Morgunblaðið - 13.04.1986, Síða 36

Morgunblaðið - 13.04.1986, Síða 36
36 - ^ÓRátfNBL!AljÍD|^mjí)AGtjÉ13/K^RÍL^fe6 mörku, mjög lofsamlega um sýning- amar. Taldi hann að Bjöm hefði komið með mjög athyglisvert, nýtt kerfí, sem hann hafði sjálfur fundið upp. Bjöm lætur ekki staðar numið heldur fer árið eftir, 1928, með stúlknaflokk til Bretlands, og einnig á alþjóðafímleikamót í Calais í Frakklandi. í frönskum blöðum var skrifað mikið um flokkinn og stóð þetta í einu blaðinu: „Þegar þessi fámenni fagri kvennahópur gekk samstíga inn á sýningarsvæðið, mátti heyra saumnál detta og þetta hélst eftir að æfingar bytjuðu, þar til allt brast í dynjandi lófatak og fagnaðaróp." Þetta hefur verið áhrifamikil stund fyrir hópinn og mikil landkynning smáþjóðar. Annað blað skrifar um sýningar Bjöms og segir þar svo: „Sýningin hófst á nokkrum mjög jmdislegum, óþvinguðu æfíngum, afbragðsvel samsettum og leiknum af óskeikulli nákvæmni án fyrirskipana. Jafn- vægisæfíngamar vom frábærlega vel af hendi leystar. Sýningunni lauk með nokkmm fijálsmannleg- um æfíngum, sem einnig vom prýðilega samsettar og fóm fram með óskeikulli nákvæmni. Þögn sú sem ríkti í salnum bar vott um þá mikiu athygli sem áhorf- endur veittu íþróttum þessa þaulæfða flokks, en lófatakið og húrrahrópin, sem fylgdu á eftir, bám vott um aðdáun þeirra sem á horfðu." Það var árið 1931, að Bjöm gerðist kennari við Héraðsskólann að Laugarvatni, en árið eftir eða 1932 setur hann á stofn íþrótta- kennaraskóla. Skóli þessi starfaði níu mánuði ársins og vom þá nemendumir orðnir löggiltir íþróttakennarar. Bjöm rak skóla þennan sem einkaskóla, en hélt samt áfram að kenna við Héraðs- skóiann. Skólastjóri við þennan einkaskóla var Bjöm til ársins 1942. Aldarminning: Björn Jakobsson íþróttafrömuður Bjöm Jakobsson frá Narfastöð- um í Reykjadal í Suður-Þingeyjar- sýslu var fæddur 13. apríl 1886. Foreldrar hans vom Jakob bóndi þar, fæddur 3. maí 1845, dáinn 3. júní 1925. Faðir Jakobs hét Jónas og var Bjömsson. Kona Jakobs hét Sigríður María Sigurðardóttir, bónda á Geirastöðum í Mývatns- sveit, Jónssonar frá Amarvatni. Sigríður María var fædd 13. október 1860, en lést 22. desember 1925. Bjöm átti sex systkini og hétu þau Herdís, Kristján, Karl, Anna, Sigurður og Jónas. Bjöm fer til Akureyrar til náms og verður gagnfræðingur þar 1905. Fer hann síðan utan 1906 á íþrótta- skólann í Askov í Danmörku og tekur þar próf i fimleikum og fleim 1908. Þaðan fer hann í Statens Lærerhöjskole í Kaupmannahöfn 1909 og tekur þar kennarapróf í fímjeikum, heilsufræði og sundi. Árið 1909 kemur Bjöm heim, sest að í Reykjavík og fer að kenna fimleika hjá Ungmennafélagi Reykjavíkur og Ungmennafélagjnu Iðunni, en á summm kennir hann sund í Skeijafirðinum á vegum þessara ungmennafélaga. Síðan ræðst Bjöm til íþróttafé- lags Reykjavíkur og kennir þar bæði piltum og stúlkum. Þá verður hann einnig stundakennari hjá Kennaraskólanum og Menntaskól- anum í Reykjavík. Það má taka það fram hér að jafnframt því mikla starfí, sem Bjöm leysti af hendi í Reykjavík; stundaði hann nám við Háskóla ísiands varðandi líkams- rækt og heilsufræði. Einnig var . Bjöm í tímum í fíðluleik hjá Þórami Guðmundssyni, fíðluleikara. Á landsmóti UMFÍ sem haldið var í Reykjavík 1911, var Bjöm með sínar fyrstu stóru fímleikasýn- ingar. Einkenndust þær af meiri mýkt og minni hraða í æfingunum en áður