Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulitrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Bílar og banaslys * Afyrstu sex mánuðum líðandi árs létust fímmtán Islendingar í umferðarslysum, þar af átta ökumenn bifireiða, tveir ökumenn bifhjóla, tveir farþegar í bifreiðum og þrír gangandi vegfarendur. Hins- vegar hefur alvarlegum áverk- um í umferðarslysum fækkað, sem rakið er tií færri „útaf- keyrslna", en þær vóru 73 á fyrstu sex mánuðum ársins 1986 en rúmlega 100 á sama tíma 1985. Það er umhugsun- ar- og áhyggjuefni, að tveir íslendingar hafa látið lífíð að meðaltali í mánuði hverjum í umferðarslysum um nokkurt árabil sem og að þriðjungi fleiri banaslys hafa orðið í umferð- inni fyrri helming ársins 1986 en á sama tíma í fyrra. Bifreiðin gegnir veigamiklu hlutverki í daglegu lífí fólks á líðandi stundu. Á Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu, þar sem rúmur helmingur þjóðarinnar býr, fer fólk með einkabílum eða almenningsvögnum milli heimilis og vinnustaðar tvisvar eða oftar dag hvem. Það sama gildir um stóran hluta fólks í strjálbýli, þó vegalengdir milli heimilis og vinnustaðar séu yfírhöfuð styttri í smærri sam- félögum. í stóm og strjálbýlu landi eins og okkar skipta sam- göngur milli byggðarlaga, sem að stórum hluta fara um þjóð- vegakerfíð, mjög miklu máli fyrir félagsleg og menningarleg samskipti fólks, fyrir atvinnulíf- ið — flutningar hráefna og fullunninnar vöru —, fyrir námsfólk, sem víða fer um nokkum veg milli heimilis og skóla — og fyrir ferðafólk, er- lent og innlent, sem njóta vill náttúm landsins. Bifreiðin gegnir því veigamiklu hlutverki í lífí og starfí fólks á líðandi stundu. Bifreiðaeign íslendinga hef- ur og vaxið jafnt og þétt á liðnum ámm. Láta mun nærri að í landinu sé ein fólksbifreið á hveija tvo íbúa. Það er mun meiri bifreiðaeign en víðast annars staðar, t.d. meðal bræðraþjóða okkar á Norður- löndum. Við ökum einnig á betur búnum bifreiðum og betur gerðum vegum en áður, þótt sitt hvað standi enn til bóta í íslenzkri vegagerð. Umferðar- menning okkar, ef nota má það orð, hefur og þróast til réttrar áttar, en hvergi nærri í nógu ríkum mæli. Sú hörmulega nið- urstaða blasir við, að fímmtán manns hafa týnt lífí í umferðar- slysum hér á landi fyrri helming líðandi árs. Það er mikil blóð- taka fámennri þjóð. Það er mikið mannfall í ekki meiri umferð en þó er hér. Ekki má heldur horfa fram hjá meiðsl- um, sem tugir manna verða fyrir ár hvert, og í fjölmörgum tilfellum setur mark sitt á líf viðkomandi einstaklinga upp frá því. Það ógnvekjandi mannfall í umferðinni, sem við blasir, bók- staflega hrópar á eflingu hvers konar fyrirbyggjandi aðgerða. Sú fyrirbyggjandi aðgerðin, sem kemur fyrst og bezt að gagni, er á valdi ökumanna sjálfra, sem og hjólandi og gangandi fólks, að sýna fyllstu aðgæzlu, háttvísi og hjálpsemi í umferðinni. Við skulum öll leitast við að leggja fram okkar skerf að þessu leyti, til lækk- andi slysa- og dánartíðni í íslenzkri umferð. Að njóta landsins Ekkert er eðlilegra né heil- brigðara en að ungir og aldnir leggi leið sína á vit íslenzkrar náttúru meðan nótt- laus voraldarveröld ræður hér rílgum fáeinar vikur ár hvert. Hafa verður hinsvegar í huga, að veður skipast í lofti á skammri stundu — og að íslenzkt náttúra er ekkert lamb að leika sér við þegar hún sýn- ir á sér hinar verri hliðar. Það getur því verið meir en vara- samt að ana af augum og fyrirhyggjulítið í óbyggðir eða á hálendi landsins. Menn verða að kunna fótum sínum forráð í samskiptum við íslenzka nátt- úru. Skemmtanahald