Morgunblaðið - 19.07.1986, Side 46
T5Í A
ÍJlfl Jít ÍHJOAOHAOIÍA.1 .QKlAJHMUOaOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
Friðarleikarnir:
Tap gegn Tékkum
í síðasta leiknum
• Fjórir þeirra sem œtla að hlaupa frá Akureyri yfir Sprengisand til Reykjavíkur í fjáröflunarskyni fyrir
Sundsambandið.
Hlaupa til styrktar
Sundsambandinu
HÓPUR valinkunnra afreks-
manna í sundi og frjálsum íþrótt-
um mun hlaupa frá Akureyri yfir
Sprengisand til Reykjavíkur i fjár-
öflunarskyni fyrir Sundsamband
íslands dagana 25. júlí til 2. ágúst.
Þessir menn eru Arni Kristjáns-
son, Guðmundur Gíslason,
Gunnar Kristjánsson, Leiknir
Jónsson, fýrrum landsliðsmenn i
AÐ VENJU verður þó nokkuð mik-
ið um að vera hjá íþróttamönnum
nú um helgina. Mest ber á knatt-
spyrnunni eins og svo oft á
sumrin en einnig verða kylfingar
mikið á ferðinni enda stutt i
landsmót þeirra og því hver að
verða síðastur að fá dálitla
keppnisreynslu áður en stóra
keppnin hefst.
Pollamóti Eimskips og KSÍ lýkur
um helgina og verður leikiö til úr-
slita á KR-völlunum. f mótinu
keppa 6. flokks knattspyrnumenn
og er keppt í fjórum riðlum, tveim-
ur í flokki A-liða og tveimur i flokki
B-liða. Keppnin hefst í dag klukkan
10 árdegis og verður fram til klukk-
an 17 en á morgun verður leikiö
um sæti og hefst keppnin þá klukk-
an 11 og líkur með verðlaunaaf-
hendingu um klukkan 14.40.
e í 1. deild veröa tveir leikir í
dag. FH og KR leika í Kaplakrika
og í Vestmannaeyjum leika heima-
menn við Akureyringa og hefjast
báðir leikirnir klukkan 14. Einn leik-
ur, sá síðasti í 12. umferð, verður
á morgun og þá leika Fram og
Breiðablik á Laugardalsvellinum.
Leikurinn hefst klukkan 20.
Fjórir leikir verða í 2. deild karla
um helgina. Tveir þeirra veröa í
dag en þá leika ÍBÍ og Víkingur og
hefst sá leikur klukkan 14. Klukku-
stund síðar leika Selfyssingar við
Njarðvíkinga á Selfossi. Á morgun
leika Skallagrímur og Völsungur
klukkan 17 og á mánudaginn Ein-
herji og Þróttur og hefst sá leikur
sundi, og Stefán Friðgeirsson,
margreyndur frjálsíþróttamaður.
Þeir munu hlaupa 40-50 kíló-
metra á dag, en alls er vegalengd-
in um 400 km.
í frétt frá Sundsambandinu seg-
ir að umsvif Sundsambandsins
hafi aukist verulega á undanförn-
um árum, án þess að fé það, sem
úthlutað er til íþróttastarfsemi,
klukkan 20. Rétt er að geta þess
að þetta eru talsverðar breytingar
frá prentaðri mótaskrá KSÍ og voru
þessar breytingar geröar á síðustu
stundu.
Konurnar leika einnig knatt-
spyrnu um helgina. f 1. deildinni
hjá þeim verður einn leikur á mánu-
dagskvöldið og hefst hann klukkan
20. Þá leika í Kópavogi liö Breiða-
bliks og Isfirðinga.
Auk þess sem hér hefur verið
talið upp verða fjölmargir leikir i
neðri deildunum og að auki margir
leikir í yngri flokkunum.
GOLF
Golfklúbbur Suöurnesja gengst
fyrir Hagkaupsmótinu nú um helg-
ina og verður þetta mót nokkurs-
konar prófraun þeirra Suðurnesja-
kylfinga fyrir landsmótið sem hefst
í Leirunni annan mánudag. Hag-
kaupsmótið er opið golfmót þar
sem margir fremstu kylfingar
landsins munu mæta til leiks.
Á Sauðárkróki verður einnig
opið golfmót sem þeir kalla Sauð-
árkrókur opinn. Samkvæmt
mótabók kylfinga gengst
Nesklúbburinn fyrir Adidas-móti
fyrir unglinga 15 ára og yngri á
morgun.