þekktist hér. Einnig notaði hann hljóðfæri við æfíngamar, fyrstur allra fímleikakennara á Norðurlöndum. Síðar fór Bjm að taka kvikmyndir af fímleikaflokk- um sínum á æfingum. Sýndu þær síðar hvemig til hafði tekist og hvað laga þyrfti. Á þessum ámm fór Bjöm oft norður í átthaga sína og kenndi þar t.d. árin 1917—1919 við unglinga- skólann að Breiðumýri í Suður- Þingeyjarsýslu. Einnig sýndi Bjöm oft fimleikaflokka í Reykjavík á þessum árum og fór hringferð kringum landið með stúlkna- og drengjaflokka. Árið 1927 fer Bjöm utan með tvo fimleikaflokka, pilta og stúlkna, og sýnir þá í Þórshöfn, Osló og Gautaborg. Þessar sýningar vöktu mikla athygli og var flokknum óspart hrósað í blöðum. Einnig skrifaði Niels Bukh skólastjóri íþróttaskólans að Ollerup í Dan- Björn Jakobsson skólastjóri íþrótta- kennaraskólans. Þegar Bjöm varð sjötugur hætti hann störfíim við skólann. Höfðu þá útskrifast þaðan 70 konur og 120 karlar. Haustið 1932 gerðist ég undirrit- aður nemandi Alþýðuskólans að Laugarvatni. Var ég þá lítt undir bóknám búinn, en fremur hraustur enda hafði ég unnið lengi með full- orðnum karlmönnum og oft langan vinnudag. Ég hafði lært sundtökin hjá frænda mínum, Þórami Sveins- syni, kennara á Eiðum. Gekk mér því vel í sundi og fimleikum enda var Bjöm Jakobsson strangur kenn- ari og erfítt að komast hjá því að læra hjá honum. Námsgreinar þær sem Bjöm kenndi vom sund, fimleikar, heilsu- ftæði ogteikning. Bjöm var mjög góður sundkenn- arí og hlífði engum, enda komust nemendur hans fljótt á flot. Eins spilaði mikið á fíðlu síná og sámdi margar fimleikaæfingar eftir lög- um, sem hann hafði æft. Sérstak- lega notaði hann fíðluna mikið við æfingar stúlknanna. Varð Bjöm fyrstur íslendinga til að nota hljóð- færi við fimleikakennslu, eins og áðurergetið. Það má teljast undarlegt hve lítið hefur verið rætt og ritað um Bjöm Jakobsson skólastjóra, jafn mikinn gáfumann og góðan dreng. Bjöm var mjög fjölhæfur maður og sjálfinenntaður í það ríkum mæli að hann stóð framar hálærð- um mönnum í mörgum greinum. Hann blés nýju lífi í ungmanafé- lagshreyfínguna bæði í Reykjavík og einnig norður í Þingeyjarsýslum. Mun hann hafa stofnað íþrótta- kennaraskólann til þess að sem flestir gætu orðið aðnjótandi þeirra íþróttaiðkana sem hann lifði og hrærðist í. Nemendur skólans skólaárið 1935—36. Talið frá vinstri: Hallgrímur Stefánsson, Hermann Guðmundsson, Nanna Þormóðs, Sveinn Stefánsson og Hans Jörgensson. Þau eiga 50 ára kennara-afmæli á þessu ári. Blómastofa fíióflnns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- eínnig um helgar. Skreytingar við öil tilefni. Gjafavörur. var það við fimleikana. Eftir að nemendur höfðu fengið þar góða undirstöðu hafði Bjöm sýningar með þeim aðra hvetja helgi allan veturinn. í sundinu var oft keppni og tók Bjöm þá alltaf tfmann á nemendum fyrir keppnina og raðaði þeim síðan saman, sem vom álíka hraðsyndir. Árangrinum raðaði Bjöm á spjald og festi það upp í skólanum. Vissi maður því hveijir mótheijamir vom daginn áður en sundið fór fram. Urðu því margir mjög taugaóstyrkir fyrir sundið. Fyrst var vegalengdin ekki nema 100 metrar, þá 200 m og um miðjan vetur 500 m. En undir vorið lét hann nemendur keppa í 1000 m sundi og þótti það mikil þrekraun. Bjöm var með nemendum í úti- tímanum sem var frá kl. 11 til 12 á daginn. Kenndi hann þeim þá á skíðum og skautum ef veður