Morgunblaðið - 13.04.1986, Síða 44

Morgunblaðið - 13.04.1986, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. APRÍL1986 | atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna | Verslunastjóri Fyrirtækið er bóka- og ritfangaverslun. Starfið felst í yfirumsjón með deild íslenskra bóka, s.s. innkaupum, sölu og afgreiðslu bóka tilútlanda. Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi reynslu af rekstri og stjórnun sé hugmyndaríkur og eigi auðvelt með að starfa sjálfstætt. Stúd- entspróf æskilegt svo og haldgóð tungu- málakunnátta. Vinnutími er frá kl. 9-18. Umsóknarfrestur er til 16. apríl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Skólavördustig la - 101 Reykjavík - Simi 621355 Skrifstofumaður Fyrirtækið er þjónustustofnun í Reykjavík. Starfið felst í símavörslu á 8 línu skiptiborð með 30 innanhússlínum, vélritun, móttöku og afgreiðslu viðskiptavina auk annara al- mennra skrifstofustarfa. Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi vélrit- unarkunnáttu, skýrt málfar og þægilega framkomu. Æskilegur aldur er 30-45 ára. Vinnutími er frá 8 til 16. Nauðsynlegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur ertil 16. apríl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355 Byggingastjóri Fyrirtækið er umsvifamikill og rótgróinn byggingaverktaki. Starfið felst í yfirstjórn byggingafram- kvæmda við stóra nýbyggingu í Reykjavík. Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé með múrara- eða múrarameistararéttindi auk framhaldsmenntunar á tæknisviði eða há- skólastigi. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi stjórnunarhæfileika og séu tilbúnir að axla mikla ábyrgð. Reynsla af sambærilegu starfi eræskileg. Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 1986. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Liðsauka hf., frá kl. 9.00-15.00. Afleysmga- og ráðningaþjónusta Liösauki hf. W Skólavördustig' 1a - 101 Reyk/avik - Simi 621355 Rafvirki óskast til lager- og afgreiðslustarfa á raf- magnsvörulager. Umsóknir, með upplýsing- um um aldur og fyrri störf, sendist augld. Mbl. merktar: „BS — 3215“ Málarameistarar Málari óskast í vinnu hjá málarameistara. 20 ára starfsreynsla. Upplýsingar í síma 15858. Lagermaður Heildverslun óskar að ráða roskinn mann til lagerstarfa og móttöku á vörum. Umsóknir, með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist augld. Mbl. merktar: „SG — 3218“ Forstöðumaður fatadeildar Starf forstöðumanns Fatadeildar Sambands- ins er laust til umsóknar. Starfið krefst yfirgripsmikillar reynslu í stjórn- un og markaðsmálum. Fatadeildin hefur með höndum heildsölu, framleiðslu og verslunarrekstur með tilbúinn almennan fatnað og fleira. Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til starfsmannastjóra Sambandsins er veitir nánari upplýsingar, ásamt aðstoðarframkvæmdastjóra Verslun- ardeildar. Umsóknarfresturertil 17. þessa mánaðar. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉLAGA STARFSMANNAHALO LINDARGÖTU 9A Sumarafleysingar Óskum að ráða sumarafleysingamenn í störf brunavarða við Slökkvilið Hafnarfjarðar. Æskilegur aldur 19-29 ára, skilyrði að hafa meirapróf bifreiðastjóra. Umsóknir skulu berast undirrituðum fyrir 18. apríl nk. á umsóknareyðublöðum sem fást á Slökkvistöðinni v/Flatahraun. Slökkviliðsstjóri. Innanhússarkitekt tækniteiknari Arkitektastofa óskar að ráða innanhússarki- tekt og tækniteiknara til starfa sem fyrst. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist augld. Mbl. merktar:„HG — 14“ fyrir 18. apríl. Heildverslun — heildverslun Óska eftir að kaupa eða gerast eignaraðili að starfandi heildverslun. Góð sambönd við banka fyrir hendi. Tilboð sendist augld. Mbl. merkt: „Traustur aðili" fyrir 20. apríl 1986. Sölumaður Heildverslun óskar að ráða rafvirkja eða mann, sem hefur þekkingu á rafmagnsvörum og raflagnaefni, til afgreiðslu og sölustarfa. Umsóknir, með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist augld. Mbl. merktar: „Rafsala —3216. Lausar stöður Lausar eru til umsóknar tvær stöður sérfræð- inga við Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Þæreru: 1. Staða sérfræðings við Bútæknideildina á Hvanneyri, til að annast bútæknirann- sóknir. 2. Staða sérfræðings í jarðrækt með megináherslu á sviði plöntuerfðafræði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 1. maí nk. Landbúnaðarráðuneytið, 8. apríl 1986. Sölumaður veiðarfæra Fyrirtæki í Reykjavík sem flytur inn allar gerðir veiðarfæra óskar eftir sölumanni. Starfið kemur til með að byggjast að miklum hluta á söluferðum um landið og þá sérstak- lega dagsferðum um SV-hornið. Óskað er eftir manni með þekkingu á veiðum og veiðarfærum sem hefur góða samskipta- hæfileika. Viðkomandi þarf að hafa góða enskukunn- áttu og helst einnig kunnáttu í einu Norður- landamáli. Umsóknir sendist augld. Mbl. merktar: „X - 3443“ fyrir 17. apríl nk. Fasteignasölumaður Við leitum að vönum sölumanni sem hefur bíl til umráða og getur unnið mikið af eigin frumkvæði undir miklu álagi. Viðkomandi verður að vera reglusamur, marksækinn, þrautseigur, bjartsýnn, snyrtilegur og vera tilbúinn til að vinna eftir ákveðnu marksæknu sölukerfi sem byggist á notkun tölvu, góðu skiplagi og gerir kröfur til mikils sjálfsaga. Óvanur starfskraftur kemur til greina ef hann hefur ofangreinda kosti í ríkum mæli. Við bjóðum frábæra starfsaðstöðu, ókeypis heilsuræktaraðstöðu, góðan starfsanda og há laun samkvæmt árangri. Þeir sem áhuga hafa leggi inn umsókn er greini aldur, menntun og fyrri störf inn á augld. Mbl. merktar: „O - 3445“ fyrir 16. apríl. Ríkisútvarpið auglýsir laus til umsóknar nokkur tæknistörf hjá hljóðvarpi og sjónvarpi. í þessi störf á að ráða: a) Tæknimenn með próf í rafeindavirkjun eða hliðstæða menntun. b) Aðstoðarfólk til ýmissa starfa í tæknideildunum. Æskilegt er að umsækjendur um störf aðstoðarfólks hafi einhverja reynslu er tengist tæknistörf- um, t.d. stúdentspróf af tæknibraut. Um framtíðarstörf er að ræða og mun þess- um starfsmönnum veitt starfsþjálfun hjá Ríkisútvarpinu. Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk. og ber að skila umsóknum til Ríkisútvarpsins, Skúla- götu 4 eða Sjónvarpsins, Laugavegi 176, á eyðublöðum sem fást á báðum stöðum. Mfll RÍKISÚJVARPIÐ © Fjármálastjóri Jarðboranir hf. óska eftir að ráða fjármála- stjóra. Við mat á umsækjendum verður lögð áhersla á reynslu og hæfni í bókhaldi, fjármálastjórn, áætlanagerð og stjórnun. Laun verða miðuð við hæfni og reynslu við- komandi. Skrifleg umsókn þar sem fram komi upplýs- ingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist Gunnari Björnssyni, starfsmanna- stjóra, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík fyrir 16. apríl nk. Jarðboranir hf. er verktakafyrirtæki á sviði jarðborana. Fyrirtækið var stofnað um síð- ustu áramót og yfirtók það rekstur Jarð- borana ríkisins og Gufubors ríkisins og Reykjavíkur. Hlutafélagið er að jöfnu í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.