Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985 39 Gerda Stefánsson Akureyri - Minning Fædd 24. júlí 1906 Dáin 9. nóvember 1985 Heimskonan, sem í hálfa öld hefur sett aðlaðandi svip á bæjar- lífið á Akureyri, auðgað þar menn- inguna og verið fyrirmynd annarra í góðum mannlegum samskiptum, hefur nú kvatt þennan heim, fjarri fæðingarstað sínum en í faðmi fjölskyldunnar er hún stofnaði. Óðalsbóndahjónunum Susanne Constance og Ole Peter Olsen á Lálandi 'i Danmörku varð sex barna auðið. Hið fjórða þeirra fæddist 24. júlí 1906 og hlaut nafn- ið Gerda Christine. Gerda ólst upp við gott atlæti og fékk að nema það sem ungum stúlkum frá efnaheimilum þótti fyrir bestu á þeim tíma. Hún ferð- aðist auk þess suður í álfuna og kynntist siðum og menningu hjá öðrum þjóðum. Það var þó úr nyrsta horni Evrópu sem mannsefni hennar kom, en hún gekk að eiga Jón Stefánsson ritstjóra og forstjóra Áfengisútsölunnar á Akureyri sumarið 1932. Voru þau gift í Danmörku og Gerda auðvitað sumarbrúður. Þetta sama ár hófu þau búskap á Akureyri, en vegna fjölmargra áhugamála Jóns voru þau dálítið á ferð fram að tíma heimsstyrjald- arinnar siðari, eins og sjá má á fæðingarstöðum barna þeirra, en þau eru þrjú talsins. Fyrstur kom Stefán, en hann fæddist 2. mars 1932 í Hróars- keldu. Hann er kvæntur Magneu Kristjánsdóttur og börnin þeirra heita Jón, Kristján og Anna Gerða. Næstur kom Sveinn óli, en hann sá dagsins ljós á Akureyri 10. nóv- ember 1935. Hans eiginkona og bernskufélagi er Anna Lilja Kvar- an og þeirra dóttir Anna Katrín 14 ára. Allt er þegar þrennt er og Gerða Ásrún fæddist í Hróarskeldu 8. desember 1936. Hennar maki er ólafur Jóhannesson og eru þau barnlaus. Þrátt fyrir vá styrjaldarinnar var framtíð þeirra hjóna björt og blessað þeirra barnalán. Bregða tók þó birtu um sinn er Jón féll frál.júní 1945. Ekkjan unga í Brekkugötu 12 tók örlögum sinum og barnanna af slfkri festu og æðruleysi að aðdáun vakti. Hennar styrki og agaði persónuleiki skein í gegnum allar hennar gjörðir, er hún tók við hlutverki Jóns heitins sem föður og starfsmanns áfengisverslunar- innar. Er það á allra vitorði að sjaldan hafi nokkur börn fengið betri foreldra i einni manneskju, enda spegla þau öll hina vönduðu gerð móður sinnar. Fer þar fremst háttvísi, tillitssemi, góð greind, listfengi, náungakærleikur og ómælt en græskulaus kimnigáfa. Gerda Stefánsson var höfðingi heim að sækja eins og hún átti kyn til. Alúðlegt viðmót hennar og matargerðarlist urðu til þess að vinir og kunningjar hennar og barnanna fóru ógjarnan hjá garði, þegar leiðin lá til Akureyrar. Þeir sem voru í bænum um tima eða innfæddir gátu sótt til Gerdu góða bók og hljómplötu að láni, er svo bar undir. Einnig voru þess dæmi, að lánaður væri plötustafli, hljóm- flutningstæki og útvarp, þegar út- erinná lang heimili landsins! sölustjórinn brá sér til Reykjavík- ur um skeið, eins og Gerda varð að gera, þegar Akureyringar lok- uðu áfengisútsölunni