Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.04.1986, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. APRÍL1986 t SIGURJÓN JÓNSSON bóndl, Brekku, Gufudal, Austur-Barðastandarsýslu, er andaðist í Sjúkrahúsi Patreksfjarðar þann 7. apríl sl. verður jarðsunginn frá Gufudalskirkju laugardaginn 19. apríl kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlega bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Þeir sem hafa áhuga á fari vestur geta fengið upplýsingar í símum 74197 og 74839. Aðstandendur. t Útför unnusta míns, sonar okkar og bróður, SMÁRA FERDINANDSSONAR, Hjallabraut 35, Hafnarfirði, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hins látna láti Hjálpar- og flugbjörgunarsveitir njóta þess. Grfma Huld Blœngsdóttir, Ferdinand Söbech Guðmundss., Erna H. Matthíasdóttir, Sigríður G. Ferdinandsdóttlr, Árni Finnbogason, Steinunn Ferdinandsdóttir, Pálmar Guðmundsson, Erla Ferdinandsdóttir, Páll Sveinbjörnsson, Sigurður Ferdinandsson, Guðrún Matthfasdóttir, Sæmundur B. Ferdinandsson, Ingunn Þórðardóttir, Freyr Ferdinandsson, Unnur Jónsdóttir, Ríkey Ferdinandsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR JÓNASSON deildarstjóri, Grýtubakka 24, Reykjavík, er lést 6. apríl verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. apríl kl. 15.00. Hildur Bjarnadóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Markús I. Magnússon, Bjarni Sigurðsson, Jónas Sigurðsson, Elsa Nfna Sigurðardóttir, Ásta Sigurðardóttir, Gunnlaugur J. Magnússon og barnabörn. t Dóttirmín, fósturdóttirog systir, ÁSLAUG ARNARDÓTTIR Álfheimum 13, Reykjavfk. sem lést 7. apríl verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna. Jenetta Bárðardóttir, Benóný Ólafsson, Elsa Lára Arnardóttir. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, LÁRU LÝÐSDÓTTUR, Fremristekk 13. Áslaug Birna Einarsdóttir, Kristfn Einarsdóttir, Guðmundur Hans Einarsson, Vigdfs Einarsdóttir, Hjörtur Einarsson, og barnabörn. Björgvin Magnússon, Sigurður Þ. Guðmundsson, Elfsabet Einarsson, Hjörtur F. Jónsson, Lilja Sveinsdóttir t í minningu mannsins míns, föður, tengdaföður og afa HANS F. CHRISTIANSEN þökkum viö öllum þeim sem vottaö hafa okkur samúð og vinarhug vegna andláts hans. Kristfn Reykdal, Lovísa Christiansen, Oli G. H. Þórðarson, Þórunn Christiansen, Ásgeir Christiansen, Oddný Arthúrsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega vináttu og samúð við andlát og útför FRIÐRIKS SIGURBJÖRNSSONAR lögfræðings, Harrastöðum, Fáfnisnesi 4. Halldóra Helgadóttir, Unnur Haraldsdóttir, Friðrik Friðriksson, Laufey E. Þorsteinsdóttir, Þorvaldur Friðriksson, Elfsabet Brekkan, Unnur Ásta Friðriksdóttir, barnabörn og systkini. Minning: Sigurður Jónasson skrifstofustjóri Fæddur 3. desember 1925 Dáinn 6. april 1986 Sigurður Jónasson frá Patreks- fírði varð bráðkvaddur að morgni 6. apríl sl. að heimili sínu hér í Reykjavík, sextugur að aldri. Hann fæddist 3. desember 1925. Foreldrar hans voru heiðurshjónin Ruth Jónsdóttir og Jónas Magnús- son, sem um langt skeið var skóla- stjóri og sparisjóðsstjóri Eyraspari- sjóðs á Patreksfirði. Þau eru nú bæði látin. Auk Sigurðar áttu þau hjón dótturina Álfheiði, gifta Jakobi Agústssjmi