Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 Noregur; Áfengisbirgðir að ganga til þurrðar Frá Bernt Olufsen, fréttaritara Morgun blaðsins í Osló. VERKFALL starfsmanna áfeng- áfengisverslunarinnar isverslunar ríkisins virðist ætla að standa fram á haust. A fimmtudag höfnuðu yfirmenn tilboði starfsmanna sem hljóðaði upp á 11,2% hækkun launa. Tollverðir við landamærin muna ekki eftir Nicaragua: Stjórnin eignast sovéskar þyrlur Managua, AP. STJÓRN Sandinista í Nicaragua hefur fengið nýjar þyrlur af gerð- inni MI 17 frá Sovétríkjunum. Að sögn talsmanna eru þyrlurnar 15 að tölu og getur hver þeirra flutt 32 menn. Richard Wheelock, yfirmaður Sovétmanna. leyniþjónustu hersins, lagði áherslu á að her E1 Salvador hefði fengið 74 þyrlur frá Bandaríkjunum auk þess sem her Hondúras réði yfir 130 þyrlum. Daniel Ortega, forseti landsins, talaði við ráðamenn í Sovétríkjun- um í gegnum gervihnött og er þetta í fyrsta skipti sem jarðstöð sú er kúbanskir og sovéskir sérfræðingar reistu í Nicaragua, er notuð í þess- um tilgangi. Jarðstöðin tekur við sendingum frá Sputnik gervihnetti Madrid: Torg helgað Dali Madrid, AP. BORGARSTJÓRINN í Madrid skýrði frá því í gær að eitt torg borgarinnar hefði verið helgað listmálaranum Salvador Dali. Dali gat ekki verið viðstaddur at- höfnina, þar sem borgarstjórinn greindi frá ákvörðuninni, vegna heilsubrests, en læknar settu gangráð í hann á mánudag. Á torginu er stór minnnisvarði, sem gerður var eftir hugmynd Dal- is til heiðurs konu hans, Gölu, en hún lést árið 1982. Hér er um að ræða þijár súlur úr graníti, en ofan á þeim er mikil steindys úr hellu- björgum. Fyrir framan súlumar hefur verið komið fyrir höggmynd úr bronsi, sem gerð var eftir einu málverki Dalis. Þegar Ronald Reagan, Banda- ríkjaforseti, fór þess á leit við bandaríska þingmenn að þeir sam- þykktu 100 milljón dala stuðning við Contra-hreyfmguna, sagði hann að Sovétmenn myndu nýta sér jarð- stöðina til njósna í þessum heims- hluta. Yfirmenn fjarskipta í Nicaragua segja að í fyrstu verði jarðstöðin tengd við Kúbu, Sovétríkin og fleiri ríki Austurblokkarinnar og óháð ríki í Asíu og Afríku. annari eins umferð yfir til Svíþjóðar. Á föstudag gengu áfengisbirgðir stærstu hótela Oslóborgar til þurrð- ar. Verkfallsverðir halda uppi ströngu eftirliti og gæta þess að áfengi sé ekki smyglað inn á veit- ingahús og hótel. Yfirmenn ferðamála í Noregi ótt- ast nú mjög að færri ferðamenn leggi leið sína til Noregs í sumar vegna verkfallsins. Nú þegar hefur slysið í Chemobyl kjamorkuverinu, óttinn við hryðjuverk og síðast en ekki síst hátt verðlag orðið til þess að minnka ferðamannastrauminn til Noregs. Þeir Norðmenn sem þjást af al- varlegum þorsta leggja leið sína til Danmerkur, Svíþjóðar eða Finn- lands og miklum birgðum er smyglað inn í landið í gegnum Fómebuflugvöllinn í Osló. Starfsmönnum áfengisverslunar- innar hefur verið boðin 10,2% launahækkun, sem er mun meiri hækkun en aðrir launþegar í Nor- egi hafa fengið á þessu ári. Þetta er í þriðja skiptið á átta áram sem starfsmennimir fara í verkfall en í fyrri tvö skiptin vora það þeir sem framleiða guðaveig- amar sem lögðu niður vinnu. AP/Símamynd Prinsinn og pönkarinn Karl Bretaprins virðist mjög hugsi, og jafnvel hálfsauðarlegur, á þessari mynd, sem tekin var við opnun sýningar í Bristol 1.000-klúbbnum á Englandi sl. föstudag. Við hlið hans er ungur maður með nýtískulega hárgreiðslu og heitir pilturinn því kon- unglega nafni, Karl Andrews. Þess ber að geta að Karlamir tveir em ekkert skyldir. Perú: 11 lögreglumenn sendir í steininn Ayacucho, Perú, AP. ELLEFU lögreglumenn hafa verið dæmdir í fangelsi eftir að hafa verið sekir fundnir um fjöldamorð á 41 sveitamanni, þar á meðal 11 bömum, á kjördag 13. nóvember 1983. Forsætisráðherra Pakistans hjá Reagan-hjónunum .......... n m____d___u d_ Nancy og Ronald Reagan, for- setahjón Bandarikjanna sjást hér taka á móti Mohammed Khan Junejo, forsætisráðherra Pakistans, og dóttur hans, en opinber heimsókn Junejo í Bandaríkjunum hófst