og fjölda- samkomur, sem eftit hefur verið til á fögrum stöðum um sumar- helgar, hafa og verið með ýmsu móti, stundum lítt viðfeldnu. Svo er til orða tekið í Tímanum í gær að „samkomuhald sé orð- ið með slíkum stórkarlabrag að lífí og limum er hætt vegna drukkinna og bardagafúsra" manna. Þar segir og að „náttúr- an sjálf þoli ekki það álag, sem af svona samansmölun" leiðir, þar sem „óhóflegt áfengisþamb og jafnvel þaðan af verri naut- nameðöl eigi sinn þátt í að dægrastytting og skemmtan snýst upp í öndverðu sína og verður að þjáningu og böli“. í þessu efni, sem öðrum, skiptir aimenningsálitið megin- máli. Ef tekst að virkja það gegn slíkri hegðan, sem hér um ræðir, er hálfur sigur unninn. Það á að vera hægt að njóta íslenzkrar náttúru, útivistar og skemmtunar, án þess að villi- mennska setji mark sitt á hegðan fólks, eins og stundum gerizt, vonandi í undantekning- artilfellum. Af hveiju er dýrt að vera fslendingur? Nokkur orð um nýlega könnun Verðlagsstofnunar í Reykjavík og Glasgow frá Félagi íslenskra stórkaupmanna eftir Árna Reynisson Samanburður Verðlagsstofnunar á verði á nokkrum matvörutegund- um í Glasgow og Reykjavík hefur vakið athygli. Engum þarf að koma á óvart, að breskar iðnaðarvörur eru allmiklu dýrari hérlendis en þar í landi. Þó hefur fréttaflutningur af þessari könnun verið með þeim hætti, að óhjákvæmilegt er að gera almenningi grein fyrir niðurstöðum hennar í heild. Það stendur Félagi íslenskra stórkaupmanna næst að gefa álit sitt, því mjög er undir félagsmönn- um þess komið að þessi hlið utanríkisverslunarinnar sé vel rek- in. Almennur innflutningur til lands- ins nam á árinu 1985 32,7 milljörð- um króna, og má áætla að sú tala tvöfaldist þegar við bætast toll- ast, skattar og verslunarkostnað- ur. Eitt prósent í lækkuðu vöruverði til neytenda að jafnaði jafngildir þá 700 milljónum króna. Þó hér sé gróft reiknað má ölium ljóst vera, að mikið er í húfí að vel sé unnið í samningum um vörukaup á er- lendri grund, og með hagkvæmum verslunarrekstri innanlands. Reykjavík — Glasgow Það er skoðun Félags íslenskra stórkaupmanna að kannanir sem þessar séu af hinu góða. Félagið hefur hvatt til þess að vel verði fylgst með þróun verðlags í kjölfar þess að frjáís verðmyndun var inn- leidd á árunum 1984—5. Hins vegar verður að krefjast sanngimi við mat á niðurstöðum og átta sig vel á því, hvað verið er að bera saman. Við samanburð á verðlagi á þess- um tveimur stöðum er það einmitt áleitin spuming, hversu miklar kröfur sanngjamt er að gera til okkar manna. Aðstöðumunur til að ná hagstæðum samningum er mik- ill og verður m.a. að taka tillit til eftirtalinna atriða: 1. í breska konungsríkinu búa um 60 milljónir manna og er breskur markaður því um 250 sinnum stærri en sá íslenski. 2. Bresk smásöluverslun er að langmestu leyti í eigu stórra inn- kaupakeðja, sem semja beint við framleiðendur innanlands. Vegna hagræðis sem því fylgir er verslunarkostnaður að sjálf- sögðu mikið lægri þar en hér. 3. í könnuninni er samanburður gerður á innlendum framleiðslu- vömm í Bretlandi og vömm sem fluttar em hingað til lands með misháum tollum. Þetta em ólík framleiðslustig þó varan sé sú sama. 4. Flestar vömmar vega allmiklu þyngra í neyslu Breta en íslend- inga og seljast þar miklu hraðar en hér. 5. Glasgow er ein ódýrasta stór- borg Bretlands og er vandséð hvort hægt er að fínna harðari viðmiðun. Það er því ekki undarlegt að tals- verður verðmunur kemur fram í samanburðinum. Þetta skýrist enn betur ef tekin em þijú dæmi um mismunandi verðmyndun á dós