Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
11
Svisslendingamir^ Andreas Mosimann og Franz Stössel leggja á ráðin um bakpoka- Gerhard Leder t.v. og Dominique Perritaz eyða á þriðja mánuði í að aka um landið
ferðalag- sitt um ísland. Þótt landið hafi tekið kuldalega á móti þeim, olIi það þeim á vélhjólum sínum. Ekki eru þeir þó samferða, fór annar suðurum en hinn norður
eklu áhyggjum. „Það er aldrei sama veðrið í meira en tíu mínútur á íslandi". um frá Seyðisfirði og hittust þeir fyrir tilviljun þarna á tjaldstæðinu.
veður haldist aldrei óbreytt lengur
en tíu mínútur í einu á Islandi. Það
sem kom þeim mest á óvart var
verðlagið. Þeir sögðu að þetta væri
fyrsta landið sem þeir kæmu til þar
sem verðlag væri hærra en í Sviss.
Islendingar ótrúlega
hjálpsamir
A bílastæði tjaldstæðisins voru
tveir ungir menn að leggja á vél-
hjól sín og búast til ferðar. Þeir
sögðust heita Gerhard Leder frá
Þýskalandi og Dominique Perritaz
frá Sviss. Við nánari athugun kom
í ljós að þeir voru fyrir tilviljun
staddir þama á sama tíma. Báðir
ætluðu samt að eyða sumrinu í að
fara um landið á vélhjólum sínum,
en Svisslendingurinn kom með
Norröna 12. júní og ók norðurum
með ströndinni til Reykjavíkur.
Hann fer 21. ágúst út.
Þjóðveijinn kom með feijunni
fyrir þrem vikum og fylgdi suður-
ströndinni, og skrapp líka til ísa-
flarðar. Hann ætlaði að taka síðustu
ferð út, 28. ágúst. Honum þótti
mest til Vestfjarðanna koma af því
sem hann hafði séð, en það er fyrst
og fremst náttúrufegurðin sem
dregur menn út í svon'a .ævintýri.
Ekki fannst honum þjóðin gáfuleg.
„íslendingar eru vitlausir. Þeir
hugsa bara um að vinna til að geta
keypt meira og meira. Lífstíllinn
er alltof amerískur. Þeir kunna ekki
að njóta lífsins, t.d. með svona
ferðalagi." sagði hann.
Perritaz hinn svissneski þurfti á
öllum sinum sterkustu lýsingarorð-
um að halda til að dásama íslensku
náttúrufegurðina. Jökulsárgljúfur
voru otrúlega stórkostleg, Látra-
bjarg líka, og Snæfellsjökull og
Snæfellsnes ekki síðri. Þá var
John og Betty Barrett, sem voru á ferð með Mytton, eru þrautreynd-
ir ferðagarpar, sem hafa heimsótt öll lönd í Evrópu, og einnig
Norður-Ameríku og Norður-Afríku. Magnús Magnússon, sjónvarps-
maður i Bretlandi, teymdi þau til íslands. Þeim fannst að það þyrfti
að vara ferðamenn betur við loftslagi og veðráttu hér á landi.
Dritvík eins og paradís í hraunauðn-
inni. Þá var hann hrifinn af hvað
íslendingar væru opnir og vingjam-
legir. Bændur sem hann hafði beðið
um leyfi til að tjalda buðu honum
oft upp á kaffisopa. Þá var hann
sérstaklega hrifínn af hjálpsemi
manna. Tvisvar hafði hann' fengið
hjálp til að gera við hjól sitt á sunnu-
degi. Það sagði hann að hefði verið
óhugsandi í Sviss. Einkum var hann
þakklátur marini fyrir norðan sem
bauð honum hjálp að fyrra bragði,
og taldi ekki eftir sér þótt hann
þyrfti að hafa töluvert fyrir því.
Hann er með alla nauðsynlegustu
varahlutina með sér, og auk þess
viðlegubúnað. „Það er ekkert pláss
fyrir það sem maður þarf að hafa
með sér en það kemst samt allt
fyrir einhvem veginn á endanum,
sagði hann.
- BÞ
Handknattleiksfólk Stjörnunnar hefur verið í mikilli sókn að undan-
förnu. Myndin er úr leik Stjörnunnar og KA í fyrstu deild í vetur.
Gjaldþrot handknattleiksdeildar Stjörnunnar:
Bæjarráð Garðabæjar
ábyrgðist greiðslur
BÆJARRÁÐ Garðabæjar og
stjórn Stjörnunnar hafa ákveðið
að taka á „gjaldþrotamálinu“
þannig að allar réttmætar kröfur
á félagið frá þeim tíma sem um
ræðir verði greiddar.
Sem kunnugt er birtist auglýsing
í Lögbirtingablaðinu 16. júlí síðast-
liðinn þess efnis að handknattleiks-
deild Stjörnunnar í Garðabæ hafj
verið tekin til gjaldþrotaskipta. í
fréttatilkynningu sem bæjarráð
Garðabæjar sendi frá sér í gær seg-
ir að í ársbyjun 1984 hafi stjórn-
skipulag. Stjörnunnar .verið
ehdprsköðað'og'á -þeim tímarnótum
hafi bæjarstjórnin samþykkt að
gera ráðstafanir til þess að ný
stjórn, sem kjörin var í mars 1984,
gæti byijað með hreint borð, en
verulegar skuldir höfðu safnast upp
á ámnum þar á undan. „Það ástand
sem nú hefur skapast," segir í
fréttatilkynningu bæjarráðs, „er
vegnas þess að á sínum tíma komu
ekki fram allar kröfur frá þessu
tímabili. En samþykkt bæjarstjóm-
ar stendur óbreytt. Þess vegna mun
bæjarráð og stjóm Stjömunnar
taka á málinu þannig að allar rétt-
mætar kröfur á félagið frá þessum •
tíma verðá greiddar."