Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
Ljósm/Morgunblaðið
Boeing 737 þotn yfir Reykjavík. Samskonar þota er nýkomin úr mikilli skoðun í Belgíu og voru hreyflarnir kannaðir
sérstaklega.
Hreyflar Arnarflugsþotu
skoðaðir sérstaklega
í dag lýkur C skoðun á Boeing 737
þotu Arnarflugs. Skoðunin, sem hef-
ur tekið tvaer vikur, fór fram hjá
belgíska flugfélaginu Sabena í
Logsuðu
vír á
stál og
messing
SILFURSLAGLÓÐ
EIRSLAGLÓÐ
LÓÐTIN
EIR í PLÖTUM
MESSING I PLÖTUM
EIRRÖR í RÚLLUM
MESSING í STÖNGUM
Legu-
kopar
SJÁLFSMYRJANDI
BRONSLEGUR
MALLORY-EIR FYRIR
PUNKTSUDUVÉLAR
MESSING-VÍRNET
Ryðfrítt
stál í
stöngum
MESSING-
UNDIRLEGGSÞYNNUR
SILFURSTÁL
í STÖNGUM
GORM AST ÁLVÍR
G. J. FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagðtu 63 - Reykjavfk
Slmi 18560
Brussel. Arnarfiugsþotan er búin
svipuðum hreyflum og þotur sem
hafa farist f Manchester á Englandi
og í MilWau kee í Bandaríkjunum.
Bæði þessi slys má rekja til galla í
r hreyflum. f hreyflum Arnarflugsþot-
' unnar var skipt um sömu hluti og
ollu áðurnefndum slysum.
Hreyflar Arnarflugsþotunnar
eru af gerðinni Pratt & Whitney
JT8D gerð 9 en í kjölfar slysanna
var krafist rannsóknar á hreyfil-
gerðum 15—17. Það eru öflugri
hreyflar og knýja t.d. stærri
Boeing þotu Flugleiða. Flugleið-
amenn hafa þegar látið kanna
hreyfla sinnar þotu og fannst ekk-
ert athugavert við þá skoðun. f lok
september gaí Flugmálastjórn
Bandaríkjanna og Pratt & Whitn-
ey verksmiðjurnar lofthæfnisfyr-
irmæli (Airworthiness Directives)
þar sem farið er fram á að eigend-
ur flugvéla með þessa hreyflateg-
und láti sérstaklega skoða bruna-
hólf hreyflanna.
f brunahólfi þotuhreyfils bland-
ast loft og eldsneyti og er kveikt í
blöndunni með rafneista. Hreyfill-
inn tekur loftið inn að framan-
verðu en eldsneytið kemur inn í
hann gegnum svonefndar bruna-
könnur. Það voru einmitt svona
brunakönnur sem sprungu og
orsökuðu þau tvö flugslys sem áð-
ur voru nefnd. Flugmálastjórn
Bandaríkjanna hefur farið ofan í
saumanan á viðhaldsskýrslum
JT8D hreyfla og telur margar bil-
anir í brunahólfum vera meira en
næga ástæðu til að skoða hreyfil-
tegundina sérstaklega. Alls eru
notaðar 30 mismunandi gerðir af
brunakönnun í þessari hreyflateg-
und.
Lárus Atlason tæknistjóri Arn-
arflugs sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að Arnarflug hefði látið
skipta um allar brunakönnurnar í
hreyflum sinnar þotu um leið og
skoðunin fór fram í Brussel.
„Þetta er varúðarráðstöfun sem
gerð var í ljósi þeirra flugslysa
sem hafa orðið undanfarið og má
rekja til galla i þessari tegund
hreyfla." Lárus sagði að á þessu
stigi væri ekkert hægt að fullyrða,
að gallaðir hlutir hefðu verið í
hreyflum Arnarflugsþotunnar en
sagði jafnframt að t.d. bruna-
könnurnar yrðu yfirfarnar nánar
og endurbyggðar á viðhaldsverk-
stæði Sabena flugfélagsins.
Arnarflugsþotan, TF VLT hefur
tæpa 40 þúsund flugtíma að baki
og álíka margar lendingar því hún
var aðallega notuð á tiltölulega
stuttum flugleiðum áður en hún
komst í eigu Arnarflugs.
„Við hefðum gjarnan viljað að
þessi stóra skoðun hefði farið
fram hér á landi, en vegna anna
hjá viðhaldsdeild Flugleiða var
ekki unnt að koma því við. Það
hefur sýnt sig að íslenskir flug-
virkjar eru fullfærir um svona
stórverkefni jafnvel þó að aðstað-
an sé ekki upp á marga fiska,"
sagði Lárus Atlason.
^?^NDU"
^og selium verS°.*"
)lutafélogum a Kaupver8
nafnverös
Kaupverö
m.v. lOOkr.
nafnverös
Leikfanga-grís
Jæja, héma kemur þá uppskrif
Af eigin reynslu veit ég að þetta h<
um, bæði til að sofa með og eins
kem nánar inn á það á eftir.
