Morgunblaðið - 16.09.1986, Síða 8

Morgunblaðið - 16.09.1986, Síða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986 Þórssigur - Halldór skoraði fyrsta markið í deildinni í sumar AKUREYRARVÖLLUR 1. deild: Þór-ÍBK 3:2 (2:0) Mörk Þórs: Halldór Áskelsson á 24. mín., Jónas Róbertsson (víti) á 32. mín. og Hlynur Birgisson á 48. mín. Mörk ÍBK: Freyr Sverrisson á 60. mín. og Einar Ásbjörn Ólafsson (víti) á 76. mín. Gul spjöld: Sigurbjörn Viöarsson, Baldur Guönason og Siguróli Kristjánsson úr Þór og Keflvíkingarnir Freyr Sverrisson, Siguröur Björgvinsson og Jóhann Magnússon. Rautt spjald: Jóhann Magnússon, ÍBK, var rekinn af velii í síðari hálfleik fyrir aö sparka í mótherja. Dómari: Eyjólfur Ólafsson og dæmdi hann langt undir getu. Hann er góöur dómari alla jafna en aö þessu sinni var hann síflautandi og stoppaði þannig leikinn í tíma og ótíma. Þá var eins og hann legði Þórsarann Sigur- björn Viöarsson í einelti í fyrri hálfleik — hann mátti varla hreyfa sig ööruvísi en dæmt væri á þaö og tekinn út af í leihlói „til öryggis". Áhorfendur: 498. EINKUNNAGJÖFIN ÞÓR: Baldvin Guömundsson 2. Baldur Guöna- son 2, Sigurbjörn Viöarsson 3, Nói Björnsson 3, Júlíus Tryggvason 3, Árni Stefánsson 3, Siguróli Kristjánsson 3, Kristján Kristjánsson 3, Halldór Áskelsson 3, Jónas Róbertsson 4, Hlynur Birgisson 3, Einar Arason (vm. á 46. mín.) 3, Siguröur Pálsson (vm) lók of stutt. Samtals: 32. ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 2, Siguröur Björg- vinsson 2, Einar Ásbjörn Ólafsson 2, Gunnar Oddsson 2, Jóhann Magnússon 2, Freyr Sverr- isson 2, Björgvin Björgvinsson 2, Guömundur Sighvatsson 2, Sigurður GuÖnason 2, Ægir Kárason 2, Gísli Grétarsson 2, Skúli Jónsson (vm) 2, Jón Sveinsson (vm) 2. Samtals: 22. ÞÓRSARAR unnu sanngjarnan sigur á Kefivíkingum og hefði sig- urinn átt að geta orðið mun stærri eftir gangi leiksins. Þór hafði yfir 2:0 í leikhléi og komst síðan í 3:0 í upphafi seinni hálfleiks. Þórsarar léku oft mjög vel í fyrri hálfleik og höfðu leikinn algjörlega í hendi sér. En Keflvíkingar náðu að skora tvívegis - þar af síðara markið eft- ir að þeir voru orðnir einum færri - en Þórsarar virtust missa áhug- ann síðari hluta leiksins, eins og svo oft í sumar. Kristján og Hlynur áttu báðir góð marktækifæri áður en fyrsta mark leiksins kom á 24. mín. Þá skoraði Halldór Áskelsson sitt fyrsta mark í deildinni og var það gullfallegt. Siguróli gaf fyrir frá hægri, boltinn barst til Halldórs við vítapunkt og hann þrumaði honum Texti: Aðalsteinn Sigurgeirsson Myndir: Skapti Hallgrímsson í netið með vinstra fæti án þess að Þorsteinn Bjarnason ætti möguleika á að verja. Annað markið kom á 32. mín. Halldór komst þá einn inn fyrir vörnina og framhjá Þorsteini, sem sá sér þann kost vænstan að kippa í fót Halldórs og var vítaspyrna því umsvifalaust dæmd. Jónas Ró- bertsson skoráði af miklu öryggi úr vítinu. Áður hafði Hlynur átt dauðafæri en skotið í stöng og Baldvin markvörður Þórs bjargað vel frá Björgvin Björgvinssyni hin- um megin. Það voru ekki nema þrjár mínút- ur liðnar af síðari hálfleik er Þór skoraði þriðja