Morgunblaðið - 19.11.1985, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
Sterkbyggðir rafmagnsotnar til notkunar í Geislaofn til notkunar i iðnaðarhúsnæði
t.d. skipum, bílskúrum og útihúsum. samhliða almennri upphitun. Stærð4.5kw.
Stærð 575-1150 W.
Flytjanlegur hitablásari
með rofab. — stillanlegu
loftmagni. Stærð 9 kw.
Hitablásari með innb.
rofabúnaði fyrir fasta
staðsetningu og einnig
flytjanlegur.
Stærð 3-5 og 9kw.
Hitablásari fyrir alhliða
notkun án rofabúnaðar,
ekki flytjanlegur.
Stærð 5-30 kw.
Ji
„Thermozone" hitablásarar sem hindra
kælingu, dragsúg og raka, fyrir ofan dyr
eða afgreiðsluop.
Vifta til notkunar í iðnað-
arhúsnæði sem dreifir
heitu lofti niður á við.
Stórkostlegur sparnað-
ur í upphitun. Orkunotk-
un120W.
‘RÖNNING
simi 84000
„Max Dugan snýr aftur“
- sýnd í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ frumsýndi mynd-
ina „Max Dugan snýr aftur“ laug-
ardaginn 16. nóvember.
Myndin fjallar um Max Dugan
sem leitar uppi dóttur sína, fá-
tækan kennara, sem reynir að
ala upp föðurlausan son sinn.
Ástæðan fyrir leit hans er sú að
hann vill fá að eyða síðustu
dögum sínum með fjölskyldu
sinni, sem hann þekkti aldrei, og
deila með þeim auðæfum sínum
sem þau hefði aldrei dreymt um.
Þetta er fimmta myndin sem
leikstjórinn Herbert Ross og
handritshöfundurinn Neil Siom-
on vinna saman að. Aðrar mynd-
ir þeirra eru m.a. California
Suite, Sunshine Boys og I ought
to Be in Pictures. Meðal annarra
mynda Herbert Ross eru Funny
Girl og The Turning Point.
I aðalhlutverkum eru Jason
Robards, Marsha Mason, Donald
Sutherland og Billie Bird.
Munadarnes:
Námskeið fyrir aðstand-
endur fatlaðra barna
NÁMSKEIÐ fyrir aðstandendur fatlaðra barna verður haldið í Munaðar
nesi, Borgarfirði, um næstu helgi, 22.-24. nóvember. Námskeiðið miðasl
við þítttöku fjölskyldna af Vesturlandi, enda þótt fólk annars staðar frá
sé líka velkomið.
/ Markmið námskeiða sem þessa
er að veita aðstandendum fatlaðra
fræðslu og upplýsingar um rétt-
indi og aðstöðu sem er í boði fyrir
þá og hið fatlaða barn, einnig um
nýjungar í þessum málum og ekki
síst að gefa foreldrum tækifæri til
að hittast og skiptast á skoðunum.
Á námskeiðinu mun Einar Hjör-
leifsson, sálfræðingur, fjalla um
efnið „Að eignast fatlað barn“,
Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur,
fjallar um efnið „Kenningar um
kreppu vegna fötlunar barns" og
Stefán J. Hreiðarsson, barnalækn-
ir, fjallar um efnið „Fötlun og
erfiðleikar á greiningu". Auk þess
verða flutt erindi um rétt fatlaðra
gagnvart Tryggingastofnun ríkis-
ins og um tæknilega aðstoð og
leiktæki fyrir fatlaða. Námskeiðið
hefst á föstudagskvöld og lýkur
um kl. 17. á sunnudag. Þátttaka
tilkynnist í síma 91-84999, her-
bergi 25.
(FrétUtilkynning)
LEGGUR
AFSTAÐ
í ökuferð er ökumönnum skylt að sjá til þess að öryggisbúnaður bifreiðarinnar sé í fullkomnu
lagi.
Einnig er lögboðið að nota öryggisbelti vegna þess að rannsóknir hafa sýnt að banaslysum
og alvarlegum áverkum fækkar, ef þau eru notuð.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR í VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA
ÖRYGGISMÁUNEFND SJÓMANNA