Morgunblaðið - 01.02.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
23
Edda Heiðrún Bachmann í hlut-
verki Dollýjar.
og þegar allt kemur til alls stendur
hann uppi með sýninguna. Það er
hann sem stendur frammi fyrir áhorf-
endum. Leikarinn verður að láta
áhorfandann fá það á tilfinninguna
að honum hafí dottið tiltekið athæfi
í hug á þeirri stundu. Leikarinn verð-
ur að leita og fínna. En á lokastigi
er það leikstjórans að hreinsa til,
samræma og byggja upp hrynjandi
sýningarinnar.
Við val á leikurum erum við aftur
komin að þessari tilfínningu sem ég
var að tala um að höfundur hafí.
Þéssa tilfinningu verður leikstjóri líka
að hafa. Auk þessa spila ytri aðstæð-
ur þar inn í, eins og þarfír leikhússins
sem einingar og praktískir hlutir í
verkinu sjálfu. Það getur til dæmis
verið að ég hafí séð einhvem leikara
í tiltekið hlutverk áður en annar var
ákveðinn, en hann klifrar kannski
ekki eins vel og sá sem fyrir valinu
verður, eða eitthvað svoleiðis.
Það spilar allt milli himins og jarð-
ar inn í val á leikurum, en grundvall-
aratriðið er, „á hvað kallar mín
grundvallar tilfínning fyrir verkinu."
Það skiptir líka miklu máli hvemig
manneskjur veljast saman. I þessu
verki skipti það gríðarlega miklu
máli, því við erum að byggja nýtt
leikhús hér. Við gerðum þetta mest
sjálf og höfðum ekki nema tvo fag-
menn til hjálpar, einn tæknimann,
Egil Ámason, og einn smið, Sigurjón
Gunnarsson, en Grétar Reynisson,
leikmyndateiknari hefur stjómað
verkinu og í rauninni rennur leik-
stjóm og leikmynd saman í eina heild
í þessu tilfelli. En við höfum ekki
verið alveg ein í þessu, því eftir af-
mælissýningu Leikfélags Reykjavík-
ur á Degi vonar, 11. janúar, hefur
starfsfólkið í Iðnó komið hér allt sam-
an með fullum þunga til að ganga
frá þessari sýningu."
Guðmundur Pálsson í hlutverki
sínu sem Tommi í Tommabúð,
ásamt Margréti Ólafsdóttur í
hlutverki Linu spákonu
tíu leikarar að segja áhorfandanum
þessa sögu og það er mjög gaman.
Það sem er líka mjög skemmtilegt
er að geta komið svona skáldsögum
á framfæri ef vel tekst til. Skáldsaga
hér er kannski gefin út í 3-4000 ein-
tökum, en leiksýninguna sjá kannski
50.000 manns, ef vel tekst til.
Við þurfum á næstu misserum að
víkka starfsemina út og fá fleira
fólk til starfa og þetta er einn liður
í því. Við höfum breytt þessari
skemmu í leikhús og æft þetta verk
á 4 mánuðum og öll sú vinna hefur
verið ævintýri líkust.
Einar Kárason, rithöfundur:
Skáldsaga hefur
frelsi til að
fljúga hvert sem er
Þ AÐ telst vissulega til viðburða
þegar skáldsögur eftir unga,
núlifandi rithöfunda eru raktar
í sundur og skrifuð upp úr þeim
leikgerð. Skáldsögur Einars
Kárasonar, „Þar sem Djöflaeyj-
an rís“ og „Gulleyjan,“ hafa
notið mikilla vinsælda á síðustu
árum og þótt sögurnar séu
frekar nálægt okkur í tíma er
höfundurinn enn nær okkur og
þvi auðvelt að forvitnast um
skoðun hans á þessari nýju út-
gáfu af sögum hans. Blaðamað-
ur Morgunblaðsins hitti Einar
einn morguninn og spjallaði við
hann.
Einar, nú er talað um að skáld-
saga lúti eigin lögmálum og leikrit
lúti sínum, burtséð frá öllum raun-
veruleika. Nú er búið að skrifa
leikgerð upp úr skáldsögum
þínum. Eru þær þarmeð farnar
að lúta einhvetjum öðrum lögmál-
um en skáldsögunnar?
„Það eru ýmis lögmál í prósa-
skáldskap. Til dæmis þáttur stíls
í gerð bókar, einnig frelsið, sem
sá hefur sem skrifar skáldsögu,
til að hlaupa fram og til baka í
rúmi. í skáldsögum er til dæmis
hægt að setja á svið hluti sem
jafnvel Hollywood hefur varla efni
á að búa til.
