Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 fclk f fréttum Hvað býr að baki met- orðagirnd lacocca? ú getur orðið hvað sem þú vilt!“ - Þetta var viðkvæðið, sem sífellt gali í eyrum Lee Iacocca í æsku. Faðir hans gerði miklar kröfur til hans, ætlaðist til þess að sonur hans gerði það gott, næði tindi frægðar og frama. Sjálfur hafði Lee heldur ekkert á móti þess- ari framtíðarsýn og því fór svo að lokum að draumur þeirra beggja rættust. Stráknum gekk afar vel í skóla, varð ungur einn af forstjórum Ford en tók síðan við Chrysler verk- smiðjunum í dauðateygjunum og kom þeim til efnahagslegrar heilsu á aðeins 36 mánuðum. Þótt hann sé nú orðinn 61 árs að aldri, vellauð- ugur og þurfi ekki að sanna eitt né neitt, er ekkert lát á þrótti hans og afköstum. Hann er sístarfandi og bætir við sig verkefnum til þess að tryggja, að hann hafi nóg fyrir stafni þær 18 klukkustundir á dag, sem hann kýs að vinna - 7 daga vikunnar. Undanfarið hafa fjölmiðlar í Bandaríkjunum verið að velta því fyrir sér hvers vegna Iacocca sé að þessu brölti. Það vekur nefnilega athygli að öll nýju verkefnin hans eru á sviðum, sem bæði blöð og sjónvarp fylgjast grannt með. Þannig hefur hann þegar gefið út bók, sem sett hefur hvert sölumetið á fætur öðru. í henni gagnrýnir hann m.a. stjómina í Washington miskunnarlaust. Einnig var það eðlislægri hörku hans og dugnaði að þakka að frelsistyttan í New York var endurbyggð að stórum hluta og svo gott sem endurvígð á aldarafmæli sínu. Hann sækist eftir að halda fyrirlestra og gætir þess þá jafnan að segja eitthvað, sem kemur sér illa fyrir Reagan-stjóm- ina - eitthvað, sem erindi á á forsíður dagblaðanna. En hvers vegna? • Maðurmeð ákveðnar skoðanir og munninn á rétt- um stað — en fer hann í forseta- framboð? Lee Iacocca. Og þúsund hjörtu grípurgömul kæti. Og gömul hjörtu þrá á ný og sakna. 0, bemsku vorrar athvarf, Austurstræti, hve endurminningarnarhjá þér vakna. (Ur Ijóði Tómasar Guðmundssonar, Austurstræti) er hann kom auga á hina landskunnu söngkonu, Göggu Lund. Hann mundaði því vél sína og smellti af rétt í því sem hann Rögnvald Siguijónsson, píanóleik- ara bar að, er hann gamall og góður vihur Göggu. Urðu þar miklir fagnaðar- fundir enda höfðu þau ekki sést í töluverðan tíma. Við látum þó langloku- lýsingar liggja milli hluta en leyfum myndunum að tala sínu máli. Já, eflaust hefðu þau frá mörgu fróð- legu að segja húsin við Austurstrætið, mættu þau mæla. Hver kynslóðin á fæt- ur annarri hefur þrammað þama um, rölt rúntinn, eins og sagt er og ýmsir atburðir átt sér þar stað, bæði gleði- og grátlegir. Gatan hefur þannig, í gegn um tíðina, gegnt hlutverki nokkurs kon- ar miðstöðvar mannlegra samskipta. Þúsundir manna þjóta þar um á degi hverjum, kunningjar kinka kolli hver til annars, gamlir vinir hittast þar og rifja upp horfnar stundir. Nei, það er svo sannarlega ekki að ástæðulausu sem strætið er höfuðborgarbúum svo hjart- fólgið. Einn góðviðrisdaginn, ekki alls fyrir löngu, lallaði hann Óli K. sér út með ljósmyndavélina, tyllti sér á næsta bekk og fylgdist með fólkinu, skrautlegu mannlifinu. Ekki hafði hann setið lengi, afskaplega er gaman að sjá þig Gagga m,n,“ Rögnvaldur veríð að segja. En þá verða óvæntir fagnaðarfundir. Gamall vinur Göggu, Rögnvaldur Sigur- jónsson, pianoleikari skýtur upp kollinum og eefur henni koss a kinn. runda^aiutj^n^stöd‘ Uralls kvn^ V.Pttvann- Tilvau Sviðburda GskrafsognþáSd,*durtiÍ GaggaL,m(/'3evda. v&Idur Sí ^ £atn*lkunn. Uni sló<JUtn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.