af bökuðum baunum. Þetta einfalda dæmi sýnir að langmestur hluti verðs á íslandi liggur í flutningskostnaði, háum tollum og mismunandi hagkvæmum verslunarháttum. Þegar leitað er að ástæðum fyrir háu vömverði hér þarf því bæði að athuga samnings- stöðu á erlendum markaði og einnig kostnað við aðdrætti og dreifíngu, þar með aðflutningsgjöld. Góð útkoma innflytjenda Það er til mikils ætlast að fslensk heildverslun nái í öllum tilfellum jafngóðu verði og bresk stórfyrir- tæki á heimamarkaði. Þegar skoðað er hversu lágur verslunarkostnaður er í Bretlandi, hljóta það að teljast viðunandi viðskiptakjör, sérstak- lega þegar lítið er keypt í einu, að ná kaupverði sem er lægra en út- söluverð í Glasgow. Fram kemur að þriðjungur vörutegundanna í könnuninni er keyptur á jafnlágu eða lægra verði en erlend stórverslun. Þá kemur fram að um 80% þeirra vörutegunda sem könnunin nær til eru á mjög viðunandi verði miðað við aðstæður. Nokkrar vömr koma lakar út f samanburðinum. Þar á meðal em vömmerki sem em hverfandi lítið seld á íslandi og önnur, þar sem neysla er svo lítil að verðmunur hefur nær ekkert að segja fyrir neytendur. Þá em nokkur dæmi sem benda innflytjendum á að end- urskoða þurfi samninga um kaupverð. Stjóm FÍS hefur rætt þessa út- komu við viðskiptaráðherra og verðlagsstjóra, og er enginn ágrein- ingur um að góð og viðunandi innkaup em gerð í flestum dæmum sem tekin vom. Kynning- og fjölmiðlun Stjóm Félags íslenskra stórkaup- manna hvetur til þess að kannanir sem þessi verði gerðar f fleiri ná- grannalöndum, enda verði tekið tillit til athugasemda félagsins um framsetningu og kynningu á niður- stöðum. Því hefur verið beint til verðlagsstjóra að verðlag á Norður- löndum verði borið saman, og verði þá jafnframt tekin með vara, sem flutt er inn til allra landanna. Ber að harma að misheppnuð kynning að þessu sinni hefur orðið til þess, að aðalatriði málsins hafa grafíst undir og ekki fengið þann sess í umræðunni sem vera ber. V erslunarkostnað málækka Vömverð á íslandi er hærra en það þyrfti að vera. Það er því meg- Arni Reynisson „ Að lokum þetta: Inn- flutningsverslun hefur verið pólitískt bitbein í áratugi og er umfjöllun um þetta mál nýjasta dæmið. Tímabært er að taka upp ábyrgari um- ræðu um þessa mikil- vægu starfsgrein.“ inverkefni samtaka verslunarinnar að vinna að lækkun verslunarkostn- aðar. Félag fslenskra stórkaup- manna hefur mótað stefnu í þessum efnum, og efnt til samstarfs við viðkomandi aðila um hvem einstak- an þátt. Skammt er liðið síðan verðmynd- un á matvöm var gefín frjáls. Fijáls verðmyndun hefur þegar átt dijúg- an þátt í þeim árangri sem náðst hefur f baráttunni við verðbólgu að undanfömu. Ekki er að efa að vax- andi samkeppni á eftir að skila enn frekari árangri á komandi tfmum. Ef þróun verður hér svipuð og á Norðurlöndum, mun innflutningur á matvöm á komandi ámm safnast á hendur færri og stærri heildsölu- fyrirtækja, sem munu eiga betra Innkaupsverð Flutningur o.fl. (CIF) Aðflutningsgjöld2 Heildverslun Smásala Einfalt dæmi um verðmyndun Bakaðar baunir Glasgow Reykjavík a. Reykjavík b. kr. 10 kr. 10 kr. 13 5 5 11 14 3 3 3 7 7 13 36 42 í fyrsta dálki er innkaupsverð og útsöluverð í Glasgow. | öðrum dálki er miðað við sama innkaupsverð f báðum borgum. í þriðja dálki er innkaupsverð til Reykjavíkur jafnt og útsöluverð f Glasgow. 1 Frakt, vátrygging, uppskipun, vörugjald á frakt og vextir. 