Ég get nefnt dæmi í mínum
bókum. Þar spilar flugvél stóra
rullu. Skáldsaga hefur frelsi til
að fljúga hvert sem er, hvar sem
er, hvenær sem er og jafnvel brot-
lenda.
Þegar verið er að tala svona
um lögmál skáldverka — lögmál
forma, þá er líklega verið að tala
um ýmsa svona þætti, sem ekki
er hægt að nota í leikhúsi. Þar
verður að fara aðrar leiðir. Þó að
formið sé í rauninni miklu þrengra
í leikhúsi, þá segir það miklu
meira að öðru leyti. I skáldsögu
er sagt hvað einhver segir en í
leikhúsi er sagt hvemig það er
sagt.“
Bætir leikgerðin þá einhvetju
við skáldsöguna. Verður til dæmis
ný persónusköpun sem þú átt
ekkert í?
„Nei varla, ætli hlutir eins og
persónusköpun verði að skrifast á
minn reikning, eins söguþráður
og samtöl, eins og þau ganga
fyrir sig, þótt ég vilji ekkert hafa
af leikgerðinni. Ég þekkti lítið til
verka Kjartans þegar sú hugmynd
kom upp að skrifa leikgerð upp
úr sögunum. Hinsvegar, sögðu
mér fróðir menn að fáum væri
betur treystandi en Kjartani til
að skrifa hana og bentu í því sam-
bandi á leikgerð hans á Ofvitanum
eftir Þórberg.. Ég ákvað að
treysta honum fyrir þessu og
síðan hefur ekkert gerst sem fær
mig til að sjá eftir því.
Hvort leikgerðin bætir ein-
hveiju við sögurnar? Ég er mjög
ófróður um slík mál yfirleitt.
Manna sístur til að segja eitthvað
af viti um leikhús og leikgerðir,
en ég á mjög erfitt með að ímynda
mér það. Mér sýnist svona, að ef
eitthvað nýtt er í einhverri leik-
gerð sem ekki er í sögunni sem
hún er byggð á, sé það afþví að
Ieikgerðin er nýtt verk. Þetta er
eins og þegar bækur eru kvik-
myndaðar. I flestum tilfellum er
myndin frábrugðin sögunni, en
ég held þetta sé þá líka orðið sitt-
hvort verkið.
Einar Kárason, rithöfundur
Bækurnar standa alveg
óbreyttar, hvað sem öðru líður.
Það er náttúrulega hægt að gera
allt mögulegt við skáldsögur, ekki
síst svona kollektivar sögur. Það
væri hægt að búa til úr þeim ótal
verk, þannig lagað. Maður getur
hugsað sér leikrit eða mynd um
ákveðna persónu úr þessum sög-
um, eða ákveðið atvik. En jafnvel
þótt búin yrðu til tíu þúsund þann-
ig myndir, breytti það bókinni
ekkert. Hún stæði ósnortin eftir.“
Finnst þér leikgerð þá ekki
vera einskonar útdráttur, efnið
vera sett í einn pakka til að spara
fólki lestur?
„Nei, allsekki. Það er ekki reynt
í þessari sýningu. Leikgerðin ger-
ir ekki tilraun til að ná yfir allt
efni bókanna. Það liggur líka í
hlutarins eðli, því skáldsagan er
eitthvað rúmlega 400 síður, leik-
ritið 70. Það hefði náttúrulega
fallið um sjálft sig ef reynt hefði
verið að ná yfir alla söguna og í
það minnsta mikill áfellisdómur
yfír höfundinum ef það tækist.
Svo er náttúrulega annað í
þessu. Maður hefur skáldsögu þar
sem reynt er að láta líta svo út
sem hún sé hið sanna, það sem
raunverulega var. Ef við ímyndum
okkur síðan að allt braggahverfíð
hefði verið þama á sviðinu, þá
hefði verið sagt, „svona var þetta
í raun og veru.“ Hér er aftur á
móti um algeran skáldskap að
ræða, hvað sem öðru líður, og því
aldrei hægt að segj a hvernig
þetta var í raun og vem. Níutíu
og níu prósent af lesendum hefur
ímyndað sér þann raunvemleika
sem sögurnar þykjast segja frá,
hver á sinn hátt, og allir hafa
hafat jafnrétt fyrir sér.
OKEYPIS
RÁÐGJAFAR-
ÞJÓNUSTA
Þér stendur til boða ókeypis
ráðgjafarþjónusta sérfræðinga ef
þú hugsar þér að festa kaup á
húsnæði. Komdu til okkar og
fáðu góð ráð, áður en þú gerir
nokkuð annað.
