Morgunblaðið - 19.07.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
á eina milljón seiða á ári.
Sjö starfsmenn vinna hjá fyrir-
tækinu og eru vaktir allan sólar-
hringinn. Það eru bjartsýnir menn
sem vinna hér og ætla sér stórt.
Þetta á í framtíðinni eftir að verða
háþróaður iðnaður þar sem tölvu-
tæknin kemur mjög við sögu.
Stærsta vandamálið í þessum at-
vinnuvegi í dag er hversu erfitt
er að fá lán til svona rekstrar.
Kerfið er allt of svifaseint, það
þarf miklu hraðari fyrirgreiðslu
af hálfu hins opinbera til að þetta
verði stóratvinnuvegur", sagði
Jóhann að lokum.
Erum að fimmfalda af-
kastagetu stöðvarinnar
- segir Jóhann Geirsson hjá Pólarlaxi
„ÞETTA hefur gengið með
áföllum. Það hafa tvisvar kom-
ið upp sjúkdómar í stöðinni og
var hún þarafleiðandi sett í
dreifingarbann í eitt ár fyrir
hvora uppákomuna,“ sagði Jó-
hann Geirsson hjá Pólarlaxi í
Straumsvík.
„Við byrjuðum með tilraunaeldi
í skúr við ISAL árið 1979. Þessi
stöð héma var síðan reist haustið
1980 og við höfum síðan verið
að sækja í okkur veðrið smám
saman. Við borum sjálfir eftir
köldu vatni, sem er 3-4 gráður,
en 14-15 stiga heitt vatn fáum
við frá ÍSAL“.
„Við erum nú að þrefalda stöð-
ina að stærð með byggingu 2.200
fermetra eldishúss sem áætlað er
að taka í notkun í haust. Þessi
stækkun þýðir fímmföldun á af-
kastagetu stöðvarinnar. Á næsta
ári reiknum við með að geta fram-
leitt um 7-800.000 seiði. Við erum
líka búnir að gera samning við
samstarfsaðila okkar um fram-
leiðslu á 500 gramma stórseiðum
en þau henta sérlega vel til kvía-
eldis.
Framhaldseldið er í samstarfi
við Hafeldi á Ólafsvík og mun
Sigurður Bragason hafa yfírum-
sjón með því.
Núna erum við með 117.000
seiði af stærðinni 60 grömm og
5000 stk. 4-700 gramma en þau
verða orðin 3-4 kíló eftir 2 ár.
Við höfum markaðssambönd í
Vestur-Þýskalandi og Banda-
rílq'unum á þessu ári og erum
einnig, ásamt Fiskeldi á Húsavík,
með sölusamning við norska fyrir-
tækið Scanfarm sem hljóðar upp
Pólarlax i Straumsvík. Hægra megin er nýja 2.200 fermetra eldis-
húsið sem áætlað er að taka í gagnið í haust. Með tilkomu þess
verður búið að fimmfalda afkastagetu stöðvarinnar frá þvi sem
Mofgunblaðið/Þorkell
Ragnar Leifsson starfsmaður Pólarlax sýnir hér einn laxanna sem
nota á til undaneldis.
nú er.
Dr. Hallur Skúlason
Doktor í
uppeldis-
sálfræði
HALLUR Skúlason lauk á síðast-
liðnum vetri doktorsprófi i
uppeldisfræði frá University of
Illinois at Urbana-Champaign í
Bandaríkjunum.
Lokaverkefni hans fjallaði um
náms- og starfsval íslenskra ungl-
inga og var heiti þess á ensku:
„Investigation of Icelandic adole-
scents career choices".
Hallur lauk kennaraprófí frá
Kennaraskóla íslands 1969 og BA-
prófí í sálarfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1974. Frá því að hann
lauk MA-prófí frá Universtiy of 111-
inois sumarið 1977 hefur hann
starfað við sálfræðideild skóla í
Reykjavík og kennslu í grunnskól-
um, Kennaraháskóla Islands og
Háskóla íslands.
Hallur er einn stofnenda og nú-
verandi eigenda fyrirtækisins
Leiðsagnar sem sérhæfir sig í
námsaðstoð við skólanemendur á
öllum skólastigum, náms- og
starfsráðgjöf og uppeldisráðgjöf.
Hallur er kvæntur Lilju Kristó-
fersdóttur kennara og eiga þau einn
son.
Ætlum að
sleppa 500
þús. seiðum
næsta vor
- segir Sveinbjörn Oddsson hjá Vogalaxi
„VIÐ slepptum fyrst seiðum
árið 1982. Þau voru um 20.000
og fengin frá Laxeldisstöð
ríkisins i Kollafirði“, sagði
Sveinbjörn Oddsson stöðvar-
stjóri hjá hafbeitarstöðinni
Vogalaxi, í Vogum við Vatns-
leysuströnd.
Svona fer laxinn á Bandaríkjamarkað, yfirleitt eru 7-9 fiskar i
pakka.
Morgunblaðið/Þorkell
Gulli, Öddi og Stjáni sjá um að mæla lengd laxins, kyngreina hann, vigta og skrá. Einnig taka þeir
úr örmerki sem hafa verið sett í hnakka laxanna. Þeir sögðu að meðalstærðin á eins árs fiski væri 2,8
kfló. Minna væri af tveggja ára fiski en sá sem hefði fengist væri yfirleitt í kringum sjö kíló.
„Við höfum síðan sleppt um
20-25.000 seiðum árlega nema
nú í vor en þá slepptum við alls
36.000 seiðum. Sú nýbreytni var
einnig þá að seiðin sem við sleppt-
um voru öll komin undan löxum
héðan. Hingað til hefur þetta allt
verið á tilraunastigi en nú erum
við með fulla stöð af seiðum og
ætlum að sleppa 500.000 seiðum
1987. Með nokkum veginn sömu
heimtum og við höfum haft hing-
að til gæti þetta þýtt um 150 tonn
af laxi á ári í framtíðinni.
„Þær heimtur sem þurfa að
vera til að stöð sem þessi standi
undir sér eru 3-5 % af sleppi-
magni en líkur benda til að við
getum náð jafnaðarheimtum upp
á 8-10%. í fyrra voru heimtumar
12,3%. Það er hægt að hafa mjög
gott upp úr þessu en gallinn við
fjárfestingu sem þessa er hversu
seint hún skilar sér. Það tekur
langan tíma að koma svona
rekstri í gang“.
„Við erum núna að byija að
senda físk á Bandaríkjamarkað
og fyrsta sendingin er að fara af
stað núna. Verðið er ennþá óljóst
en við gemm okkur vonir um að
ná 300-350 krónum fyrir kflóið.
Það fer um eitt tonn í hverri send-
ingu og það virðast ekki vera
nein vandræði með markaði enn-
þá.