markið. Jónas óð þá upp að vítateig eftir að hafa fengið boltann frá Nóa við miðlínu vallar- ins. Er upp að teig kom renndi Jónas út til hægri á Hlyn sem þakk- aði fyrir sig og skoraði með föstu skoti framhjá Þorsteini. Vel gert hjá Jónasi og Hlyn. Fyrra mark Keflvíkinga kom á 60. mín. Gunnar Oddsson gaf fyrir frá hægri og Freyr Sverrisson skor- aði örugglega af stuttu færi. Keflvíkingar skoruðu aftur á 73. mín. Það var Einar Ásbjörn Ólafs- son sem gerði markið úr víta- spyrnu sem dæmd var er Árni Stefánsson brá honum. Árni stóð utan teigs en teygði sig inn fyrir þar sem Einar var og braut á hon- um. Ekki skapaðist umtalsverð hætta við mörkin eftir þetta og sigur Þórs því í höfn. Sigur sem hefði alls ekki þurft að vera í neinni hættu en fyrir klaufaskap Þórsara náðu Keflvíkingar að minnka mun- inn. Þórsliðið lék mjög vel í fyrri hálf- leik en dalaði síöan í þeim síðari. Leikmenn virðast á köflum ekki hafa eins gaman af því sem þeir • Halldór Áskelsson (nr. 10) skorar fyrsta mark leiksins á Akureyri — og sitt eina mark í 1. deildinni f sumar. Þrumu- skot hans utan úr teig réð Þorsteinn „gamli“ Bjarnason, markvörður ÍBK, ekki við. Knötturinn stefnir f netið þrátt fyrir tilburði Þor- steins... • ... og þá eru það fagnað- arlætin. Það hlaut að koma að þvi að Dóri skoraði í deild- inni í sumar — og Sigurbjörn Viðarsson og Kristján Krist- jánsson (til hægri) fagna honum eftir markið. eru að gera og æskilegt væri. Bestur Þórsara eins og oft áður var Jónas Róbertsson, stór- skemmtilegur leikmaður. Keflvík- ingar léku ekki vel að þessu sinni en með baráttu og viljastyrk náðu þeir að minnka muninn. Það hefði þó alls ekki verið sanngjarnt hefðu þeir nælt í stig. Þess má geta að í lið þeirra vantaði Valþór Sig- jjórsson, Ingvar Guðmundsson, Óla Þór Magnússon og Sigurjón Sveinsson. Valþór sneri heim til Keflavíkur í þann mund er hann var að stíga upp í flugvélina, sem flutti liðið til Akureyrar, á Reykjavíkurflugvelli þar sem eigin- konan var í þann mund að fæða honum barn! Knattspyrnulega séð ekkert sérstakt - sagði Ingi Björn Albertsson um mótið „LEIKURINN byrjaði skuggalega fyrir okkur, fengum á okkur mark eftir nokkrar mínutur og var það til að strekkja enn frekar á taug- unum,“ sagði ingi Björn Alberts- son, þjálfari og leikmaður með FH, er hann var spurður um leik- inn gegn UBK á laugardaginn. „Leikurinn varð aldrei rishár og bar merki þess hvað við þurftum að gera til að halda okkur í deild- inni og við gerðum það sem þurfti það er fyrir mestu. Málið var í fyrsta lagi aö tapa ekki leiknum. Eg tel FH of gott lið til að falla niður í 2. deild og það er reyndar Breiðablik líka,“ sagði Ingi Björn. — Hvernig finnst þér íslands- mótið hafa verið í sumar? „Mér finnst mótið ekkert sér- stakt knattspyrnulega séð. Enda kannski ekkert skrítið þar sem toppmennirnir hverfa eftir hvert tímabil og alltaf er verið að byggja upp nýja og nýja menn. En það er vonandi að þetta breytist og við fáum þessa menn heim aftur. Skagamenn hafa fengið Pétur og hefur hann breytt heilu móti, setti ekki bara svip á Skagaliðíð heldur allt mótið. En þetta mót hlýtur að 'vera með meira spennandi ís- landsmótum sem fram hafa farið. Það. voru þrír leikir t síðustu um- feéð sem skipta vérúlegu máli. svona á þetta að vera.