGUK 3. AGUST 1985 Jö IV „ Viðskiptin fara eftir póiitíkinni — segir Þorsteinn Óskarsson hjá Verzlun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga U Fri Hrammstanga Morgunblaðið/Snorri Snorrason og fyrirtækja skila sér eðlilega því þessir aðilar eru mjög skilvísir. Við sendum út reikninga til 300 aðila á mánuði og Kiddý hand- skrifar alla reikningana upp á gamla móðinn. Það er verið að hraðskrifa hér í búðinni allan dag- inn má segja. Jú, mér finnst skemmtilegt að vera í versluninni, hlakka alltaf til að fara í búðina þegar ég kem úr fríum og reyndar hlakka ég til hvers dags í búðinni. Þetta er afslöppuð búð, vona ég og við reynum að hafa til svona það sem er innan okkar ramma í vöru- sviðinu. Jú, við lokuðum um tíma í gos- inu en opnuðum 1. október eftir gos. Þá komum við hingað heim með 7 gáma af vörum og 2 með búslóðina okkar. Við héldum að það yrði rólegt, en það var nú al- deilis vinna. Við vorum þriðja búðin, sem opnaði eftir gos á eftir kaupfélaginu og Axel skó. Frá marsmánuði til september gosárið, þá vorum við með versl- unina Verðandi í Tryggvagötu í Reykjavík í 6 mánuði, tókum það fyrirtæki á leigu til 5 ára, en að komast heim aftur skipti öllu máli. Það var erfið verslun í Verð- anda, lítið um bílastæði og allt önnur stemmning en hér, það var erfiður tími. Hér er góð stemmn- ing í búðinni. Menn stoppa að vísu minna en áður, það er meiri hraði á öllu en oft er gantast og glatt á hjalla, afslappað og gott, hvort sem verið er að selja, spjalla eða rukka." Fóru að sofa aftur gosnóttina Ég spurði þau Kiddý og Boga að því hvort það væri rétt að þau hefðu verið vakin gosnóttina forð- um, en farið að sofa aftur. Þau brostu bæði og kváðu það rétt. Kiddý hafði svarað í símann þar sem þeim var sagt að það væri byrjað gos austur á eyju. Bogi hafði svarað þeim tíðindum með löngu jái. Þau fóru á fætur og hittu sitt fólk, skoðuðu eldstöðv- arnar og fóru síðan niður á bryggju. Boga leist ekki á sjólagið og sagði: „Kiddý mín, við skulum bara fara að sofa, þetta verður ábyggilega búið þegar við vöknum í fyrramálið." Og þau fóru að sofa, örugglega eina fólkið á eyjunni sem lét sig hafa það eins og á stóð og líklega er leit að svo yfirveguðu fólki í heiminum, en Kiddý sagðist þó ekkert skilja í að hún hefði tek- ið þessa uppástungu góða og gilda. Grein: Árni Johnsen þroskaheftur og stundum nokk- uð mikilúðlegur útlits. Gárung- ar létu Púlla hringja í Boga, en um leið og Bogi heyrir hver er í símanum, leggur hann símtólið til hliðar og segir: „Pabbi, það er síminn til þín.“ ★ Einn athafnamaður í Eyjum kom í Eyjabúð á mikilli ferð og þannig hafði stokkast að hann skuldaði þar talsvert eins og gengur. Hann keypti fötur og sitthvað fleira og sveiflar síðan upp peningum til að borga þær, nokkur hundruð krónum sem hann var að versla fyrir. „Ertu bara með aura?“ sagði Bogi í rólega taktinum. „Það er gott að sjá,“ bætti Siggi Gúmm við, en hann hafði unnið nokkuð fyrir fyrirtæki mannsins, „það er bara borgað kontant." „Já, þetta kemur þægilega á óvart,“ heldur Bogi áfram. „Haldiði að maður vaði eitthvað í peningum á miðri vertíð," segir athafnamaðurinn á háu nótunum og bregst hinn versti við. „Nei, maður hefur nú orðið illilega var við það,“ sagði Bogi þá um leið og maðurinn struns- aði út úr Eyjabúð. „Á þessum stað fara vidskiptin al- gjörlega eftir því hvernig kaupin ger- ast í pólitíkinni," sagði Imrsteinn Óskarsson, verzlunarstjóri í Verzlun Sigurðar Pálmasonar á Hvamms- tanga, sem er hið veglegasta vöruhús með mörgum deildum. „Því er nefni- lega þannig varið þegar framsókn- armenn eiga í hlut að fáist varan ekki í kaupfélaginu þá er hún hreiniega ekki til á staðnum. Það sama má reyndar segja um sjálfstæðismenn. Ef þeir fá ekki það sem þá vantar hjá okkur láta þeir það yfirleitt eiga sig frekar en að fara í kaupfélagið." — Og þeir sem hvorki eru fram- sóknarmenn né sjálfstæðismenn? „Þeir sigla milli skers og báru í þessu eins og öðru.“ — Hvernig er að vera í sam- keppni við kaupfélagið? „Það er erfitt. Um „stóra bróður" gilda önnur lögmál en um frjálsan atvinnurekstur. „Stóri bróðir" skákar í skjóli aðstöðu og fjár- magns sem einkaaðilar hafa engan aðgang að en verða þó að keppa við. Það er því ekki lítið ánægjuefni fyrir okkur hér að fá í hendur niðurstöður verðlagskönnunar þar sem Verðlagsstofnun gerði sam- anburð á verði 55 vörutegunda í sjö verzlunum, á Hólmavík, Sauðár- króki, í Búðardal, á Blönduósi og á Hvammstanga, í Verzlun Sigurðar Pálmasonar og í Kaupfélagi V-Húnvetninga. Athugað var hváða vörur væru á hæsta verði í viðkomandi verzlun og hverjar væru á lægsta verði og svo meðal- verðið. Við komum í öllum atriðum betur út úr þessari könnun en kaupfélagiö. Við erum sjaldnar með hæsta verð og oftar með lægsta verð og hjá okkur var varan oftar undir meðalverði og í fleiri tilvikum á meðalverðinu. Niður- stöður þessarar könnunar munu koma okkur að góðu haldi ( sam- keppninni við kaupfélagið, en við gerum fleira til að laða að við- skiptavini en að halda niðri vöru- verði.