Morgunblaðið - 03.08.1985, Side 11

Morgunblaðið - 03.08.1985, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 B 11 Dæmi um að fólk fái ekki greitt það sem þrí ber — segir Ólafur H. Jóhannsson, formaður Verzlunarmannafélags Skagfirðinga Ljósmynd/Kári Jónsson Ljósmynd/Mats Wibe Lund Ólafur H. Jóhannsson er formaður Verzlunarmannafélags Skagafjarðar og starfar hjá Útgerðarfélagi Skagfirðinga. „í Verzlunarmannafélagi Skaga- fjarðar eru nálægt 200 félagar, en hér í byggðarlaginu starfa miklu fleiri við verzlun og þjónustu en sú tala gefur til kynna. Við slík störf er mikið af fólki i smáfyrirtækjum þar sem eigendur sjá um það sem gera þarf. Þar við bætist að til skammst tíma var skráningu fólks í félaginu mjög ábótavant en nú hefur verið gerð gangskör að því að rífa upp starf- semi félagins og þar er i mörg horn að líta.“ — Hvað er það einkum? „Brýnasta verkefnið er að koma skráningunni í viðunandi horf en þar næst að fá samastað fyrir starfsemina þannig að gögn fé- lagsins séu aðgengileg á einum stað. Þá er i ráði að gefa út smá- blað og halda þar uppi fræðslu og minna félagsfólkið á í hverju rétt- indi þess séu fólgin. Það er nauðsynlegt að geta leiðbeint fólki varðandi þetta, ekki sízt þar sem lífeyris-, orlofs og sjúkrasjóðsmál hafa verið í hinnum mesta ólestr hjá að heita má öllum öðrum vinnuveitendum en kaupfélaginu. Bftir að við fórum að koma lagi á þetta hafa undirtektir vinnuveit- enda verið mjög góðar, enda staf- ar þetta ástand sjálfsagt ekki af því að þeir hafi ætlað að koma sér hjá einu eða neinu heldur fyrst og fremst af því að þeir hafa hrein- lega ekki vitað hvert bæri að snúa sér með þetta." — Hvað um launamál? „Sumstaðar virðast þau vera í ólestri. Það liggur fyrir að sumt fólk hefur ekki fengið greitt það sem því ber og er taxtinn þó svo naumur að enginn er of sæll af honum. Það er staðreynd að verzl- unarfólk hér er mun verr launað en verzlunarfólk í Reykjavík og framtíðardraumur okkar sem er- um í forsvari fyrir þessa stétt er sá að hér verið greitt fyrir verzl- unar- og skrifstofustörf eins og gert er á suðvesturhorninu. Sömu laun fyrir sömu vinnu, sem sagt.“ — Hver er munurinn á kjörum verzlunarfólksins hér og í Reykja- vík? „Samkvæmt niðurstöðum Kjararannsóknarnefndar greiða einkafyrirtæki í Reykjavík starfs- Ólafur H. Jóbannsson Fri Sauðirkróki. fólki sínu 10—45% meira en hér er gert. Við höfum alltaf tekið mið af þeim samningum sem Verzlun- armannafélag Reykjavík, gerir fyrir hönd sinna umbjóðenda, en í reynd er þetta þannig að þar er yfirborgað en hér er í langfiestum tilvikum borgað eftir taxtanum. Þó borga einkafyrirtækin hér um slóðir í ýmsum tilfellum betur en kaupfélagið.“ — Hvaða áhrif hefur það á rekstur? „Áður en ég fór að vinna hér hjá Útgerðarfélagi Skagfirðinga var ég í fimm ár deildarstjóri hjá kaupfélaginu og það kom fyrir hvað eftir annað að ég missti prýðilegt starfsfólk beinlínis af því hve launin voru léleg miðað við það sem annars staðar var.“ Þar sem skráningu fólks er ábótavant í verkalýðsfélagi á borð við Verzlunarmannafélagið, eru þá dæmi um að fólk sé ekki í neinu verkalýðsfélagi ? „Nei, það er nú öðru nær. Þess eru fjölmörg dæmi að félög séu að seilast inn á annarra svið í skjóli þess að Verzlunarmannafélagið hefur verið óvirkt. Sjálfur hef ég orðið vitni að því eftir að ég kom til starfa hér á skrifstofu Útgerð- arfélagsins að Verkamannafélagið og Verkakvennafélagið hafa verið að bítast um starfsfólk hér hjá fyrirtækinu — fólk sem átti heima í hvorugu þessara félaga. Slíkt er auðvitað ekki líðandi. Þetta skipt- ir verulegu máli, t.d. í sambandi við lífeyrismál. Nýlega varð Verzl- unarmannafélag Skagafjarðar að- ili að Lífeyrissjóði stéttarfélaga í Skagafirði, en innan Verzlunar- mannafélagsins eru margir í líf- eyrissjóði Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, þ.