Morgunblaðið - 01.02.1987, Side 61

Morgunblaðið - 01.02.1987, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987 61 Minning: SigurðurM. Guð- mundsson, Garði ár bjó Víglundur hjá foreldrum sínum, sem festu kaup á húsinu á Laugavegi 70, og rak faðir hans búð í kjallaranum. Víglundur fæddist í dögun nýrrar aldar á íslandi, vélaaldarinnar. Vél- bátaútgerð var þá nýhafin og bílaöld í þann mund að ganga í garð. Það lék ljómi bautryðjend- anna um stétt bifreiðastjóra á þeim árum, sem hann var að verða full- tíða maður og að líkum lét, að ungir menn sæktust eftir slíku starfi. Víglundur réðst tii náms og starfa á bflaverkstæði BSR og lauk bflprófí árið 1925. Næstu ár stundaði hann leigubif- reiðaakstur, en réðst árið 1929 sem vörubifreiðastjóri til Sambands ísl. samvinnufélaga og vann þar meðan kraftar entust. Hann var með af- brigðum farsæll í starfi enda gætinn bflstjóri og natinn við bifreiðir sínar. Árið 1929 urðu þáttaskil í lífi hins unga manns. Hann gekk að eiga unnustu sína, Margréti, dóttur hjón- anna Sumarlínu Pétursdóttur og Gríms Jónssonar sjómanns, sem bjuggu í Ámesi við Laugamesveg. Ungu hjónin festu kaup á hálfri húseigninni á Laugavegi 70 og áttu heima þar alla tíð. Víglundur taldi það sitt mesta lán að hafa kvænst konu svo vænni sem Margrét er. Með henni átti hann fimm mann- vænleg böm, þau: Sigrúnu, hús- freyju, gifta Ásgeiri Eyjólfssyni, pípulagningameistara, Bergþóm, fulltrúa, sem átti Þóri Tryggvason, bifreiðastjóra, Bryndísi, skólastjóra, sem átti Guðmund Bjamason, skógrætarmann, Jón, bakarameist- ara, kvæntan Steinunni V. Jóns- dóttur, og Björgvin, verkfræðing, kvæntan Guðrúnu Guðmundsdótt- ur, tónlistarkennara. Þeir Guð- mundur og Þórir em látnir fyrir nokkmm ámm. Bamabömin em 11 og bamabamabömin 8. Víglundur var kominn af bænd- um og sjómönnum og hlaut í ríkum mæli hæfileika þeirra til að yrkja jörðina og draga fisk. Þau hjónin byggðu sér sumarbústað í Fossvogi og var það mál manna að vart sæist fallegra tún en það, sem hann ræktaði í kringum bústaðinn. Einn- ig hafði hann yndi af trjárækt og plantaði mörgum tijám í kringum annan bústað sem þau eignuðust í Kópavogi. Kartöflurækt stundaði hann einnig eins lengi og heilsa entist. Þó mikið yndi hefði Vfglund- ur af jarðrækt, átti þó veiðiskapur e.t.v. ennfremur hug hans. Hann varð einn þekktasti laxveiðimaður landsins. Veiddi í Sogi og Brúará og í Brúará veiddi hann stærsta lax sem þá hafði veiðst á íslandi svo vitað væri, 37,5 pund. Það met átti hann lengi. Mörg síðustu æviár átti Víglund- ur við erfiðan sjúkdóm, Parkison- veikina, að etja. Sú er þetta ritar kynntist þeim Víglundi og Mar- gréti, þegar hún kom á heimili þeirra í fylgd Bryndísar dóttur þeirra. Mörg áttu sporin eftir að verða á Laugaveginn og margar ánægjustundir sem þakka ber. Oft sátum við Víglundur og börðum saman vísur um eitt og annað í glettingi. Stundum sagði hann frá unaðs- og ánægjudögum við lax- veiðar því mikill sögumaður var hann. Nú að leiðarlokum þakka ég honum og Margréti góðvild og vin- áttu í meira en 30 ár. Ollum aðstandendum sendi ég samúðar- kveðjur. Guðrún J. Halldórsdóttir Fæddur 14. september 1957 Dáinn 23. janúar 1987 Enginn er óhultur í hildarleik umferðarinnar, bifreiðastjórinn, farþeginn, vegfarandinn, ungur, aldinn. Það sannast oftar en skyldi. Sigurður M. Guðmundsson, sem lést af slysförum aðeins 29 ára gamall, var eitt sex bama Guð- mundar í. Ágústssonar og Guðríðar Þórðardóttur í Vogum á Vatns- leysuströnd. Hinn 27. desember 1977 kvæntist hann Gunnþórunni Þorsteinsdóttur, dóttur Þorsteins Jóhannessonar og Kristínar Ingi- mundardóttur í Garði. Sigurður og kona hans bjuggu og störfuðu að Gauksstöðum í Garði. í farsælu hjónabandi varð þeim tveggja bama auðið, Jóhannesar Inga, sem er nú átta ára, og Þórunnar Helgu, fimm ára. Með Sigurði M. Guðmundssyni, mági mínum, er genginn drengur góður sem verður lengi saknað. Það mátti marka í heimabæ hans laug- ardaginn 24. janúar er andlátið spurðist út. Fáninn var í hálfa stöng á hverri stöng. Tilkomumikil sjón, þekkt í Garðinum, óþekkt í stór- borgum, dæmi um þann samhug sem fámennið hefur fram yfir margmennið. Eg og flölskylda mín viljum einn- ig votta eiginkonu, syni, dóttur og öðrum, sem eiga um sárt að binda, dýpstu samúð. Jón Ogmundur Þormóðsson Hvers vegna? Af hverju. Aðeins ef. Þessar hugsanir kannast þeir við sem upplifað hafa eins örlagaríkan dag og 23. janúar er mágur minn lagði af stað í sína hinstu för. Nú var okkar að spyija. Kannski er aðeins eitt svar við þessum spumingum: „Guð ræður.