Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985
Skemmtileg og falleg sérverslun,
Te og kaffi, hefur tekid sér bólfestu
vió Barónsstíg 18. l>ar eru tugir teg-
unda af tei og kaffi á boóstólum og
sitthvað sem er vel við hæfi á borðum
með þeim drykkjum. I*að eru hjónin
Sigmundur Dýrfjörð og Berglind
Guðbrandsdóttir sem opnuðu Te og
kaffi í maí 1984. Áður var þar skó-
smiður við störf í húsinu, síðar skó-
verslun og bókaútgáfan Fjölnir á
undan sérversluninni Te og kaffi.
Það er sagt að listin að laga te sé
runnin upp í Kína. Sögurnar herma
að uppfinningamaður tesins hafi
verið keisarinn Shen-nung, kallað-
ur hinn guðdómlegi læknir. Shen-
nung á að hafa lagað fyrsta tebolla
sögunnar árið 2737 fyrir Krist.
Aðrar sögur halda þvi fram, að
Búddistamunkurinn Dharuma,
hinn „hvíti Búdda“ hafi verið upp-
hafsmaður tesins. Dharuma sat
eitt sinn í hugleiðingum og fann þá
allt í einu fyrir ómótstæðilegri
syfju. Hann skar þá af sér augna-
lokin og henti þeim á jörðina. Þar
sem þau féllu óx siðar upp planta
og af blöðum hennar var hægt að
laga drykk sem kom f veg fyrir
sljóleika.
Önnur „dagsetning" varðandi
upphaf tesins er i kringum 500
fyrir Krist. T.d. nefnir Kong-fu-ste
te árið 550 fyrir Krist. Með vissu er
vitað að drykkurinn te hefur verið
þekktur i Kína í a.m.k. 2000 ár,
jafnvel þó að haldið sé að sjálfur
terunninn komi frá Norður-
Indlandi. Kínverjar voru einnig
fyrstir að skapa sérstaka menn-
ingu í sambandi við te, temenn-
ingu. Fyrsta bókin um listina að
laga te, Að laga og drekka te, var
skrifuð af Lu-yu árið 780. Hún er
til í London Library.
í Te og Kaffi á Barónstíg
Sigmundur
I bæklingi sem er á boðstólum í
Te og kaffi er kynntur lækninga-
máttur hinna ýmsu tejurta, hvern-
ig á að hella upp á te og kaffi svo
bestur árangur náist og menn fái
sem mest út úr þessum alþjóðlegu
drykkjum nútímans.
Margt ffsilegt er í dollum og dunkum.
„Þegar við hófum þennan rekst-
ur,“ sagði Sigmundur i spjallinu,
„þá leituðum við út um borg og bæ
að kaffikvörnum og fengum kaffi-
kvarnir úr gömlu Silla & Valda-
búðunum, kvarnir sem búið var að
leggja fyrir alllöngu. Vogirnar
fengum við þar líka. Sigurjón i Að-
alstrætisbúðinni var búinn að
koma stóru tvöföldu kvörnunum
niður i kjallara hjá sér, en það er
ánægjulegt að vera búinn að fá
þessar gömlu kvarnir aftur í vinnu.
Við vorum búin að ganga með
draum um svona búð lengi, i mörg
ár, áður en við fórum af stað. Nú
fær hver kaffi eftir sínu höfði. Við
Gluggarnir í Te og Kaffi eru skemmtilega skreyttir.
stillum kvarnirnar eftir þvi hvað
viðskiptavinurinn vill hafa kaffið
grófmalað. Hér er ekkert vigtað
fyrirfram og við tökum oft 5—10
eins mikið og frekast er kostur af
hlutum sem fylgja og einnig svolít-
ið af meðlæti, súkkulaði, kandís
með sykri, sultu og fleira góðgæti.
Morgunblaðið/Árni Johnaen
dunka niður úr hillunum áður en
viðskiptavinurinn ákveður hvað
hann velur. Það má segja að þetta
sé afgreiðsla upp á gamla móðinn
og hún er talin seinni en gengur og
gerist í nýjustu verslunartækni, en
fólk notar tímann til að velta fyrir
sér og velja og það virðist vera
hluti af búðarferðinni. Við erum
fyrst og fremst með kaffi og te og
Tugir tegunda af te,
kaffí og ýmsu góðgæti
Við erum með 10 tegundir af kaffi-
baunum og það nýjasta er að við
bjóðum upp á kúmenkaffi. Kaffið
kemur allt í gegnum Danmörku, en
það hefur ekki gengið áfallalaust
að útvega eins margar tegundir af
tei eins og við erum með. Við erum
nú með 50 tegundir af tei og 10
tegundir af jurtum. En allt þetta
úrval hefur virkað stjarnfræðilega
á tollayfirvöld. Við erum t.d. með
þrjár tegundir af Earl Graytei og
tvær þeirra verðum við að blanda
sjálf vegna hárrar tollaflokkunar
eða 200% gjalda þegar við fáum
blönduna tilbúna erlendis frá.