2 Tollur 40% og vörugjald 24% sem leggst einnig á toll. með að ná hagstæðum samningum en nú er. Herða má á jákvæðri þró- un með markaðsrannsóknum og öflugu kynningarstarfi. Innflytjendur em ekki aðeins við- semjendur erlendra framleiðenda. Þeir sjá einnig um flutning, tiygg- ingar, fjármögnun, toll- og gjald- eyrisafgreiðslu, svo og geymslu og dreifíngu vömnnar þegar heim kemur. A þessum sviðum er að mörgu að hyggja og vinnur Félag íslenskra stórkaupmanna að verk- efnum sem miða að hagræðingu og lækkun kostnaðan Stofnuð hefur verið samstarfs- nefnd FÍS og farmflytjenda um möguleika til lækkunar á flutn- ingstöxtum og erlendum flutn- ingskostnaði. Stirðbusalegt stjómkerfí varð-' andi toll- og gjaldeyrismál veldur því að geymslukostnaður vöm og fjármagnskostnaður hér er allt of hár. Á vegum félagsins er unnið að athugun á lækkun kostnaðar við tollvörugeymslur, jafnvel með stofnun nýs fyrirtækis á því sviði. Vanskil á viðskiptaskuldum og skuldatap valda vemlegum útgjöld- um. FÍS beitir sér fyrir því að stofnað verði fyrirtæki sem tryggir hagkvæmari fjármögnun vöru- lána og betri skuldaskil. Félagið hefur vakið athygli stjómvalda á nokkmm þáttum sem krefjast úrbóta, ef árangur á að nást í viðleitni til að halda vöm- verði í lágmarki. Félagið hefur sent viðskipta- og fíármálaráðherra hug- mjmdir sínar á því sviði. Er ákveðið að sett verði á fót samstarfsnefnd FÍS og viðskiptaráðuneytisins um þetta efni. Þar verður lögð áhersla á það, af hálfu innflytjenda, að rýmkaðar verði heimildir til að hagnýta erlend vörulán sem bjóðast með litlum eða engum vöxtum. Slík ráðstöfun myndi ekki aðeins stuðla að lægra vömverði, heldur einnig draga úr spennu á þröngum innlendum lánamarkaði. Brýnt er að ný tollalög sjái dags- ins ljós. í fjármálaráðuneytinu liggur fmmvarp, þar sem kveðið er á um jafnari og sanngjamari tolla, svo og verulega einföldun og vinnuspamað í tollafgreiðslu, og leggur FÍS áherslu á að ekki drag- ist lengur að gera það að lögum. Það hefur verið almenn stefna hjá stjómvöldum að leggja hærri skatta á verslun en aðrar atvinnu- greinar. Menn skulu gera sér Ijóst að hér er aðeins verið að seilast inn í vömverðið og spenna upp álagn- ingu fyrirtækjanna. Sömuleiðis em fjarslriptatæki og allur búnaður til utanríkisverslunar hátollaður. Hægjr það á tæknivæðingu og framfömm. Verslunin er hluti af framleiðslunni og því brýnt að hún njóti ekki síðri aðbúnaðar en aðrir framleiðsluatvinnuvegir. Að lokum þetta: Innflutnings- verslun hefur verið pólitískt bitbein í áratugi og er umfjöllun um þetta mál nýjasta dæmið. Tímabært er að taka upp ábyrgari umræðu um þessa mikilvægu starfsgrein. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Sumarbúðir í Skálholti DAGANA 11.-17. ágúst verður gerð tilraun með sumarbúðir i Skálholti þar sem' lögð verður áhersla á tónlist og myndlist ásamt útiveru og náttúruskoðun. Tilgangurinn er að koma til móts við þau böm sem hafa gaman af iðkun tónlistar og myndmenntar og gefa þeim tækifæri til að vera sam- an í leik og starfí. Enn geta nokkur böm bæst í hópinn og er æskilegur aldur 8-10 ára. Upplýsingar eru veittar í sima 65 61 22. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Aslaug B. Olafsdóttir, Halldór Vilhelmsson og Hjördís Olafsdóttir. Skálholtskirkja Villing'aholtshreppur: Ungmennafélagið Vaka 50 ára Ungmennafélagið Vaka í Vill- ingaholtshreppi verður hálfrar aldar gamalt þann 19. júlí nk. Eins og önnur ungmennafélög i dreifbýli gegnir Vaka mikilvægu félagslegu hlutverki i hreppnum. Félagið var stofnað 1936 að frumkvæði Jóns Konráðssonar sem þá var kennari í hreppnum. Alla tíð síðan hefur félagið haldið uppi öflugri félagsstarfsemi. Á fímmta áratugnum var félagið þekkt