FRJÁLSAR
Aldursflokkamót FRÍ verða nú
um helgina. Á Húsavík keppa ungl-
ingar 14 ára og yngri og á Selfossi
þeir sem eru 15-18 ára.
hafi í sama hlutfalli runnið til þess.
íslenskir afreksmenn í sundi
vekja í sífellt auknum mæli athygli
á erlendum vettvangi á framförum
þeim, sem orðið hafa í sundi á
Islandi. Afleiðingin er sú að ætlast
er til að íslendingar mæti til keppni
á sterkum alþjóðlegum mótum.
Það væri sorglegt til þess að vita
að sundfólki okkar gæfist ekki
tækifæri til þess að keppa við jafn-
ingja sína erlendis vegna fjárskorts
Sundsambandsins. Sú staða blasir
þó við ef ekkert verður að gert,
og því er þetta Sprengisandshlaup
ómetanlegt framtak manna, sem
láta eina almennustu íþrótt lands-
ins sig miklu varða.
Sundsamband íslands biður ís-
lendinga að sýna samstöðu með
köppunum í þessu erfiða hlaupi,
og styrkja Sundsambandið í leið-
inni, með því að heita 0,50 krónum
á þá fyrir hvern hlaupinn kíló-
metra. Sundfélögin um allt land
og skrifstofa SSI munu taka við
áheitum.
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik tapaði síðasta leiknum sínum
á friðarleikunum í Moskvu í gær
en þá léku þeir gegn Tékkum.
Tékkar skoruðu 20 mörk en
íslenska liðið 19. Staðan í leikhléi
var 8:11 fyrir Tékka.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn
en þó höfðu Tékkar alltaf foryst-
una. í síðari hálfleik komust þeir í
11:16 en íslenska liðinu tókst að
minnka muninn áður en flautað var
til leiksloka.
Atkvæðamestur í liðinu að
þessu sinni var Þorbergur Aðal-
steinsson sem skoraði fimm mörk.
Valdimar Grímsson, Júlíus Jónas-
son og Geir Sveinsson skoruðu
þrjú mörk hver og þeir Sigurður
Sveinsson, Jakob Sigurðsson og
Gunnar Gunnarsson gerðu tvö
mörk hver. Þess má geta að Sig-
urður Sveinsson var tekinn úr
umferð allan leikinn.
Geir Sveinsson lék mjög vel í
þessum leik og var þetta trúlega
einn besti leikur hans í ferðinni en
hann hefur staðiö sig mjög vel í
henni. Að sögn Jóns Hjaltalín
Magnússonar formanns HSÍ eru
menn mjög ánægðir með þessa
ferð og reiknaði hann með að strax
og liðið kemur heim yrði valinn 22
manna hópur fyrir næstu Ólympíu-
leika sem verða í Seoul árið 1988.
Jón sagði að menn væru gáttaðir
á því hversu mikil breidd væri í
íslenskum handknattleik því eins
og menn vita þá vantar marga lykil-
menn frá því á síðasta heimsmeist-
aramóti.
Lið Bandaríkjanna hefur komið
mest á óvart í þessu móti. Þeir
urðu í öðru sæti á eftir Sovét-
mönnum og er greinilegt að þeir
leggja mikið upp úr handknatt-
leiknum núna. Sjónvarpað var til
Bandarikjanna leikjum liðsins og
virðist vera mikill áhugi á hand-
GÍSLI Óskarsson fyrirliði Þróttar
í handknattleik á síðasta keppnis-
tímabili hefur nú tilkynnt félaga-
skipti yfir til Vals. Gísli hefur
undanfarin ár leikið stöðu horna-
manns og hann kemur án efa til
með að styrkja Valsliðið.
Sem kunnugt er mun meistara-
flokkur Þróttar ekki taka þátt í
knattleik þar í iandi.
Lokaröðin í mótinu varð sú að
Sovétmenn urðu í fyrsta sæti,
Bandaríkjamenn í ööru, Tékkar í
þriðja, við íslendingar i því fjórða
og Pólverjar ráku lestina.
