Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 B 15 VERALDLEGAR SUNNUDAGSPREDIKANIR Kynslóð sem grætur draum sinn Eitt af því sem við veltum fyrir okkur nú er hvernig til hafi tekizt um uppeldi barna- og ungl- inga frá því um miðja öldina að uppeldisvenjur breyttust. Framundir . miðja öld giltu eftir Asgeir hinar hefð- Jakobsson bundnu uppeld- isvenjur þjóðar- innar og þær voru einfaldar og reglurnar fáar en þeim var fylgt, aldrei neitt hringl eða vangavelt- ur. Þegar afbrotið var ljóst var einnig ljóst hvernig bregðast skyldi við því og barnið fór ekki í neinar grafgötur um það heldur. Hinar hefðbundnu uppeldis- venjur þjóðarinnar byggðust á því sem kalla má hörkuna sex. Það orðtæki er sótt í lóðaöngla, sem voru númeraðir eftir stærð og hörku og önglar númer sex voru stórir og stinnir. Gömul kona und- ir Þríhyrningi heyrði vestfirzkan kaupamann nota þetta orðtak, þegar ung og fönguleg kaupakona kom á bæinn: „Nú gildir harkan sex.“ Gamla konan gaf enga skýringu á orðtakinu eða vildi ekki gefa hana, en gat þess þó, að það hafi víst verið eitthvað sem snerti kaupakonuna, sem átti að stækka og harðna og minna myndi ekki duga en harkan sex. Eflaust er þetta orðtæki komið á orðabókar- seðla frá gömlu konunni og það er mjög þægilegt til að tákna með hörku í ýmsum efnum og er þá óþarft að hafa í huga hugsanlega meiningu kaupamannsins fremur en upphaflega merkingu, að ganga í hægðum sínum eða hrökkva upp af skaftinu. Þær voru sem sagt fáar uppeld- isreglurnar á fyrri hluta aldarinn- ar og þeim fylgt eftir með hörk- unni sex í hinu almenna uppeldi og einnig allri kennslu barna og unglinga. A vetrum, um skólatíma, giltu tvær hátternisreglur: barnið átti að læra lexíurnar sínar undir morgundaginn strax og það kom úr skólanum, þá mátti það fara út að leika sér en vera komið í hús um kvöldmat og um kvöldið hlýddi móðirin barninu yfir lexíurnar. Móðirin jagaðist í barninu ef henni þótti slæleg kunnáttan: „Ætlarðu að verða henni móður þinni til skammar í skólanum, hvað heldurðu að kennarinn hugsi um heimili þitt ef þú lærir ekki lexíurnar þínar, hver heldurðu að beri skömmina." Þegar svo einkunnabókin kom og tölur voru lágar kom málið fyrir föðurinn og barnið þurfti ekki að vera í neinum vafa um refsinguna, hún var einföld og af- dráttarlaus, ef um strák var að ræða, kippt niður um hann buxun- um og hann hýddur. Sama gerðist ef um óknytti var að ræða. Móðirin bað fyrir sér og grét en faðirinn hýddi. Siðareglur voru mjög einfaldar: Þú skalt ekki stela, ekki hrella gamalt fólk eða kvelja dýr og haga þér skikkan- lega við kennarana. Og samfélagið ól upp börnin með foreldrunum og kennurunum. 111 hegðan var almennt fordæmd, það afsakaði hana enginn, heldur sameinuðust allir um að skikka til börn og unglinga, svo að þeir yrðu hvorki sjálfum sér né samfélagi sínu til vandræða. Það þótti sjálfsagt að sá sem stóð barn að illri hegðan hirti það á staðnum, ef hann var þess umkominn, eða drægi að organdi heim til foreldr- anna, sem tóku þá málið í sínar hendur og þökkuðu manninum fyrir með virktum sem velgerð- armanni barnsins. Ef til vill hefur samvinna og samstaða foreldra, kennara og samfélagsins valdið mestu um að það er staðreynd, sem við, er mun- um tvenna tímana og höfum sam- burð, getum vottað, að það tókst almennt betur til um uppeldi barna — og unglinga — en nú ger- ist. Það sýndist ekki sitt hverjum í fyrra tíma undir hefðbundnum venjum og siðum; allir aðilar, sem höfðu áhrif á uppeldi, voru sam- mála um hver ætti að vera hegð- unarmáti