Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 5 Ágúst Petersen listmáUri. Listmunahúsið: Morgunblaðið/ól.K.M. Myndefnið sæki ég mest úr náttúrunni — segir Ágúst Pedersen listmálari sem opnar málverkasýningu í dag LISTMÁLARINN Ágúst Petersen opnar í dag málverkasýningu í List- munahúsinu við Lækjargötu undir nafninu „Tilraun með tilgerðar- leysi“. Ágúst, sem hefur haldið fjölda einkasýniga bæði hér á landi og erlendis auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, stund- aði nám hjá Birni Björnssyni á árun- um 1930 til 1931. Síðar var hann við nám í Myndlistaskólanum í Reykja- vík frá árunum 1946 til 1953 og haföi sem aðalkennara Þorvald Skúlason listmálara. Árið 1955 fór Ágúst í námsferð til Frakklands og Bret- lands. Ágúst sýnir að þessu sinni 54 olíumálverk, sem flest eru ný auk nokkurra eldri verka sem þó aldrei hafa verið sýnd áður. „Myndefnið sæki ég mest úr náttúrunni og til mannsins," sagði Ágúst „Ætli það sé ekki sjávarsíðan sem sækir sterkast á mig, enda þekki ég hana best því ég er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og sæki mynd- efni í myndir mínar frá þeim tíma enn í dag. Það er vegna áhrifa, sem virkuðu þá sterkt á mig og þó langt sé um liðið koma þau alltaf við og við upp í hugann og þá reyni ég að festa þau á léref tið.“ - Hvað hefur helst áhrif á list- sköpun þína ? „Sterk upplifun frá einhverju í umhverfinu, það er mergur máls- ins. Ást og skilningur á málverki, það er hægt að ná furðu langt á tilfinningunni en skynsemin verð- ur að vera með til að hægt sé að mála.“ - Leitar þú fyrirmyndar hjá öðrum málurum ? „Nei, ég held mig við mitt og rækta minn garð. Reyni að vera ég sjálfur. Ég hef gaman af að skoða verk gömlu meistaranna en ég verð ekki fyrir neinum ákveðnum áhrif- um frá þeim, nema þá helst frá Munk, sem heillar mig mest. Munk með alla sína sálfræði, sem er nauðsynleg til að geta náð fram réttum karakter í því sem verið er að fást við, en þú sérð engann dæmigerðann Munk hér hjá mér.“ - Þú notar talsvert föla pastel- liti í myndum þínum. „Já, það er satt en það er ekki meðvitað. Pastel áhrifin verða til eftir því hvert viðfangsefnið er og ég er afar ánægður með það. Svo má ekki gleyma að pastel áferð tengist oft lýrik, sem ekki er verra.“ - Ert þú alltaf að mála ? „Já þannig líður mér best. Alltaf að berjast við að koma einhverju frá mér, sem tekst ekki alltaf en takist það þá er mikil gleði. Eg reyni að halda mínu striki. Reyni að gera betur og betur og leitast við að hafa fjölbreytni í myndun- um. Málari sem sýnir fjölbreytni í verkum sínum er alltaf í framför, vinnur á og er stöðugt að þróast sem listamaður. Það hefur verið sagt um mig að ég sé ákaflega persónulegur málari og það þykir mér vænt um að heyra," sagði Ágúst Petersen að lokum. Sýning Ágústs er opin alla virka daga frá kl. 10:00 til 18:00. Laugar- daga og sunnudaga frá kl. 14:00 til 18:00. Lokað mánudaga. Sýning- unni lýkur 3. nóvember. Listasafn íslands: UiOUIOtUll lk91llllU>9« Sýning á öllum verkum Kjarvals í eigu safnsins LISTASAFN Islands minnist aldar- sem iafnframt er mikil heimild áverpsorð og Selma Jónsdótt LISTASAFN Islands minnist aldar- afmælis Jóhannesar Sveinssonar Kjarval með sýningu á 132 verkum og eru það öll þau verk, sem safniö á eftir hann. Meðal verka á sýning- unni eru tvö olíumálverk, sem Eyrún Guðmundsdóttir, ekkja Jóns Þorsteinssonar, færði safninu að gjöf á afmæisdegi Kjarvals s.l. þriðjudag. Þá hefur safnið látið gera bók með Ijósmyndum af verk- unum á sýningunni og upplýsingum um tilurð listaverkana og með hvaða hætti þau bárust safninu. „Þetta er í fyrsta sinn, sem Listasafn Islands lætur gera bók, sem jafnframt er mikil heimild um verk í eigu safnsins," sagði Selma Jónsdóttir listfræðingur og forstöðumaður safnsins. I bókinni sem jafnframt er sýnig- arskrá er ýtarleg skrá yfir ævi- feril Kjarvals, einkasýningar sem hann hélt og samsýningar sem hann tók þátt í auk þess skrá yfir tímaritsgreinar og bækur, sem skrifðar hafa verið um hann. Getið er um rit eftir Kjarval og helstu söfn hér á landi og erlendis sem eiga verk eftir hann. Menntamálaráðherra Sverrir Hermannsson ritar áverpsorð og Selma Jónsdóttir skrifar formála. Af þeim 132 verkum sem eru á sýningunni eru 58 teikningar og vatnslitamyndir. Þá eru á sýn- ingunni allar andlitsmyndir Kjarvals af austfirðingum sem einungis hafa verið sýndar einu sinni áður í heild sinni, árið 1972 í Kjarvalshúsi á Seltjarnarnesi. I tilefni sýningarinnar verður gefið út plakat með einni af andlistmyndunum. Sýningin sem opnar i dag verður opin fra '14:00 til 22:00 öll kvöld fyrsta hálfa mánuðinn. MorKunblaöiö/Júlíus Selma Jónsdóttir forstöóumadur Listasafns íslands, Bera Nordal safnvörður, Jóhannes Jóhannesson listmálari, Guðmundur Benediktsson myndhöggvari og Karla Kristjánsdóttir deildarstjóri við aðra myndina af tveimur sem safninu barst að gjöf á afmælisdegi Kjarvals. SYNING 17 i dag, 19. okt. frá kl. 10—1' GJörið svo vel og lítið inn Við sýnum eldhúsinnréttingar, innihurðir, fataskápa, viðarþiljur eða allt í íbúðina eða húsið. Notum eingöngu 1. flokks hráefni. Fagmenn með 20 ára reynslu verða á staðnum. Miele Nú bjóðum við einnig hin vönduðu vestur-þýsku JPinnréttingar Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 -31113 eldhústæki. Keramikheiluborð blástursofna, ör- bylgjuofna, viftur, stjórnborð, upp- þvottavélar. Samræmt útlit. Við mælum með Míele Annað er málamiðlun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.