Morgunblaðið - 01.02.1987, Page 31

Morgunblaðið - 01.02.1987, Page 31
10, MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987 31 sparifé þitt má oft sjá í smáa letrinu útskýringar á mikilvægum atriðum. Séu þessi atriði ígrund- uð vandlega koma kostir spariskírteina ríkis- sjóðs ótvírætt í ljós hvað varðar öryggi, einfald- leika og góða ávöxtun. Tökum nokkur dæmi um atriði sem hafa áhrif á raunverulega ávöxtun sparifjár þíns. Eignaskattur: Spariskírteini ríkissjóðs eru eignaskattsfrjáls hjá fólki utan atvinnurekstrar, en það eru önnur verðbréf ekki. Eignaskattur er nú á bilinu 0,95% til 1,2%. Stimpilgjald: Spariskírteini ríkissjóðs eru stimpilfrjáls en ef þú kaupir bréf ávöxtunarsjóða þá greiðir þú í reynd 0,5% stimpilgjald. Innlausnargjald: Ef þú selur spariskírteini þitt fyrir gjalddaga greiðir þú söluaðilum þóknun, sem getur lægst verið 0,75%. Hjá flestum ávöxtunarsjóðum greiðir þú innlausnargjald þegar þú innleysir verðbréf þín sem getur verið allt að 3% en þú greiðir ekkert innlausnargjald þegar þú innleysir spariskírteini ríkissjóðs á gjalddaga. Auk þess getur þú selt spariskírteini ríkissjóðs hvenær sem er í gegnum Verðbréfaþing íslands, en ávöxtunarsjóðir áskilja sér rétt til að fresta inn- lausn telji þeir ástæðu til. Viljir þú fínna út raunávöxtun sparifjár þíns skaltu ekki gleyma að taka tillit til þessara þátta. Spariskírteini ríkissjóðs: Að vandlega athuguðu máli er augljóst að spari skírteini ríkissjóðs eru um margt vænlegasti kosturinn. Ríkissjóður tryggir þér góða raun- ávöxtun og öryggi spariskírteina ríkissjóðs er ótvírætt því að baki þeim stendur öll þjóðin. Sala spariskírteina ríkissjóðs stendur nú yfir í Seðlabanka íslands og á öðrum hefðbundnum sölustöðum. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.