Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 Samningar lögreglumanna og ríkisins: Laun lögreglumanna hækka um þrjú til níu þúsund krónur - Einar Bjamason formaður Landssambands lögreglumanna: „Hvet lögreglumenn til að samþykkja samninginn. - Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra: „Er sáttur við launalið samningsins“ FULLTRÚAR samninganefnda ríkisins og Landssambands lög- reglumanna undirrituðu í gær sérkjarasamning, með fyrirvara um samþykki félagsmanna, sem felur í sér launahækkun um 4-8 launaflokka í tveimur áföngum á samningstímabilinu. Fyrst hækka Iaun allra lögreglumanna um þijá flokka frá 1. febrúar síðastliðnum, en síðan aftur um 1-5 flokka 1. september næst- komandi. Hækkun um hvern launaflokk samsvarar bækkun um 3%, svo hækkunin frá febrú- arbyijun nemur um 9,3%, en heildarhækkunin er á bilinu frá 12,5% til 26,7%. í krónum talið meta lögreglu- menn heildarhækkunina frá tæpum þremur þúsundum upp í rúm níu. Lágmarkslaun lögreglumanna voru fyrir þessa hækkun 21.422 krónur á mánuði, en hækka í 24.111 krón- ur 1. september. Þeir sem hækka mest eru varðstjórar sem náð hafa 55 ára aldri. Laun þeirra voru 34.811 krónur, en hækka í 44.096 krónur. A móti missa lögreglumenn spón úr aski sínum hvað varðar aukavinnu; svokallaður hálftími, sem greiddur hefur verið aukalega í ferðatíma ef menn vinna eftir- vinnu, breytist í stundarfjórðung. Hjá þeim sem vinna mikla auka- vinnu er talið að þetta samsvari allt að launaflokks lækkun. Ellefu bókanir almenns eðlis fylgja samningnum. Þar er meðal annars kveðið á um eflingu starf- semi Lögregluskóla ríkisins og að lögreglumenn sem lokið hafa námi frá skólanum skuli ganga fyrir um föst lögreglustörf. Þá er þar bókun þar sem ákveðið er að aðilar vinni að því að koma í framkvæmd í Reykjavík hagkvæmara vaktakerfi og skal slíkt kerfí tekið upp til reynslu eigi síðar en 1. október næstkomandi. Ennfremur er í samningnum að fínna bókun sem skuldbindur dómsmálaráðuneytið til að ganga frá samningi um vopna- burðarmái. Afnám verkfallsréttar í sérstakri bókun með samningn- um er þess getið að aðilar hafí orðið ásáttir um að afnema verkfallsrétt lögreglumanna. í bókuninni segir ennfremur að ríkisstjómin skuli beita sér fyrir breytingu á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna í þá veru að náist ekki samkomulag um sérkjarasamning Landssambands lögreglumanna geti hvor aðili um sig krafíst þess að lögreglumenn fái jafnmikla hækkun og BSRB, BHMR, Sam- að gæta að hann hefði í raun ekki verið mikils virði í verkföllum BSRB, þar eð lögreglumenn hefðu ávallt verið skyldaðir til að vinna. Ennfremur stæði fyrir dyrum auka- þing Landssambands lögreglu- skilja ákveðna hópa í öryggisþjón- ustu og heilsugæslu verkfallsrétti. Samkomulagið núna er liður í að hrinda þessum hugmyndum í fram- kvæmd og ég fæ ekki séð að það gangi á skjön við vilja BSRB,“ sagði Þorsteinn. Óvissa um vilja lögreglumanna í Landssambandi lögreglumanna Morgunblaðið/Einar Falur Samningurinn var kynntur lögreglumönnum á fundi á Hótel Sögu siðdegis í gær. Fundurinn var öðrum lokaður og lögreglumenn gættu þess að enginn óviðkomandi færi inn í salinn. eru 594 félagar og þeir munu í næstu viku kjósa um það hvort þeir vilji samninginn eða ekki. Á félagsfundinn á Hótel Sögu í gær mætti á þriðja hundrað lögreglu- manna. Fundurinn var lokaður fréttamönnum, en það var mat þeirra lögreglumanna sem Morgun- blaðið ræddi við að menn hefðu verið allánægðir með þá launa- hækkun sem í samningnum felst, en margir á hinn bóginn ósáttir við afnám verkfallsréttarins. Einar Bjamason sagðist engu geta spáð um niðurstöðu atkvæða- greiðslu lögreglumanna, en hvatti til að menn samþykktu samninginn. „Ég er vel sáttur við launalið samn- ingsins og ýmsar bókanir, sérstak- lega hvað varðar menntunarmál og vinnutímamál, en ég viðurkenni að í honum eru neikvæð atriði, einkum er varðar verkfallsréttinn. Stétt lög- reglumanna hefur verið að hrynja undanfarið og ef þessi samningur megnar að rétta hana við og breyta stéttinni í fagfélag en ekki farand- verkafólk, þá er hann til góðs,“ sagði Einar Bjamason, formaður Landssambands lögreglumanna. Þorsteinn Pálsson sagðist vera sáttur við launalið samningsins: „Þetta er mikil hækkun í prósent- um, en á móti kemur að ýmiss konar greiðslur falla niður og opnaður er möguleiki á að taka upp nýtt vinnu- skipulag í Reykjavík, sem yrði til hagræðis fyrir ríkissjóð. Ég held, að þegar á allt er litið, geti báðir aðilar vel unað við