Morgunblaðið - 13.04.1986, Page 26

Morgunblaðið - 13.04.1986, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. APRÍL1986 Að lokinni frumsýningu á óper- unni II Trovatore eftir Verdi á föstudagskvöldið. Frumsýning- argestir fagna söngvurum ís- lensku óperunnar og hljóm- sveitarstóranum Gerhard Decker. Morgunblaðið/RAX heift og hatri. Strax í þeirri mikil- fenglegu aríu „Stride la vampa“ tókst Sigríði að magna upp þann seið, sem entist út sýninguna, og náði hámarki í lokaatriðinu þegar Azucena nær fram hefndum. Elísabet Waage söng hlutverk Inesu og komst vel frá því. Aðrir fóru með minni hlutverk. Kór óperunnar var dálítið misjafn, en söng víða vel, t.d. hinn fræga sígaunakór í upphafi ann- ars þáttar og eins „Miserere" úr fjórða þætti. Utan um allt þetta hélt svo hljómsveitarstjórinn Gerhard Deckert og stjómaði af festu og öryggi. Leikstjóm annaðist Þórhildur Þorleifsdóttir. Sá, er þessar línur ritar, er enginn leikhúsfræðingur, en hefur jafnan dáðst að því hvemig Þórhildi hefur tekist að vinna úr fjölmennum hópatriðum á þröngu sviðinu í Gamla bíói. Ekki bregst henni heldur bogalist- in í þetta sinn. Víða má sjá falleg og vel útfærð atriði, þó segja megi í leiðinni að sumar hópsen- umar voru mun staðari nú en stundum áður, en það ræðst auðvitað af efni textans og fram- vindu verksins. Una Collins sá um leikmynd og búninga. Leikmyndin er bæði einföld og snjöll. Bám- jámsáferðin gefur þessari ítölsku óperu allt að því notalegan reyk- vískan blæ um leið og gul lýsingin minnir á spænska sól. Búningam- ir voru mjög fallegir og gervi góð. Lýsingu annaðist David Walt- ers og beitti ljósunum af hógværð. Þegar upp er staðið er hér um mjög heilsteypta og velheppnaða sýningu að ræða og einhveija þá jafnbestu sem sést hefur hjá Is- lensku óperunni. Svo vill til, að undirritaður sá þessa sömu ópem alveg nýverið erlendis, og án þess að fara út í samanburð, sem e.t.v. á engan rétt á sér, er óhætt að segja að íslenska óperan getur borið höf- uðið hátt. Ég væri illa svikinn ef II Trovat- ore ætti ekki eftir að ganga vel og lengi á fjölunum í Gamla bíói. IL TROVATORE Tónlist Egill Friðleifsson Gamla bíó 11. apríl 1986. Efnisskrá: II Trovatore. Höfundur: G. Verdi. Hyómsveitarstjórí: G. Deckert. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs- dóttir. Leikmynd og búningar: Una Collins. Lýsing: David Walters. Helstu hlutverk: Kristinn Sig- mundsson, Ólöf K. Harðardótt- ir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes, Viðar Gunnars- son, Elisabet Waage. Það hefur farið minna fyrir ís- lensku ópemnni í vetur en undan- farin ár. Því var það ánægjuefni, er það fréttist að enn ætti að ýta úr vör, og nú með eitt af meistara- verkum óperubókmenntanna. Og það var ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. 