á fimmtudag. Þetta er fyrsta heimsókn _ Junejos til Banda- ríkjanna. I viðræðunum i Hvita húsinu á fimmtudag ræddu Reagan og Junejo meðal annars um efnahagsaðstoð Banda- ríkjanna við Pakistan. Forsæt- isráðherrann fullvissaði Reagan um, að Pakistanir væm ekki að undirbúa smíði kjam- orkusprengju, enda hafði Reagan kunngert að Banda- ríkjamenn myndu hætta efnahagsaðstoð við Pakistani ef þeir stefndu að framleiðslu kjarnorkuvopna. Morðin áttu sér stað í þorpinu Soccos í Andesfjöllum, þegar sveit- arstjómakosningar stóðu yfir. Hinir látnu vora indíánar. Vora þeir líflátnir eftir að þeim var smalað saman eftir brúðkaupsveizlu. Lög- reglan notaði vélbyssur við ódæðið. Yfírmaður lögreglunnar á svæð- inu var dæmdur í 25 ára fangelsi, og 10 undirmenn hans hlutu frá 10 og upp í 20 ára fangelsi. Lög- reglumennimir vora jafnframt dæmdir til að greiða ættingjum hinna myrtu skaðabætur. Aukakosningar í Newcastle-under-Lyme: V erkamannaflokk- ur tapar miklu fylgi ERLENT Newcastle-under-Lyme, AP. Aukakosningarnar I Newcastle-under-Lyme urðu Verkamannaflokknum nokkuð áfall, þrátt fyrir að honum tæk- ist að halda þingsæti sínu. Hins vegar vann Bandalag jafnaðar- Faldi hassiö und- ir sverðfiskinum Rómarborg, AP. ÍTALSKA lögreglan skýrði frá því á fimmtudag, að hún hefði fundið eitt og hálft tonn af hassi, sem falið var undir stærðar- innar sverðfiski, um borð í frystivagni. Talið er að hassinu hafi verið smyglað með snekkju frá Marokkó. Einn maður var handtekinn og mun heita Fred Robsahm, en hann 16 teknir til yfírheyrslu um málið, sem kom upp í hafnarborginni Civitavecchia. Maður sem var handtekinn er Norðmaður, og er uppgjafaleikari og eiginmaður ítölsku leikkonunnar Agostina Belli. manna mjög á og skildu aðeins 799 atkvæði það og Verkamanna- flokkinn að. Litið er á kosningamar sem mik- inn sigur Bandalags jafnaðar- manna, þrátt fyrir að þvf hafi ekki tekist að vinna sætið. Fylgi Verka- mannaflokksins þar hefur ávallt verið taiið mjög öraggt, en nú brá svo við að hann fékk 16.819 at- kvæði, en Bandalagjafnaðarmanna fylgdi fast á hæla hans, með 16.020 atkvæði. íhaldsflokkurinn rak lest- ina með 7.863 atkvæði. David Steel, formaður Bandalags- ins sagði að úrsiitin kipptu stoðun- um undan þeirri fullyrðingu Verkamannaflokksins, að hann verði við stjómartaumana eftir næstu kosningar. Hann sagði úrslit- in staðfesta óvinsældir íhalds- flokksins. Neil Kinnock leiðtogi Verka- mannaflokksins, kenndi siakri kosningabaráttu sinna manna um úrslitin, þar sem þeir hefðu verið of öraggir með sig. Einnig sakaði hann mótframbjóðenduma um ódrengileg vinnubrögð í kosninga- baráttunni. Stórveldin: Varað við afvopnun Washington, AP. BANDARÍSK rannsóknarnefnd hefur gagnrýnt tillögur bæði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna um takmörkun vigbúnaðar. Nefndin telur að með þeim sé örygg'i Bandaríkjanna og ríkja Atlantshafsbandalagsins stefnt í voða. Nefndin varar einkum við tillögu Reagans Bandaríkjaforseta um helmingsfækkun kjamaodda í vopnabúram stórveldanna og telur að með henni skerðist fælingar- máttur kafbáta Bandaríkjaflota veralega. Þá telja nefndarmenn að nýjustu tiilögur Sovétmanna varð- andi meðaldrægar og langdrægar kjamorkuflaugar muni tryggja Sov- étríkjunum yfirburði á því sviði. Formenn rannsóknamefndarinn- ar era þeir Douglas Dillon og Henry Fowler, sem báðir hafa gegnt stöðu fj ármálaráðherra. Chernobyl-slysið: Spá 100 dauðs- föllum í Svíþjóð Stokkhólmi, AP. TALIÐ er að 100 Svíar muni lát- ast af völdum krabbameina, sem rekja má til geislavirks úrfellis frá Chernobyl kjarnorkuverinu, á næstu 50 árum. í fyrri skýrslu geislamælinga sænska ríkisins var talið að fímm myndu láta lífið á næstu 35 árum vegna geislunar í kjölfar kjamorku- slyssins í Chemobyl. Að sögn talsmanna náði sú skýrsla aðeins til ákveðinna svæða í Svíþjóð en í nýju skýrslunni er litið til afleiðinga slyssins í landinu öllu. Sérfræðingar telja nýju skýrsluna mun marktæk- ari en hina fyrri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.