Morgunblaðið - 01.02.1987, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
reimskífur
REVI
NSLA
pjÓN'
JSTA
Pekk'^g
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
m
w
ÞINGBREF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Fundur í Sameinuðu þingi. Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, i ræðustól. Þorvaldur Garðar
Kristjánsson í forsetastól. Aðrir á myndinni eru Þórarinn Sigurjónsson (F.-Sl.), Ingvar Gislason
(F.-Ne.) og Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra.
Síðasta þinglotan að hefjast:
Brýnustu mál
in afgreidd
Önnur geymd nýju þingi
Tíminn líður. Fyrsti mánuður hins
nýja árs er að baki. Það lifa því
ekki marg-ar vikur af starfstíma
Alþingis, þessa síðasta þings
kjörtímabilsins, 109. löggjafar-
þings íslendinga. Þegar þessar
línur eru skráðar á skjá hefur kjör-
dagur enn ekki verið formlega
ákveðinn né þinglausnir dagsettar.
Forsætisráðherra hefur ekki tekið
af skarið í þessu efni. Flestum
finnst það þó meir en tímabært.
Kjördagur 25. apríl
Sá dagur, sem flestir
ræða um sem kjör-
dag til þings, er 25.
apríl næst komandi.
Ef vel á að vera
mega kosningar
ekki vera seinna á ferð. Um þetta
leyti er umboð núverandi þing-
manna, sem kjörnir vóru ti!
fjögurra ára, úti.
Ef kjördagur verður 25. apríl,
sem líkur standa til, verða þing-
lausnir sennilega um miðjan
marzmánuð. Þær hefðu þó gjarn-
an mátt vera fyrr á ferð, eins og
allt er í pottinn búið. í forystu-
grein Morgunblaðsins fyrir fáum
dögum, þar sem fjallað er um
þessi mál, segir orðrétt:
„Það er ljóst, að þinghald leggst
niður 23. til 27. febrúar, á meðan
Norðurlandaráð fundar í Finn-
landi. í bytjun marz er svo
landsfundur Sjálfstæðisflokksins,
sem einnig setur strik í störf Al-
þingis. Eigi að kjósa hinn 25.
apríl, er vafalaust skynsamlegast
að stefna að þinglausnum fyrir
þing Norðurlandaráðs. Er ekki að
efa, að þingmenn geta afgreitt
þau mál, sem brýnust eru fyrir
kosningar, á fáeinum vikum, ef
vilji stendur til þess“.
Sá gangur, sem verið hefur á
þingmálum á nýju ári, bendir hins-
vegar ekki til þess að ljúka eigi
þingstörfum fyrir þing Norður-
landaráðs. Þrátt fyrir nýjar
þingskaparreglur, sem gera þing-
haldið skilvirkara, hefur þingmál-
um, einkum stjórnarmálum, ekki
verið dreift þann veg á starfstím-
ann (eða milli þingdeilda) að hann
nýttist eins vel og kostur var.
Verkefnin framundan
Skattamál munu væntanlega
setja svip sinn að þingstörfm
framundan. Frumvarp að virðis-
aukaskatti, sem ætlað er að leysa
af hólmi gallað og lekt söluskatts-
kerfi, verður að vísu ólíklega
afgreitt. Hinsvegar standa líkur
til að frumvarp um staðgreiðslu-
kerfi og systurfrumvarp um
einföldun tekjuskatts (væntan-
lega um fækkun frádráttarliða og
eitt skattþrep) verði afgreitt. Þá
liggur fyrir Alþingi frumvarp að
nýjum tollalögum, sem felur í sér
margvíslegar nýjungar. Séu þessu
mál skoðuð í heild er um að ræða
stórt skref til endurbóta og ný-
sköpunar á tekjuöflunarkerfi
ríkissjóðs. Á það má og minna
að svokallaðir aðilar vinnumark-
aðarins eru sammála í stuðningi
við staðgreiðslukerfi skatta.