leyfði. Svo gerðist það haustið 1935 að ég ásamt fjórum öðmm fengum inngöngu í Iþróttakennaraskólann. Þá fyrst kynntist ég Bimi að nokkm ráði, meðal annars hinu gífurlega þreki hans og ósérhlífni. Sem dæmi um dugnað hans og áhuga má nefna, að hann ritaði og fjölritaði margar þær kennslubækur sem notaðar vom í skóla hans, eftir að hafa stundað kennslu í fímleikum, sundi og bóklegum greinum allan liðlangan daginn. Bjöm var strangur skólastjóri, en sanngjam og fljótur að sjá hvað væri nemendum fyrir bestu. Bjöm var mikill listamaður og unni mjög listum. Hafði hann glöggt fegurðar- skyn. Hann málaði ágætar myndir, spilaði á fiðlu og skrifaði upp og samdi mikið af þeim æfíngaskrám sem nemendur notuðu. Teiknaði hann þá skýringamynd við hveija æfíngu í þeim. Hann viðaði að sér nýjustu erlendum kennslubókum, er gátu komið honum að notum. Bjöm fékkst mikið við að mála og hafði sýningar á myndum sínum. Myndir þessar þóttu margar hveijar mjög góðar. Ekki vildi hann selja myndir eftir sig en gaf talsvert af þeim. Þá má ekki gleymast að Bjöm Bjöm var hlédrægur maður og vann mikið í kyrrþey. Vinnutími hans var oftast 16—18 klukku- stundir á sólarhring. Bjöm átti mjög margar bækur, bæði eftir innlenda og erlenda höfunda. Einkum viðaði hann að sér bókum, sem fjölluðu um íþróttir og voru þær á mörgum tungumálum, enda las hann bækur á Norðurlandamálum en auk þess á frönsku, þýsku og ensku. Bjöm lét handbinda allar bækur sínar. Var það gert af bestu bókbindurum sem völ var á og vom þær með fagurri gyllingu á kjöl. Vinnustaður Bjöms í tómstund- um var í bókasafni héraðsskólans. Þar skrífaði hann ljölda bréfa til starfsfélaga sinna erlendis. Þar drakk hann sterkt te með sítrónu- safa út í. Á sumrin sótti Bjöm marga al- þjóðafundi varðandi íþróttamál og dvaldist víða erlendis, sér til fræðslu um ýmsar íþróttagreinar. Annars dvaldist hann alltaf þegar hann gat, í heimabyggð sinni norður á Narfastöðum. Bjöm var spaugsamur og ræðinn ef því var að skipta og hafði mjög ákveðnar skoðanir. Hann var sér- staklega bamgóður, lék sér oft við bjöm og gaf þeim smáhluti, þó aldrei sælgæti. Bjöm kvæntist aldrei og átti engan afkomanda svo að vitað sé. Eftir að Bjöm hætti störfum sjötugur bjó hann áfram á Laugar- vatni og var Herdís, systir hans, þá hjá honum. Um sama leyti fór hann að fínna til sársauka fyrir hjarta og lá í sjúkrahúsi af þeim sökum. Það hafði verið ákveðið af göml- um nemendum Bjarnar úr íþrótta- kennaraskólanum og einnig vinum hans úr ÍR að efna til vinafagnaðar honum til heiðurs á 75 ára afmælis- degi hans 13. apríl 1961. Bjöm kom til Reykjavíkur daginn áður, hress og glaður. Leigði hann sér þá her- bergi á gistihúsi en fannst þar látinn morguninn eftir. Sveinn Stefánsson Laugarvatnsskóli. — íþróttahúsið lengst til vinstri. Þá tók ríkið við rekstri skólans en Bjöm var þar skólastjóri áfram. Þá var breytt um nafn á skólanum og heitir hann nú íþróttakennaraskóli íslands. t Þökkum innilega þá samúð og hlýhug sem okkur var sýnd viö andlát og útför HELGU HELEN ANDREASEN, Brattholti 6c, Mosfellssveit. Sigurður Jóhannsson, börn, móðir, tengdamóðir, systkini og makar þeirra. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinsemd við andlát og útför mágkonu minnar, GERÐU ÓLAFSSON Bjarmastfg 1, Akureyri. Fyrir mína hönd og aðstandenda, Maja Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.