Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 48
(<5^, FASTEIGNA
MARKAÐURINN
| , . í|
LIFLEG SALA
Okkurvantar
eignirásöluskrá
símar: 11540-21700
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986
VERÐ f LAUSASÖLU 40 KR.
Skýli reist yfir
skemmtig'arðinn
í Hveragerði?
AFLAHROTA hefur að undanförnu gengið yfir
miðin norður af landinu. Áhöfnin sem þarna er
á leið á „miðin" er þó ekki í veiðihugleiðingum
— heldur er þarna hluti Stuðmanna á leið út í
Grimsey þar sem hljómsveitin hélt tónleika I
gærkvöldi.
„Karlarnir í brúnni“ eru Jakob Magnússon og
Valgeir Guðjónsson en Ragnhildur Gisladóttir,
Ásgeir Óskarsson og Egill Olafsson eru á dekki.
Stuðmenn og fylgdarlið sigldu frá Dalvík áleiðis
til Grímseyjar um hádegisbilið í gær á 28 tonna
fiskibát frá Árskógssandi, Sólrúnu EA, og var
myndin tekin skömmu áður en haldið var úr
höfn.
EIGENDUR Tivolígarðsins í Hveragerði kanna nú möguleika
á að reisa skýli yfir skemmtigarðinn með það fyrir augum að
reka þar starfsemi allt áríð. Skýlið gæti orðið allt að 20 þús-
und fermetrar að flatarmáli og yrði þá stærsta bygging sinnar
tegundar hér á landi.
Simamynd Morgunbladið/Skapti Hallgrinuaon
Stuðmenn halda á miðin
Sigurður Kárason, einn eigenda
Tívolígarðsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hugmyndin væri
að reisa létt skýli yfir garðinn, sem
gæfí möguleika á að loka garðin-
um þegar illa viðrar. Gert væri
ráð fyrir að klæðningin veitti birtu
og jafnframt yrði skýlið upphitað
þannig að starfrækja mætti garð-
inn árið um kring. „Verið er að
kanna málið enn sem komið er
og ekki hægt að segja til um .á
þessu stigi hvort úr þessu getur
orðið. Það fer auðvitað allt eftir
því hvort kostnaður við þetta verð-
urviðráðanlegur," sagði Sigurður.
Verkfræðistofan Hönnun hf.
annast undirbúning og könnun á
framkvæmd þessari og hefur stof-
an óskað eftir hugmyndum um
byggingarefni og annað er lýtur
að uppsetningu.
Nýja
farsíma-
kerfið þeg-
ar of lítið
Morgunblaðið/Einar Falur
Handtökin við hveija byggingu eru mörg. Myndin var tekin í Grafar-
vogi í gær.
12% samdráttur í bygging-
ariðnaði frá því árið 1984
samkvæmt könnun Landssambands iðnaðarmanna
TALSVERÐUR samdráttur hef-
ur orðið í byggingaríðnaði hér
á landi á undanförnum mánuð-
um og ef miðað er við tvö síðustu
ár hefur hann orðið um 12%,
þegar á heildina er litið, sam-
kvæmt byggingarkönnun
Landssambands iðnaðarmanna.
Samkvæmt lauslegrí könnun,
sem Morgunblaðið gerði á
nokkrum stöðum á landinu virð-
ist sem samdrátturinn hafi orðið
mun ineiri víða úti á landi, en í
þéttbýliskjörnum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Gunnar S. Bjömsson, formaður
Meistarasambands byggingar-
manna, sagði í samtali við
Morgunblaðið að könnun Lands-
sambands iðnaðarmanna hefði leitt
í ljós samdrátt í byggingariðnaði
á undanfomum tveimur ámm.
„Við höfum þar áþreifanlegar sam-
dráttartölur, allt að 12% frá árinu
1984," sagði Gunnar. „Hins vegar
verður að hafa í huga að hér er
fyrst og fremst um að ræða sam-
drátt vegna nýbygginga, og tals-
vert mikill hluti af því vegna
íbúðarbygginga. Talsvert hefur
verið um byggingarframkvæmdir
á vegum opinberra aðila og það
sem einkum hefur komið á móti
samdrættinum í nýbyggingum em
mun meiri umsvif í viðgerðum og
viðhaldi, en áður var,“ sagði Gunn-
ar ennfremur.
