Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. APRÍL1986 Álverið í Straumsvík: Nýju sanrningamir gilda frá áramótum NÝIR kjarasamningar álversins í Straumsvík og Hlífar i Hafnarfirði og Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar, sem undirritaðir voru á fimmtudag og samþykktir á föstudag með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á fundum starfsmanna, gilda frá áramótum. Að öðru leyti eru þeir eins og aðrir samningar, sem gerðir hafa verið á vinnumark- aði að undanförnu. Félagar í Hlíf samþykktu nýja samninginn með 111 atkvæðum gegn 14 og í VH var hann samþykktur með 11 at- kvæða mun. Verslunarmenn í álverinu eru rúmlega þijátíu. Hlífarfélaga í álverinu á föstudag var einróma samþykkt stefnumark- andi tillaga stjómar félagsins um Félagar í Hlíf og VH felldu samninga, sem gerðir voru í álver- inu um mánaðamótin, einkum vegna þess að þeir giltu ekki frá áramótum þegar síðastgildandi samningar runnu út. A fundum Tef la Larsen og Kasparov hér á landi? EKKI er útilokað að Gari Kasparov, heimsmeistari í skák, tefli „upphitunarein- vígi“ við danska stórmeistar- ann Bent Larsen í Reykjavík á næstu vikum. Tilgangurinn væri að koma Kasparov í góða þjálfun fyrir heimsmeistara- einvigið við Anatoli Karpov, sem hefst í London í júlí. Hugmynd þessi mun vera komin frá Larsen en af hálfu Skáksambands íslands hefur engin afstaða verið tekin til hennar, að sögn Þorsteins Þor- steinssonar, forseta sambands- ins. „Aðalvandinn er sá, að þetta kostar stórfé - varla undir þrem- ur milljónum króna," sagði Þorsteinn í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að við getum gert þetta án þess að bera af því fjárhagslegan skaða, þá finnst mér sjálfsagt að reyna að halda þetta æfínga- einvígi hér. Ef við töpum fyrir- sjánlega á þessu tel ég ekki rétt að hugsa meira um það.“ að framvegis myndu fulltrúar Hlífar aldrei skrifa undir kjarasamninga við álverið nema þeir giltu frá þeim tíma er síðustu samningar runnu út, að því er Sigurður T. Sigurðsson, varaformaður Hlífar, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Sigurður kvaðst telja líklegt að samningar, sem nýlega voru gerðir af hálfu annarra verkalýðsfélaga í álverinu, myndu sömuleiðis gilda frá áramótum í stað 26. febrúar, eins og almennt gerist á vinnumark- aði. Hjarta- aðgerðum seinkar VONIR stóðu til að hægt yrði að hefja hjartaaðgerðir á Landspít- alanum í þessum mánuði. Nú er ljóst samkvæmt upplýsingum frá Davíð Á. Gunnarssyni forsljóra ríkisspítalanna að það getur ekki orðið fyrr en síðar á þessu ári. Verið er að undirbúa starfsemina og lagfæra skurðstofur, en tæki til skurðaðgerðanna eru ekki öll komin til landsins. Þegar er búið að þjálfa hiuta starfsfólksins og aðrir eru í þjálfun. Davíð sagði að ekki væri hægt að segja nákvæmlega til um hvenær hægt væri að hefja skurð- aðgerðimar hér á iandi en það gæti dregist fram á haustið. Sigurður Guðjónsson verksmiðjustjóri t.h. framkv.stjóri við pijónavélamar. Morgunblaðið/J6n Sig. og Baldur Valgeirsson INNLENT Fjárhagsvandi steðjar að Pólarprjóni á Blönduósi: Um 40 manns missa vinn- una ef lausn finnst ekki Blönduósi. STJÓRN Pólarpijóns ákvað það á fundi sínum á dögunum að öllu starfsfólki fyrirtækisins verði sagt upp störfum frá og með 1. maí hefði ekki fundist lausn á fjárhagsvanda Pólarpijóns. Starfsfólki var tilkynnt þessi ákvörðun stjórnar á fimmtudag- inn. Pólarpijón á Blönduósi er pijóna- stofa í eigu Álafoss, Blönduóss- hrepps, nokkurra saumastofa á Konur gróðursettu á ann- að hundrað þúsund tré KONUR í Kvenfélagasambandi íslands gróðursettu á annað hundrað þúsund plöntur í júní sl. til að minnast 70 ára kosningaréttar kvenna og loka kvennaáratugarins. Konur hafa hug á að halda þessu starfi áfram. Það var „’85 nefndin" sem stóð að baki þessu átaki og innan hennar „19. júní nefndin", sem skipulagði framkvæmdir. „Markmiðið var að gróðursetja jafti margar plöntur og konur vom á landinu samkvæmt manntali 1. desember 1984, sem tókst og vel það,“ sagði Sigríður Ingimarsdóttir, ritstjóri Húsfreyjunnar. í kvenfé- lagasambandinu em um 20 hér- aðssambönd og innan þeirra 224 kvennfélög á landinu og tóku nán- ast öll félögin þátt í gróðursetning- unni dagana 8. til 23. júní. Mörg félaganna kusu að minnast afmælis kosningaréttarins með því að gróð- ursetja þann dag. Gróðursetningin fór fram í samvinnu við Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélag ís- lands, sem lögðu til plöntumar. Norðurlandi og einstaklinga. Fyrir- tækið var stofnað árið 1971 og var eitt af fyrstu fyrirtækjum sinnar tegundar sem stofnað var. Hjá Pól- arpijón vinna núna u.