fyrir mikia glímukappa sem unnu stór afrek á sínum vettvangi.. Félagið hefur alltaf átt góðan hóp íþrótta- fólks sem keppir fyrir hönd félags- ins. Félagsstarfið er nú með miklum blóma, skemmtanir haldnar I hreppnum, námskeið og iþróttir stundaðar. Félagið hefur ákveðið að halda upp á fimmtugsafmælið með því að bjóða hreppsbúum og öllum gömlum félögum og vandamönnum til afmælishófs í Þjórsárveri kl 21 að kvöldi afmælisdagsins. Þar verð- ur boðið upp á næringu, kaffí og kökur og síðan verður andlega þættinum sinnt með ræðum og skemmtiatriðum. Að lokum verður dansað við harmonikkuleik fram eftir nóttu. Fólk er hvatt til að rifta upp gömul tengsl við ungmennafélagið og óska afmælisbaminu um leið til hamingju með afmælið. — Sig Jóns. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir HELGU G. JOHNSON Hæstaréttardómaramir ásamt Reagan forseta. T.f.v.: Stevens, Powell, Blackmun, White, Burger, Brennan, Marshall, O’Gonnor og Rehnquist. Bandaríkin: Ná íhaldsmenn yfir- ráðum í hæstarétti? FYRIR STUTTU skipaði Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, Will- iam Rehnquist, hæstaréttardómara, í embætti forseta hæstaréttar í stað Warrens Burger, sem lætur af embætti eftír 17 ára feril, 78 ára að aldri. Þegar hæstiréttur kemur aftur saman fyrsta mánudaginn í október, verður einnig kominn nýr dómari, sem tekur sætí Rehnquists innan réttarins. Það er Antonin Scalia, fimmtugur innflytjandi frá Ítalíu, sem Reagan skipaði nýverið. Talið er að þessar breytingar innan bandaríska hæstaréttarins komi til með að hafa mikil áhrif í vændum íhaldssamari sveifla í Dómsúrskurðir í Bandaríkjun- um fara að miklu leyti eftir því hvemig hæstirétturinn hefur dæmt í svipuðum málum áður og felur því hæstirétturinn í raun ekki einungis í sér dómsvald, held- ur einnig löggjafarvald. Alls sitja níu dómarar, sem allir em skipað- ir til æviloka, í hæstarétti og gegnir einn þeirra embætti for- seta. Þegar dæmt er í máli í hæstarétti, ræður meirihlutinn úrslitum og skilar hann yfirleitt sameiginlegri ályktun réttarins. Hveijum dómara er þó heimilt að skila séráliti, þar sem hann gerir grein fyrir atkvæði sínu og í mikil- vægum málum skila jafnvel allir dómaramir áliti, svo hægt sé að vitna í þau síðar í undirréttum. Árið 1971 skipaði Richard Nix- on, þáverandi forseti Banda- ríkjanna, William Rehnquist í embætti hæstaréttardómara og vildi með því vinna á móti frjáls- ljmdri sveiflu, sem hann taldi ríkja í réttinum. Ekki varð þó íhalds- mönnum úr ósk sinni, því enn vom frjálsfyndir í meirihluta innan réttarins frá því um 1960, þegar Earl Warren var þar forseti. Rehnquist gekk undir viður- nefninu „The Lone Ranger", eða einmana kúrekinn, þar sem hann stóð oft einn á móti hinum átta dómumnum þegar dæmt var í mikilvægum málum, s.s. réttind- um blökkumanna, kvenna og fátækra. Undirmenn hans gáfu honum eitt sinn dúkku af kúrek- anum einmana og hefur hún safnað ryki á skrifborði Rehn- quists þar til nú. Með skipun Scalia í dómaraembætti, hefur Rehnquist nefnilega eignast sam- heija innan réttarins, en Scalia er ekki einungis íhaldsmaður mik- ill, heldur einnig góður vinur Rehnquists og spilafélagi. Ekki era allir á eitt sáttir um að þessar breytingar á skipun réttarins verði til góðs. íhalds- menn telja að nú hefjist nýtt og betra tímabil þar sem þjóðfélags- legar breytingar verða íhugaðar vandlega áður en ráðist verður í lagasetningar. Fijálslyndir telja hins vegar að Reagan sé með þessu að þröngva sinni eigin hug- myndafræði upp á löggjafarvald- ið. á þróun dómsúrskurða og sé nú