Morgunblaðið - 13.04.1986, Qupperneq 9
-MámmsmæiMi'&imm
-----7T
HUGVEKJA
Góði
hirðirinn
eftir ÓSKAR JÓNSSON
IffÁður en Jesús fór til himna fól hann
Símoni Pétri að gæta hjarðarinnar og
sjá þeim fyrir nægtum. Hann vissi að
nú var óhætt að treysta Pétri. Hann gat
ekki brugðistframar vegna kærleikans
sem hann bar til Jesú. “
Jesús talaði oft í dæmisögum
oglíkingum.
í Gyðingalandi var, og er enn
í dag, algengt að sjá hirðinn
ganga á undan hjörðinni og kalla
á sauði sína, sem allir þekkja rödd
hirðisins og fylgja honum fúslega.
Hjörðin hefur lært að treysta
hirðinum og hann ber umhyggju
fyrir hjörðinni og leiðir hana að
gróðurmestu grundunum og góð-
um vatnsbólum. Hirðirinn gætir
hjarðarinnar gegn hættulegum
villidýrum og öðrum hættum. Á
kvöldin er hjörðin í sauðabyrginu
og hirðirinn setur sig í byrgisopið.
Jesús sagði. „Ég er dymar. Sá
sem kemur inn um mig, mun
freisast, og hann mun ganga inn
og út og finna haga. Þjófurinn
kemur ekki nema til að stela og
slátra og eyða. Ég er kominn til
þess, að þeir hafi líf, líf í fullri
gnægð."
Jesús er dymar að sauðabyrg-
inu, dymar að himnaríki. Hann
er vegurinn, sannleikurinn og líf-
ið.
í fyrsta lagi frelsast sá, sem
gengur inn um dymar og eignast
gleði, frið og fögnuð sem því fylgir
og getur sungið með í lofsöngnum
„Hann hefur frelsað mína sál,
minn Jesús." Pétur postuli vitnar
og segir um Jesúm: „Ekki er
hjálpræði í neinum öðmm. Og
ekkert annað nafn er mönnum
gefið um víða veröld, sem getur
frelsaðoss."
í öðm lagi er hann kominn í
griðarstað og er óhultur, því Jesús
gætir hjarðarinnar og hjörðin til-
heyrir honum. Hann ber ábyrgð
á henni. Já, góði hirðirinn leggur
líf sitt í sölumar fyrir sauðina.
Jesús segir: „Ég gef þeim eilíft
líf, og þeir skulu aldrei að eilífu
glatast, og enginn skal slíta þá úr
hendi minni."
í þriðja lagi veitir hann full-
nægju. Þeir sem ganga inn um
dymar munu ganga inn og út og
fá fóður. Jesús er brauð lífsins
og gefur lifandi vatn þeim er
þyrstir. Fanny Crosby segir í
söng:
„Gott er að vera í Guðs bama hjörð,
Guð sendi Jesúm hingað á jörð,
til þess að frelsa tapaðan sauð,
til þess að miðla himneskum auð.“
Það er nauðsynlegt að ganga
inn um dymar, því annars getum
við orðið sálaróvininum að bráð.
„Þjófurinn kemur ekki nema til
að stela og slátra og eyða."
Satan leitast við að afvegaleiða
okkur og ræna okkur því góða
og göfuga. Hann rænir hreinleika
bamsins, fær unglingana til að
gefa eftir fyrir holdlegum fysnum
sínum. Drengimir, og nú telpum-
ar einnig, eiga að sýnast menn
með mönnum og drekka áfengi
og nota eilítið af eiturlyfjum og
svo ranka þau við sér að lokum
viðjuð hlekkjum, sem þau eiga
erfitt með að losna úr.
Vers úr ljóði varð mér til hjálpar
á unglingsárum mínum og það
er svona:
„Viltu hreinleiksmerkið missa af
enni þínu,
merkin djúpu bera um illa synda
raun?
Hverfir þú ei aftur — hyggðu að
orði mínu,
hrelldur muntu sanna, að dauði er
synda laun.
Kom til Jesú, meðan líf er enn í
æðum,
eyrun heyra mega boð um frið og
náð,
fyrr en heimur fær þig flekað sínum
gæðum,
fyrr en guðsmynd þinnar sálar burt
er máð.“
Allar lystisemdir veraldar gefa
ekki það sem lofað er. Margur
situr nú einmana og yfirgefinn í
herbergi sínu. Á árum áður var
honum klappað ákaft lof í lófa.
Allir dáðust að fegurð stúlkunnar,
en nú eru þau einmana, gleymd
og vonsvikin.
„Herra, eru það fáir, sem
hólpnir verða?" var Jesús spurður.
Hann sagði við þá: „Kostið kapps
um að komast inn um þröngu
dymar."
Menn leggja hart að sér til að
ná settu marki, þegar um lífið á
jörðinni er að ræða. Hversvegna
ekki að gera það enn meir, þegar
um eilífðarvelferð er að ræða? „Ég
þekki mína og mínir þekkja mig.“
Við þurfum að þekkja raust góða
hirðisins og fylgja honum.
Hinum vilíuráfandi er boðið að
koma í byrgið.
Postuíinn segir: „Þér voruð sem
villuráfandi sauðir, en nú hafið
þér snúið yður til hans, sem er
hirðir og biskup sálna yðar.“ 1.
Pétursb. 2,25.
Áður en Jesús fór til himna fól
hann Símoni Pétri að gæta hjarð-
arinnar og sjá þeim fyrir nægtum.
Hann vissi að nú var óhætt að
treysta Pétri. Hann gat ekki
brugðist framar vegna kærleikans
sem hann bar til Jesú.
Krýning hinna trúuðu hirða.
„Verið hirðar þeirrar hjarðar,
sem Guð hefur falið yður... Þá
munuð þér, þegar hinn æðsti hirð-
ir birtist, öðlast þann dýrðarsveig,
sem aldrei fölnar." 1. Pétursb. 5,
2.4.
Hamingjusamur er sá maður
sem getur sagt með Davíð í 23.
sálmi: „Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta ... Jafnvel
þótt ég fari um dimman dal, óttast
ég ekkert illt, því að þú ert hjá
mér... Gæfa og náð fylgja mér
alla æfidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa æfí.“
^ FjÁRFESílNGARFÉlAGIÐ
UERÐBREFflMflRKflÐURIHH
J riag 13. april 1986 Markaósfrettir
Sparifjáreigendur, athugið!
Raunávöxtun kjarabréfa og annarra
verðtryggðra verðbréfa helst óbreytt
þrátt fyrir vaxtalækkanir.
fjármál þín - sérgrein okkar
Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst.
2afb.
áárl
1 ár
2ár
3ár
4ár
5ár
6ár
7ár
8ár
9 ár
10ár
Nafn-
vextir
HLV
4%
4%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
Sölugengi m.v.
mism. ávöxtunar-
kröfu
12%
95
91
90
88
85
83
81
79
78
76
14%
93
90
87
84
82
79
77
75
73
71
16%
85
82
78
76
73
71
68
66
Lánst.
1 afb.
áári
1 ár
2ár
3ár
4ár
5ár
Sölugengl m/v.
mism. nafnvexti
20% HLV 15%
89
81
74
67
62
84
72
63
56
50
85
76
68
61
56
KJARABRÉF
G e ng I pr. 11/4 1986 = 1,534
Nafnverð Söluverö
5.000
50.000
7.670
76.700
Ávöxtun
íslenskur fjármagnsmarkað
í apríl 1986 ,óver6tryggö
veðskuldabréf
Áhætta f
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn
ÓSA/SlA