Morgunblaðið - 24.01.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986
B 7
Stuttar buxur úr svörtu og
hvítu efni. Hvft skyrta. Frá
Anne Klein. Hönnuöur er
Louis Dell’Olio.
flokk hafa komizt í tízku á ein-
hverju tímabili. Sportfötin eiga
það sameiginlegt að þau eru
þægileg og „hagkvæm", þ.e.a.s.
fremur ódýr, fara vel í þvotti og
eru þannig úr garði gerð að þau
eiga að þola sitt af hverju. Hver
kannast t.d. ekki við trimmgalla
og háskólaboli? Slíkur klæðnað-
ur hafði verið algengur á amer-
ískum krökkum löngu áður en
tízkufrömuðir komu auga á það
að þetta gætu verið hinar klæði-
legustu flíkur sem mundu sóma
sér hið bezta á glæsikonum við
rétt tækifæri. Það var ekki að
sökum að spyrja, trimmgalla-
æði greip um sig um allan heim
og nú eru það ekki einungis
amerísk börn eða tízkudrósir
sem klæðast þeim heldurfólk á
öllum aldri og af báðum kynjum.
Enn einu sinni hefur amerísk-
ur sportfatnaður sett sitt mark
á Parísartízkuna. Að þessu sinni
eru það hvítar skyrtublússur, úr
brakandi baðmull, buxur í öllum
lengdum og fleiri stakar flíkur
sem eiga það sameiginlegt að
hægt er að nota þær við öll
hugsanleg tækifæri, allt eftir
því hvað haft er við þær.
Eitt vekur þó sérstaka athygli
um þessar mundir og það eru
stuttbuxur. Árið 1971 komust
þær í tízku og voru þá kallaður
„hot pants“ en þá höfðu „mini“
-pilsin verið í tízku árum saman
svo fólk kippti sér ekki mjög
mikið upp við stuttbuxnatízk-
una. Þó þótti hún sums staðar
í djarfasta lagi. Það er eftirtekt-
arvert að nú þegar stuttbuxur
eru aftur komnar í tízku þykir
það alls ekki tiltökumál. Um leið
koma fram á sjónarsviðið stutt-
pils sem á sínum tíma þóttu
ekki nærri eins djörf og stutt-
buxurnar. Nú virðast stuttbuxur
hins vegar ætla að verða vin-
sælli en stuttpils enda þykja þær
mun þægilegri klæðnaður.
Sniðið á stuttbuxunum er
eiginlega eins margvíslegt og
Frjðlslegur kjóll meö képu
frá Sonlu Rykiel. Glæsllegur
klœönaöur úr belnhvítu
prónaefnl en úr þvf eru flest
föt þessa vinsæla hönnuöar.
hönnuðirnireru margir. Mjög
stuttar buxur, eins og þessar
gömlu góðu, sjást varla, en
segja má að yfirleitt séu þetta
eftirlíkingar af hinum sígildu
buxum sem kenndar eru við
Bermuda og konur í Ameríku
hafa löngum notað. Karl Lager-
feld og Sonia Rykiel, sem bæði
starfa í París, skera sig úr. Stutt-
buxur þeirra eru ekki víðar eða
beinar heldur níðþröngar og all-
ar úr prjónagfni. Síddin eryfir-
leitt um tíu sentimetrum fyrir
ofan hné. Stuttbuxurnar eru
oftast ætlaðar sem frjálslegur
klæðnaður, ekki sízttil útivistar,
og við þær eru þá hafðar hvers
konar blússur og peysur. ítalski
hönnuðurinn Gianni Versace
gerir þó ráð fyrir því að stutt-
buxur með tilheyrandi jakka séu
notaðar þegar ætlunin er að
klæða sig sómasamlega og jafn-
vel virðulega. Ein af fáum undan-
tekningum varðandi buxnasídd-
ina eru mjög stuttar buxur frá
Karl Lagerfeld í París en hann
starfar m.a. fyrir Chanel. Við
hvítar buxur hefur hann hannað
svartan leðurjakka í hinum
fræga og sígilda Chanel-stíl sem
á síðari árum hefur einungis þótt
hæfa rígfullorðnum konum sem
kjósa að klæða sig af nokkru
steigurlæti.
