Morgunblaðið - 16.09.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
B 7
Morgunblaöiö/Einar Falur
Fnilegasti
maður þessa íslandsmóts að mati
þeirra sem leika gegn honum á
knattspyrnuvellinum. Gauti er að-
eins tvitugur að aldri og á þvi
framtíðina fyrir sér á knattspyrnu-
vellinum. Hann komst í Fram-liðið
í sjötta leik þeirra á íslandsmótinu
og þá sem fastamaöur. Hann hafði
áður komið inná í leik liðsins viö
Þór en eftir leikinn við FH, þar sem
hann var í fyrsta sinn í byrjunarlið-
inu, var hann fastur í liðinu og
hefur staðið sig mjög vel. Fallið
ótrúlega vel inn í leik liðsins og ef
hann heldur áfram á sömu braut
og í sumar þá verður hann meðal
okkar bestu knattspyrnumanna
áður en mörg ár eru liðin.
Þetta er há-
tindur ferils-
ins og ólýsan-
legur heiður
— sagði Guðmundur Torfason besti
ieikmaður íslandsmótsins
Morgunblaöiö/Júlíus
•Guðmundur Torfason í baráttu um knöttinn viö Gunnar Gíslason
og Willum Þórsson úr KR.
„ÉG ER orðtaus. Þetta kom svo
snöggt og ég hef ekki enn áttað
mig á þessu. Ég trúi þessu ekki
fyrr en ég sé það svart á hvitu i
blöðunum" sagði Guðmundur
Torfason, nýkjörinn besti leik-
maður íslandsmótsins af leik-
mönnum 1. deildar. Guðmundur,
sem er 24 ára, skoraði 19 mörk
í 1. deild í sumar og hefur aldrei
leikið betur. Hann hefur leikið
rúmlega 200 leiki með meistara-
flokki Fram.
„Þetta er hátindur ferilsins og
það er ólýsanlegur heiður að vera
valinn bestur af leikmönnunum
sjálfum. Ég þakka öllum sem kusu
mig innilega af öilu mínu hjarta.
Þetta er stór hópur kunningja og
það voru margir leikmenn, sem
stóðu sig vel í 1. deild i sumar,
en þeir hafa sameinast um mig.
Það sem þeir hafa gert fyrir mig,
er ómetanlegt."
Hvaða leikur er eftirminnileg-
astur í sumar?
„Allir leikir eru þýðingarmiklir,
en sá eftirminnilegasti? Nei, ég
get ekki hugsað núna, þetta var
allt saman mikil barátta. Þaö var
stór stund, þegar við tryggöum
okkur íslandsmeistaratitilinn i
síðasta leik, en nýliðnum mínútum
gleymi ég aldrei. Ég hef hlotið
æðstu viðurkenningu, sem knatt-
spyrnumaður getur fengið á ís-
landi. Það er og verður eftirminni-
legasta stund sumarsins."
Hvað er framundan? Atvinnu-
mennska?
„Mín braut stefnir upp á við.
Ég ætla fyrst og fremst að hugsa
um að bæta mig enn betur og
stefni að því að komast í landslið-
ið. Leikmenn þess sýndu á móti
Frökkum að þeir eru verðugir
landsliðsmenn og ég óska þeim
innilega til hamingju með leikinn.
Hvað atvinnumennsku varðar,
þá hlýtur það að vera æðsti draum-
ur hvers knattspyrnumanns að ná
sem lengst í íþróttinni. Hins vegar
liggur ekkert á borðinu hjá mér í
því efni sem talandi er um enn sem
komið er, en ef tækifærið býðst,
mun ég hugsa alvarlega um það.
í því máli verður engin skyndi-
ákvörðun tekin."