Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ;JÚLÍ 1986 Paul Watson, skipstjóri Sea Shepherd, í viðtali við Morgunblaðið: „Færeyingar skutu á okkur með vélbyssum“ Þórshöfn, frá Hilmari Jan Hansen, fréttaritara Morgunblaðsins. FÆREYSKIR fjölmiðlar hafa látíð í ljós mikla óánægju með að fá ekki að vera um borð í Olavur halgi, skipi strandgæzlunnar, þegar reynt var að taka skip græn- friðunga, Sea Shepherd, við Færeyjar. Hafa færeysk lögregluyfirvöld sætt mikilli gagnrýni vegna þessa. — Beittuð þið ekki líka línu- byssum? „Jú, við skutum með línubyss- um í átt að gúmbátnum, en það var í sjálfsvöm. Eg átti einskis annars úrkosti — mér bar skylda til að vemda áhöfn mína." Vill hylma yfir mistök sín — Þú berð sem sagt á móti því að þið hafið átt upptökin og reynt að kveikja í gúmbátnum? • „Já. Eg heyrði fyrst í gær að við hefðum átt að hafa hellt bensíni í sjóinn og skotið neyðar- Niels Juel Arge, útvarpsstjóri, sem hefur langa reynslu sem blaðamaður, segir t.d. í viðtali við færeysk blöð, að hann hafí aldrei reynt annað eins og að framkoma yfírvalda likist helzt því sem vænta megi í ríkjum kommúnista. Hann segir að yfírmenn strand- gæzlunnar hafí ekki haft á móti því að blaðamenn yrðu um borð í skipinu, en landfógetinn hafí bannað það. Finnbogi Isaksen hjá Færeyja- sjónvarpi hefur skrifað Erik Ninn-Hansen, dómsmálaráðherra Danmerkur, bréf vegna málsins. Hann klagar framkomu lögreglu- stjóri Færeyja, Mogens Nepper Christensen, og segir hann hafa fyrirskipað sínum mönnum að segja ekki orð við íjölmiðla um fyrirhugaðar aðgerðir gegn græn- friðungum eða af viðskiptum við þá. Aðstoðarlandfógeti, Finn Ougaard, segir í blaðaviðtali að leitt sé til þess að vita að fjölmiðl- amir skuli uppteknir af því að hafa ekki fengið að fara með strandgæzlunni til móts við græn- friðunga. í öllu írafárinu hafí nánast farið framhjá þeim að lög- reglunni tókst að koma í veg fyrir að grænfriðungar trufluðu hvala- dráp Færeyinga. Fjölmiðlar hefðu hæglega getað leigt bát og siglt á vettvang. Meðan verið væri að fást við alvarleg lögreglumál fengju þeir ekki aðstöðu um borð í varðskipunum. Ougaard segir, að þær aðstæður hefðu hæglega getað komið upp í viðureigninni við skipverja á Sea Shepherd, að útilokað hefði verið fyrir strand- gæzluna að sinna starfí sínu með skipið fullt af fréttamönnum. Nú er lokið viðgerð á strand- gæzluskipinu Tjaldrid, sem er mun hraðskreiðara en Ólavur halgi, og er það öllu betur búið til að takast á við grænfriðunga, sýni þeir sig aftur við Færeyjar. — Sea Shepherd til íslands næsta sumar „FÆREYSKA lögreglan skaut á okkur með vélbyssum og munaði minnstu að ein kúlan hæfði mig,“ sagði Paul Watson skipstjóri á Sea Shepherd þegar blaðamaður Morgunblaðsins náði símasambandi við hann, en skipið var skammt frá írlandi. Til átaka kom milli skipveija á blysum til að tendra í því. Þetta Sea Shepherd og færeysku lög- reglunnar á laugardag við Færeyjar. Færeysk yfírvöld hafa vísað ásökunum Watsons á bug, og halda því fram að skipveijar hafí reynt að kveikja í gúmbátum lögreglunnar með því að hella bensíni í sjóinn og skjóta neyðar- blysum í átt að bátunum. „Það er enginn fótur fyrir þessu," sagði Watson. „Aðdragandi átak- anna var sá að Sea Shepherd var undap Suðurey þegar gæslubátur- inn Ólaur hatgi kom til móts við skipið með þijá gúmbáta innan- borðs. Eltu gúmbátamir okkur um 10 mílur inn á alþjóðasiglinga- svæði. Síðan kom einn báturinn, sem í voru þrír lögreglumenn vopnaðir vélbyssum, upp að Sea Shepherd. Ég fór því næst út á brú og spurði þá hvað þeir hygð- ust fyrir. Einn lögreglumannanna kom auga á mig og miðaði á mig byssunni. Ég spurði hann í gamni hvort hann ætlaði virkilega að skjóta mig. Og hann svaraði með því að hleypa af og þaut byssukúl- an ekki meira en 10 sentimetrum yfír höfuð mér. Ég forðaði mér inn í skipið, en þá héldu lögreglu- mennimir áfram að skjóta á það. Munaði minnstu að einn vélar- manna minna yrði fyrir skoti. Við gripum þá til þess ráðs að skjóta neyðarblysum yfír höfuð þeirra til að freista þess að hrekja þá á brott.