Morgunblaðið - 19.11.1985, Page 27

Morgunblaðið - 19.11.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985 27 tiæli lands gilda ákvörðun með níu samhljóða atkvæðum. Þess ber að gæta að ákvörðun nær ekki fram að ganga ef einhver hinna föstu fulltrúa greiðir atkvæði gegn henni, þ.e. beitir neitunarvaldi. Þess má einn- ig geta, að á tímabilinu 1946—1965 beittu Sovétríkin neitunarvaldi 103 sinnum en Bandaríkin aldrei, og á tímabilinu 1966—1977 beittu Sovétríkin því 7 sinnum en Banda- ríkin 21 sinni. Þrátt fyrir áhrif kalda stríðsins og breytingar á valdahlutföllum innan samtaka Sameinuðu þjóð- anna, hefur öryggisráðið og starf aðalritarans og annarra í nafni samtakanna minnkað spennu í heiminum og stuðlað að friðsam- legri lausn milliríkjadeilna. Nefna má mörg dæmi þessu til sönnunar. í Miðausturlöndum lauk fyrsta stríði milli ísraela og Arabaríkj- anna árið 1948 með vopnahléi að tilhlutan öryggisráðsins. Ári síðar gerðu ísrael og fjögur Arabaríki með sér vpnahlé fyrir milligöngu sáttasemjara Sameinuðu þjóð- anna. Síðan hafa friðargæslusveit- ir S.Þj. átt mikilvægu hlutverki að gegna í Miðausturlöndum. Ályktun öryggisráðsins nr. 242 frá 1967 felur í sér grundvallarfor- sendur fyrir réttlátum og varan- legum friði á þessu svæði og er enn undirstaða fyrir skipan mála í þessum heimshluta. Sameinuðu þjóðirnar komu á fót friðargæslusveitum á Kýpur árið 1964, til að stemma stigu við frek- ari átökum milli Kýpur-Grikkja og Kýpur-Tyrkja, halda uppi lög- um og reglu og koma samskiptum þjóðarbrotanna í eðlilegt horf. Eftir stríðíð 1974 milli tyrkneskra hersveita og þjóðvarðliðsins á Kýpur hafa gæslusveitirnar haft eftirlit með vopnahléinu og stund- að gæslustörf. Fulltrúar þjóðar- brotanna tveggja hafa ásamt aðal- ritara Sameinuðu þjóðanna leitast við að semja um varanlegan frið, en þeirri viðleitni hefur miðað skammt. I Kóreu höfðu Sameinuðu þjóð- irnar með höndum stjórn her- sveita og gripu til vopna. Að tillögu öryggisráðsins buðu 16 ríki fram liðsafla árið 1950, þegar N-Kórea var kærð fyrir árás á S-Kóreu. Erjur stóðu yfir allt til ársins 1953 þegar vopnahlé var gert. Samein- uðu þjóðirnar hafa æ síðan unnið að því að koma á friði í Kóreu. I Kongó óskaði ný stjórn lands- ins eftir hernaðaraðstoð frá Sam- einuðu þjóðunum árið 1960, eftir að landið varð sjálfstætt. Voru Sameinuðu þjóðirnar beðnar um að lægja öldur innanlands og að- stoða vegna brottfarar belgíska hersins. Óryggisráðið sendi her- menn og embættismenn á vett- vang, hina síðarnefndu til að stjórna helstu stofnunum þjóð- félagsins í Kongó meðan ógnaröld ríkti. Þetta starf S.Þj. í Kongó kom í veg fyrir íhlutun erlendra ríkja og stuðlaði að einingu landsins. Hersveitir Sameinuðu þjóðanna héldu frá Kongó árið 1964. Þannig mætti lengi telja atburði er sýna friðarviðleitni Sameinuðu þjóðanna og sem sýna að markmið stofnskrárinnar hafa verið leiðar- ljós í 4 áratugi. Viðleitnin kemur einnig fram í alþjóðasamningum sem hafa verið gerðir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, m.a. um frið- samlega notkun kjarnorkuvopna og alþjóðalög um rannsóknir á himingeimnum og um friðsamlega notkun hans. Þann 24. október sl. lýsti alls- herjarþingið árið 1986 sem al- þjóðafriðarár, og hófst það sama dag og verður út árið 1986. Um alþjóðafriðarárið hefur aðalraitari S.