Morgunblaðið - 30.10.1986, Blaðsíða 25
r»'rr*rv— ytry qt> qrTTn atHA ^rTnar.i
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1986
>0
25
Hinn undarlegi Kvennalisti
eftir Guðrúnu Jóns-
dóttur
Það gerðist fyrir helgi að flallað
var um Kvennalistann í mörgum fjöl-
miðlum samtímis. í Tímanum, DV
og Morgunblaðinu var sagt frá því
að fímmti varamaður Kvennalistans
í Reykjavík hefði tekið sæti á Alþingi
í Ijarveru Sigríðar Dúnu Kristmunds-
dóttur.
Þykir þetta undarleg skipan mála
hjá okkur Kvennalistakellum. Fyrir-
sögn Tímans er „Hallæri hjá
Kvennalista“ og þykja annir fyrsta
til fjórða varaþingmanns ótrúlegar.
Á sama hátt þóttu það tíðindi bæði
á Alþingi og í fjölmiðlum þegar
Kvennalistinn sendi „manneskju neð-
arlega af lista“ á Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í fyrra.
Starfshættir og uppbygging
Kvennalistans eru fjölmiðlafólki
greinilega framandi og væntanlega
einnig ijölmörgum öðrum. Til upplýs-
ingar kemur því eftirfarandi:
Við Kvennalistakonur leitumst við
að vera grasrótarhreyfing, sem þýðir
það að engin kona á að hafa meiri
völd eða áhrif en önnur. Þetta geng-
ur okkur misvel, því við þurfum
bæði að passa að ekki komi kalblett-
ir í grasrótina og að snarrótarpuntur
myndi ekki stórar þúfur. Við erum
formannslausar og reynum að hafa
sljómun eins „flata“ og kostur er. Á
félagsfundum eru mikilvægustu
ákvarðanir teknar, en á milli þeirra
sjá framkvæmdanefndir „anganna"
(deildanna) um reksturinn. Fram-
kvæmdaráð sér á sama hátt um
rekstur samtakanna í heild. Allir
fundir eru opnir öllum Kvennalista-
konum.
Ein af forsendum þess að störfum
hlaðnar konur geti tekið að sér nefnd-
arstörf fyrir okkur er að þær bindi
sig aðeins í stuttan tíma í einu og
þannig eru konur að jafnaði fjóra til
átta mánuði í hverri nefnd innan
hreyfingarinnar. Þetta er líka ein leið
til þess að tryggja valddreifingu.
Það segir sig sjálft að það hlýtur
að vera andstætt samtökum sem
þessum að númera konur á fram-
boðslista eftir vægi. Það höfum við
þó þurft að gera til þess að listar
okkar væru löglegir. Ég ber litla virð-
ingu fyrir þessari röðun og man illa
hvar á lista hver kona á sæti.
Ég vona að af þessu megi vera
ljóst að það er í fyllsta samræmi við
Ljóðabók-
in Agnir
komin út
Höfundur Bragi Björns-
son frá Surtsstöðum
FYRIR nokkru kom út ljóðabókin
Agnir, stökur eftir Braga Björns-
son frá Surtsstöðum. Utgefandi
er Menningarsamtök Héraðsbúa.
Bókin er innbundin, 132 síður að
stærð.
í inngangsorðum að bókinni seg-
ir meðal annars: „Höfundur þessar-
ar bókar, Bragi Bjömsson frá
Surtsstöðum, hefur fengizt við
Ijóðagerð frá unga aldri og ekki
hvað sízt lagt alúð við stökuna.
Fátt af kveðskap hans hefur þó
birzt á prenti enda hefur hann lítt
haldið honum á lofti. Engu að síður
hafa margar stökur hans orðið hér-
aðskunnar og sumar landfleygar
enda hefur hann ekki komizt hjá
að leggja fram bundið mál mönnum
til skemmtunar í heimasveit sinni
og víðar, á þorrablótum og öðrum
mannfagnaði, og fjárbragð kveð-
skaparins löngum auðþekkt þótt
hvorki fylgdi nafn né númer.
