Morgunblaðið - 03.08.1985, Side 9
»r.T«fmÁ 8 HTlf)AíTP AíYTTA J fí'f J A IfTMTTOífOí/'
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985
B 9
Húsið Höfa, sem flutt rar til Selfoas frí Eyrarbakka og Sigurður
rerslaði ífrí 1927 tti 1964.
lákshöfn. Sá hét Gísli Jónsson sem
það gerði. Hann var ekki nema
nokkur ár í Höfninni, flutti þá til
Eyrarbakka, reif hús sitt niður og
flutti það með sér. Hann reisti það
á Einarshafnarhlaði og nefndi það
Höfn. Nú var hús þetta risið í
þriðja sinn og nú á Selfossi og hélt
nafninu Höfn. Uppkomið var það
hæð og hátt ris með stórum kvisti
á norðurhlið, 110 ferm. að flatar-
máli. Grunnur undir því var hlað-
inn úr hraungrýti, kjallari enginn.
í þessu húsi var íbúð á efri hæð-
inni tii ársins 1947 eða i 22 ár,
verslunin á neðri hæðinni til 1969,
eða í 44 ár. Húsið var stækkað
1931 með tveggja hæða viðbygg-
ingu við suðurhlið.
I þessu húsi hafði Hekla útibú i
eitt ár, þ.e. 1925. Það var síðasta
starfsár hennar. Félaginu var slit-
ið og það gert upp 1926. Það af-
henti þá Landsbankanum allar
fasteignir sínar á Eyrarbakka og
Selfossi til skuldalúkningar en
Guðmundur Guðmundsson, sem
verið hafði kaupfélagsstjóri Heklu
frá 1910, keypti vörubirgðir fé-
lagsins og útistandandi skuldir
eins og hvort tveggja var í árslok
1925. Guðmundur tók nú á leigu
hjá Landsbankanum húseignina
Höfn á Selfossi ásamt tilheyrandi
lóð og hóf þar verslun sína í árs-
byrjun 1926 og nefndi hana Versl-
unina Höfn.
Þarna rak Guðmundur eigin
verslun til ársloka 1927. Þá varð
sú breyting á að nýir eigendur
komu til sögunnar og stofnuðu
sameignarfélagið S.ó. Olafsson og
Co. Stofnsamningur var gerður 2.
apríl 1928. Stofnendur og eigendur
voru:
Guðmundur Guðmundsson
kaupmaður, Sigurður óli ólafs-
son, verslunarm., en hann hafði þá
verið starfsmaður við verslun
Guðmundar á Selfossi frá 1. maí
1927, og Júlíus Guðmundsson stór-
kaupmaður frá Reykjavík.
Strax á fyrsta ári verslunarinn-
ar keypti hún fasteignir er Guð-
mundur hafði haft á leigu frá
Landsbankanum, þ.e. verslunar-
húsið Höfn ásamt tilheyrandi lóð
fyrir 15.000 krónur. Þá keypti það
einnig viðbótarlóð, framhald af
Hafnarlóðinni, 35 m á breidd og
218 m á lengd, 7.630 ferm. fyrir
1.200.- krónur. Á þessari lóð
standa nú allar byggingar Hafnar
hf. að meðtöldu íbúðarhúsinu
Hafnartún, sem félagið á einnig,
sem kunnugt er. Þrátt fyrir þá
nafnbreytingu sem varð á fyrir-
tækinu þegar sameignarfélagið
tók við af einkaverslun Guðmund-
ar, gleymdist ekki Hafnarnafnið,
það var alltaf í almennu tali hér á
Selfossi og nágrenni „að fara út í
Höfn“.
Verslunin S.ó. Ólafsson & Co.
var rekin í sama horfi og áður til
ársins 1942. Þá var Július Guð-
mundsson, einn af eigendum sam-
eignarfélagsins látinn, en tveir
nýir menn orðnir fastir starfs-
menn við verslunina, þeir Arnold
Pétursson og Guðmundur Geir
Ólafsson. Þeir keyptu hlut Júlíus-
ar í félaginu og var þá stofnað
hlutafélagið S.ó. ólafsson & Co.
hf. sem yfirtók allar eignir S.Ó.
Ólafsson & Co.
S.ó. ólafsson & Co. hf. hélt
verslunarrekstrinum áfram I
sama formi og áður. Viðskipti juk-
ust í þorpinu eftir því sem íbúum
fjölgaði einnig við bændur og átti
hið nýja sláturhús félagsins sinn
þátt í því.
Þetta gekk til
ársins 1964
• Þá verður sú breyting á að ný-
stofnað kaupfélag á Selfossi,
Kaupfélagið Höfn, kaupir allar
fasteignir S.Ó. ólafsson & Co. hf.
á Selfossi og Stokkseyri, öll versl-
unaráhöld og þrjá bíla.
Einnig allar vörubirgðir versl-
unarinnar eins og þær töldust 1.
sept. 1964. Kaupsamningur og af-
sal voru undirrituð 7. október
1964.
Þegar S.Ó. ólafsson & Co. hf.
selur hinu nýja kaupfélagi verður
sú breyting að nú hverfa frá fyrir-
tækinu Guðmundur Guðmundsson
eftir óslitið forustustarf við það í
38 ár og Sigurður Óli eftir 37 ár.
Annað starfsfólk mun hafa haldið
áfram starfi hjá kaupfélaginu, þar
Á Selfossi er bæði úti- og innisundlaug.
en 1934 en þá gjörbreyttist þetta.
Fljótlega keyptum við okkar eigin
rafmagnsmótora og þá seldum við
einnig rafmagn í næstu hús við
verslunarhúsnæðið.
