Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985 21 Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, tekur við fyrsta miðanum úr hendi Jónu Gróu Sigurðardóttur, formanns Verndar. Viðstaddir afhendinguna voru þeir Ottó Örn Pétursson og Sigurjón Kristjánsson úr framkvæmdastjórn Verndar. Landaparís — Happdrætti Vemdar: Forseti íslands keypti fyrsta miðann FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, keypti fyrsta miðann í happdrætti félagasamtakanna Verndar. Happdrstti þetta gengur undir nafninu Landa- parís og eru vinningar eitt hundrað. Vinningshafar geta sjálfir valið milli 9 ferða, utanlands og ínnan. Meginmarkmið Verndar er að aðstoða einstaklinga sem afplánað hafa fangelsisdóma og felst að- stoðin aðallega í endurhæfingu, sem er nauðsynleg þessum ein- staklingum þegar þeir snúa að ný inn í samfélag frjálsra manna, eins og segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. En til þess að slík endurhæfing geti farið fram þarf Vernd að geta boðið skjólstæðing- um sínum heimili og aðstoða þá við að fá vinnu. Markmið happ- drættisins er að afla fjár til rekst- urs og uppbyggingar slíks heimilis. Kvenréttindafélag íslands átti á sínum tíma frumkvæðið að því að Vernd var stofnað og eru flest kvenfélög í landinu í samtökunum. Um jólin 1959 hóf jólanefnd Verndar störf og er núverandi formaður Hanna Johannessen. Formaður Verndar er Jóna Gróa Sigurðardóttir, en varaformaður er Hrafn Pálsson. Jólakort Svalanna seld á Lækjartorgi JÓLKORT Svalanna er komið út en ein félagskvenna, Sigríður Gyða Sigurð- ardóttir, hefur hannað kortið. Félagskonur hyggjast selja jólakort sín á Lækjartorgi 7. og 14. desember síðdegis. Einnig verða kortin til sölu í versl- uninni Svörtu perlunni, Skólavörðusíg Svölurnar eru félag núverandi og fyrrverandi flugfreyja. Aðal- markmið félagsins er að afla fjár til styrktar þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu og er jólakorta- salan ein aðalfjáröflunarleið fé- lagsins. Á þessu ári munu Svölurn- ar nota allt söfnunarfé sitt til að styrkja fjölfötluð börn. í október sl. veittu Svölurnar fimm einstakl- I, og versluninni Ástund, Austurveri. ingum námsstyrki til framhalds- náms í kennslu og þjálfun fjölfatl- aðra barna. Nú liggja fyrir um- sóknir um styrki frá stofnunum sem annast fjölfötluð börn. Árang- ur jólakortasölunnar ræður því hversu myndarlega verður hægt að afgreiða þessa umsóknir. Fréttatilkynning STÓRSÝNING Hvorki fleiri né færri en 17 lands- þekktir skemmtikraftar fara á kost um af einskærri Sumargleði Sumargleöin hefur aldrei veriö frískari, fjörugri, fjölbreyttari eöa betri. Þaö veröur urrandi stemmning og dúndrandi stuö í 15 ára afmælisveislu Sumar- gleöinnar föstudag og laugardag. Þúsundir ánægðra gesta eru okkar besta auglýsing. Fögnum 15 ára f jöri Sumargleðinnar og f jölmennum á Broadway. Pantiö miða í tíma í síma 77500 þar sem uppselt hefur verið undanfarnar helgar. Matseðill Sjávarréttatríó Kryddlepn lambaroaststeik ís meó jarðarberjum og rjóma Flutt i Brautcarholt 3 (MJÖLNISHOLT 14) Sýnum 86 línuna í innréttingum frá ^ INVFTA í nýju húsnæöi ELDASKÁLINN Nóatún BRAUTARHOLTI 3 • NÝTT SÍMANUMER: 621420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.