Þj., Perez de Cuéllar, m.a. sagt þetta: „Alþjóðafriðarárið gefur okkur einstakt tækifæri til að gera okkur grein fyrir tilganginum með friði og til að finna hvernig þeim tilgangi verður best náð. Við get- um látið okkur dreyma um al- heimsfrið og viðurkennt um leið að ekki sé hægt að koma á friði í öllum heimshornum með einhverj- um töfrasprota. Það er ekki til nein einföld uppskrift að friði. Með trúna á framtíðina og traust til mannsandans að leiðarljósi getum við nálgast alheimsfrið, skref fyrir skref." Ef til vill hefur árangur af starfi Sameinuðu þjóðanna einkennst af sameiginlegri niðurstöðu margra smárra skrefa. Þeir þjóðarleið- togar sem gerðu stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna vissu líka að afnám styrjalda er ekki eina skil- yrðið fyrir varanlegum friði. Þess vegna lögðu þeir mikla áherslu á að efla vinsamlega sambúð þjóða og koma á alþjóðasamvinnu og alþjóðasamningum á sviði efna- hagsmála, félagsmála, menningar- og mannúðarmála og stuðla að virðingu fyrir mannréttindum. Mörg skref hafa verið stigin í átt að þessum markmiðum: Mann- réttindayfirlýsingin árið 1948, flóttamannahjálpin, þróunarað- stoðin, barátta gegn aðskilnaðar- stefnu og hvers kyns kynjamis- rétti, barnahjálpin, ráðstefnur og samningar um sjáfstæði nýlendu- þjóða, umhverfismál, fíkniefna- vandann, málefni kvenna í heimin- um og hafréttarsamningurinn 1982 eru aðeins nokkur dæmi um þetta. Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi var stofnað m.a. í þeim tiigangi að kynna Islendingum hugsjónir og starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Félagið vill á þessum tímamótum í sögu Sameinuðu þjóðanna hvetja íslendinga til að fhuga bæði á opinberum vettvangi sem og annars staðar, hlutverk og árangur af starfi Sameinuðu þjóð- anna í 4 áratugi, og ekki síst að íhuga hvert hlutvert fslands hefur verið þennan tíma. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir IB BJÖRNBAK Mogens Glistrup reynir að hasla sér að nýju völl með því að bjóða sig fram til borgarstjórnar í Kaupmanna- höfn í kosningunum í dag. Talið er mjög líklegt að flokkur Glistrups, Framfaraflokkurinn, þurkist nær út í kosningunum. Á myndinni, sem tekin er 22. júnf 1983, veifar Glistrup dómsorði hæstaréttar Danmerkur, sem dæmdi hann þann dag til þriggja ára fangelsisvistar fyrir skattsvik. Bæja- og sveitastjórnarkosningar í Danmörku í dag: Urslitin kynnu að valda örðugleikum í dag, þriðjudaginn 19. nóvember, ganga Danir að kjörborði og kjósa nýjar bæjar- og sveitarstjórnir. Kosningarnar þykja venju fremur áhuga- verðar, og úrslitanna beðið með mikilli eftirvæntingu, þar sem þær lenda á miðju kjörtímabili danska þingsins. Síðustu þingkosningar voru 10. janúar í fyrra og síðustu bæjar- og sveitarstjórnarkosningar voru 17. nóvember 1982, en mikið vatn hefur runnið til sjávar í millitíðinni í dönskum stjórnmálum. Almennt er viðurkennt að kosningaúrslit í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum séu lítill eða enginn mælikvarði á stöðu stjórnmálaflokkanna, ef um þingkosningar væri að ræða. Vill fylgið dreifast með allt öðr- um hætti i sveitarstjórnarkosn- ingum og hafa staðbundin mál og persónulegar vinsældir ein- stakra frambjóðenda miklu meiri áhrif á afstöðu kjósenda. Engu að síður eru bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar taldar geta gefið ákveðna vís- bendingu um hvert stefnir í dönskum stjórnmálum og munu flokkarnir af þeim sökum fylgj- ast grannt með úrslitunum og haga sér ef til vill í samræmi við þau. Leiðtogar flokkanna og kosn- ingastjórar munu reyna að átta sig á því út frá úrslitunum hvort stjórn borgaralegu flokkanna nýtur áfram meirihlutafylgis. Þá er talið að það kynni að valda vissum vandkvæðum á stjórnar- heimilinu ef Þjóðarflokkurinn hrifsar til sin mjög mikið fylgi frá næststærsta flokknum, Venstre, en í það þykir stefna. Litlu samstarfsflokkarnir tveir, ^iðdemókratar og Kristilegi þjóðarflokkurinn, binda miklar vonir við úrslit bæjar- og sveitar- stjórnarkosninganna