þ.b. 40 manns. Rekstur fyrirtækisins gekk vel fyrstu árin enda var samkeppni til muna minni þá og vöxtur í þessari iðngrein mikill. En síðustu þijú árin fór að halla vemlega undan fæti og hefur verið hallarekstur á fyrir- tækinu síðan. Á sl. ári nam tap á rekstri Pólarpijóns um 7% af veltu, en veltan á sl. ári var 45 milljónir kr. Baldur Valgeirsson fram- kvæmdastjóri Pólarpijóns sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæð- ur þessarar slæmu stöðu Pólar- pijóns og flestra fyrirtækja í þessari iðngrein væm margþættar. Baldur nefndi mikla verðbólgu síðustu ára og svo og óhagstæða gengisskrán- ingu. „Þessi skýring á vandanum er þó ekki nægileg. Sú þróun sem hefur átt sér stað í þessari iðngrein hefur öll beinst að því að fjárfesta í vélum til framleiðslu á pijónavoð. Vömþróun, markaðsmál og þjálfun starfsfólks hefur setið á hakanum," sagði Baldur Valgeirsson. Baldur sagði að enn eitt vanda- mál væri Pólarpijóni þungt í skauti; 10—15 millj. kr. sem fyrirtækið á útistandandi frá árinu 1984 í Bandaríkjunum og innanlands. Það er fyrirtækið Icelander sem skuldar Pólarpijón hvað mest og er það mál fyrir dómstólum nú, að sögn Baldurs. Hann sagði ennfremur að menn þyrftu núna að einbeita sér að þróun nýs ullarbands og ullarfatnaðar „því ég hef ekki trú á að íslenska ullin sé búin að vera.“ Það þarf að leggja mun meiri áherslu á mark- aðsmálin og mæta kröfum nýs tíma. Baldur sagði að §órar saumastofur á Norðurlandi væm núna að ráða til sín fatahönnuð og væri þetta viðleitni til að snúa vöm í sókn í þessum málum. Um framtíð Pólar- pijóns í tengslum við fyrrgreindar uppsagnir starfsfólksins sagði Baldur að skipuð hefði verið nefnd fyrir nokkm til að fjalla um þau mál og biðu menn niðurstaðna frá henni. Jón Sig. „Það er mikill hugur í konum að halda áfram gróðursetningu og sjá um að þær plöntur sem þegar em komnar niður, þrífíst vel en kafni ekki í sinu og órækt,“ sagði Signð- ur. „Yfirleitt var sérstakur reitur valinn en víða á landinu em til lundir og skrúðgarðar, sem konur hafa gróðursett í á undanfömum áratugum og svo vom aðrar sem gróðursettu í eigin garði. Konur gerðu sér yfirleitt einhvem daga- mun í tilefni gróðursetningarferð- anna, sem oft vom famar í misjöfnu veðri. Ég hef frétt að á nokkmm stöðum hefði rignt það mikið að við lá að þær hálf dmkknuðu í vætunni og ræðan, sem halda átti, rigndi niður í höndum ræðukonunnar. En það kom ekki að sök heldur þótti vísbending um að starfíð væri drottni þóknanlegt." mm Morgunblaðið/Bjanu Eirfksson Frá fundi útvarpsréttamefndar á föstudag, frá vinstri: Helgi Guðmundsson, Ingvar Gíslason, Kjartan Gunnarsson, formaður, Bessí Jóhannsdóttir og Sigurbjöm Magnússon. Fyrsta leyfið til lang’s tíma afgreitt Hér em reykvískar konur að gróðursetja trjáplöntur í reit í Sogamýr- inni þar sem fyrirhugað er skipulagt útivistarsvæði á vegum borgar- mnar. ÍSLENSKA útvarpsfélaginu h.f. var á föstudag veitt leyfi til reksturs hljóðvarps á Suð-vest- urlandi. Leyfið er veitt til þriggja ára og er fyrsta útvarpsleyfið til svo Iangs tíma sem Útvarpsrétt- araefnd veitir. Útvarpsfélagið mun útvarpa á tíðnisviði 101 og gerir leyfíð ráð fyrir að útvarpa megi allan sólar- hringinn, ef félagið óskar svo. Að sögn Kjartans Gunnarssonar, for- manns Útvarpsréttamefndar, er gert ráð fyrir að íslenska útvarps- félagið hefji útsendingar í septem- ber næstkomandi. Alls hafa verið veitt leyfí fyrir 13 tímabundnum útvarpsstöðvum, aðallega í skólum. Fjórar umsóknir um varanlegan rekstur em nú til umljöllunar í Utvarpsrétt: en þær em allar varðandi s Em það umsóknir frá íslens varpsfélaginu og þremur s myndbandakerfum. Kjartai arsson sagði að umsóknii yrðu afgreiddar jafnskjótt nægjandi upplýsingar \ starfsemina lægju fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.