“ — Hvernig farið þið að því? „Við höfum verið með sérstakar tilboðsvikur og þá erum við með ákveðnar vörutegundir á allt að helmingi lægra verði en annars. Þessi nýbreytni hefur fengið mjög góðar undirtektir og við stefnum að því að hafa slíkar tilboðsvikur tvær í mánuði. Við erum líka nýbyrjuð á því að bjóða upp á kaffi og meðlæti siðdegis á föstudögum, en ( lok vinnuvikunnar er mest um að vera hér í verzluninni. Þessar móttökur eiga vinsældum að fagna og það er greinilegt að fólk hefur gaman af að safnast hér saman, gera sér gott af því sem veitt er og blanda geði. Karlarnir eru fegnir því að geta fengið sér sæti og spjallað við náungann á meðan konurnar verzla. Yfirleitt er það frúin sem sér um innkaupin en húsbóndinn nennir ekki að fylgja henni því ef hann á sér undankomuleið." — Verzlun Sigurðar Pálmasonar er með alla algenga nauðsynjavöru en rekur líka sláturhús. „Já, og í sláturhúsi okkar er slátrað allt árið. Við höfum getað boðið upp á kjöt af nýslátruðu um jólaleytið og margir virðast standa í þeirri trú að þetta sláturfé sé miklu vænna en það sem slátrað er að hausti. Það er ekki svo. Við slátrum því fé um jólaleytið sem hefur ekki náð meðalþunga á haustin. Þetta eru lömb sem þá eru langt undir meðalþunga en eru orð- in væn þegar líður að jólum. Þetta hefur auðvitað augljósa kosti í för með sér en ástæöan fyrir því að þessi háttur er ekki hafður á víðast hvar er sú að kerfið er ekki þannig að menn sjái sér hag i þvi. Við leggjum mikið upp úr þvi að kjötið sé sem bezt þegar það kemst til neytendans og flytjum það í kælibíl með upphengingarútbúnaði á neyt- endamarkað en stöflum því ekki í venjulega flutningabila eins og al- gengast er.“ — Segir slík viðleitni ekki til sín í auknum viðskiptum? „Jú, en fyrirtækið hefur lagt í fjárfestingar. T.d. var flutt í nýtt verzlunarhús árið 1981 og lausa- fjárstaðan er slæm þar sem við höfum ekki aðgang að nauðsynlegri í Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga starfar Jónína Arn- arsdóttir. „Það er alveg ágætt að vinna hér,“ sagði Jónína, „ég er tiltölu- lega nýbyrjuð en vann áður í fisk- húsinu hér á Hvammstanga í hálft ár. Launin eru svipuð en vinnan er skárri. Ég er með rúm 17 þúsund á mánuði. Hvernig gengur að lifa af því? Alveg ágætlega, en ég þarf fyrirgreiðslu og það stendur okkur fyrir þrifum. Fengjum við sams- konar fyrirgreiðslu og kaupfélagið hefur aðgang að væri samkeppnin barnaleikur." — Og hverjir eru viðskiptavin- irnir? „Að mestu leyti er það fólk sem kemur hingað að jafnaði. Þetta er svona 1800 manna markaður og ætli viðskiptavinir okkar nálgist ekki að vera þriðjungur þar af. Við höfum gert ráðstafanir til að laða að ferðamenn og í þeim tilgangi settum við upp nýja deild í verzlun- inni í vor. Við lögðum áherzlu á lágt vöruverð og erum t.d. með lopapeysur á 2—300 kr. lægra verði en gengur og gerist í Reykjavik, þannig að hagkvæmt væri fyrir ferðamenn að leggja smálykkju á leið sína og kaupa slikan varning hér. Við vorum í sambandi við þá sem annast flutning á ferðamönn- um um landið og var búið að ganga frá því að hingað kæmu langferða- bílar frá Guðmundi Jónassyni tvisvar í viku. Af því tilefni ætluð- um við að hafa opið utan hins venjulega afgreiðslutima, en svo fór þetta allt út um þúfur þegar til átti að taka. Þá komu bílstjórarnir til sögunnar og sögðust ekki hafa viðkomu hér nema þeir fengju allt að 10% af innkomunni. Svona að- ferðir komu okkur í opna skjöldu og við tókum þá ákvörðun að ganga ekki að þessu þannig að þessi verzl- un nýtur ekki góðs af erlendum ferðamönnum eins og sakir standa," sagði Þorsteinn Óskars- heldur ekki að borga fæði og hús- næði þar sem ég bý heima. Ég veit ekki hvað ég verð lengi í þessu en mér hefur líkað vel það sem af er. Bæði er vinnan hreinlegri og ekki eins þreytandi og í fiskhúsinu og það er líka skemmtilegt að um- gangast fólkið sem hingað kemur. Flesta þekki ég en þó ekki alla.“ Á.R. son. Á.R. Betra að rinna í verzlun — segir Jónína Arnarsdóttir í Verzlun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.