Stærðinni ráðið þið sjálf, en
þægileg lengd er um 45 senti-
metrar og ummál andlits á stærð
við undirskál.
Það má nota allskonar efni, svo
sem einlitt, rósótt eða röndótt
bómullarefni, vatteruð (stungin)
efni ýmiskonar, og síðast en ekki
sízt pluss eða loð efni allskonar
sem mikið er til af núna í flestum
vefnaðarvörubúðum. Nú svo má
hafa andlitið úr bleiku filtefni
eða einlitu lérefti, en þá er betra
að strauja gróft flíselín aftan á.
Sem sagt, möguleikarnir eru
heilmargir, það er ykkar að velja.
En svona byrjum við:
Klippið tvö hringlaga stykki,
til dæmis undan undirskál.
Mælið ummál hringsins og klipp-
ið efnið svo það nái utan um
hringinn og hafið tvo sentimetra
að auki til að sauma saman, og
lengdina getið þið haft 45 senti-
metra eða eftir smekk.
Svo byrjum við á andlitinu.
Þar þarf að sjálfsögðu nef, augu
og munn. Þetta má búa til úr
afgöngum úr einlitu efni eða filti.
En ennþá skemmtilegra er að
hafa „alvöru" trýni og augu. í
tómstundabúðinni Litum og
föndri á Skólavörðustíg fæst
þetta hvort tveggja og kostar
lítið. Fæst efalaust einnig í fleiri
tómstundabúðum. Trýnin eru úr
plasti og augun sömuleiðis í ótal
stærðum og gerðum. Eyrun eru
gerð úr tvöföldu efni, einlit eða
úr sama efni og búkurinn, og
þrædd á „höfuðið“.
in sem ég lofaði í síðustu Dyngju.
fur orðið vinsælt leikfang hjá börn-
:il gagns sem geymslustaður, en ég
Þegar andlitið er búið þarf að
ganga frá afturendanum, og
innan á hann er einnig straujað
flíselín. Saumið mjóa skásniðna
ræmu, snúið henni við og þið
hafið „rófu“, sem fest er á aftur-
endann. Þá er það búkurinn.
Saumið efnið saman á langveg-
inn frá báðum hliðum, en skiljið
eftir op í miðjunni. Snúið á röng-
una og saumið höfuð og aftur-
enda á. Vendið aftur og fyllið
með púðafyllingarefni eða
svampkurli, gangið frá opinu.
Útbúið höldu til að hafa ofan á.
Úr þessu verður skemmtilegur
leikfangagrís. En svo er auðvelt
að gera annað. í stað þess að
loka saumfarinu að neðan má
láta þar á rennilás, annaðhvort
venjulegan eða svokallaðan
franskan rennilás (rennilásalím-
band). Grísinn er þá ekki fylltur
með neinu, en þess í stað er betra
að strauja einnig gróft flíselín
innan á efnið í búknum. Grísinn
getur þá verið eins og taska til
að hafa lítil leikföng í, eða og það
gerir mikla lukku, að nota grís-
inn undir náttfötin og hengja
hann upp á snaga rétt hjá rúm-
inu. Eins og þið sjáið er um
marga möguleika að ræða. Byrjið
bara, og ef það er eitthvað sem
vefst fyrir ykkur þá skrifið þig
bara til Dyngjunnar og ég reyni
að leysa málið. Gangið ykkur
vel. Með kveðju,
Jórunn.
Y tri-Akraneshrepp-
ur hundrað ára
Akrmnetá, 17. oklAbef.
UM ÞESSAR mundir eru liðin 100 ár
frá því Innri-Akraneshreppur varð
sjilfstætt sveitarfélag. Hreppsbúar
munu minnast þessara tímamóta á
margvíslegan hátt. Sérstök afmælis-
nefnd hefur starfað að undanförnu, og
mnn hún efna til afmælisfagnaðar í
félagsheimili hreppsins, Miðgarði,
sunnudaginn 3. nóvember næstkom-
andi.
Á dagskránni verður auk kaffi-
samsætis, rakin saga hreppsins í
stuttu máli og Jón Báröarson, fyrr-
verandi skólameistari, rekur minnis-
stæða viðburði í hreppnum frá fyrri
timum. Einnig verður til skemmtun-
ar söngur og kvæðalestur.
Á næsta ári er síðan fyrirhugað að
gefa út ritverk í tilefni aldarafmæl-
isins og mun saga hreppsins verða
þar rakin í stórum dráttum og ýmsir
núverandi og fyrrverandi hreppsbú-
ar rita minningar sínar frá fyrri tíð.
Áfmælisnefndin er skipuð eftirtöld-
um mönnum; Anton Ottesen, oddviti
Ytra-Hólmi, Ragnheiður Guðmunds-
dóttir, Ásfelli, og Fanney Sigur-
geirsdóttir, Völlum. Nefndin væntir
þess, að sem flestir af núverandi og
fyrrverandi íbúum hreppsins, sjái
sér fært að mæta til afmælisfagnað-
arins í Miðgarði sunnudaginn 3. nóv-
ember næstkomandi klukkan 14.30.
JG.