Morgunblaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar óskast
til starfa á allar vaktir. Hlutastarf eða fastar
vaktir koma til greina.
Sjúkraliðar óskast
í vaktavinnu. Hlutastarf og fastar vaktir koma
til greina.
Sjúkraþjálfari óskast
til starfa sem fyrst.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
35262 og 38440.
Stýrimaður
óskast á mb. Haukafell frá Hornafirði sem
hefur netaveiðar um miðjan febrúar.
Upplýsingar í síma 97-81330.
fiíli i I nyJii u I
ZKRfltUTVEGS
Hafnarhvoli v/ Trygqvagötu.
Eimskipafélag
íslands
Til sölu eru hlutabréf í Eimskipafélagi íslands
ef viðunandi tilboð fæst. Um er að ræða
bréf að nafnverði 350.000.00. Ennfremur
óskast keypt mikið magn af góðum við-
skiptavíxlum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Þúfa - 2073“.
Fasteignasala
skrifstofustarf
Fasteignasala í miðborginni óskar að ráða
starfskraft. Starfið felst m.a. í skjalagerð,
vaxtaútreikningi, vélritun og almennri af-
greiðslu. Góð laun í boði. Þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Eiginhandarumsóknir merktar: „F — 10016“
sendist auglýsingadeild Mbl. sem fyrst.
Afgreiðslu-
og sölustarf
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í verslun
við Laugaveginn. Vinnutími 9.00-13.00 ann-
an daginn og 13.00-18.00 hinn daginn.
Vinsamlegast sendið uppl. um aldur, fyrri
störf, menntun og þess háttar til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir miðvikudagskvöld 4. febr.
merkt: „Laugavegur — afgreiðsla — 5047“.
Atvinna —
Vestmannaeyjar
Okkur vantar nú þegar starfsfólk á komandi
loðnu- og bolfiskvertíð.
Mikil vinna framundan. Fæði og gott hús-
næði á staðnum.
Upplýsingar gefur Páll í símum 98-1237 og
98-1080. Eftir almennan vinnutíma í síma
98-2088.
Fiskiöjan hf.,
Vestmannaeyjum.
RÍKISSPÍTALAR
LAUSARSTÖÐUR
Hjúkrunardeildarstjóri og
hjúkrunarfræðingur
óskast á göngudeild geðdeildar Landspítala
á Kleppi.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á geðdeild Landspítalans 33 C.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á hinar ýmsu deildir geðdeildar
Landspítala á Kleppi. Húsnæði getur fylgt.
Sjúkraliðar
óskast við ýmsar deildir á geðdeild Landsspít-
3l3
Starfsfólk
óskast til ræstinga við geðdeild Landspítala
á Landspítalalóð og að Kleppi.
Skrifstofumaður
óskast á skrifstofu hjúkrunarforstjóra geð-
deildar Landspítalans að Kleppi.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veita
hjúkrunarframkvæmdastjórar geðdeildar
Landspítalans í síma 38160.
Hjúkrunarfræðingur
óskast nú þegartil afleysinga á krabbameins-
lækningadeild kvenna 21 A.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri kvennadeildar í síma 29000 — 509.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á gjörgæsludeild Landspítalans.
Deildin skiptist í 11 rúma gjörgæslu og 8
rúma vökun. Unnið er þriðju hverja helgi og
í boði er góður aðlögunartími.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri handlækningadeildar í síma 29000 —
486 eða 487.
Aðstoðardeildarstjórar
(2) óskast á vökudeild Barnaspítala Hringsins.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri
Barnaspítala Hringsins í síma 29000 — 285.
Sjúkraliðar og starfsmenn
til ræstinga óskast á Vífilsstaðaspítala.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 42800.
Starfsmaður
óskast í fullt starf á skóladagheimili ríkisspít-
ala á Kleppi. Einnig óskast starfsmaður í
hálft starf fyrir hádegi á dagheimili ríkisspít-
ala á Kleppi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimil-
isins í síma 38160.
Starfsmaður
óskast í hálft starf til ræstinga í þvottahúsi
ríkisspítala, Tunguhálsi 2.
Upplýsingar veitir forstöðumaður þvotta-
hússins í síma 671677.
Deildarþroskaþjálfar
óskast á ýmsar deildir Kópavogshælis.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Kópa-
vogshælis í síma 41500.
Ritari
óskast á skrifstofu forstjóra ríkisspítala.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun
áskilin ásamt góðri vélritunar- og íslensku-
kunnáttu.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
29000.
Sjúkraliðar
óskast á lyflækningadeild 2 11 B og einnig
á taugalækningadeild 32 A.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri lyflækningadeildar í síma 29000 — 485.
Reykjavík, 1. febrúar 1987.
Áhugaverð
sérfræðistörf
Stórt fyrirtæki á sviði verktakastarfsemi,
óskar að ráða í eftirfarandi störf, sem fyrst:
Tölvunarfræðing, viðskiptafræðing eða
verkfræðing til að hafa yfirumsjón með tölvu-
málum fyrirtækisins, hafa eftirlit með vinnslu
bókhalds á tölvu og starfa sem ráðgefandi
aðili varðandi úrvinnslu gagna og upplýsinga-
öflun.
Viðkomandi mun aðallega starfa á skrifstofu
fyrirtækisins í Reykjavík en einnig að hluta til
í Kefiavík.
Verkfræðing eða tæknifræðing til að starfa
við tæknileg tölvuverkefni, svo sem áætlana-
gerð og magntökur fyrir framkvæmdir og að
auki sem tæknilegur ráðgjafi, á sama sviði.
Viðkomandi mun aðallega starfa í Keflavík.
Nauðsynlegt er að viðkomandi aðilar hafi
þekkingu og reynslu í notkun tölvu.
Umsóknir ertilgreina menntun, starfsreynslu
og aldur sendist skrifstofu okkar, fyrir 7. febr-
úar næstkomandi.
Vaktmenn
Fyrirtækið annast tæknivinnu fyrir mynd-
banda- og kvikmyndagerð.
Starfið felst í húsvörslu, móttöku og öðrum
léttum störfum.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi séu reglu-
samir, heiðarlegir og gæddir ríkri ábyrgðartil-
finningu. Skilyrði er að umsækjendur séu
orðnir fimmtíu ára eða eldri.
Vinnutími eru átta klukkustunda vaktir eftir
nánari samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavördustig 1a — 101 Reykjavik — Simi 621355
Viðskiptafræðingur
— hagfræðingur
Fyrirtækið er á sviði fjármálaráðgjafar,
ávöxtunarþjónustu, verðbréfamiðlunar og
öðru tengdu því.
Starfið felst í almennri fjármálastjórnun og
yfirumsjón með fjármálum dótturfyrirtækja
undir handleiðslu forstjóra.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé við-
skipta- eða hagfræðingur. Reynsla af
sambærilegu æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar
nk. Ráðning verður eftir nánara samkomu-
lagi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Aíleysmga- og rádnmgaþiónusta
Lidsauki hf. W
Skólavördustig 1a - 101 Fleykjavik - Simi 621355
Skinfaxi — ritstjóri
Ungmennafélag íslands óskar eftir að ráða
ritstjóra fyrir blað hreyfingarinar, Skinfaxa.
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á
íslensku máli, og hafa áhuga á starfi og
stefnu ungmennafélagshreyfingarinnar.
Nánari upplýsingar fást hjá stjórnarmönnum
UMFÍ, og á skrifstofunni að Ödugötu 14,
Reykjavík, en þar fá umsækjendur umsóknar-
eyðublöð. Umsóknarfrestur ertil 10. febrúar
1987.
Ungmennafélag ísiands.