barna og unglinga og hjálpuðust að við að kenna barn- inu þann hegðunarmáta og eins var það að allir þessir aðilar, for- eldrar, kennarar og samfélagið, voru á einu máli um, hvað teljast skyldi refsivert afbrot og það bæri að refsa barninu; öll vorkunnsemi væri af hinu illa og barninu til skaða. Það var ekki um að ræða þann tvískinnung, sem nú ríkir, ef eitthvað þarf að taka til hendi í uppeldismálum, hvort heldur er almennt eða ráða framúr vanda einstaklings. Strax eru komnir ótal spekingar í málin og sýnist sitt hverjum og upphefst yfir- þyrmandi kjaftæði, þar sem sér- fróðir menn tala uppúr sinni skólabókinni hver. Heilbrigð skynsemi og reynsla og heilbrigt mat á þeim forsendum kemur ekki til álita, heldur einvörðungu upp- eldisfræði úr bókum. Svo var það í þennan tíma að til var illt innræti, en sú staðreynd samlifsins er ekki lengur viður- kennd, að menn fæðist misjafnir að innræti. Það var afturámóti viðurkennt áður fyrr og þótti af- leitt þegar þess varð vart að barn eða unglingur var illt í sér og það voru gerðar ráðstafanir til að fást við það, þótt ekki væri beinlínis um neitt afbrot að ræða. Það var til, að koma slíku barni fyrir hjá góðu og guðhræddu fólki f sveit, eða hjá verkstjóra eða formanni, sem vitað var að höfðu gott lag á unglingum, og það hjálpaði mikið til í þessu efni, að unglingar kom- ust á mótunarárunum í félag full- orðinna í störfum og drógu þá dám af alþýðufólki þess tíma, sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu og fordæmdi illmennsku; þeir menn urðu utangarðsmenn. Líklega er ekkert lengur til jafnmannbætandi og gott til eyð- ingar ills innrætis en sjóveiki, sjó- hræðsla, vökur og örmagna við vinnu. Það hefur enn ekki fundizt nein uppeldisaðferð, sem hægt sé að fullyrða að sé sú bezta mögulega, en það er margt, sem bendir til að hefðbundna uppeldið fyrrum sé skárra en sérfræðingauppeldið nú. Trúlega er ekki enn þekkt nein haldbetri uppeldisaðferð en rassskelling og þrælavinna. Framhald nssta sunnudag. Klipptu út auglýsinguna og geymdu hana. VELDU ÞER SIQRHIYND KVÖLDSIHS GJÖRÐU SVO VEL Til aö auðvelda þér valið á bíómynd kvöldsins birtum við hér lista yfir 50 stórmyndir. Einhver þeirra er örugglega myndin sem þú vilt sjá í kvöld eða næstu kvöld. Ef þú ert búinn að sjá þær allar, þá eigum við sjöhundruð titla til viðbótar. Já, þú last rétt sjöhundruð titla. Fyrir þá sem vilja taka fleiri en eina spólu í einu minnum við á tilboð mánaðarins. Komdu eða hringdu og náðu þér í stórmynd kvöldsins. HÖFÐATÚNI 10, SÍMI 21590 1. Romancing the Stone 2. Unfaithfully Yours 3. Thunder and Lightning 4. Bloodsimple 5. Missing In Action 6. Ordeal by Innocence 7. Falcon and The Snowman 8. Blue Thunder 9. Scarface 10. High Road to China 11. Karate Kid 12. The Hit 13. Electric Dreams 14. An Officer and a Gentleman 15. Silkwood 16. Splash 17. Marathon Man 18. Lassiter 19. The Ambassador 20. The Natural 21. Rhinestone 22. 48 stundir 23. Under the Volcano 24. The year of living dangerously 25. Trading Places 26. Little Darlings 27. The Day of the Jackal 28. Diva 29. Richie 30. Against all odds 31. Taxi Driver 32. Gorky Park 33. Tank 34. A Woman in Red 35. Gloria 36. Class 37. Silent Partner 38. Nýttlíf 39. Húsið 40. Með allt á hreinu Einnig ýmsir vinsælir þættir s.s. 1. Return to Eden 2. Evergreen 3. Lace I og II 4. Empire Inc 5. Power game 6. Deception 7. Ellis Island 8. Atlanta Child Murders 9. Falcon Crest 10. Once Upon a time in America Gott úrval barnaefnis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.