Þetta er Earl Graytegund, sem er
með bláum blómum, stokkrósarteg-
und og önnur með gulum jasmin-
blómum. I hverju kg af teinu með
jasminblómunum eru 20 grömm af
jasminblómum og það eru þessi 20
grömm, sem hleypa tollinum upp í
200% gjöld nema við flytjum blóm-
in inn sér og blöndum hér heima,
þá er þetta ekkert vandamál. En
við erum að reyna að vinna þessu
framgang og gæðin fara eftir því
hvar jurtirnar eru ræktaðar í
heiminum, í hvaða hæð o.s.frv.
Það má segja að hjá okkur hafi
verið stöðug aukning i sölu, en
uppistaðan er þó fastir viðskipta-
vinir og þeim fjölgar hægt og síg-
andi. Það er mikið um að fólk kaupi
hjá okkur í gjafapakkningum í
tækifærisgjafir í stað blóma t.d.
Margir eru sérvitrir. Við erum t.d.
með þrjár tegundir af kaffi, sterkt,
millisterkt og veikt. Margir búa
orðið sína eigin blöndu eftir eigin
uppskrift. Kaffigull samanstendur
t.d. af 4 baunategundum, en sumir
vilja blanda allt að 6 tegundum
bauna saman. Sumir kaupa í kílóa-
tali ákveðna blöndu, t.d. kona, sem
á langt að, frystir kaffið heima hjá
sér. Þá sendum við talsvert í
póstkröfu, en það skemmtilega, í
þessu er að það er mikið spjall að í
þessari búð, eiginlega algert kaffi-
spjall í vangaveltunni um hvað sé
best.
Á laugardögum t.d. kemur oft
sama fólkið. Það heldur upp á helg-
ina með því að kaupa sér sérstakt
kaffi eða te, eitthvað sem því líkar
og þykir hátíðabrigði að. Það má
þannig segja, að hér sé persónuleg
afgreiðsl.a a.m.k. þegar hæfilega
mikið er að gera.“
- á.j.
Skemmtilegra
að afgreiða en vinna
í mjólkurstöð
— segir Guðmundur Bragason
í Húsprýði í
í versluninni Húsprýði f Borg-
arnesi, sem nú hefur verið starf-
andi á þriðja ár, að sögn verslunar-
stjórans, Braga Jósafatssonar, er
verzlað með húsgögn, reiðhjól,
rafmagnstæki, gjafavörur og skó-
fatnað. „Sæmilega, en ekki meira
en svo,“ sagði Bragi þegar spurt
var hvernig reksturinn gengi, „það
er nú kannski fyrst og fremst af
þrjózku sem hlutafélag rekur þessa
verzlun. Það er allt annað er auð-
velt á svona stað að vera í sam-
keppni við kaupfélagið sem yfir-
gnæfir allt og hefur allt aðra að-
stöðu en við á öllum sviðum.“
Þegar Morgunblaðsmann bar
að var Guðmundur Bragason að
sinna hópi viðskiptavina sem
voru að fá sér skó en gaf sér síð-
an tíma til að spjalla.
„Ég er hér aðeins í sumaraf-
leysingum," sagði Guðmundur,
„og ég get e.t.v. varla talizt nýliði
því að ég hef verið við þetta ann-
að veifið frá 12 ára aldri. Annars
er ég að læra rafeindafræði. Á
Borgarnesi
sumrin hef ég líka starfað í
Mjólkurstöðinni en þar var oft
eftirvinna. Um hana er ekki að
ræða í verzluninni en á móti
kemur að það er skemmtilegra að
vinna við afgreiðslu en mjólkina.
Margt af því fólki sem hingað
kemur þekkir maður en einnig er
talsvert af aðkomufólki. Það er
ánægjulegt ef hægt er að gera
fólki til hæfis og útvega því það
sem það vanhagar um, en um
vöruþekkingu er það að segja að
ég hef ekki hlotið neina aðra
fræðslu um hana en þá sem mað-
ur tileinkar sér jafnóðum og lær-
ir af þeim sem hafa mikla
reynslu á því sviði. Viðskiptavin-
irnir eru auðvitað eins misjafnir
og þeir eru margir, en til algjörra
undantekninga heyrir ef þeir eru
ekki kurteisir og vingjarnlegir,"
sagði Guðmundur Bragason um
leið og hann sneri sér að næsta
viðskiptavini sem líka var að
spyrja um skó.
Borgarnes