Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
37
Goðsögnin gengur aftur
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLINN: VÍGAMAÐURINN -
PALERII)ER**'/2
Leikstjóri og framleiðandi Clint
Eastwood. Handrit Michael Butler og
Dennis Shryacks. Kvikmyndataka
Bruce Surtees. Tónlist Lennie Nie-
haus. Aðalhlutverk Clint Eastwood,
Michael Moriarty, Carrie Snodgress,
Christlopher Penn, Richard Dysart,
Sydney Penney, Richard Kiel, John
Russeí. Bandarísk, frá Warner Bros.
Frumsýnd 1985,115 mín.
Kjarkmaður er Eastwood. Eftir
að enginn hafði þorað að segja svo
mikið sem w um árabil vestur í
Hollywood (eftir Heaven’s Gate
ófarirnar), dustaði gamli kúrekinn
rykið af reiðtygjunum, tók hnakk
sinn og hest, hélt til fjalla og byrjaði
á fyrsta vestranum sem gerður
hefur verið í fimm ár. Kasdan fylgdi
fast í kjölfarið með Silverado.
Leikstjórinn Eastwood hefur
kosið að fara hina sígildu leið í
myndsköpuninni. Vígamaðurinn,
sem minnir talsvert á High Plains
Drifter, kemur kunnuglega fyrir
sjónir. Ung stúlka biður Guð um
kraftaverk þar sem hún stendur
yfir gröf hundsins síns sem var
drepinn í árás á gullgrafarabúðirn-
ar sem hún býr í. Var hún gerð að
undirlagi nágranna þeirra, LaHood
(Dysart), sem er að reyna að sölsa
undir sig álitlegt landsvæði hinna
efnalitlu blikkpönnugullgrafara.
Clintwood á þeim gráa I Vígmanninum.
Kraftaverkið gerist i ímynd
„Prestsins" (Eastwood), sem
skyndilega birtist í búðunum. Hann
útrýmir illþýðinu, hverju á fætur
öðru og ríður síðan á braut þegar
friður ríkir og réttlætinu hefur
verið fullnægt.
Á þessum síðustu og verstu tím-
um vestraformsins, hefur Eastwood
gripið til sterkasta afréttarans sem
hann þekkir, nafnlausa mannsins.
ímynd frelsarans, dauðans, aftur-
genginn eður ei, er honum manna
best treystandi til að vekja það til
lifsins á ný. Hér gerist hann rétt
einu sinni bjargvættur lítilmagnans
í vonlausri baráttu við slæmu karl-
ana. Og Eastwood er á heimleið
enda gengur myndin prýðilega upp
þó frumleikann skorti. Vígmaðurinn
er velþegin afturkoma vestrans og
er gerð af umhyggju og virðingu
fyrir sögulegri hefð þessa mynda-
forms sem naut svo mikillar hylli í
gengum tíðina.
Þó svo að Eastwood taki enga
stóráhættu og reyndar megi finna
klúðurslega hluti á dreif, þá er Víga-
maðurinn svipsterk og aðsópsmikil
mynd. Kvikmyndatökumaðurinn er
enginn annar en Bruce Surtees, sem
tók bestu vestra Eastwood, og
reyndar annarra, um langt skeið
(The Outlaw Josey Wales). Á hann
heiður skilinn fyrir mikilúðlegan
svip myndarinnar. Upphafsatriðið,
árás reiðmannanna á búðirnar, er
t.d. með afbrigðum kraftmikið og
vel tekið. Þá hefur Eastwood dustað
rykið af tveimur, sjaldséðum ágæt-
isleikurum, Michael Moriarty og
Snodgress. En það skyggir enginn á
Eastwood í hlutverki þess nafnlausa
í góðum vestra. Því Stetsoninn er
hans kóróna, marghleypan veldis-
sproti og víðáttan konungdæmið.
Ein úr geymslunni
Kvikmyndlr
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn: Engin miskunn *,/i
Handrit og leikstjórn Charles Martin.
Tónlist Morton Stevens. Aðalhlutverk
Jack Palance, Christopher Mitchum,
Pamela Shoof, Angel "’ompkins, Joe
Spinell. Bandarísk, frumsýnd 1978.
Gerð af CalAm production, dreifing
Manson Int.