ú ríkisins
GARfíUR
S.62-1200 62-1201
Skipholti 5
Opið 1-3
2ja 3ja herb.
Hjallavegur. 2ja herb. falleg
ib. (neðri) i tvíb. Bflsk. fylgir. Nýtt
eldh., bað o.fl. Verð 2,4 millj.
Hringbraut. 2ja herb 50 fm
góö íb.
Njálsgata. 2ja herb. samþykkt
góð kjíb. i þríbýli. Verð 1450 þús.
Skipholt. 2ja herb. samþ. íb. á
jarðh. Góður staður. Verð 1750
þús.
Vífilsgata. Góö 2ja herb.
samþ. kj. ib. Verð 1700-1750 þús.
Einiberg — Hafnf. 2ja-3ja
herb. falleg nýstandsett risib. í
tvíb. Laus. Verð 2,2 millj.
Kleppsvegur. 3ja herb.
endaíb. á 2. hæð. Verð 2,5 millj.
Skúlagata. 3ja herb. snyrtil. íb.
á 4. hæð. Suðursv. Verð 2,1-2,2
millj.
Einb. — raðhús
Seljahverfi. Einbhús, stein-
hús, hæð og ris ca 170 fm auk
30 fm bílsk. Nýl. fallegt hús á
mjög rólegum stað. Frágenginn
garður. Ath. óskastærð margra
kaupenda.
Gamli miðbærinn. Járnkiætt
timbur. Húsið er í góöu ástandi.
Viðráðanlegt verð.
Raðhús. Vorum aö fá i einka-
sölu mjög gott vandað raðhús i
Seljahverfi. Húsið er 2 hæðir m.
bilsk. Samtals 196 fm. Stofur, 5
svefnherb., eldhús, baðherb.,
gestasn., þvottaherb. o.fl.
Háhýsi — einbýli. Fai-
legt einb., hæð og ris ca 125
fm auk bílsk. á góöum stað
í Smáíb.hverfi. Fallegur
garður. Fæst í skiptum f. 4ra
herb. íb. í t.d. Sól-, Ljós-
heimum eða Espigerði.
Logafold. Einbhús (timbur) á
tveimur hæðum. Ca 135 fm að
grunnfl. Innb. bilsk. á jarðhæð.
Verð 5 millj.
Hús á sjávarlóð. Vand-
aö einbhús ca 174 fm auk
bílsk. og bátaskýlis. Húsiö
scendur á mjög fallegum og
eftirsóttum stað við sjó.
Laust.
Súluhólar. 3ja herb. ca
90 fm íb. á 3. hæð (efstu).
Ný teppi. Gott útsýni. Verð
2650 þús.
4ra herb.
Breiðholt. 4ra herb. ca
100 fm íb. á 3. hæð. Mjög
snyrtil. íb. Stórar suðursv.
Bílsk. fylgir. Verð 3 millj.
Bólstaðarhlíð. 4ra herb. ca
120 fm íb. á 4. hæö. Góð íb. m.a.
nýtt eldhús. Verð 3,4 millj.
Brekkulækur. 4ra herb. ca
100 fm ib. á 3. hæð (efstu) í fjórb.
Þvottaherb. I íb. Tvennar svalir.
Sérhiti. Einkasala. Verð 3,5 millj.
Eskihlíð. 4ra herb. íb. á 4. hæö
auk herb. I risi. Góð íb. Þvotta-
herb. og geymsla I risi. Verð 2950
þús.
Húseign — Austurborg.
Stórglæsil. nýtt 295 fm hús á
góðum stað. Allt mjög vandað.
Rúmg. bílsk. Garöstofa.
smiðum
Grafarvogur. Raðhús á einni
hæð 175 fm með bilsk. Seljast
fokh., fullg. utan. Mjög góðteikn.
Krosshamrar. Parhús 99 fm
auk bílsk. Selst fokh., frágengið
utan, glerjað m. útihurðum o.fl.
Verð 2,7 millj.
Vantar
Vantar einb. og raðhús i Árt-
únsholti og Seljahv.
2ja íb. hÚS í Austurborg. Mög-
ul. makaskipti á hæð.
Annað
Verslhúsn. Vorum að mjög
gott nýtt verslunarhúsn. á góðum
stað í Hafnfirði. Laust.
Keflavík. Einbh. 141 fm, 3jaára
timburh. á einni hæð. Tvöf. bílsk.
Verð 4,8 millj.
Egilsstaðir. Einbh. ca 200 fm,
15 ára. Laust. Verð 4 millj.
Kári Fanndal Guðbrandsson,
Gestur Jónsson hrl.
Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna
á söluskrá