“ — Hvar þjálfar eða leikur Ingi Björn Albertsson næsta keppn- istímabil? „No comment." • Jim Barron Framarar jafnbestir - segir Jim Barron, þjálfari ÍA „ÉG GET ekki annað en verið ánægður með útkomuna hjá okk- ur í sumar, þó við náðum ekki fyrsta sætinu í deildinni," sagði Jim Barron, þjálfari ÍA, í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn gegn Val. „Við urðum bikarmeistarar og höfnuðum í 3. sæti í deildinni, en þegar á heildina er litið verður að viðurkennast að Fram hefur verið jafnbest í sumar og ég óska þeim til hamingju með íslandsmeistara- titilinn. Við lékum ágætlega gegn Val og að mínu mati áttum við að sigra, en við gáfum þeim mörk og því fór sem fór. Allir leikirnir gegn Val í sumar hafa verið harðir, án þess að vera grófir, og skemmti- legir. Við duttum niður í júlí, en lékum vel í seinni umferðinni og í bikarnum, en nú eru þessir leikir að baki og við snúum okkur að Evrópuleiknum gegn Sporting Lissabon á miðvikudaginn.“ Svona leikir eru alltaf erfiðir - sagði Ásgeir Elíasson þjálfari Fram sem reiknar með að vera áfram með liðið „ÉG ER bara mjög ánægður en ég viðurkenni að ég var dálítið taugatrekktur í þessum leik en ég er ekkert viss um að það hafi verið meira en gengur og gerist i leikjum hjá okkur,“ sagði Asgeir Elíasson þjálfari Fram eftir að leik þeirra lauk við KR á laugar- daginn þar sem Framarar tryggðu sér íslandsmeistaratitil- inn f knattsþyrnu árið 1986. „Þetta var erfiður leikur og svona leikir verða alltaf erfiðir. Leikurinn bar keim af því hvað var mikið í húfi fyrir okkur en þetta var jafn leikur sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var. Það sem var fyrst og fremst í lagi hjá okkur var baráttan hjá strákunum. Þeir voru ákveðnir í að vinna og það tókst.“ -Voruð þið ekkert trekktir og hræddir um að sagan frá því í fyrra myndi endurtaka sig. Að þið mynduð missa af titlinum? „Nei, eiginlega ekki. Þetta var allt öðruvísi í fyrra. Þá lékum yið frekar il|a síðari hlutann af mótinu en ég heldaö við höfum teikið frek- ar jafnt í sumar. Það hafa auðvitaö komið slakir leikir en engin lægð hjá liöinu þannig lagað. Bikarleik- irnir hjá okkur voru betri í ár og þeir hafa sjálfsagt haft sitt að segja um við náðum að halda haus í þetta sinn." -Ert þú búinn að ákveða hvað þú gerir næsta sumar? „Nei ekki er það nú alveg ákveð- ið en ég geri frekar ráð fyrir því að ég verði með Framarana áfram." -Nú er leikur í Evrópukeppninni hjá ykkur á þriðjudaginn. Hvernig leggst það f þig? „Það leggst vel í mig. Ég þekki ekkert til þessa liðs sem við erum að fara að leika við en geri ráð fyrir að það sé gott. Við vitum í rauninni ekkert um liðið sem er vissulega frekar slæmt en við ætl- um að gera þeim þetta eins erfitt og við getum hór heima. Ætli við reynum ekki að kýla á þetta eins og við getum hér heima og sjá tiJ síðan hvernig fer,“ sagði Ásgeir að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.