Hann sagði að því væri ekki
ástæða til að óttast um atvinnu-
leysi meðal byggingarmanna í
bráð. „Ef litið er fram á við er
ekkert sem bendir til atvinnuleysis
eða verkefnaskorts hjá byggingar-
mönnum á næstunni, enda nóg að
gera í viðgerðum og vinnu við
breytingar á húsum,“ sagði Gunn-
ar. „Að vísu má segja að ástandið
sé mismunandi miðað við lands-
hluta og sums staðar úti á landi
er það mun alvarlegra en hér á
höfuðborgarsvæðinu. Spumingin
er hins vegar hversu sterkt nýja
lánakerfíð kemur inn í þetta með
haustinu og í byijun næsta árs.
Ég hef þá trú að þetta lánakerfí
komi til með að hafa örvandi áhrif
á byggingarframkvæmdir," sagði
Gunnar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk á skrifstofu
byggingarfulltrúa á Akureyri hef-
ur þar orðið verulegur samdráttur
í byggingarframkvæmdum að und-
anfömu, einkum hvað varðar
íbúðarbyggingar. Sem dæmi má
nefna að árið 1982 var byijað á
97 íbúðarbyggingum þar í bæ, en
1984 vom þær komnar niður í 30
og 1985 niður í 17. í Hafnarfírði
og Kópavogi hefur samdrátturinn
hins vegar orðið mun minni þótt
byggingarfulltrúar í báðum þess-
um bæjum hefðu staðfest að
byggingarframkvæmdir þar hefðu
dregist nokkuð saman. Erlendur
Hjálmarsson, byggingarfulltrúi í
Hafnarfírði, sagði að íbúðarbygg-
ingar í smíðum í ársbyijun 1985
hefðu verið 228, en í ársbyijun
1986 hefðu þær verið 191. Hins
vegar hefði þróunin í byggingum
iðnaðarhúsnæðis verið jákvæð, 44
iðnaðarhússbyggingar í ársbyijun
1985 en 52 í ársbyijun 1986.
Gunngeir Pétursson, skrifstofu-
stjóri í byggingardeild borgarverk-
fræðings í Reykjavík, sagði í
samtali við Morgunblaðið að ekki
hefði orðið vart við umtalsverðan
samdrátt í byggingarframkvæmd-
um í höfuðborginni það sem af er
þessu ári. Hins vegar hefðu lóðaút-
hlutanir verið tregari en oft áður.
Skýringin á því væri þó líklega sú,
að miklu hefði verið úthlutað á
undanfömum ámm, og menn verið
misjafnlega iengi að hefja fram-
kvæmdir.
SKRÁÐIR notendur sjálfvirka
farsimans, sem tekinn var í notk-
un 3. júlí sl., eru nú að nálgast
600. Alls eru til númer fyrir 3.000
notendur um land allt, þar af
1.000 númer í Reykjavík.
Jóhann Hjálmarsson, blaðafull-
trúi Pósts og síma, sagði í samtali
við Morgunblaðið að pantanir hefðu
farið fram úr öllum áætlunum sem
gerðar höfðu verið, en miðað við
núverandi ástand er hægt að sinna
500 til 1.000 notendum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þegar er farið að
vinna að fjölgun rása og sagði Jó-
hann að pöntuð hefði verið stækkun
á móðurstöð í Reykjavík þannig að
rásafjöldi hennar myndi væntan-
lega þrefaldast í nóvember eða
desembermánuði.
Víðidalsá:
28 punda lax
nú sá stærsti
Þeir gera það ekki enda-
sleppt bandarísku stangveiði-
mennimir í Víðidalsá þessa
dagana. í gærmorgun veidd-
ust 16 laxar í ánni á 8 stangir
og þar á meðal var 28 punda
hængur sem William Morrow
veiddi á Neðri Laufásbreiðu
á fiuguna Black and Blue nr.
6. Morguninn áður hafði fé-
lagi hans, John Fisk, veitt 26
punda hæng á sama veiðistað
eins og frá var greint I Morg-
unblaðinu i gær.
John Fisk þurfti þó ekki að
kvarta, því hann veiddi tvo laxa
í gærmorgun, 24 punda lax á
fyrmefndum veiðistað, Neðri
Laufásbreiðu, og 22 punda lax
í Daisárósi, báða á fluguna Silv-
er Blue nr. 6. Meðalþungi
veiddra laxa í Víðidalsá er með
ólíkindum þessa dagana, því
flestir hinna laxanna sem veidd-
ust, svo og flestra þeirra
rúmlega 300 sem veiðst hafa,
vógu 12-17 pund. Stórlaxaban-
amir sem nú em að veiðum
hófu veiðar eftir hádegi á
fímmtudaginn í síðustu viku og
á hádegi í gær höfðu þeir veitt
100 laxa.
Sjá „Eru þeir að fá’ann?“
blaðsíðu 5.