og eru þau búsett á Ólafsfirði. Bemskuminningar okkar undir- ritaðra em allar bundnar Patreks- firði, þar sem við ólumst upp í næsta nágrenni hver við annan, nánar tiltekið á Geirseyri. Minning- amar hrannast upp allar bundnar gleði og æskufjöri. Innan við ferm- ingu fór alvara lífsins að taka við, þegar farið var að vinna við salt- fiskinn, sem þá var breiddur út um alla reiti á Vatneyrinni þegar vel viðraði, síðar vinna í frystihúsinu og annað sem við kom útgerðinni, en aldrei fóram við þó á sjóinn. Þá tók framhaldsskólanámið við. Sigurður lauk prófi frá Verzlun- arskóla íslands 1945 og 1947 fór hann til nokkurra mánaða dvalar í Englandi til náms og starfs. Hans aðalstarf hefur síðan verið fyrst hjá Útgerðarfélagi Akureyringa f nokkur ár, síðan hjá Sænska frysti- húsinu í Reykjavík, þá sparisjóðs- stjóri Eyrasparisjóðs á Patreksfirði og þá jeinnig umboðsmaður Flug- félags íslands þar. Árið 1973 flutti hann með Qölskyldu sína til Reykja- víkur og starfaði síðastliðin tólf ár hjá Landmælingum íslands, nú síð- ustu ár sem skrifstofustjóri. Störf hans hafa því tengst mjög við- skiptalifínu alla ævi. Hann hefur því í gegnum árin kynnst mörgu og mörgum. Sigurður var með afbrigðum hjálpsamur og greiðvikinn maður, sem mörgum þótti gott að leita til með hin ýmsu mál, sem hann reyndi að leiðbeina mönnum með. Fullyrða má því, að hann hafi verið vel lát- inn. Félagsmál lét hann einnig mikið til sín taka. Til dæmis var hann hvatamaður að stofnun Lions- klúbbs Patreksfjarðar 1962 og fyrsti formaður hans. Sigurður kvæntist Hildi Bjama- dóttur 5. júní 1949. Móðir hennar er Ásta Magnúsdóttir og faðir Bjami Guðmundsson sem þá var héraðslæknir á Patreksfirði. Síðast vora þau ágætu hjón búsett á Sei- fossi þar sem Bjami var héraðs- læknir. Hann er nú látinn. Sigurður og Hildur eignuðust §ögur böm. Elst þeirra er Svan- hildur, f. 1949, gift Markúsi í. Markússyni flugvélstjóra, búsett f Reykjavík. Bjami, f. 1951, en hann er sjúklingur. Þá er Jónas, f. 1953, hann er yfirlögregluþjónn á Pat- reksfirði. Hans kona er Elsa Nina Sigurðardóttir. Yngst er svo Ásta, f. 1954, gift Gunnlaugi Magnússyni rafvirkjameistara. Þau era búsett á Ólafsfirði. Bamabömin era orðin sjö. Hjónaband þeirra Sigurðar og Hildar einkenndist af gagnkvæmri ást og virðingu. Þau vora ástríkir foreldrar, sem virtir vora af elsku- legum bömum. Við vitum að Sigurður gekk ekki heill tii skógar nú hin síðari ár, en við eram samt ævinlega óviðbúin þeim endalokum, sem allra bíða. Það er skarð fyrir skildi, þegar slfkur maður sem Sigurður var er allur. Hans sakna margir og trega. Sárastur er þó söknuður elskaðrar eiginkonu hans, bama og bama- bama. Við undiiritaðir og eiginkonur okkar flytjum ykkur öllum hjartan- legustu samúðarkveðjur og biðjum ykkur styrks í sárum sorgum. Bolli A. Ólafsson Jakob Helgason Sigurður Jónasson deildarstjóri hjá Landmælingum er látinn, rúm- lega sextugur að aldri. Þessi tíðindi komu mér á óvart, því ég hafði setið við sama borð og hann fyrir aðeins tveim dögum og sá ég þá engin veikleikamerki á honum. Við komu hans til Landmælinganna árið 1974 kynntumst við fyrst og síðan unnum við í sama herbergi um ára- bil, þannig varð mjög náið samband okkar