Morgunblaðið - 01.02.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
41
Iranar
hafna frið-
arákalli
leiðtoga
Kuwait, Nicosia, AP.
Leiðtogar arabaríkja bundu í
gær enda á fjögurra daga ráð-
stefnu i Kuwait með því að skora
á írana og íraka að semja um
frið. íranar fordæmdu áskorun-
ina og sögðu hana „úr tengslum
við raunveruleikann'*.
í lokatilkynningu frá 44 sendi-
nefndum, sem sátu ráðstefnuna, var
„mannfall og tjón í Persaflóastríð-
inu harmað". En leiðtogum
múhameðstrúarríkja tókst ekki að
koma með nýjar tillögur um hvem-
ig miðla ætti málum í stríðinu, sem
nú hefur staðið í sex og hálft ár.
íranar komu ekki til ráðstefnunnar
og héldu fram að Kuwait styddi
íraka.
írakar sögðu í gær að þeir hefðu
gert loftárásir á fimm bæi og borg-
ir í Iran í gær og hótuðu að halda
áfram gagnárásum þar til íranar
samþykktu réttláta lausn á styijöld-
inni.
íranar kváðust hafa skotið niður
sex íraskar flugvélar í gær og hefði
stórskotalið þeirra varpað sprengj-
um á höfnina Umm Qasr, sem er
skammt frá landamærum fraks að
Kuwait.
Talið er að a.m.k. ein milljón
manna hafi fallið í styijöldinni frá
upphafí hennar. A þyrrkingslegu
flatlendinu suður af Teheran, höf-
uðborg írans, stækkar kirkjugarð-
urinn með degi hveijum. Grafaram-
ir hraða sér á reiðhjólum frá einni
gröf til annarrar. Þar fara nokkrar
útfarir fram í einu. Klerkamir þurfa
að keppa hver við annan til að í
þeim heyrist. Þeir nota gjallarhom
til þess að líkræður þeirra yfír-
gnæfí gnýinn frá jarðýtunum, sem
undirbúa fleiri grafír.
Kirkjugarðurinn Behesht Zahra
er ætlaður föllnum stríðshetjum.
Upp úr gosbrunni við aðalhliðið
spýtist dreyrrautt vatn eins og úr
gapandi holund. Þama eru mörg
þúsund grafir skreyttar myndum
af ungum mönnum og drengjum í
málmrömmum. Á öðrum gröfum
eru einfaldir kransar og pappa-
spjald í stað legsteins. Líkkistur og
stórir plastpokar liggja á víð og
dreif.
VESTMANNAEYJAR SUÐURNES ISAFJORÐUR EGILSSTAÐIR AKUREYRI
VIKJUM EKKI
AF DÉTTPI LEIÐ
i\hl I lm■ ■■■■/
Þorsteinn Pálsson í upphafi kosningabaráttunnar
VESTMANNAEYJUM í AKOGES-húsinu
fimmtudaginn 5. febrúar kl. 21.00.
SUÐURNESJUM í félagsheimilinu Stapa
miðvikudaginn 11. febrúar kl. 20.30.
ÍSAFIRÐI á Hótel ísafirði
laugardaginn 14. febrúar kl. 13.30.
EGILSSTÖÐUM í Valaskjálf
föstudaginn 20. febrúar kl. 20.30.
AKUREYRI
laugardaginn 21. febrúar kl. 16.00.
Fundarstaður auglýstur síðar.
Sjjálfstæðisflokkurinn nær árangrí
NÝRAUGL ÝSIIÍIGA TlMI
M E Ð TVÖFALDRI H L U S T U IM
r r
Frá 5. febrúar verða rás-1
og rás-2 samtengdar fyrir
lesnar auglýsingar kl. 10.00
og 1 6.00.
Símar auglýsingadeilda
eru 22274 og 68751 1.
ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA
RÁS-1+RAS-2
RÍKISÚTVARPIÐ