Víst hafði ég gaman af verslun-
inni, vann mikið og það var annað
hvort að duga eða drepast. Við
fengum fljótt bíl og reyndar bila
til að flytja vöruna úr Reykjavík
og keyra síðan út um sveitir. Við
vorum í búðinni á daginn og svo
skrapp ég út um sveitir á nóttunni
með vörurnar. Maður var ungur
og hraustur þá og ákveðinn í að
láta þetta ganga. Athafnasemin
jókst með versluninni, bæði í
plássinu og i sveitinni, og maður
sér það sérstaklega eftir á hvað
verslun og slík þjónusta er einn af _
grundvallarþáttum framþróunar
og uppbyggingar.
Þessi verslun okkar var sem
betur fer persónuleg á margan
hátt, það var mjög áberandi fyrr-
um í versluninni. Fyrstu árin þeg-
ar karlarnir komu í heilu lestun-
um með ullina á vorin var það sið-
ur að menn fengu veitingar, kaffi
og meðlæti á okkar heimili. Þann-
ig var þetta opnari kunningsskap-
ur. Konurnar komu gjarnan með
og oft krakkarnir líka og til marg-
ra vináttubanda var stofnað í
gegnum verslunina og spjallið. 1
heild var þetta líflegur tími og
mikil vinna, oft þröngt á þingi því
margt var fólkið. En það er
skemmtilegt að hafa lifað það að
koma í þetta pláss, Selfoss, þar
sem voru 7—8 hús þegar við kom-
um hingað og á bilinu 50—100 íbú-
ar, en nú er Selfoss yfir 3.000
manna bær. Við höfum notið þess
hjónin að vera þátttakendur i
þessu ævintýri öllu. Það hefur ver-
ið í mörg horn að líta á löngum
vegi en sem betur fer er margt
gott sem gekk fram og það er gott
að eiga heima hér.
Grein:
Árni Johnsen
á meðal Arnold og Guðmundur
Geir og enn má sjá þá hlaupa um
hús í Höfn hf. en á þessu ári eru 60
ár liðin síðan Kaupfélagið Hekla
hóf verslun sína á Selfossi í Höfn
árið 1925.
Ekkert vatn og
ekkert rafmagn en
áfram haldið
Jú, það voru ýmsir erfiðleikar
sem komu upp við verslunina á
Selfossi í upphafi. Það var ekkert
vatn sem við höðfum aðgang að,
ekkert rafmagn. Við tókum vatn
úr jarðbrunnum skammt frá hús-
inu og vatnsveitan kom ekki fyrr
Sumarstemmning i Selfossi
fyrir skömmu.
eru nú voðalega vandamálaþjóð
voru mjög „sentimental" í lokin og
vildu endilega að maðurinn og
konan sem aðalhlutverkin skipuðu
fengju að eigast, en það var mjög
erfitt, þar sem hann var bróðir
eiginmanns konunnar.
Vagnhjól og
mjólkurbrúsar
Við tókum sviðsmyndina með
okkur út, m.a. gamalt vagnhjól og
nokkra mjólkurbrúsa. Strax á
fyrstu sýningunni voru okkur
boðnir peningar fyrir dótið, en við
gáfum það i lokin þeim sem okkur
fannst að hefðu hjálpað okkur
mest þarna. Síðar fréttum við að
þetta hefði orðið til leiðinda, því
margir vildu eignast og þótti sum-
um að þeir ættu meiri rétt til gjaf-
anna en þeir sem fengu.
Lokahófið var aldeilis æðislegt.
Við sigldum út í eyju utan við
Gautaborg, þar sem hófið fór fram
í eldgömlu virki. Á borðum var
v r
\ . f .
Anna Lóa Guðmundsdóttir
villidýrasteik. Það var svosem allt
í lagi með steikina, en hún var svo
þurr, að menn höfðu orð á því allt
kvöldið að þeir þyrftu að bleyta í
kjötinu. Við vorum eini leikhópur-
inn sem var með hefðbundið leik-
form. Þarna sáum við allskonar
uppákomur félaga okkar af hinum
Norðurlöndunum. Við vorum að
frá morgni til kvölds alla vikuna
til að fylgjast með og komum heim
uppfull af hugmyndum.
Framtíð leiklistarinnar
Nú erum við sem byrjuðum að
komast á þann aldur félaga í Leik-
félagi ísafjarðar þegar það datt
uppfyrir. Sem betur fer er ungt og
duglegt fólk komið til starfa, en
vonandi þarf það ekki að standa
óstutt af reyndara fólki eins og við
urðum að gera í upphafi og við
viljum gjarnan að gott samstarf
sé með okkur og þeim yngri svo
nota megi þá reynslu, sem við höf-
um öðlast á 20 ára starfsferli til
að treysta enn betur leiklistarlifið
á ísafirði.
Gróska í versluninni
Mér finnst mjög gaman að
versla og gott að vita af því, núna
aðeins tæpum tveim árum eftir að
við byrjuðum, er fólk farið að
segja að það þurfi nú ekki lengur
að fara suður til Reykjavíkur til
að kaupa fötin á börnin sín. Við
vitum líka, að fötin hjá okkur eru
ekki dýrari en sömu föt í Reykja-
vík og oft eru þau ódýrari. Og
saumastofan Hleinar, sem við
stofnuðum í vetur með Sigrúnu
Lyngmó klæðskera, hefur haft nóg
að gera. Við opnum þar eftir
sumarfri í nýju og stærra húsnæði
sem skapar aðstöðu fyrir 10 kon-
um í vinnu, sagði Anna Lóa Guð-
mundsdóttir að lokum og var þot-
in til að þjóna aðkomufólki sem sá
eitthvað fallegt í búðinni hennar á
loftinu i Lóninu.
Úlfar