lagasetningum þar. Nýjastí dómarinn I hæstarétti Bandaríkjanna, Antonin Scalia. Hann er talinn öruggur fylgis- maður Williams Rehnquist, hins nýskipaða forseta réttarins. Warren Burger var skipaður forseti hæstaréttarins árið 1969 af Richard Nixon, en þrátt fyrir að hann væri íhaldsmaður og skip- aður af forseta úr röðum repúblik- ana, urðu margir flokksbræður hans fyrir vonbrigðum með hann í gegnum árin. Honum tókst ekki að afla sér ömggs fylgis miðju- dómaranna svokölluðu, sem stundum greiða atkvæði með frjálslyndum og stundum með íhaldsmönnum. Algengt var að rétturinn kæmi sér ekki saman um meirihlutaákvarðanir í stór- málum. Þrátt fyrir að sex dómarar hafí verið skipaðir af forsetum úr Repúblikanaflokknum á tímabil- inu 1969 til 1981, hefur þeim ekki tekist að koma á hægri sveiflu innan réttarins og var það t.d. talið mikið áfall fyrir íhalds- sömu öflin þegar hæstiréttur úrskurðaði fóstureyðingar lögleg- ar árið 1973. f tíð Burgers var nánast óger- legt að geta sér til um hver úrskurður mála yrði, þar sem mikið var um sviptingar milli íhaldssamra og fijálslyndra afla innan hæstaréttar og ályktanir vom oft svo loðnar að undirréttum gekk illa að túlka innihald þeirra. Það er von margra að skipun Rehnquists og Scalia hafi í för með sér meira samræmi, þannig að hægt sé að sjá fyrir nokkum veginn hvemig úrskurðað verði í málum. Vald Bandaríkjaforseta til að skipa dómara í bæði hæstarétt og undirrétti sem falla undir ríkið, er talið eitt það mikilvægasta sem embætti hans felur í sér, þar sem dómaramir sitja oftast löngu eftir að forsetinn er farinn frá. Reagan hefur sýnt að hann vill rejma að hafa eins mikil áhrif á dómskerfíð og hann getur með því að skipa íhaldssama dómara. Hann hefíir nú skipað Rehnquist í sæti for- seta, Scalia sem dómara og einnig skipaði hann Söndm Day O’Con- nor, fyrstu konuna í hæstarétti, árið 1981. Ekki er hægt að víkja dómumm úr embætti eftir að skipun þeirra hefur verið staðfest af Banda- ríkjaþingi, nema þeir gerist sekir um föðurlandssvik, mútuþægni, eða aðra alvarlega glæpi. Er því mjög mikilvægt fyrir stjómmála- flokkana að koma sínum fram- bjóðendum í forsetastólinn þegar útlit er fyrir að einhver dómar- anna láti af störfum vegna aldurs. Næstu forsetakosningar í Banda- ríkjunum fara fram árið 1988 og verður baráttan þá ekki einungis um Hvíta húsið, heldur einnig hugsanlega um nokkur sæti í hæstarétti. Helsti forsvarsmaður frjáls- ljmdra í hæstaréttinum, William Brennan, er orðinn 80 ára gam- all, Thurgood Marshail, annar demókrati, er 78 ára að aldri, Harry Blackmun, einnig fíjáls- lyndur, er 77 ára að aldri og Lewis Powell, sem fylgt hefur Rehnquist að máli í 73% allra úrskurða, er orðinn 78 ára gamall. Hin, sem eftir em, þau O’Connor, Byron White, sem bæði fylgja Rehnquist að máli í flestum tilvikum, og John Paul Stevens, fijálslyndur, era öll innan við sjötugsaldur. Ef einhver hinna fyrmefndu ákveður að láta af störfum á meðan Reag- an er við völd, er nánast öraggt að íhaidsmenn nái yfirráðum inn- an réttarins, en því er spáð að Scalia einn komi ekki til með að breyta hlutfallinu á milli íhalds- og fíjálsljmdra afla eins og komið er. Þó er víst að hann er mikill fylgismaður bæði Reagans, Rehn- quists og annarra mikilla íhalds- manna og ef frambjóðandi Repúblikanaflokksins í næstu for- setakosningum fer með sigur af hólmi, er eins víst að hæstiréttur Bandaríkjanna verður skipaður dómuram, sem í flestum tilvikum halda í við gamlar venjur. Heimildir: New York Times, Time.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.