og hafa lagt allt kapp á að koma vel út úr þeim. Flokki Schliiters spáð aukningu Allt þykir stefna í að flokkur Pauls Schliiter forsætisráðherra, Þjóðarflokkurinn, muni bæta verulega við sig í bæjar- og sveit- arstjórnarkosningunum. Flokk- urinn hefur verið í mikilli sókn frá því 1982. Menn velta fyrst og fremst vöngum yfir því hversu mikið fylgisaukningin komi til með að verða á kostnaö Venstre, sem verið hefur sterkur í danskri bæjar- og héraðapólitík. Fróðir menn telja að það kynni að koma niður á stjórnarsamstarfinu ef fylgisaukning Þjóðarflokksins verður að mestu leyti á kostnað Venstre. Jafnaðarflokkurinn hefur lagt allt í sölurnar í þessum kosning- um og flokkurinn nýtur þess að hafa stuðning flestra stóru laun- þegasamtakanna. Þannig hefur flokkurinn þegið 160 milljónir danskra króna í kosningasjóð frá einu sambandanna, Special- arbejderforbundet, til að standa straum af kostnaði við áróður gegn stjórn Schliiters. Talið er að Socialistisk Folke- parti muni sækja á í kosningun- um í dag, miðað við fyrri kosn- ingar. Hefur fylgi flokksins farið stöðugt vaxandi, samkvæmt skoðanakönnunum síðustu miss- eri. Vonast flokkurinn eftir því að fjölga fulltrúum sínum í bæjar- og sveitarstjórnum svo hann styrki stöðu sína gagnvart Jafnaðarflokknum. Þurrkast flokkur Glistrups út? Framfaraflokkurinn, flokkur Mogens Glistrup, mun að öllum líkindum þurrkast út í þessum kosningum. Flokkurinn hefur aldrei notið sambærilegs fylgis í bæjar- og sveitarstjórnarkosn- ingum og í þingkosningum. Engu að síður á flokkurinn 280 fulltrúa í bæjar- og sveftarstjórnum. Flokkur Schluters mun ugglaust hirða flest þessara sæta, en búast má einnig við að mörg þeirra falli Venstre í skaut og gæti það vegið að miklu leyti upp á móti þeim sætum, sem menn telja að Venstre tapi til Þjóðarflokksins. Margir fulltrúar Framfara- flokksins hafa gengið öðrum flokkum á hönd og aðrir hafa klofið sig úr flokknum og stofnað nýjan flokk, Frjálsa demókrata, og bjóða sig fram í nafni hans. Glistrup er sjálfur ekki af baki dottinn, þrátt fyrir mótlæti undanfarin misseri, og hyggst reyna að hasla sér að nýju völl í stjórnmálunum, nú með því að bjóða sig fram til borgarstjórnar í Kaupmannahöfn. Flokkur græningja, sem slegið hefur í gegn í Vestur-Þýzkalandi, býður nú fram til bæjar- og sveitarstjórna fyrsta sinni og verður vel með því fylgst hvernig flokkurinn spjarar sig. Flokkur- inn býður ekki alls staðar fram, en þó einkum í þeim kjördæmum þar sem líklegast er talið að meta megi stöðu hans á lands- vísu, með tilliti til þingkosninga. Fjármál sveitarfélaga efst á baugi Kosningabaráttan hefur að miklu leyti snúist um efnahags- mál og útgjöld sveitarstjórna, og hvernig brugðist skuli við þeirri ákvörðun stjórnar Schluters að refsa eyðslusömum sveitarfélög- um. Stjórnin hefur lagt að bæjar- og sveitarstjórnum að auka ekki útgjöld sín og ætlar þeim hlut- deild í að tryggja hallalaus ríkis- útgjöld. Hafa framlög því verið minnkuð til bæjar- og sveitar- stjórna. hefur ekki verið tekið tillit til þessa við gerð fjárhags- áætlunar út í héruðunum svo við því má búast að stjórnin grípi inn í eftir kosningar með aðstoð Radikale Venstre, og skeri fram- lög til bæjar- og sveitarstjórna enn frekar við nögl. Auk þessa snýst kosningabar- áttan um umhverfisvernd. Allir flokkarnir leggja ríka áherzlu á nauðsyn fagurs umhverfis, ekki bara vegna framboðs græningja, heldur vegna þess að skoðana- kannanir hafa leitt í ljós að kjós- endur leggja að jöfnu fagurt og heilsusamlegt umhverfi og gott ástand efnahagsmála. Höfundur er frétUritari Morgun- bladsins í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.