“ er uppspuni frá rótum. Færeyska lögreglan vill greinilega hylma yfír mistök sín og ótímabær við- brögð. Auk þess vom breskir fréttamenn frá hlutlausri frétta- stöð, BBC, í för með okkur, og þeir fylgdust með öllu. Festu þeir átökin á fílmu. Myndimar munu sýna svo að ekki verður um villst að við höfum rétt fyrir okkur." — Er það rétt að þið ætlið að' brynveija skipið, meðal annars gera stefni Sea Shepherd skot- helt, og snúa til Færeyja á ný? „Það er laukrétt. Við munum gera ráðstafanir til að vemda skip okkar. Við gerðumst á engan hátt brotlegir við lögin meðan við vomm við Færeyjar. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær verður haldið til Færeyja, en það verður eins fljótt og kostur er. Við mun- um svo koma til Bristol á morgun og taka vistir og endurmanna skip okkar. Þó vil ég leggja áherslu á að mótmæli okkar við Færeyjar em aðeins einn liður í baráttu okkar gegn hvalveiðum. Nú stendur til dæmis_yfír herferð í Bandaríkjunum, Astralíu og Sea Shepherd í Reykjavíkurhöfn, en þangað kom skipið haustið 1985. Á innfelldu myndinni er Paul Watson skipstjóri. fleiri löndum til að fá almenning þar til að hætta að kaupa fær- eyska vöra.“ — Hyggist þið fara til íslands í sumar til að mótmæla hvalveið- um hér? „Nei, við ætlum að einbeita okkar algjörlega að Færeyjum i sumar, en í ráði er að mótmæla hvalveiðum Islendinga að ári. Hins vegar hef ég haft spumir af því að önnur umhverfisvemdar- samtök, eins og Greenpeace- samtökin, ætli að standa að ein- hveijum mótmælaaðgerðum við Island í sumar.“ — Það hefur frést að þið hafíð átt í erfiðleikum með að fjár- magna mótmælaaðgerðir ykkar. Hvað er hæft í því? „Það er ekki rétt. Til dæmis var leiðangur okkar til Færeyja fjármagnaður með söfnun, sem breskir nemendur stóðu að. Við emm samtök sjálfboðaliða, og sníðum okkur að sjálfsögðu stakk eftir vexti. En við höfum starfað síðan árið 1977, og það segir sína sögu,“ sagði Paul Watson að lok- um. Atökin við Sea Shepherd við Færeyjar: Fjölmiðlar reiðir lögregluyfirvöldum Nýr heims- leiðtogi Hjálpræð- ishersins Eins og Morgnnblaðið skýrði frá fyrir skömmu tók Eva Burrow hershöfðingi við embættí heimsleiðtoga Hjálpræðishersins hinn 9. júlí. Burrows hershöfðingi, sem er 56 ára gömul, er önnur konan sem gegnir þessu embættí. Eva Burrows Afganistan: Harðir bardagar og míkíð mannfall Islamabad, Pakistan, AP. MÚHAMEÐSKIR skæruliðar hafa vfða átt í harðvítugum bardögum við sovéska hemámsliða og afganska stjórnarhermenn undanfarna daga. Hefur orðið mikið mannfall í liði beggja aðila í átökum um tvær mikilvægar borgir og öðrum vopnaviðskiptum. Vestrænir sendifulltrúar segja, að harðir bardagar hafí orðið við borgina Herat í vesturhluta Afgan- istans undanfama viku, svo og í Kandahar á suðvesturhomi lands- ins. Þeir segja, að auk þess hafí víða slegið í brýnu í kringum höfuð- borgina, Kabúl, þar sem skæruliðar hafí m.a. eyðilagt fjórar þyrlur í árás á sovéska flugstöð. Skæmliðasveitir hafa haft mest- an hluta Herat á valdi sínu og vom afganskir stjómarhermenn sendir á vettvang, ásamt sovésku herliði, í þeim tilgangi að hrekja þær á brott. Loftárásir Sovétmanna og stór- skotaliðsárásir hafa valdið gífur- legu tjóni í borginni, sem er illa farin fyrir, að sögn skæmliðanna. Stjóm Afganistan lýsti því yfir á sunnudag, að stjómarherinn hefði unnið frækilegan sigur á skæmlið- um umhverfis Herat dagana á undan, drepið 13 skæmliðaleiðtoga og tugi liðsmanna þeirra. Talsmenn skæmliða hafa vísað þessum full- yrðingum á bug, en segjast eiga í vök að veijast, auk þess sem að- dráttarleiðir þeirra hafi lokast. Skæmliðar réðust á stóra, sov- éska flugstöð í Bagram, norður af Kabúl, 4. júlí sl., eyðilögðu fjórar eldflaugaþyrlur og kveiktu í her- gagnageymslu. Fjórir skæmliðar létu lífíð í árásinni. Þá hafa skæmliðasveitir undan- farið gert mikinn usla í hergagna- flutningum til Kabúl og m.a. ráðist á bílalestir á leið frá sovésku landa- mæmnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.