í bók þessa hafa eingöngu verið
valdar ferskeytlur þótt margar
stökur hafi höfundur kveðið undir
öðrum háttum. Fjölbreytni mun þó
lesandinn finna æma því margir
eru hættimir innan ættar ferskeytl-
unnar og að mörgu er hér hugað.“
„Við Kvennalistakonur
leitumst við að vera
grasrótarhreyfing-, sem
þýðir það að engin kona
á að hafa meiri völd eða
áhrif en önnur.“
starfshætti Kvennalistans að fimmti
varamaður taki sæti á Alþingi í fjar-
veru Sigríðar Dúnu. Það er á sama
hátt eðlilegt að við sendum „mann-
eskju neðarlega af lista" á Allsheijar-
þing Sameinuðu þjóðanna. Því má
bæta við að inn á þing hafa farið
nokkuð margur varaþingkonur fyrir
þingkonumar okkar þijár. Það eru
þær Kristín Ástgeirsdóttir, Málm-
fríður Sigurðardóttir, Sigríður
Þorvaldsdóttir, Guðrún Halldórsdótt-
ir og María Jóhanna Lárusdóttir.
Væntanlega eiga fleiri varaþing-
konur okkar eftir að taka sæti á
Alþingi í vetur.
En það er fleira sem flölmiðlafólki
þykir undarlegt við okkur. Upp á
síðkastið hefur mikið verið haft sam-
band til þess að fá fréttir af skipan
framboðslista okkar. Það er eðlilegt
þar sem nú em prófkjör og skoðana-
kannanir í fullum gangi hjá flokkun-
um. Þykjum við rólegar í tíðinni og
menn famir að velta því fyrir sér
hvort við séum jafnvel að lognast
útaf.
Þáð er auðvitað í samræmi við
starfshætti Kvennalistans að vera
ekki að spá í þingsæti núna. Við lítum
Guðrún Jónsdóttir
á okkur sem samtök um málefiii en
ekki um persónur. í samræmi við
það byijum við kosningaundirbúning
á málefnavinnu. Með stefnuna á
hreinu, ætti ekki að þurfa super-
kvendi til að flytja mál okkar á
Alþingi.
Áður en skilafrestur rennur út
munum við skila inn ffamboðslistum
með ffambærilegum konum í hveiju
sæti.
Ég veit að flokkamir hafa þetta
öðruvísi, en sérstaða okkar skapast
af því að við emm í pólitík á okkar
eigin kvenlegu forsendum og starfs-
hættir okkar em þessir af því að
svona hentar okkur að hafa fyrir-
komulagið.
Munið þvi að næst þegar mann-
eskja neðarlega af listanum okkar
tekur að sér ábyrgðarstörf kemur
það ekki til af haílæri, heldur af því
að okkur hefur tekist að halda gras-
rótinni lifandi.
Höfundur er starfakona Kvennalist-
ana.
SERTILBOÐ
RF 570 Kæliskápur
Sími: 686117 Armúla 1A
Bladburðarfólk
óskast!
KOPAVOGUR Hlíðarvegur 30-57
Bræðratunga AUSTURBÆR
Hlíðarvegur 1-29 o.fl. Óðinsgata
NÝTT SÍMANÚMER
aHHr 11
Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033
Multitech MPF 700 er IBM XT
samhæfd tölva með 20MB hörðum
disk, ríkulega búin samskipta-
tengjum, og öðrum aukabúnadi,
70% hraðvirkari en eldri gerðir
pc/xt véla.
Multitech MPF 900 er ein
fullkomnasta, og hraðvirkasta
At-vélin, ó markaðnum (10 MH2).
Báðar vélarnar koma með stórum
pergament hvítum ritvinnsluskjá.
Skipholti 9 s= 24255 & 622455