11 Trovatore eftir meistara Verdi — gjörið þið svo vel. Prúðbúið fólk í hátíðarskapi fyllti Gamla bíó sl. föstudagskvöld. Það lá eftirvænt- ing í loftinu er hljómsveitarstjór- inn, Gerhard Deckert, lyfti tón- sprotanum og dimmur niður pák- unnar kvað við og færði okkur á vit hinna myrku miðalda. Sögusviðið er Aragónía á Spáni í miðri borgarastyijöld árið 1409. Þar segir frá ást, hatri og afbrýði en umfram allt hefnd. Söguþráð- urinn er flókinn mjög, en helstu atriði hans í örfáum orðum er á þessa leið. Herforingjar tveir, Luna og Manrico, em ekki einung- is fjandmenn í styijöldinni, heldur keppa þeir einnig um ástir sömu konunnar, Leonom, sem ann Manrico. En þeim var eigi skapað nema að skilja. Inní þennan þrí- hyming tvinnast svo saga síg- aunakonunnar Azucenu, sem sögð er vera móðir Manricos þótt annað komi í ljós. Azucenu er full af hatri og hefndarþorsta, því móðir hennar hafði verið brennd á báli fyrir galdra. Þetta em þeir þræðir sem óperan er spunnin úr. Vænt- anlegum ópemgestum er ráðlagt að kynna sér söguþráðinn vel, til að njóta þess betur sem fram fer á sviðinu. Viðar Gunnarsson fór með hlutverk Ferrando. Það hlýtur að vera erfítt fyrir lítt reyndan söngvara að opna ópem með svo löngu og veigamiklu atriði sem hér, og Viðar bjó tæpast yfír þeim dramatíska krafti sem þarf til að gera Ferrando sannfærandi, sem er miður, því óperan snýst að stór- um hluta um þá sögu, sem Fer- rando segir í byijun. Vera kann að eðlilegur sviðsskrekkur hafi háð Viðari nokkuð. Hann hefur mikla og fallega rödd og átti góða spretti, þó nokkuð skorti á að söngtækni hans sé fullkomin. Þannig vildu hraðir skalar á stundum renna saman. En Viðar er efnilegur söngvari. Það dylst engum. Með meiri reynslu og þroska má mikils af honum ,vænta. Ólöf Kolbrún Harðardóttir söng Leonom og gæddi hlutverkið miklum þokka. Hún söng glæsi- lega og dró upp heilsteypta mynd af konunni, sem var svo staðfost í ást sinni, að frekar vildi hún láta lífíð en gefast öðmm en þeim sem hún elskaði. Búningar hennar vom mjög fallegir og fóm henni vel. Það var athyglisvert hversu létt hún fór með hina erfíðu aríu „Di tale amor“ í fyrsta þætti. Kristinn Sigmundsson fór á kostum í hlutverki Luna greifa. Kristni virðist vaxa ásmegin við hverja þraut. Ég man ekki eftir að hafa heyrt hann betri í annan tíma. Það má mikið vera ef hans býður ekki glæsileg framtíð við ópemhús heimsins, með þessa stórkostlegu rödd, stæðilega skrokk og svipbrigðaríkt andlit. Garðar Cortes stóð sig einnig mjög vel sem Manrico. Hina frægu aríu úr þriðja þætti „Di quella pira“ söng hann með slíkum ágætum, að hvaða tenór sem er gæti verið fullsæmdur af. Samleikur og samsöngur þeirra þriggja, Ólafar, Garðars og Krist- ins, var víða með miklum ágætum. En sé hægt að tala um sigur- vegara kvöldsins yrði það senni- lega Sigríður Ella Magnúsdóttir í hlutverki Azucenu. Það er stórt stökk að sjá Sigríði Ellu breytast úr ungri tælandi Carmen í þessa gömlu kerlingu, sem er full af Opið bréf til Matthíasar Johannessens frá Sverri Hermannssyni Góði vinur, Matthías. Eigi alls fyrir löngu átti ég orðastað við þáverandi formann Stúdentaráðs í útvarpi. Sú stúlka tefldi fram þeirri skoðun sinni óhikað að í þjóðfélaginu væm til nógir peningar og væri það skil- málalaus krafa sín og sálufélaga sinna í stúdentahópi að þeim yrði skilað inn í Lánasjóð ísl. náms- manna eftir þörfiim hans og þeirra sem þar ættu rétt að ganga í sjóð og sækja sér hnefa. Sú var uppalin í Norðurlandskjördæmi vestra. Annar stúdent úr þvi ríki- kjör-dæmi skrifar um lánasjóðinn í blað þitt í fyrradag og er sömu skoðunar. Hann