allt til þess að ég hætti störf- um á liðnu ári. Mér varð strax hlýtt til þessa manns. Hann var þaulkunnugur öllu atvinnulífi og hverskonar opin- beram rekstri enda hafði hann starfað við stjóm á stóra útgerðar- fyrirtæki og sem sparisjóðsstjóri úti á landi. Það var því ekki aðeins gagnlegt fyrir mig heldur og fyrir alla starfsemi Landmælinganna þegar hann réðst þar til starfa. í hans verkahring vora störf eins og sölumennska og innheimta og þar var réttur maður á réttum stað. Hann hafði þann sérstaka hæfíleika að glæða ræðu sína lífi og léttleika og þannig gat hann oft náð betri árangri en ella hefði orðið. Aldrei heyrði ég hann hallmæla mönnum heldur draga fram hinar betri og bjartari hliðar. Einnig mun hann á stundum ekki hafa sézt fyrir þegar gera þurfti manni greiða og þá oft sjálfum honum til óhagræðis. I návist slfkra manna er gott að vera, þar líður manni vel. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka Sigurði samfylgdina í þessi 12 ár, þakka þann hug vináttu og drenglyndis, sem að mér og mínum ætíð sneri. Fjölskylda Sig- urðar hefur orðið fyrir þungum missi og fjölskylda mín og ég vott- um frú Hildi innilega samúð. Erlingur Dagsson Menn setti hljóða þegar sú óvænta fregn barst okkur að Sig- urður Jónsson deildarstjóri hefði látist á heimili sínu að morgni sunnudagsins 6. apríl síðastliðinn. Þegar vinnufélagi er kallaður burt leitar fyrst á hugann hvers vegna hann og hvf svo snögglega en síðan reikar hugurinn til samskipta okkar við hinn liðna. Sigurður hóf störf hjá Land- mælingum íslands árið 1974, hann var fyrst við almenn skrifstofustörf en var nú síðustu árin skrifstofu- sfjóri. í því starfi sá hann meðal annars um málefni starfsmanna og kynntist því vel öllu starfsfólki stofunarinnar. í þessu starfi þurfti Sigurður jafnan að taka afstöðu til mála út frá eigin sannfæringu bæði með hagsmuni starfsmanna og stofnunarinnar í huga. Hver sá sem kynntist honum fann fljótt að fyrir innan þá brynju sem hann bjó sér, og nauðsynleg var manni í hans stöðu, fannst hlýleiki, lítillæti og maður sem vildi hvers manns vanda leysa. Hann vildi vinna stofnuninni vel og í orðum hans mátti ávallt finna að hagur hennar var honum ofarlega í huga. Það og hans mikla góðvild og hjálpsemi gerði vinnu- daginn oft langan og ekki urðu friin mörg sem hann tók sér. Sigurður vár glaðvær og sagna- maður góður og oft sagði hann hnyttnar sögur, en þær kunni hann margar. Að leiðarlokum er gott að minnast genginnar tíðar með góð- um starfsbróður og félaga. Minn- ingjin um hann mun oft leiftra í huga okkar um ókomin ár. Samstarfsfólk Sigurðar á Land- mælingum íslands kveður traustan vin með söknuði. Við sendum Qölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Starfsfólk Landmælínga íslands Hótel Saga Síml 1 2013 Blóm og skreytingar viÖ öll tœkifœri t Innilegar þakkir til allra þeirra er auösýndu mór samúö og vinar- hug við andlát og útför mannsins mins, JÓNS LÁRUSSONAR, Framnesvegi 46. Guð blessi ykkur öll. Pála K. Einarsdóttir. Lokað Vegna útfarar SIGURÐAR JÓNASSONAR deildarstjóra, verða skrifstofur okkar lokaðar á morgun, mánudag 14. apríl. Landmælingar íslands. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.