á m.ég. Það er skiljanlegt að fólk sé ekki reiðubú- ið að ganga í nýjan lífeyrissjóð og afsala sér þar með réttindum sem það hefur áunnið sér annars stað- ar, en ég er því fylgjandi að í stað- inn fyrir alla þessa smásjóði verði komið á einum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn. Það gengur víst treglega að koma á slíkri skipan en ég-held að málið sé þannig vax- iö að í framtíðinni hljóti menn að koma sér saman um þetta réttlæt- ismál,“ sagði Ólafur H. Jóhanns- son. Á.R. Egilsstaðir Okkar aðná til fólksins — spjallað við Ástráð Magnússon, skókaupmann í Krummafæti Það er fyrst og fremst okkar mál, kaupmannanna, að ná til fólksins, hafa eitthvað að bjóða því. Ef við stöndum okkur ekki í samkeppninni, erum ekki samkeppnisfærir hvað verðlag, vörugæði og þjónustu varðar, er ekkert und- arlegt þótt fólk leiti annað — jafnvel í önnur byggðarlög eða landshluta. Við eigum fyrst og fremst að líta okkur nær ef eitthvað bjátar á i versluninni — en ekki ætlast til þess að einhverjir aðrir lagi hlutina fyrir okkur — sagði Ástráður Magnússon, skókaupmaður, er tíðindamaður Morgunblaðsins innti hann álits á þeim barlómi sem stundum heyrist frá landsbyggðarversluninni. Jú, það er rétt að flutnings- kostnaðurinn er sumum verslun- um úti á landsbyggðinni nokkuð þungur í skauti — en það fer þó talsvert eftir vörutegundum. Mér sýnist t.d. verðlag hjá okkur hérna í Krummafæti síst hærra en al- mennt gerist í skóverslunum í Reykjavík. Þar erum við fyllilega samkeppnisfær þrátt fyrir flutn- ingskostnaðinn. Skýringa á því er trúlega að leita í álagningunni. — En er samkeppnin heima fyrir hörð? Alls ekki. Margir halda að ógjörningur sé að reka svona sér- verslun í nábýli við stórverslanir á borð við kjörbúðir kaupfélaganna — en svo er ekki. Ef kaupfélögin eiga að geta sinnt einstaka vöru- flokki eins og sérverslanir gera þýðir það stóraukinn mannafla sem þau hafa hreinlega ekki efni á. Hins vegar er ég sannfærður um það að nábýli sérverslana og stórverslana efli og bæti rekstur hverra um sig. — Eru margar skóverslanir á Austurlandi? Krummafótur er eina sérversl- unin með skó á Austurlandi — en auðvitað eru skódeildir í öllum kaupfélögum og öðrum stórversl- unum. Markaðssvæði okkar er því mun stærra en ætla má — eða allt frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. — Og hvernig skó selurðu svo Austfírðingum? Auðvitað góða skó; skó sem hæfa hverju sinni. Hér geturðu fengið íþróttaskó, öryggisskó, spariskó og allt þar á milli. Auk þess höfum við á boðstólum tösk- ur, hanska, belti og því um líkt; allt í stíl. — Og þú ert bjartsýnn á við- gang skóverslunarinnar á Austur- landi? Já, við þurfum skó eins og aðrir landsmenn og meðan byggð dafn- ar hér dafnar skóverslunin. Ég hef ástæðu til að vera bjartsýnn. Ég keypti þessa skóverslun fyrir tæp- um sex mánuðum og á þeim tima hefur verslunin aukist verulega — og í dag erum við að flytja í nýtt og rúmbetra húsnæði að Lyngási 1 — þar sem við verðum til húsa ásamt úra- og skartgripaverslun- inni Birtu sf. Og það er raunar framtíðarsýn okkar sem rekum sérverslanir hér á Egilsstöðum að koma upp sameiginlegri verslun- armiðstöð. Þannig getum við stórbætt þjónustuna við fólkið og þar með tryggt blómlega verslun. Ólafur Ástriður Magnússon, skókaupmaður, isamt dóttur sinni, Sig- ríði, sem er verslunarstjóri Krummafótar. Úr nýrri verslun Krummafótar og Birtu sf. að Lyngisi 1. Morgunblaðið/Ölafur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.