Víkur nú sögunni að hinum
ókrýnda konungi tízkunnar. Það
er Yves Saint Laurent sem talinn
var undrabarn er hann kom fyrst
fram fyrir meir en tuttugu árum
en þá starfaði hann hjá Christian
Dior og var reyndar persónuleg-
ur skjólstæðingur hans. Síðar
stofnaði hann eigið fyrirtæki
sem stöðugt hefur aukið umsvif
sín. Yves Saint Laurent var
reyndar sá tízkuhönnuður í París
sem fyrstur þorði að vera ekki
svo „fínn“ að leggja ekki nafn
sitt við fjöldaframleiddan fatnað.
Þá þegar hafði hann áunnið sér
óumdeilanlegan orðstír sem frá-
bær hönnuður „hátízku" sem
kallað er, en þeir sem stóðu að
því fyrirbæri lögðu metnað sinn
í það að framleiða aðeins eina
flík eftir hverri teikningu. Þannig
gátu viðskiptavinirnirteyst því
að rekast ekki á konu sem klædd
var í flík sem var nákvæmlega
eins og þeirra. Sú var nefnilega
tíðin að mikið þótti gefandi fyrir
slíka sérstöðu en það var vitan-
lega ekki á færi annarra en for-
ríkra kvenna og er nú að mestu
úrsögunni.
Sú hefð hefur skapazt á
helstu tízkusýningum í París að
Yves Saint Laurant sýni föt sín
síðast. Þó kemurfyrirað hinn
japanski Kenzo sýni á eftir Saint
Laurent, einkum á allra síðustu
árum. Þeir eru jafnvel til sem
hafa spáð því að Saint Laurent
væri búinn að renna sitt skeið
og í því sambandi hefur verið
bent á að sífellt fækki þeim flík-
um sem veki stórkostlega at-
hygli, enda leggi Saint Laurent
vaxandi áherzlu á fatnað sem
hafi notagildi við sem flest
tækifæri. Skoðanir um þetta
hafa verið skiptar en tízkufrétta-
maður International HeraldTri-
bune staðhæfði í fyrra að Saint
Laurent væri tekinn að eldast
og mætti glögglega merkja það
á hönnun hans. Samtímis sló
Woman’s Wear Daily því föstu
að Yves Saint Laurent væri að
fara inn á nýjar brautirog væri
í þann veginn að marka nýja og
mjög athyglisverða stefnu ítízk-
unni.
Hvort tveggja má rétt vera
en þessar mismunandi skoðanir
sýna að enn sem fyrr er Yves
Saint Laurent hafðurtil viðmið-
unar þegar tízkan er annars
vegar. Þau föt sem hann sýnir
nú eru yfirlætislaus og það svo
að þau þykja jaðra við að vera
kauðaleg. Sniðið er rúmt skorið
en þó ekki svo að það geti talizt
beinlínis vítt. Pilsin eru millisídd
og yfirleitt dálítið útsniðin að
neðan. s.s. hvorki þröng né víð.
Bóleró-jakkar eru oft notaðir við
kjóla og segja má að þannig
hafi Saint Laurent hrist rykið af
gömlum hugmyndum frá því í
síðari heimsstyrjöldinni. Ymsir
eru á því að með þessu endur-
spegli Saint Laurent býsna vel
þann tíðaranda sem nú sé ríkj-
andi þ.e. þrá eftir öryggi að
loknu löngu tímabili umróts og
óvissu.
En þótt veldi Yves Saint
Laurent sé mikið koma sífellt
fram á sjónarsviðið nýir hönnuð-
ir með ferskar og nýstárlegar
hugmyndir. í hópi þeirra sem
mest hefur gustað af á síðustu
árum eru Claude Montana, Karl
Lagerfeld, Azzedine Alaia og
Emanuel Ungaro. Tízkuhönnuðir
sem komast á fremsta bekk í
París, sem þrátt fyrir allt heldur
sínum gamla sessi sem háborg
tízkunnar enda þótt hart sé að
henni sótt og tíðum spáð að
Lundúnir, Róm eða NewYork
komi í staðinn, eiga það sameig-
inlegt að vera gæddir sköpun-
argáfu í ríkum mæli og að gjör-
þekkja það efni sem þeir vinna
úr. Það eiga þeir raunar sameig-
inlegt með öllum öðrum lista-
mönnum sem ná virkilegum
árangri.
