Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 81.tbl. 72. árg._____________________________________SUNNUDAGUR13. APRÍL 1986_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Vorstemmning í Hljómskálagarðinum. Morgunblaðið/RAX Hefndarárás á Líbýu: Reaffan leitar eftir fylgi við aðgerðir Nicaragua: Útgáfustarf- semi kirkj- unnarbönnuð Managua, Nicaragua. AP. STJÓRNVÖLD f Nicaragua lýstu yfir á föstudag, að útgáfunefnd kaþólsku kirkjunnar væri ólögleg og var lagt hald á allt trúarlegt efni, sem fannst f hennar fórum. Erkibiskupinn í Managua, Miguel Obando y Bravo, hefur mótmælt þessum aðforum sandinistastjómar- innar og öðrum ofsóknum hennar á hendur kirkjunni og segir í yfirlýs- ingu hans, að 5. apríl sl. hafi sandin- istar einnig gert upptæka útgáfu kirkjunnar á ræðum og bænum og embættisbréf frá biskupum í Nic- aragua. Kanínuskytt- ur frelsuðu franska kennarann Baalbek, Damaskus. AP. ÞRÍR Líbanir, sem voru á kan- inuveiðum f austurhluta Bekaa- dals, björguðu á föstudagskvöld franska kennaranum Michel Brian, sem rænt var á þriðjudag f vesturhluta Beirút. Veiðimennimir hófu skothríð á menn, sem virðast hafa verið settir til að gæta Brians og hopuðu þeir eftir að hafa í fyrstu svarað skot- hríð kanínuskyttanna. Brian var bjargað úr höndum mannræningja nokkrum klukkustundum áður en írskum kennara, Brian Keenan, var rænt í Beirút. Svo virðist sem ætiunin hafi verið að flytja Brian á annan stað þegar kanínuskyttumar komu til sögunn- ar. Sýrlendingar, sem ráða lögum í Bekaadal, tóku Brian í sína vörzlu og afhentu hann franska sendiherr- anum í Damaskus í gær. Það fyrsta sem Brian gerði við komuna til Damaskus var að hringja til for- eldra sinna í Grenoble í Frakklandi. Hann hyggst ekki hverfa til fyrri starfa í Beirút. Washington. AP. STJÓRN Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, reynir nú að afla fylgis við væntanlegar refsi- aðgerðir gagnvart Líbýumönn- um vegna aðildar þeirra að hryðjuverkum, sem beinst hafa gegn Bandaríkjamönnum. Fram- kvæmdastjóri NATO segir aðild- arrfkin myndu sýna því mikinn skilning ef Bandaríkjamenn gripu til hefndaraðgerða, en bæði Frakkar og Vestur-Þjóð- verjar hafa varað við aðgerðum og þeir fyrmefndu em illfáan- legir til að leggja blessun sfna yfirþær. Þessu til viðbótar hafa átta þing- menn Repúblikanaflokksins sent Reagan skeyti þar sem þeir vísa til bandarískra laga sem kveða á um skyldur forsetans til að ráðfæra sig við þingið áður en látið yrði til skarar skríða. Þingmennimir vísa til yfírlýsinga forsetans og embætt- ismanna sfðustu daga um hugsan- legar aðgerðir og áætlanir þar að lútandi og segja það óviðunandi að fá tilkynningar um aðgerðir eftir á því lögin skyldi forsetann til að ráðfæra sig ítarlega og að öllu leyti við þingið áður en látið yrði til skarar skríða. Leiðtogar NATO-ríkja í Suður- Evrópu eru áhyggjufullir vegna yfírlýsinga Khadafys, Líbýuleið- toga, sem hótaði á föstudag að ráð- ast á herstöðvar NATO í S-Evrópu ef Bandaríkjamenn réðust aftur á Líbýu. Leiðtogar Spánar og Ítalíu hvöttu til tafarlauss neyðarfundar utanríkisráðherra Evrópubanda- lagsins (EB) í gær. Giovanm Spa- dolini, varaarmálaráðherra Ítalíu, sagði af þessu tilefni að eina leiðin til að afstýra bandarískri hemaðar- aðgerð í Suður-Evrópu, væri að ríki EB tækju baráttuna gegn hryðju- verkum i Evrópu í sínar hendur. Yfírherstjóm bandamanna í Berl- ín skipaði svo fyrir í gær að fjar- lægðir skyldu úr borginni allir þeir einstaklingar, sem borgarbúum kynni að stafa hætta af. Ákvörðun- in er tekin í framhaldi af sprenging- unni í La Belle-diskótekinu fyrra laugardag, en yfirgnæfandi sann- anir hafa fengizt fyrir aðild Líbýu- manna að henni. Khadafy sagðist í gær hugsan- lega þurfa að kveða til heri Varsjár- bandalagsins í baráttu sinni við „árásarbandalag heimsvaldasinna og zíonista", að sögn Líbýuútvarps- ins. Breskir læknar kynna nýtt lyf við krabbameini BRESKIR læknar og vísindamenn kynntu fyrir nokkrum dögum nýtt krabbameinslyf, sem reynst hefur vel gegn krabbameini í eggjastokkum og lungum. Er hér um að ræða efni, sem kallast „carboplatin" en lyfið sjálft nefnist „Paraplatin". Á ráðstefnu í London um fyrri helgi var sagt frá þessu nýja lyfi, sem Breska lyfjaeftirlitið hefur samþykkt, en það er í flokki efna þar sem platína er uppistaðan og eyðir frumum með því að ráðast gegn DNA-kjamasýrunni. Fyrir 15 árum voru miklar vonir bundn- ar við annað efni úr þessum flokki, „Cisplatin", en sá hængur var á, að það gerði lítinn greinarmun á sjúkum frumum og heilbrigðum. Það er mikið notað en skammtur- inn, sem gefinn er af því, er mála- miðlun milli raunverulegs árang- urs og aukaverkanana. Ken Harrap, prófessor, einn bresku vísindamannanna, sagði á ráðstefnunni, að „Paraplatin" væri alveg laust við aukaverkanir „Cisplatins", ógleði og skemmdir á nýrum og miðtaugakerfi, og er ástæðan talin vera önnur sam- eindaskipan. „Paraplatin" binst miklu betur DNA-kjamasýrunni í krabbameinsfrumum en í þeim, sem heilbrigðar eru. Miklar rannsóknir fara nú fram í Bretlandi á efnum skyldum „Cisplatin" og verið er að gera tilraunir með áhrif „Paraplatins" á margar aðrar krabbameinsteg- undir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.