Morgunblaðið - 05.03.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1986
25
Waldheim var for-
ingi í herjum Hitlers
Vínarborg, 4. marz. AP.
GEROLD Christian, talsmaður
Kurts Waldheim, fyrrum aðalrit-
ara Sameinuðu þjóðanna, sagði
það rétt vera að Waldheim hafi
verið foringi í herjum Hitlers á
Balkanskaganum í heimsstyij-
öldinni síðari. Hann vísaði því
hins vegar á bug að Waldheim
Frakkland:
Komust
undan með
175 m.kr.
Niort, Frakklandi, 4. febrúar. AP.
SEX VOPNAÐIR menn brut-
ust inn í útibú franska seðla-
bankans í Suðvestur-Frakk-
landi í morgun og rændu 29
milljónum franka, eða jafn-
virði 175 milljóna íslenzkra
króna.
Ræningjamir brutust inn í
bankabygginguna í dögun og
tóku starfsmenn í gíslingu jafn-
óðum og þeir mættu til vinnu
og neyddu þá loks til að opna
bankahvelfingamar. Komust
þeir undan með ránsfeng sinn á
litlum sendibílum. Að sögn lög-
reglu hefur ránið verið rækilega
skipulagt og var það framið af
„kunnáttusemi".
hefði átt aðild að eða tekið þátt
í fólskuverkum nasista.
Christian sagði að fullyrðingar
að undanfömu um að Waldheim
hafi verið í SS-sveitum Hitlers og
framið stríðsglæpi á Balkanskagan-
um, hefðu verið settar fram til að
sverta Waldheim, sem nú sækist
eftir því að verða kjörinn forseti
Austurríkis.
Waldheim var aðalrítarí Samein-
uðu þjóðanna í áratug, frá 1972 til
1982. Hann þykir líklegastur til að
verða valinn forseti Austurríkis og
nýtur til þess stuðnings Þjóðar-
flokksins, sem er í stjómarand-
stöðu.
Talsmaður heimsráðs gyðinga í
New York fullyrti í dag að Wald-
heim hefði verið í hersveit þeirri sem
sá um flutninga á Balkan-gyðingum
í útrýmingabúðir.
Christian segir Waldheim hafa
verið lautinant í E-deild þýzka land-
hersins, sem laut stjóm Alexanders
Löhr, herforingja. Hafi hann verið
hertúlkur. Löhr var tekinn af lífí í
Júgóslavíu 1947 fyrir stríðsglæpi.
Waldheim viðurkennir opinber-
lega að hafa verið í herþjónustu en
sver af sér aðild að brottnámi
gyðinga eða glæpum gegn óbreytt-
um borgumm. Hann særðist á
austurvígstöðvunum í Rússlandi og
var þá sendur til Saloniki í Grikk-
landi, þar sem hann kom til liðs við
E-deildina á Balkanskaga árið
1942. Samkvæmt herskjölum var
Waldheim í þjónustu E-deiidarinnar
í um átta mánuði 1942, frá 24.
marz til 19. nóvember. Þar kemur
Kurt Waldheim
einnig fram að Waldheim hafí verið
í svokallaðri S.A.-deild, Sturm-
abteilung, og gengið í stúdentadeild
nasista í Vínarborg 1938. SS-sveit-
imar tóku við af SA, sem sérsveitir
Hitlers. Christian sagði í dag að
Waldheim hafí aldrei heyrt SA-
sveitunum til, sá sem hafí fyllt út
meðlimakort þar að lútandi hafí lík-
lega gert það af misskilningi og
talið Waldheim vera í sveitunum
þar sem hann reið stundum út á
hestum sveitarinnar.
Pólskir
listamenn
á íslandi
Krzysztof Sperski, sellóleikari, og
Anna Prabucka-Firlej, píanóleikari, frá Tón-
listarakademíunni í Gdansk í Póllandi halda tónleika
í Norræna húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 5.
mars 1986 kl. 20.30.
Á efnisskránni: Verk eftir Chopin, Schumann,
DeFalla og pólska nútímahöfunda.
Missið ekki af glæsilegum tónleik-
um þessara pólsku gesta.
Nefndin.
SLYSAVARNAFÉIAG ÍSIANDS
ÞESSl BÓK ER GJÖF TIL ÞÍN OG FJÖLSKYLDU ÞINNAR
Barnaslys í heimahúsum eru
fleiri á lslandi en í nokkru
öðru Evrópulandi og flest
þeirra stafa af eitrunum.
Þessu verðum við að breyta.
Veistu í hvaða hreinlætis-
vörum á heimili þínu eru
eiturefni og hvernig á að
bregðast við ef börn gleypa
slíkt?
Veistu, að sápuduft í
uppþvottavélar er ætandi og
getur valdið varaniegum
innvortis meinum ef það er
gleypt?
Er til skordýraeitur á heimili
þínu? En blettavatn,
terpentína, möndludropar
eða naglabandaeyðir?
Veistu, að öll þessi efni geta
valdið eitrunum ef þau eru
gleypt? Kanntu rétt viðbrögð
til skyndihjálpar?
Veistu, að smábarn þarf ekki
að gleypa nema fáeinar
magnyltöflur til þess að vera í
hættu? Veistu, að sama máli
gegnir um járntöflur?
Hvaða lyf eru til á heimili
þínu? Hvar geymirðu þau?
Átt þú læstan lyfjaskáp og
læstan skáp fyrir hættuleg efni
þar sem litlar forvitnar hendur
ná ekki til?
Bæklingur Slysavarnafélagsins
veitir upplýsingar um
eiturefni, viðbrögð og varnir
gegn þeim. Hann þarf að
vera til á hverju heimili.
Við getum lagt þessu málefni
lið með því að kaupa
happdrættismiða Slysavarna-
félags íslands.