Pizzur
til Moskvu
ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt af
íþróttamönnum. Bandarísku
íþróttamennirnir sem taka þátt í
Friðarleikunum í Moskvu fengu í
fyrradag sendar 140 pizzur frá
Bandaríkjunum með sérstakri
flugvél. Ástæðan var fyrst og
fremst sú að pizzurnar í Moskvu
eru stundum án tómatsósu og
stundum kemur fyrir að það vant-
ar á þær ost og þannig pizzur
geta Bandaríkjamenn auðvitað
ekki borðað.
Hvað um það 140, pizzur komu
fljúgandi frá Bandaríkjunum en það
er um 13.000 kílómetra leið. „Þær
kostuðu okkur um 60 dollara stykk-
ið en þær voru vel þess viröi,"
sagði Alex Swan, einn fararstjóra
bandarískra. „Þetta var í og með
gert til að minna íþróttamennina á
Bandaríkin, því svona pizzur fær
maöurekki nema þar," sagði hann.
Pizzurnar voru eins og áður
sagði 140 talsins og kostuöu um
8.400 dollara allar saman, komnar
til Moskvu. Alls vógu þær um eitt
tonn því það þurfti að pakka þeim
í sérstakan þurrís til að bragðið
héldist sem best fyrir íþróttamenn-
ina. Þegar hugmyndin kom upp
hringdu þeir bara á einn pizzu
staðinn í Bandaríkjunum og pönt-
uðu 140 stykki með flugi til Moskvu
og sólarhring seinna voru þær \
mættar á Rauða torgið.
íslandsmótinu á næsta
keppnistímabili vegna fjárskorts.
Fleiri leikmenn eru því á förum frá
félaginu. Þannig hyggst línumaður-
inn Birgir Sigurðsson ganga yfir til
Fram og unglingalandsliðsmark-
vörðurinn Guömundur A. Jónsson
kemur að öllum líkindum til með
að styrkja lið Breiðabliks á kom-
andi keppnistímabili.
Dómarakostnaðurinn:
Oheyrilega mikill
- segir Ellert Schram, formaður KSÍ
„ÞESSI kostnaður er óheyrilega
mikill og hefur farið stööugt
vaxandi á undanförnum árum,“
sagði Ellert Schram, formaður
KSI, í samtaii við Morgunblaðið
í gær um þá umræðu sem nú
fer fram vegna dómarakostnað-
ar við knattspyrnuleiki. f opnu
bréfi frá Stefáni Gunnlaugssyni
til knattspymuforystunnar, sem
bírtist í Morgunblaðinu ( gær,
kom fram að dómarakostnaður
vegna leiks KA og Einherja á
Vopnafirði á dögunum var
42.885 krónur, en ferðakostn-
aður 18 manna keppnishóps KA
var aðeins 30.400 krónur. Dóm-
arakostnaðurinn var því 12.485
krónum hærri en ferðakostnað-
ur liðsins, og munaði þar mest
um að dómari leiksins og Ifnu-
verðir komu frá Reykjavfk f 7
manna flugvél.
„Þessi mikli kostnaður bitnar
auðvitað fyrst og fremst á félög-
unum, og það er engin launung
að viss ágreiningur hefur verið á
milli Dómarasambandsins og KSl
um stjórn þessara mála - um
niðurröðun dómara á leik, val
þeirra, um hæfnispróf og fleira,"
sagði Ellért Schram.
„Dómarasambandið annast
þessa niðurröðun og dómara-
nefnd KSÍ samþykkir síðan þeirra
ákvarðanir. Ég efast ekki um að
dómarasambandiö gætir fyllstu
tillitssemi viö viðkomandi aðila
þegar þeir taka ákvarðanir um
dómara. Við höfum alltaf lagt
áherslu á að kostnaðurinn sé í
lágmarki, en stundum gerast
slys, eins og virðist vera raunin
bæði i Hveragerði um daginn og
yfrir norðan. Og það eru ails ekki
einu dæmin."
„Eins og Stefán Gunnlaugs-
son veit manna best þá hafa
þessi mál veriö rædd á mörgum
fundum og þingum hjá knatt-
spyrnusambandinu, en það hefur
sýnt sig að hægara er að tala
um þau en aö bæta úr. Það er
hinsvegar eindreginn vilji KSÍ að
finna iausn á þessum málum sem
flestir geta sætt sig við og von-
andi tekst það," sagði Ellert.
íbróttir helgarinnar:
Pollamótinu
lýkur um helgina
Gísli til Vals
- og fleiri leikmenn eru á leiðinni frá Þrótti