Eina nýlunda við þessa sýningu
er að myndin er komin talsvert til
ára sinna, orðin sjö ára gömul og
er því vonandi sigurstranglegur
keppandi um aldurforsetatiti!
mynda í ár. Annars væri forvitni-
legt að vita hvers vegna Engin mis-
kunn var á annað borð tekin til sýn-
inga, hún hefur nefnilega sárafátt
til síns ágætis.
John Wade (Jack Palance), liðs-
foringi f lögregluliði Los Angeles-
borgar, er orðinn langþreyttur á
getuleysi og iinkind dómsvaldsins
að koma úrhrökum borgarinnar bak
við lás og slá. Fer þetta að lokum
svo fyrir brjóstið á karli að hann
tekur að slátra hyskinu með eigin
hendi jafnóðum og hann stendur
það að verki. Inní söguþráðinn
blandast náttúrlega hið ómissandi
ástarsamband. Wade býr með hinni
lögulegustu stúlkukind. Hún sættir
sig að vonum ekki við stórkarlalegar
útrýmingaraðferðir löggunnar
sinnar. Gallinn er hinsvegar sá að
eftir útlitinu að dæma gæti Wade
öllu frekar verið afi hennar en ást-
maður.
Engin miskunn er gerð '78, í kjöl-
far margra stórgóðra lögreglu-
mynda. Þá hafa framleiðendurnir
Jack Palance er orðinn heldur gam-
all til ad taka að sér hlutverk ofur-
mennis.
eygt einhvern markað fyrir þessa
hversdagslegu B-útgáfu. En í dag
fá menn mun betri skemmtun útúr
því að horfa á Hill Street Blues, jafn-
vel Derrick, í sjónvarpinu.
- þaö er deginum Ijósara
GENERAL ELECTRIC COMPANY I BRETLANDI, einn stærsti
framleiöandi Ijósa og Ijósabúnaöar í heiminum, hefur lýst leiðina
allt frá því aö rafljósiö var fundið upp. Framleiösla GEC veitir
birtu yfir líf fólks um víöa veröld. Par á meðal eru EXTRALITE
HEIMILISPERURNAR MEÐ TVÍVÖFÐUM GLÓÐARÞRÆÐI.
SEM GEFUR MEIRI BIRTU. AUK PESS STERKAR OG END-
INGARGÚÐAR
EXTRALITE HEIMILISPERURNAR FRÁ GEC eru til I öllum
stæröum. 25W í bleikum pökkum, 40W f fjólubláum, 60W (
grænum, 75W f rauðum og 100W f bláum pökkum.
EXTRALITE PERURNAR FRÁ GEC
eru sérhannaöar til heimilisnota.
SEGULL HF.
Eyjaslóð 7, Reykjavík
◄ Gel
Eitt það ódýrasta og besta
á markaðnum. Heldur
hárinu stífu, en greiðist vel
úr. Ilmar vel.
Hárlakk ►
Gerir hárið miklu stifara
en þú átt að venjast og
hentar því sérlega vel fyrir
íslenskaveðráttu. Greiðist
ótrúlega vel úr. Má
auðveldlega nota með geli.
Hárkvoða m/llt
<4 (6 litir)
Fyrir fólk með hugmynda-
flug! Gefur hárinu einstak-
lega fallegan gljáa og
litblæ. Þvæst auðveldlega
úr. Má nota bæði ( blautt
hár og þurrt. Ódýrt - og
dugir f 10 skipti.
LLitategundir
IMAHOGNI
• KASTANIE
• PALISANDER
•BRÚNN
• SILFUR
• LJÓST (BLOND)
voða
lltar
Fyrir þö sem þekkja
frábæra eiginleika High
Hair hárkvoðunnar, en
vilja halda einkennum
eigin háralitar.
jensvuNU**
. Mair vörunu^
S ó»i
opnast Þf pj götur
i hárgre'ös,u-. , geii. sex
um K®r ^ j hártroðo
mismunanó lrtauðveidlega
hú skolar i.|/j Sist
sem Pu ,. -t en eKK _
siðasi ° „em
Heildsölubirgðir: Halldór Jónssort hf. Dugguvogi 8-1Ó, 104 Reykjavík simi:686066