Morgunblaðið - 19.07.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
39
Aðspurður kveðst Lee Iacocca
aðeins vilja láta gott af sér leiða -
Chrysler samsteypan sé komin í
örugga höfn og hann geti bara
ekki setið aðgerðarlaus. Það þarf
ekki að spyrja hann að því hvort
hann stefni á Hvíta húsið - hann
svarar því óumbeðið og segir að það
komi ekki til mála. Mörgum þykir
það hinsvegar grunsamlegt, hversu
eindregið hann afneitar allri löngun
til þeirra metorða, því það hefur
einmitt þótt klókt í bandarískri
stjómmálabaráttu, að hafa svo hátt
um að maður gefí ekki kost á sér
- að fyrr eða síðar verði lagt að
manni að gefa sig í slaginn.
Hvað sem þessu Iíður verður
Iacocca þekktari með hveijum deg-
inum meðal kjósenda og hann segir
einmitt það, sem almenningur vill
• Nýlega gekk Iacocca að eiga
hina 36 ára gömlu Peggy John-
son, fyrrum flugfreyju þjá Pan
Am.
• Auk þess að vera vinnu-
þjarkur er Iacocca mikill fjöl-
skyldumaður. Samband hans
við móður sína hefur ávallt
verið afskaplega gott og í hvert
sinn sem hann heimsækir hana
útbýr hún handa honum uppá-
haldsrétt hans, kjúklingasúpu
með kjötbollum.
heyra. Það er merkilegt að þótt
hann segist svarinn óvinur repúblík-
ana og hægrimennsku Reagans, þá
virðist fylgi hans oft og tíðum vera
hjá þeim, sem ljáðu núverandi for-
seta atkvæði sitt. Föðurlandsást og
trú á ótakmörkuðum möguleikum
þeirra, sem nenna að vinna eru
aðaluppistaðan í lífsspeki Iacocca.
Munurinn er sá að hann hefur stór
orð um að sameiginlegir sjóðir eigi
að sjá þeim farborða, sem minna
mega sín, þó ekki fari hann út í
smáatriði um hvemig það skuli
gert - enda engin ástæða til, fyrst
hann langar ekkert til Washington.
Iacocca er ráðgáta, sem ræðst
innan tíðar, a.m.k. hvað varðar for-
setaframboð demókrata 1988.
Verði hann í framboði má bóka, að
baráttan verður §örug enda maður-
inn frægur fyrir flest annað en að
tala undir rós. Eins og Reagan,
hefur hann orð á sér fyrir að láta
verkin tala og það kann allur al-
menningur að meta þótt menn
greini á um aðferðir.
Gott kvöld
er Kremlarkvöld!
Gott kvöld
er Kremlarkvöld!
Pricilla
Presley
— ánægð en
önnum kafin
Pricilla Presley ásamt unnusta sínum Marco Garibaldl. Myndln var
tekin í brúðkaupsveislu einni, sem þau voru boðin í og er ekki ann-
að að sjá en vel fari á með þeim skötuhjúum.
Eftir margra ára leiðindalægð,
leikur lífið nú við Pricillu Pres-
ley á ný. Hún hefur meira en nóg
að gera, nú þegar hún hefur loks
verið viðurkennd sem fullfær leik-
kona vestan hafs. Eins og kunnugt
er fer Pricilla með stórt hlutverk í
Dallas-þáttunum, auk þess sem hún
vinnur nú að undirbúningi þátta,
sem §alla eiga um líf eiginmanns
hennar fyrrverandi — Elvis Presley.
Pricilla ætlar nefnilega að leika
sjálfa sig í þáttunum, enda senni-
lega vandfundin sú kona sem ætti
auðveldara með þá túlkun en ein-
mitt hún. Þættimir eru líka byggðir
á bók hennar „Elvis og ég“ sem
hún skrifaði fyrir nokkrum árum.
Enn á hún þó eftir að velja leikara
í hlutverk rokk-kóngsins. Ekki
hyggst ekkjan yngja sig upp um
fjölmörg ár og verður því önnur
leikkona að fara með hlutverk henn-
ar í upphafí þáttanna, leika Pricillu
unga. Fregnir herma að hún hafi
augastað á leikkonunni Shalane
McCall í það hlutverk, en enn hafa
þó samningar ekki náðst.
En hamingja Pricillu Presley felst
í fleiru en frægð og fé. Hún sést
nú æ oftar í fylgd með vini sínum
Marco Garibaldi, þrítugum Brasilíu-
manni. Þau hafa verið saman um
nokkurt skeið og geisla enn af ham-
ingju. Vilja margir meina að þau
skötuhjúin muni ganga í það heil-
aga innan skamms. Hvort biðillinn
kemur eitthvað nærri fyrirhuguðum
Elvis-þáttum er enn á huldu.
Klaufabárðurinn
Doris Day
Leikkonan Doris Dáy er víst
annálaður hrakfallabálkur í
kvikmyndahverfinu Hollywood,
snillingur í að inisstíga sig, snúa á
' sér ökkla og brjóta bein. Það kom
því engum á óvart er hún mætti til
vinnu um daginn öll vafín og plástr-
uð í bak og fyrir. Leikkonan upplýsti
að nú hefði hún víst brotið í sér
eitt rif, en huggaði jafnframt að-
dáendur stna með því að hún fyndi
ekkert til og hún yrði orðin jafngóð
eftir skantman tíma. — En hvemig
vildi þetta óhapp til? „Ég vildi óska
að ég gæti komið með einhveija
krassandi sögu?“ sagði Day, „eins
og til dæmis að ég hefði fallið
nokkra metra í fjallgöngu. Það
Ekki alveg eins fim og hún
hclt hún væri. — Leikkonan
Doris Day.
myndi gera þetta svolítið skiljan-
legra. Hins vegar verð ég að
viðurkenna að beinbrotið kom til
af algemm klaufaskap. Eitt kvöld-
ið, þegar ég kom heim, lá hundurinn
minn sofandi úti á veröndinni fyrir
framan dyrnar. Ég vildi ekki vekja
hann og ætlaði því að hoppa létti-
lega yfír hann og ganga svo til
náða. Það endanði með því að ég
varð að fara upp á slysavarðstofu,
því ég magalenti á forstofugólfinu,
með fyrrgreindum afleiðingum“,
bætti hún við. „En hundurinn er
við hestaheilsu og deplaði varla
auga þrátt fyrir öll þessi læti, háv-
jaða og hamagang.“
Opið Austurstrætismegin til kl. 24.00
og frltt inn.
*K50EML*
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!