Árshátíð
Bolvíkinga-
félagsins
í Reykjavík verður haldin laugardaginn 25.
janúar á Hótel Sögu.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Fjölbreytt dagskrá. Aðgöngumiðar seldir í versl-
uninni Mílanó, Laugavegi 20.
Stjórnin.
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
IFCRíHF
éih INH^pHí
Flugvélar f ramtíðarinnar
Nú er unnið að þvi að „finna upp flugvélina
á nýjan leik“ og það verða bæði sérkennileg
og hraðskreið tæki, sem flytja fólk milli landa
áður en langt um líður.
Hvenær er of mikið af því
góða?
Líkamsþjálfun er nauðsynleg og mjög í tízku,
en það er hægt að ganga of langt eins og
dæmin sanna.
Leyndarmál T.S. Eliots
Nýja leikritið, sem Alþýðuleikhúsið færir upp
er um hjónabandsvíti eins frægasta skálds
aldarinnar. Sagt er nánar frá því.
Sauðnautaveizla hjá borgar-
stjóranum í Angmagssalik
Síðasti hluti greinaflokks Guðna Þorsteins-
sonar um tilraunaveiðar við Austur-
Grænland.
Vönduð og menningarleg helgarlesning
furðu algengur á Vesturlöndum. Sam-
kvæmt könnun, sem gerð var í Banda-
ríkjunum á árunum 1977—78 á fæðu-
og neysluvenjum landsmanna, reyndust
42% neyta minna en 600 mg af kalsíum
á dag en um 77% neyta um og yfir 800
mg af kalsíum daglega, í stað þeirra ca.
1000 mg, sem mælt er með að fólk
neyti á dag.
í hópi karlmanna eru það aðallega
menn á aldrinum 35 ára og þaðan af
eldri, sem yfirleitt neyta of lítils kalsíums
— en annars eru það konur, 11 ára og
eldri, sem eru í miklum meirihluta þeirra,
er eiga við kalsíumskort að stríða.
Árið 1984 lét hópur kunnra næring-
arsérfræðinga i Ijós það álit sitt í skýrslu,
sem þeir birtu um rannsóknir sínar, að
til þess að koma í veg fyrir beinþynn-
ingu, ættu konur yfirleitt að neyta meira
en 1000 mg af kalsíum á dag. Létu
þeir þess jafnframt getið, að konur
ættu að hefja slíka kalsíumneyslu í tæka
tíð fyrir tíðahvörf, en eftir að tíðahvörf
væru komin, ættu konur að neyta um
1500 mg af kalsíum daglega. Séu konur
á estrogenkúr eftir að tíðahvörf hafa
orðið hjá þeim til þess að stuðla að
því, að síður komi til beinrýrnunar hjá
þeim, mæla sérfræðingarnir með því,
að þær neyti um 1000 mg af kalsíum í
daglegri fæðu sinni. En það eru þó ekki
konurnar einar, sem þarfnast aukins
kalsíummagns; sérfræðingar telja, að
karlmenn ættu einnig að neyta a.m.k.
800 mg á dag. Er þar um að ræða
algjöran lágmarksskammt af kalsíum,
sem mælt er með núna. Trúlegt er, að
hinir sérfróðu eigi þó eftir að hækka
kalsíumskammt fyrir karlmenn upp í
1000 mgádag.
Auk þeirrar varnar, sem hæfilegt
kalsíummagn í likamanum veitir gegn
beinþynningu og mögulegra fyrirbyggj-
andi áhrifa efnisins á myndun krabba-
meins í ristli og endaþarmi, má ekki
gleyma þeim verndandi áhrifum, sem
kalsíum hefur á starfsemi hjartans, þá
vörn sem það veitir gegn hækkun blóð-
þrýstings og gegn tannholdssjúkdóm-
um.