leggur mikla áherzlu á að öll afskipti mín af málefnum Lánasjóðs ísl. náms- manna sé óðagot og flumbm'- gangur. Að vísu hentar honum að skamma varaformann Sjálf- stæðisfiokksins, en slíkar Al- baníu-aðferðir em alþekktar. Auktu nú leti mína og athugaðu einslega fyrir mig örfá atriði þessu að lútandi: 1. Ég hefí fjölmargar sannanir fyrir misnotkun lánþega á fé úr lánasjóðnum. Hvort heldur er það óðagot að gera tilraun strax til að hamla gegn slíkri ósvinnu eða er flumbmgangur hæfílegra orðaval? 2. Ég hefí orð námsmanna sjálfra fyrir því að þjónusta lánasjóðs- ins hafí verið „alræmd". Með nýjum mönnum geri ég nú tilraun til að breyta og bæta þjónustuna. Kaliast slfk vinnubrögð flumbmgangur í blaðamannastétt hinni nýju? 3. Þegar ég kom til verka sem yfírmaður lánasjóðsins lagði ég strax til að öll lán yrðu endur- greidd skilmálalaust. Er haldið fast við að kalla slíkt óðagot og flumbmgang? 4. Ég legg til að mönnum verði ekki refsað af hálfu lánasjóðs- ins fyrir að afla sér ijár til að kosta nám sitt. Ég vil gjaman flumbra heita ef slík tillögugerð er flumbru- gangur. 5. Eg legg til að lægstu vextir verði lagðir á námslán, eftir að námi lýkur. Blaðamaðurinn þinn segir að slíkt „gangi hreinlega ekki upp“, og er það raunar í samræmi við skoðanir hans og fyrrverandi formanns Stúdentaráðs, að nóg sé til af ókeypis peningum í þjóðfélag- inu. Er það óðagot að ég tilkynni strax um afstöðu mína til vaxta? Ég nenni ekki að spyija um fleira, enda kannski tilgangs- laust fyrir þig og mig að eiga orðastað við fólk sem býr hin- um megin á Sjöstjömunni. Sverrír Hermannsson Gapuxar af vinstri sortinni hafa haldið því fram að ég stefndi að því að hætta aðstoð við námsmenn, eða a.m.k. að því að draga svo mjög úr henni að námsmenn kæmust á von- arvöl. Ég vissi ekki að þú hefðir menn í þjónustu þinni sem eru svo þunneyrðir á slfk- an þvætting. Ekkert af því sem ég nú hefí nefnt skiptir þó neinu máli á borð við þá ómælanlegu óhamingju að Vökumenn í Háskólanum hafa alsaklausir misst dýrmæt atkvæði fyrir flumbrugang minn. Þú hefðir átt að heyra ekkasogin í mér þegar ég las þessi ótíðindi, Matt- hfas! Að öllu gamni slepptu, Matt- hías, þá er óðagotið og flumbru- gangurinn í mér í máli þessu ekki vegna þess að ég viti ekki hvemig átakaminnst er að haga sér. Bezt er að látast vilja gera allt fyrir alla í einu og eftir þeirra óskum. Margur maðurinn hefír komizt langt í okkar flokki með því móti, ogjafnvel alveg á toppinn. Menn eiga að síga settlega fram í hægðum sínum og gerast allra vinir og gagn en ekki vera með óðagot og flumbrugang, sem getur komið illa við einhvem, svo að hann hættir að lcjósa flokkinn þinn. Vertu svo kært kvaddur, þinn vinur, Sverrir Hermannsson P.S. Ég þorði ekki að setja það í bréfíð sjálft með bemm orðum sem mér sýndist að stæði í grein blaðamannsins þíns, sem sé að ég og mínir líkar ættu ekki að vera að steyta göm rétt fyrir sveitar- stjómarkosningar og ekki fyrir Alþingiskosningar og allra sízt fyrir Stúdentaráðskosningar, ella gæti Flokkurinn tapað atkvæð- umn. Þú spyrst fyrir um, hvort ég er læs að þessu leyti. Sami. Höfundur er menntamálaráð- herra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.