Alþingi kemst trauðla hjá því
að afgreiða lagfæringu á hinum
nýju kosningalögum, þ.e. að sníða
vankanta af ákvæðum um úthlut-
un þingsæta. Að þessu máli
starfar nefnd undir forsæti Páls
Péturssonar, formanns þingflokks
framsóknarmanna.
Erfitt er og að horfa fram hjá
margumræddri endurskipulagn-
ingu í bankakerfinu og sér í lagi
stöðu Útvegsbankans. Þetta
margflókna mál, sem þvælst hefur
fyrir banka- og stjórnmálamönn-
um, er hinsvegar „þannig í sveit
sett", að hæpið er að það fái lykt-
ir fyrir þinglausnir. Hvarvetna í
veröldinni munu Seðlabankar vera
ríkisbankar. Öðru máli gegnii' um
viðskiptabanka. Þeir mun víðast
í hinum vestræna heimi, bæði
stórir og smáir, vera einkabankar.
Ríkisrekinn viðskiptabanki er eins
og undantekning frá meginreglu.
Arðsemi í fjárráðstöfun þykir yfir-
höfuð betur tryggð með einka-
bankakerfi en í pólitískri forsjá.
Líklegt er talið að ný vaxtalög
nái fram að ganga sem og endur-
skoðuð á vegaáætlun.
Eins og nú háttar er líklegt að
þau mál, sem mestar deilur standa
um, verði söltuð fram yfir kosn-
ingar. Alþingi mun þó leggja
metnað sinn í það að afgreiða hin
allra brýnustu málin. Ef það á að
takst verður lokalotan í þingstörf-
um ströng - og nótt lögð við dag,
eins og jafnan gerist á síðustu
vikum þingstímans.
Betur færi á því, eins og fyrr
er vikið að, að dreifa þingmálum,
einkum stjórnarmálum, jafnar á
þingtímann, til að nýta hann og
starfskrafta þingsins betur.
Eins og nú er komið ber hins-
vegar að leggja áherzlu á að þessi
lokalota þingsins hefjist sem allra
fyrst svo unnt sé að slíta þingi á
hentungum tíma með komandi
kosningar í huga.
Kosningabaráttan framundan
verður líklega óvenju hörð og
kann að segja til sín í ýmiskonar
pólitsikum uppákomum í þinginu.
Þessi barátta kemur því til með
að hafa sínar neikvæðu hliðar,
eins og öll mannanna átök, en hún
styttir okkur veturinn. Aðalatriðið
er að eftirleikurinn verði í anda
vorsins og gróandans og festi
góðærið í þjóðarbúskapnum í
sessi, að því marki sem í mann-
legu valdi stendur.
Sjálfstætt ábyrgðarstarf
Stórt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða í stjórnunarstarf sem fyrst.
Menntun:
Háskólamenntun í verkfræði-, rekstrar-, tölvu- eða stjórnunarfræðum, framhaldsmennt-
un erlendis æskileg. Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg.
Æskilegir eiginleikar:
Hugmyndaríkur, geðprúður, eiga gott með að umgangast fólk og virkja það til sam-
starfs. Tilbúinn til að takast á við ný skapandi og krefjandi verkefni.
Reynsla:
Starfsreynsla hérlendis eða erlendis æskileg.
Kjör:
Mjög góð kjör og hlunnindi.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Skriflegar umsóknir óskast sendar
Mbl. fyrir-7. þ.m. merkt: „Einstakt tækifæri — 1770“.
J
Leiðarþing
í Kjalarnes-
prófastsdæmi
HÉRAÐSNEFND Kjalarnespróf-
astsdæmis verður með fund
mánudaginn 2. febrúar kl. 17.30
í Kirkjuhvoli í Garðabæ.
Á leiðarþinginu munu kirkju-
þingsmennimir Kristján Þorgeirs-
son og dr. Gunnar Kristjánsson
skýra frá störfum kirkjuþings og
verða síðan sérstakar almennar
umræður. Einnig verður fjallað um
önnur þau mál, sem varða prófasts-
dæmið.
Fundurinn er öllum opinn.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíóum Moggans! A