Morgunblaðið - 13.04.1986, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. APRÍL 4986
39
lagt er til í frumvarpinu, þ.e. að
selastofnar séu keppinautar við
manninn um nytjastofna, þar á
meðal þorskstofninn".
„Það verða engin vandamál leyst
með útrýmingu einni saman á einni
dýrategund," sagði þingmaðurinn.
„Slík inngrip inn í náttúruna eru
ekki skynsamleg. Er ég ekki að
gera því skóna að þeir, sem mæla
fyrir þessu frumvarpi, ætli sér slíkt
eða séu hvetjandi þess að útrýma
selastofninum við landið, en ýmis-
legt í málflutningi þeirra sem að
þessum málum hafa unnið og þeirri
herferð sem hringormanefnd hefur
beitt sér fyrir . . . ber keim af
því að réttast væri að ganga svo
róttækt til verka að fækka selum
við landið niður í lágmark og jafnvel
að um útrýmingu geti verið að
ræða.“
Andstaða þingmanna byggðist á
ymsum ólíkum forsendum. Pálmi
Jónsson (S.-Nv.), taldi t.d. frum-
varpið „flækja þessum málum undir
tvö ráðuneyti og það gersamlega
að tilefnislausu og óþarft. Selveiðar
falla nú og hafa fallið undir land-
búnaðarlöggjöfina; selveiðar hafa
verið og eru hluti af hlunnindum
bænda . . .“
Friðjón Þórðarson (S.-Vl.) minnti
á að Breiðafjarðareyjar væru flestar
í einkaeign. Nefndi hann sérstak-
lega Vestureyjar og Suðureyjar.
Skammt væri sumstaðar milli þess-
ara eyja. Og þá kemur spurning,
sagði þingmaðurinn: „A að heimila
hverjum sem er að skjóta sel í
þessum álum, sem verða milli net-
lagna eyjanna, milli landeigenda inn
um allan §örð?“ (sbr. 4. grein frum-
varpsins).
Andsvör stuðn-
ingsmanna
Gunnar G. Schram (S.-Rn.) sagði
frumvarpið fjalla „nákvæmlega
jafnmikið um friðun selastofnsins
við ísland eins og fækkun sela við
landið. Það geti menn sannfærst
um ef þeir líta á ákvæði 6. greinar
þar sem ráðherra er veitt vald til
þess að ákveða, að fengnu sam-
þykki Náttúruvemdarráðs m.a.,
reglur um selveiðar á svæðum sem
friðlýst hafa verið eða kunna að
verða með heimild í lögum um nátt-
úmvernd frá 1971“. Selastofninn
væri ekki í hættu. Þvert á móti
hafí honum fjölgað mjög við ís-
landsstrendur og hringormum í fiski
samhliða með tilheyrandi vanda
fyrir sjávarútveginn.
Guðmundur J. Guðmundsson
(Abl.-Rvk.) vék að afköstum físk-
verkunarfólks hér og í Noregi.
Afköst væru sögð minni hér, ekki
vegna þess að vinnuhraði væri
meiri í viðmiðunarlöndum, heldur
vegna hins að tafir vegna hring-
orms rýrðu afköst. „Hvemig í
ósköpunum er hægt að láta svona
mál daga uppi þing eftir þing út
af vafasömum líffræðikenningum;
út af því að menn vilja halda í
einhvetja sérstaka hagsmuni land-
búnaðarráðuneytis eða vinna sér
hylli ákveðinna selabænda? . . .
Ég sé ekki að það gerðist neitt stór-
slys þó að þetta böl, hringormurinn,
sem kemur fyrst og fremst niður á
sjávarútveginum“ réni.
Guðmundur H. Garðarsson
(S.-Rvk.) sagði m.a. að viðblasandi
staðreynd væri, „að ef ekki er gripið
til tiltækra ráða til þess að fækka
sel við ísland þá muni það koma
hart niður á afkomu fólks . . . Það
mun draga úr þjóðartekjum, bæði
vegna þess að afköst í þeirri at-
vinnugrein, sem skiptir mestu máli
fyrir þjóðina, munu dragast saman,
munu minnka, jafnframt því sem
áhættan eykst á erlendum mörkuð-
um hjá þeim neytendum, sem borga
mest fyrir íslenzka sjávar-
,vöru . . .“
Ingerhillur
oq rekkar
w
Eigum á lager og útvegum með
stuttum fyrirvara allar gerðir af
vörurekkum og lagerkerfum.
Veitum fúslega allar nánari
upplýsingar.
y x
y 2/ Á 'd
UMBODS- OG HEILD VBBSL UN
BÍLDSHÖFDA 16 SiM!:672444
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
LANDSBANKINN
BYÐUR ÖRUGG
SKULDABRÉF
103%ÁSSYjXTUN UMFRAM
. VtSITÖLUHÆKKANIR
andsbanki Islands býður nú
örugg skuldabréf til sölu í öllum
afgreiðslum sínum og hjá fjármálasviði
bankans að Laugavegi 7.
kuidabréf Mjólkursamsölunnar,
_____skuldari Rfldssjóður íslands.
Bréfin eru að upphæð kr. 100.000.- og
200.000.- til 7 ára, með 2 afborgunum áári.
Ársávöxtun umfram vísitölu er 10,5%.
Nánari upplýsingar veita verðbréfadeildir
bankans um land allt og fjármálasvið
Laugavegi 7, símar 621244 og 20825.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
SIGLING UM EYSTRASALT
Með lúxusskÍDÍnu MAXIM GORKI
EIMN EIN LUXUS SKIPAFERÐIN I BOÐI
Nú verður haldið til Eystrasaltshafna. Um er að ræða skemmtifleyið MAXIM GORKI
— 25.000 tonn að stærð, búið öllum hugsanlegum þægindum, sem fjöldi íslendinga
hafa notið undanfarin ár.
FERÐATILHÖGUN
Brottför 23. maí. Flogið til Osló,
gist 2 nætur. Haldið til hafs 25.
maf. siglt um Stórabelti til
Gdynia, Helsinki, Leningrad,
Stokkhólms, Borgundarhólms,
Warnemiinde (A-Þýskalandi,
komið til Kaupmannahafnar 4.
júní og gist þar (2 nætur og
flogið heim 6. júnf.
SKOPUNARFERPIR
Á öllum viðkomustöðum skipsins
verður boðið upp á spennandi skoöun
arferðir.
4/WUX
Verð kr. 64.250.- pr. mann í tvíbýli.
Innifalið: Skipsferðin í útklefa m/baði/sturtu. Fullt
fæði um borð. Flug til og frá íslandi. Gisting á
Hóteli 2 nætur í Osló og 2 nætur í Kaupmannahöfn.
siglingar
eru okkar
sérgrein
mdMTIK
FERÐASKRIFSTOFA, Iöna&arhúsinu Hallveigarstigl. sími 91 -28388.