Morgunblaðið - 19.10.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
17
Haustmót TR:
Síðasta umferðin réð úrslitum
GUÐMIJNDUR Halldórsson, 26 ára
gamall vióskiptafrKÓingur, sigraði á
Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur,
sem lauk á miðvikudagskvöldið.
Guðmundur hiaut 8 vinninga af 11
mögulegum, hálfum vinningi á und-
an næstu mönnum, þeim Davíð
Ólafssyni og Andra Áss Grétarssyni.
Þrátt fyrir sigurinn verður Guð-
mundur þó ekki „Skákmeistari Tafl-
félags Reykjavíkur", því hann er fé-
lagi í Taflfélagi Seltjarnarness og
skv. lögum TR geta utanfélagsmenn
ekki borið þetta sæmdarheiti. Guð-
mundur fær þó að sjálfsögðu 1. verð-
launin, en þeir Andri og Davíð verða
að tefla einvígi um titilinn.
Það leit ekki út fyrir sigur Guð-
mundar þegar ein umferð var
ótefld á mótinu. Þá var Davíð efst-
ur með 7'k v., Andri hafði 7 v. og
biðskák þar sem hann hafði hrók
gegn hróki og biskupi Björgvins
Jónssonar. Guðmundur stóð verst
að vígi af þeim þremur með 7 v.
En í síðustu umferð snerust
heilladísirnar á sveif með honum.
Davíð tapaði illa fyrir Róbert
Guðmundur Halldórsson
Harðarsyni og þar með var skák
Guðmundar og Andra orðin hrein
úrslitaskák. Andra nægði tafltefli,
en mikil uppskipti í miðtaflinu
reyndust Guðmundi hagstæð og
hann vann skákina örugglega.
Það voru skákmenn á aldrinum
13—26 ára sem réðu lögum og lof-
um í öllum flokkum á Haustmót-
inu. Eldri og reyndari skákmenn
voru fáir á mótinu og er það mið-
ur, því unglingarnir geta margt af
hinum eldri lært, þó þeir komist
langt á sigurviljanum og utanbók-
arlærdómnum.
Úrslit á Haustmótinu voru
þessi:
A-flokkur
1. Guðmundur Halldórsson 8 v.
2. -3. Andri Áss Grétarsson og
Davíð ólafsson 7'/2 v.
4. Róbert Harðarson 7 v.
5. Björgvin Jónsson 6V2 v.
6.— 7.Árni Á. Árnason og
Benedikt Jónasson 5 '/2 v.
8. Pálmi Pétursson 4 'k v.
9. Þröstur Þórhallsson 4 v.
10.—11. Halldór G. Einarsson og
Jón G. Viðarsson 3'k v.
12. Lárus Jóhannesson 3 v.
p-flokkur
Tómas Björnsson 8 v. (43,0 stig)
2. Jóhannes Agústsson 8 v. (39,0
stig)
3. Jón Þ. Bergþórsson 7 v.
4. Jón Á. Halldórsson 6'/2 v.
C-flokkur
1. Hjalti Bjarnason 9‘á v.
2. Baldur Á. Kristinsson 7‘k v.
3. Bragi Björnsson 7 v.
4. Arnaldur Loftsson 6'k v.
D-flokkur
1. Gunnar Björnsson 9'k v.
2. Sigurður D. Sigfússon 8'Á v.
3. Hallgrímur Sigurðsson 7‘A v.
4. Þorlákur Magnússon 6 v.
E-flokkur
1. Kristófer Svavarsson 9 v.
2.-3. Eggert ísólfsson og Árni R.
Loftsson 8% v.
4.-5. Arnór V. Arnórsson og Sæ-
berg Sigurðsson 7'/2 v.
Unglingaflokkur
1. Hannes Hlífar Stefánsson S'k
v. af 9 mögulegum.
2. Þröstur Árnason 8 v.
3. Sigurður D. Sigfússon 6V2 v.
4. Sæberg Sigurðsson 6 v.
5. Andrés Kolbeinsson 5'k v.
Skákstjóri á Haustmótinu var
Árni Jakobsson.
Við skulum að lokum líta á úr-
slitaskákina úr síðustu umferð,
sem er nokkuð dæmigerð fyrir
stöðustíl sigurvegarans:
Hvítt: Guðmundur Halldórsson
Svart: Andri Áss Grétarsson
Kóngsindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 —
Bg7, 4. e4 — 0-0, 5. Rge2
Fáséð afbrigði, enda stendur
þessi riddari ekki sérlega vel á g3 í
framhaldinu.
5.— d6, 6. Rg3 — e5, 7. d5 — Rbd7,
8. Be2 - a6, 9. h4 - h5,10. Bg5 -
De8, 11. Dd2 - Rh7, 12. Bh6 -
Bxh6,13. Dxh6 - De7
Annar möguleiki var að leika
13. — Rdf6 og síðan Kh8 og Rg8.
14. Rfl — Df6, 15. Dd2 — Df4?!
Svarta drottningin á ekkert sér-
stakt erindi yfir á kóngsvænginn,
þar eð mótspilsmöguleikar svarts
liggja á hinum vængnum.
16. Re3 — Rhf6, 17. g3 — Dh6, 18.
OOO — Rc5, 19. f3 — Bd7, 20. Hdfl
— b5, 21. Rc2! — Dxd2+, 22. Kxd2
— b4?!
Það er skiljanlegt að svartur
vilji einfalda stöðuna, þar eð hon-
um nægði jafntefli, en hann hefur
ekki metið stöðuna rétt sem upp
kemur eftir uppskiptin. Betra var
því að halda spennunni með 22. —
Hfb8.
23. Rxb4 — llab8, 24. Rd3 — Rxd3,
25. Kxd3 — Hxb2, 26. Habl! —
Hfb8, 27. Hxb2 — Hxb2, 28. Hbl —
Hxbl, 29. Rxbl
Það munar miklu að vera kom-
inn með kónginn í leikinn í þessari
stöðu og það er hæpið að svartur
geti bjargað taflinu. Hvítur hefur
náð ótrúlega góðum .árangri, ein-
faldlega með því að skipta upp á
liði. Bezti möguleiki svarts núna
var að öllum líkindum 29. — c5, þó
eftir 30. dxc6 — Bxc6, 31. Kc3 —
a5, 32. Rd2 og næst 33. Rb3, hafði
hvítur mikla vinningsmöguleika.
— Be8, 30. Rd2 — Rd7, 31. Rb3 —
Rc5+, 32. Kc3 - Rxb3, 33. Kxb3 —
a5, 34. c5!
Vinningsleikurinn. Nú kemst
hvíti kóngurinn að svörtu peða-
veikleikunum.
— dxc5, 35. Kc4 — c6, 36. d6 —
Bd7, 37. Kxc5 — Kf8, 38. Ba6 —
Ke8, 39. Bb7 — f6, 40. Bxc6 - fxe4,
41. fxe4 og svartur gafst upp.
Langarþigíeí
íjúffengt?
Það erSmáMát!
SmáMál er gómsæt og hressandi
nýjung frá MS sem þú getur notíð við
stærstu sem minnstu tækifæri.
Hvort sem þú vílt SmáMál með
jarðarberjabragði eða vanillubragði "*?
þá er það ekkert stórmál.
SmáMál
-ljúffengasta málið í dag.
50ARA
i SmHMál
V / * ,meot* *. - *
\ jtimirlHMjnbnttföi *
AUK hf. 3 146