Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 22
MORGTJNBLAÐIÐ; SUNNUDAGUR13. APRlL 1986 22 'MorgunblaðiO/ÓI.K.M.) Unnið að lausn kjaradeilna. Myndin er tekin f anddyri sfjórnarráðshússins. Auk Þorsteins eru Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags fsl. iðnrekenda, Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamannasambandsins, og Björn Þórhallsson, varaforseti Alþýðusambandsins, á myndinni. hvols. í stað þess er komið sófaborð; form- legir stólamir hafa vikið fyrir hægindastól- um, sem eru klæddir ljósbrúnu leðri. Það er léttara yfir skrifstofunni en áður, og þegar ég kom þangað síðdegis á föstudegi fyrir nokkru var opið fram á gang, sem ég á ekki að venjast hjá ráðherrum. Sjálfur sat húsráðandi á skyrtunni. Þegar myndir voru teknar, hafði ég á orði með hinum gamal- reynda Morgunblaðsmanni, Ólafi K. Magn- ússyni, að áður fyrr hefðu ljósmyndarar orðið að leggja sig fram um að fá að taka myndir af ráðherrum án þess að þeir væru í jakkanum, nú þurftum við Ólafur að biðja Þorstein að fara í jakkann, til að fá hefð- bundna ráðherramynd. Þess þótti gæta hjá Þorsteini Pálssyni í sjónvarpsþætti fyrir skömmu, að hann legði sig fram um að svara spumingum frétta- manna, án þess að segja mikið. Ymsir höfðu á orði, að hann hefði á stuttum tíma tileink- að sér hefðbundna framgöngu hins æfða stjómmálamanns, að segja sem fæst í flest- um orðum. Sjálfur telur hann þetta ranga staðhæfingu, sem viðmælandi hans geti ekki fært rök fyrir. Rætt við Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, um kjarasamninga, halla á ríkis- sjoði, skatta, vexti, aðhald í ríkisrekstri, sölu rkisfyrir- tækja og stjórnarsamstarfið. Um þessar mundir er hálft ár liðið síðan Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, varð fjármálaráðherra. Að- dragandi þess, að hann settist í ráð- herrastólinn var nokkur. Oftar en einu sinni var honum legið á hálsi fyrir að sækja ekki fast að komast í ríkisstjórn. í Morgunblaðsviðtali í mai 1984 sagðist hann vera búinn að svara spurningum um nýja menn i ríkisstjóm svo oft, að öllum ætti að vera orðið ljóst, að hann teldi ótímabært að velta mönnum fyrir sér á því stigi. „Vangaveltur um skipan ráðherrasæta em jafnan vinsælar en viðfangsefni ríkisstjórna skipta mestu og framgangur stefnumála.“ Oflum er lausnin á þessu máli i fersku minni. Hinn 7. október 1985 lagði Geir Hallgrímsson til á þingflokksfundi sjálf- stæðismanna, að hann hætti störfum utanríkisráðherra um áramót 85/86 en Þorsteinn Pálsson tæki strax sæti í ríkis- stjóra. Tillagan var samþykkt og siðan skiptu allir ráðherrar sjálfstæðismanna um embætti og Þorsteinn Pálsson tók við fjármálaráðuneytinu af Albert Guð- mundssyni. I janúar hætti Geir sem utanríkisráðherra og Matthias A. Mathie- sen tók við þvi embætti, en Geir hefur verið skipaður seðlabankastjóri frá 1. september næstkomandi. viptingar af þessu tagi eru óvenjulegar í íslenskum stjóm- málum. Þorsteinn Pálsson hefur staðið byljina af sér. Öllum, sem hugleiða íslensk stjómmál, ætti að vera ljóst, að hann ræðst ekki á garðinn, þar sem hann er lægstur. Pólitískur frami hans hefur verið svo hraður, að almenningur hefur tæplega haft tóm til að átta sig á kostum hans og göllum sem stjómmála- manns. Þorsteinn hefur ekki enn setið heilt kjörtímabil á Alþingi. Samhliða laganámi (Iauk prófi 1974) stundaði hann pólitíska blaðamennsku á Morgunblaðinu; 1975 varð hann ritstjóri á Vísi, þegar eigendur blaðsins klofnuðu og þeir Sveinn Eyjólfsson, framkvæmdastjóri, og Jónas Kristjánsson, ritstjóri, stofnuðu Dagblaðið. Vísir hélt sjó, á meðan Þorsteinn ritstýrði honum. 1979 varð hann fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands ís- lands. Þar lét hann af störfum 1983, þegar hann ákvað að fara í prófkjör sjálfstæðis- manna í Suðurlandskjördæmi, þar sem klofningur ríkti vegna stuðnings eins þing- manna flokksins, Eggerts Haukdal, við rík- isstjóm Gunnars Thoroddsen. Þorsteinn náði efsta sæti og flokkurinn góðri kosningu í apríl 1983. Þegar ljóst var sumarið 1983, að Geir Hallgrímsson myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs sem formaður Sjálfstæð- isflokksins haustið 1983 ákvað Þorsteinn að láta slag standa, en hinn 29. október það ár varð hann 36 ára. Ég minnist þess frá þessum mánuðum, að margir töldu óhyggilegt fyrir sjálfstæðismenn að velja fyrrverandi framkvæmdastjóra Vinnuveit- endasambandsins til formennsku. Þá em margir þeirrar skoðunar, að óheppilegt sé fyrir formann Sjálfstæðisflokksins að vera þingmaður annars kjördæmis en Reykjavík- ur eða þéttbýlisins á Reykjanesi. Loks ber að nefna þá, sem segja, að það sé óbærilegt til lengdar fyrir formann Sjálfstæðisflokks- ins að vera fjármálaráðherra, enginn geti lagt stund á þá vinsældaöflun, sem sam- tíminn krefst af stjómmálaforingjum, í þvl embætti. Ef tekið er mið af þessari upptalningu, er Ijóst, að Þorsteinn Pálsson hefur ekki sóst eftir kyrrlátum störfum eða leitað fyrir sér um atvinnu, þar sem fast land er undir fót- um. Að þessu leyti er Þorsteinn áræðinn eða kaldur í þeirri merkingu, að hann lætur sér fátt fyrir bijósti brenna. Á hinn bóginn bera ræður hans og ritsmíðar við hátíðleg tækifæri það með sér, að hann leitast við að færa málstað sinn í hlýjan búning, ef svo má orða það, úr orðum hans skína næmar tilfinningar: „Segja má að regn hafí verið í íslenskum stjómmálum upp á síðkast- ið og mórauðir lækimir fallið fram. En það spretta líka grös á Bröttuskeið stjómmál- anna og við skulum beina augum okkar þangað," sagði hann undir lok setningar- ræðu sinnar á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins 1985 og vísaði til ljóðræns sögubrots eftir Jónas Hallgrímsson. Annars em ræður hans almennt sama marki brenndar og annarra íslenskra stjómmálamanna, þær snúast að mestu leyti um fjármál og efna- hagsmál. Nýr svipur Skrifstofa fjármálaráðherra hefur breytt um svip, eftir að Þorsteinn Pálsson tók þar sæti. Hann hefur látið Qarlægja þungbúið fundarborð, sem setti mestan svip á her- bergið á fyrstu hæð í norðvesturhomi Amar- I stjórnmálum gildir að taka ákvarðanir á réttum tíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.