á sjötta ára- tugnum. Þá stundaði Gerda störf sem sjúkraþjálfari í höfuðborginni á meðan, en slíka kunnáttu átti hún í fórum sínum frá ungdómsár- unum heima í Danmörku. Ekki undu Akureyringar lengi við útsöluleysið og brátt var Gerda komin aftur á sinn stað í verslun- ina og Brekkugötuna. En hratt flýgur tíminn og 10 ár eru liðin siðan komið var í Brekkugötuna og farið á héraðsmót í Sjallann á eftir. Fimm ár eru liðin síðan Gerda fór með Sveini óla og fjöl- skyldu á milli flugvalla í bíl ritar- ans á leið til Ohio, þar sem Stefán og hans fjölskylda hefur búið um árabil. Ótrúlegast er samt að tvö ár séu liðin síðan komið var við í Ási í Hveragerði, en þangað flutt- ist Gerda af heilsufarsástæðum 1982. Þegar svo heilsu hennar hrakaði enn meira hlaut hún umönnun hjá kærri dóttur sinni Ásu, sem reyndar er hjúkrunar- fræðingur að mennt. Gerda Stefánsson lauk lífi sínu á sjúkrahúsi hér í Reykjavík 9. nóvember sl. eftir lofsvert ævi- starf. Fjölmargra maklegra hluta er ekki getið í þessari stuttu kveðju, en erfitt verður fyrir marga að sætta sig við burtkall jafn ágætrar móður, manneskju og vinar. Lög- heimili Gerdu Stefánsson stendur ennþá í skýrslum hins opinbera í Brekkugötu 12 og nafnið hennar er ennþá í símaskránni þó hún hafi kvatt. Akureyri hefur misst mikið, svo hafa allir sem nutu þess að kynn- ast Gerdu Stefánsson. Hún fluttist úr veðursældinni á Lálandi norður undir íshaf og gaf sig íslandi. Landið sá sóma sinn í að launa henni með góðu veðri þetta síðasta æviár hennar. Megi birta og ylur umlykja hana á nýjum slóðum. Það er kominn tími til að þessi sóma- kona sem alltaf var gefandi, fái að vera þiggjandi um síðir. Við kveðjum Gerdu Stefánsson í þökk ogvirðingu. Hrafn Pálsson NÝJUNG FRÁ IBM: ffiM SYSTEM/36 PC Bilið milli IBM PC og SYSTEM/36 hefur verið brúað System/36 PC er nýjasta og minnsta tilbrigðið af S/36 tölvu. Hún nýtur aðstoðar PC einkatölvu við ýmsar kerfisaðgerðir. Nýja tölvan er kjörin fyrir þá sem þarfnast fjölhæfni og hugbúnaðar S/36 en telja stærri S/36 tölvu sér ofviða. Fjárfestingin í hugbúnaði og menntun starfsfólks nýtist að fullu þótt stóraukin umsvif krefjist stærri S/36 tölvu síðar meir. Verð sem flestir ráða við: IBM SYSTEM/36 (256K, 40MB, stjórnkerfi) ásamt IBM PC (256K, 2 x360KB, DOS 3.1) ásamt IBM PROPRINTER (200 cps) samtals kr. 487.000- Greiðslumöguleikar: Margvísleg greiðslukjör eru í boði. M.a. 3ja ára kaupleiga á vélbúnaðinum. Við hana er hægt að nota jöfnum höndum tæki úr SYSTEM/36 fjölskyldunni eða IBM PC búnað. Þú getur valið úr hundruðum hug- búnaðarkerfa sem til eru fyrir IBM SYSTEM/36. SYSTEM/36 getur tengst öðrum tölvum, stórum og smáum. Hundruð IBM PC hugbúnaðarpakka standa þér til boða. Seguldiskar rúma 40 MB eða 80 MB. SYSTEM/36 PC getur stjórnað jaðartækjum með beinni tengingu eða um fjarvinnslubúnað. SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 27700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.