Morgunblaðið - 13.04.1986, Side 3
3 1
MORGUNBLAÐIÐ, SyjWUDAGUR 13. APRÍL1986 ;
Metaflaárið í fyrra
Verðmæti aflans 45%
meira en árið áður
SAMKVÆMT endanlegum tölum
Fiskifélags íslands varð fiskafli
landsmanna á síðasta ári
1.672.757 lestir og er það mesti
afli þjóðarinnar á einu ári. Það
ár, sem næst kemur, er árið 1979,
en þá varð heildaraflinn
1.640.688 lestir. Verðmæti aflans
upp úr sjó nam 12,8 miRjörðum
króna, sem er um 45% meira en
árið 1984. Aflaverðmæti báta-
flotans varð 7,1 milljarður og
togara 5,7. Aflaverðmæti bát-
anna hækkaði um 47% og togara
um rúm 43%.
Sfðastliðin 8 ár hefur heildarafli
landsmanna verið sem hér segir
1978 1.562.000 lestir, þar af þorsk-
ur 320.000 og loðna 967.000, 1979
1.641.000 lestir, þar af þorskur
360.000 og loðna 964.000, 1890
1.508.000 lestir, þorskur 428.000
og loðna 760.000, 1981 1.435.000
lestir, þar af þorskur 461.000 og
loðna 641.000,1982 786.000 lestir,
þar af þorskur 382.000 og loðna
13.000, 1983 835.000 lestir, þar
af þorskur 294.000 og íoðna
133.000,1984 1.527.000 lestir, þar
af þorskur 281.000 lestir og loðna
865.000 og 1985 1.673.000 lestir,
þar af þorskur 323.000 og loðna
993.000 lestir.
Á síðasta ári voru 410.200 lestir
fiystar, 171.486 saltaðar, 5.159
hertar, 928.184 bræddar, 7.074
lestir fóru á markað innanlands,
147.577 voru seldar ferskar erlend-
is, 3.087 lestir fóru í aðra verkun.
Afli báta varð í fyrra 1.269.991
lest að verðmæti 7,1 milljarður, en
árið áður varð aflinn 1.141,035
lestir að verðmæti 4,8 milljarðar.
Afli togara varð á síðasta ári
402.730 lestir að verðmæti 5,7
milljarðar, en árið áður 383.747
lestir að verðmæti 3,9 milljarðar.
Með kveðju frá Tyrol
Hópur fólks frá Walchsee í Austurríki dvelst þessa dagana hér-
lendis og er borgarstjórinn Peter Wimmer í fararbroddi. Á
föstudag skemmtu listamenn frá Walchsee borgarbúum í mið-
bænum og borgarstjórinn færði starfsbróður sínum í Reykjavík,
Davíð Oddssyni, vináttukveðju frá Tyrol. Myndin er tekin á
Austurvelli.
Morgunblaðið/Amór
Þessi ökuferð hefði getað endað verr. Það var milli kl. 2 og
2.30 aðfaranótt föstudagsins sem ökumaður bifreiðarinnar
missti stjóm á henni þegar hann átti skamman spöl eftir inn í
Garð. Bíllinn er mikið skemmdur enda hafði hann um grýttan
veg farið eins og sjá má.
Ohemju mikið af
fiski á miðunum
- segir Ragnar Guðjónsson aflakóngur á Esjari frá Hellissandi
OKKUR hefur gengið vel í vetur.
Það er óhemja af fiski á miðun-
um og alltaf hægt að róa. Hins
vegar erum við bundnir af kvóta
á netunum og það hefur dregið
úr mögulegri veiði. Við erum nú
með um helmingi minna en í
fyrra, en ánægðir samt,“ sagði
Ragnar Guðjónsson, eigandi og
skipstjóri á trillunni Esjari frá
Hellissandi, í samtali við Morgun-
blaðið.
Ragnar sagði, að á vertfðinni í
fyrra hefðu þeir fengið um 350 tonn
að verðmæti um 6 milljónir króna.
Nú væri málum svo háttað, að þeir
mættu ekki veiða nema 100 tonn
af þorski í netin frá 9. febrúar til
15. maí, en veiðar í önnur veiðarfæri
væru fijálsar. Þó þessi kvóti drægi
úr mögulegum afla, væri hann
sammála setningu hans, allt annað
væri óréttlæti. Bátar, 10 til 20
lestir, mættu til dæmis ekki taka
nema 150 tonn af þorski á árinu
og gagnvart þeim væri ekkert rétt-
læti að litlu bátamir mættu veiða
ótakmarkað.
„Við höfum verið á línu og net-
um, 2 og 3 á, og erum komnir með
150 tonn. Við eigum eftir um 20
tonn af netakvótanum og erum að
hvíla okkur f bili. Ætlum að geyma
þennan skammt þar til síðar f mán-
uðinum, en ævintýrið heldur áfram
hjá hinum. Það er óhemju mikið
af fiski á miðunum, sérstaklega á
grunnslóðinni og við höfum ekki
þurft að keyra nema í 20 til 30
mínútur á miðin. Við getum því
ekki annað en verið ánægðir," sagði
Ragnar Guðiónsson.
S V ( NAKJ OT
Ný svínalæri
Nýr svínabógur
Svínakótilettur
Svínahamborgarhryggur
Úrb. svínahamb.hnakki
Svínahamborgarbógur
Svínahnakkafillet
Svínalundir
Svínagullasch
Svínasnitchel
kr. kg
247 kr. kg
490 kr. kg
508 kr. kg
455 kr. kg
295 kr. kg
420 kr. kg
666 kr. kg
475 kr. kg
kr. kg
Va svínaskrokkar kr. 6.750
Allt úrbeinað að ósk kaupenda
Tilbúið beint í frystinn
Viðtökum við
pöntunum og
sendum hvert
á land sem er
Verið velkomin
Sjáumst
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 686511