þennan samn- ing,“ sagði Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra. band íslenskra bankamanna og Bandalag kennarafélaga hafa að meðaltali fengið umfram lögreglu- menn frá síðasta sérkjarasamningi þeirra. Þetta fyrirkomulag kemur í stað þess að vísa málinu til kjara- nefndar. Samningamir vom kynntir á fjöl- mennum félagsfundi á Hótel Sögu í gærdag. Þegar fundurinn var ný- lega hafínn vom Einar Bjamason formaður Landsambands lögreglu- manna og Þorgrímur Guðmundsson stjómarmaður kvaddir á skyndi- fund með stjóm BSRB. Á þeim fundi harmaði stjóm BSRB það atriði samningsins þar sem lög- reglumenn afsala sér verkfallsrétti. Einar Bjamason sagði á fundi með fréttamönnum í gærkvöldi, að vissulega væri það neikvætt að missa verkfallsréttinn, en þess bæri manna í haust, þar sem úrsögn úr BSRB yrði til umræðu. Stjóm BSRB samþykkti síðan ályktun vegna sérkjarasamninga lögreglumanna (sjá annars staðar á síðunni), þar sem þess er krafíst af fjármálaráðherra að hann falli frá þeim hluta samkomulagsins við lögreglumenn, sem snýr að afnámi verkfallsréttarins. Því neitaði Þor- steinn Pálsson fjármálaráðherra. Þorsteinn sagði við í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að frá- leitt væri að falla frá atriðum í samningi sem aðilar hefðu orðið ásáttir um. „í vetur lögðum við fram ákveðnar hugmyndir um breytingu á samningsréttarákvæðum, sem voru í samræmi við þann vilja BSRB að einstök félög bandalagsins fái samningsrétt og þar með verkfalls- rétt. Hins vegar tókum við skýrt fram að nauðsynlegt væri að undan- Þingflokkur sjálfstæðismanna. Stefna í banka- málum ákveðin á næsta fundi A móti skerðingu samn- ingsréttar lögreglumanna segir í ályktun stjómarfundar BSRB Á STJÓRNARFUNDI BSRB í gær var einróma samþykkt svo- felld ályktun vegna kjarasamn- inga lögreglumanna: „Stjóm BSRB fagnar þeim launahækkunum, sem flármálaráð- herra hefur boðið lögreglumönnum í viðræðum um sérkjarasamninga. Jafnframt fordæmir stjóm BSRB þau atriði sem fylgja með í samn- ingnum, en í þeim felst stórfelld skerðing á samningsrétti samtaka lögreglumanna. í staðinn á að koma viðmiðunarréttur við laun félags- manna í nokkmm tilteknum heild- arsamtökum, sem með vinnubrögð- um úármálaráðherra er á skipulegan hátt verið að reyna að bijóta niður. í viðræðum fulltrúa BSRB við fjármálaráðherra í dag var þess krafíst að hann félli frá þeim þætti samkomulagsins við lögreglumenn, sem miðar að skerðingu samnings- réttar þeirra og annarra starfshópa, en léti launahækkanir til lögreglu- manna haldast. Þessari kröfu var hafnað af ijármálaráðherra. Stjóm BSRB skorar á lögreglu- menn og allt launafólk á íslandi að veijast með öllum tiltækum ráðum ódulbúinni árás fjármálaráðherra á grundvallarrétt samtaka launafólks til þess að semja um kjör félags- manna sinna sem frjálsir menn.“ ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis- flokksins fundaði i gær um stefnu sína í bankamálum. Þar gerði viðskiptaráðherra, Matthías Bjamason, grein fyr- ir stöðu mála og hugmyndum sínum um framtíðarskipan ríkisbankanna. Ólafur G. Ein- arsson, formaður þingflokks- ins, sagði að dagana 30.-31. júlí yrði haldinn annar fundur þar sem stefna flokksins yrði mótuð endanlega. „Það getur vart dregist lengur,“ sagði Ólafur. Ólafur sagði að umræðan hefði að sjálfsögðu snúist mest um Út- vegsbankann, og hvaða leiðir væri skynsamlegast að fara í hugsan- legri sameiningu bankanna. Ákvarðanatöku var frestað til næsta þingflokksfundar. Hann vildi ekki skýra nánar frá umræðu á fundinum. Aðspurður sagðist Ólaf- ur ekki skilja hvað Framsóknar- flokknum gengi til að skipa mann af sinni hálfu f nefnd til að fjalla um framtíð ríkisbankanna. „Við teljum málið alls ekki á því stigi." Þjóðleikhúsið; Signý Pálsdóttir ráðin leikhúsritari Akureyri. SIGNÝ Pálsdóttir, fyrrum leik- hússtjóri á Akureyri, hefur verið ráðin leikhúsritari við Þjóðleik- húsið. Signý hafði verið ráðin fréttamað- ur við Rfkisútvarpið á Akureyri en ekkert verður úr því að hún starfí þar. Eiginmaður hennar, Ólafur H. Torfason, hefur verið ráðinn til Stéttarsambands bænda f Reykjavfk og fylgir Signý eiginmanni sínum. Leikhúsritari sér um samskipti við fjölmiðla og hefur einnig umsjón með bókasafni leikhússins, handrit- um og sér um myndatökur. Signý tekur því við störfum þeirra Arna Ibsen, sem fer í árs leyfí, en hann sá um bókasafnið, og Flosa Ólafs- sonar, sem verið hefur blaðafulltrúi Þjóðleikhússins undanfarið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.