“ Sigurður Magnús Guðmundsson fæddist 14. september 1957 í Vog- um á Vatnsleysuströnd og ólst þar upp. Foreldrar hans eru þau Guð- mundur í. Ágústsson, útgerðarmað- ur og skipstjóri frá Halakoti á Vatnsleysuströnd, og Guðríður Þórðardóttir, útgerðarmanns og bónda frá Stóru-Vatnsleysu. Ef ég læt hugann reika aftur um 17 ár þegar ég fyrst steig inn um dyr æskuheimilis Sigurðar, sem þá var ófermdur, finn ég það hversu lítið hafði breyst frá því er hann í fermingarkyrtli sínum stóð við alt- arið frammi fýrir presti sínum, sr. Braga Friðrikssyni, þeim gjörvu- lega manni, sem varð að líta upp og rétta upp höndina á höfuð hins unga drengs, og til 17. janúar sl. er hann sótti dansleik í fæðingarbæ sínum, Vogunum, með bræðrum sínum og konu. Þetta fann Siggi sjálfur. Er hann sat á móti skólabróður sínum og ri^aði upp fyrri daga spurði hann mig þannig hvort ekki væri rétt hjá sér að þeir hefðu bara ekkert breyst allan þennan tíma. Þessi skoðun fannst mér eðlileg hjá honum þrátt fyrir það að hans stutti fram- kvæmdaferill væri slíkur að honum eldri menn mættu vel við una. Þegar Siggi, ungur, hávaxinn, fast að tveim metrum, dökkur á brún og brá, átti erindi að Reyni- stað í Garði og drap þar á dyr var framtíð hans ráðin því að fýrir hon- um opnaði ung stúlka, andstæða hans, 35 sm lægri, ljóshærð og björt yfirlitum. Þessa stúlku, Gunnþórunni Þor- steinsdóttur, gekk hann að eiga hinn 27. desember 1977. Saman eignuðust þau tvö böm, Jóhannes Inga 1978 og Þórunni Helgu 1982. Heimili þeirra var að Gauksstöð- um í Garði, í gömlu reisulegu húsi þar sem afi og amma Tótu bjuggu áður fyrr. Heimili þeirra einkennd- ist af friði og hlýju. Orð tengdamóð- ur minnar lýsa því best þegar hún sagði: „Þegar ég sest þar niður langar mig ekkert til að standa upp.“ Tóta mín, kjarkinn vantar þig ekki þótt alvaran láti ekki á sér standa. Með þér einni tók dóttir ykkar á móti sínum fimmta af- mælisdegi hinn 30. janúar. En við sem stöndum hjá horfum í þín stóru björtu augu sem segja aðeins: „Hvað kemur næst?“ Elsku Tóta, haltu fast í trú þína og kjark. Eins og ég sagði áður vora þau Siggi og Tóta andstæður í útliti. Eins var um suma þætti í fari þeirra en þau sýndu og sönnuðu að með sameiginlegu átaki er hægt að gera stóra hluti. Eiginleikum Sigga og verkum er ég ekki tilbúin til að lýsa. Starfsferli hans gæti Þorsteinn, tengdafaðir hans, gert góð skil. Þorsteinn minn, við vitum hvað Siggi var þér. Saman glædduð þið nýju lífi það sem þér er kærast og vafalaust hefur þú séð í honum sjálfan þig, ungan mann. Staðreyndin er jú að Siggi er horfinn og minningamar, sem eng- inn tekur frá okkur, eiga að hlýja okkur og leiða fram bros í þakklæti. Einn er sá er gæti lýst persónu Sigga meir en annar, sagt okkur jú það sem við vitum en fleira gæti hann bætt við. Það er Nonni, föðurbróðir Tótu, sem búið hefur hjá þeim frá því að þau stofnuðu heimili. Nonni telst til þeirra sem era minni máttar í þessum heimi og hlaut ekki það í vöggugjöf að vera fullfær um að tjá sig. Hann mun geyma minningu um mann sem ekki spurði hvort það væri minni eða meiri maður sem hann ætlaði að ræða við. Siggi tal- aði við alia. Elsku tengdaforeldrar. Ykkur hefur gæfan ávallt fylgt. Hversu stórkostlegt hlýtur það ekki að vera fyrir foreldra sex bama að sjá þau öll feta í fótspor feðra sinna og gefa þeim ekkert eftir en þeir vora landi sínu til sóma. En allt í einu er okkur bent á að allt er fengið að láni og sá sem öllu ræður krefst einhvers til baka. Ykkur og böm ykkar þekki ég að því einu að það munuð þið reyna að skilja. Lengi hefi ég hugleitt hversu mikilvægt það hljóti að vera að fá að hverfa úr þessum heimi ham- ingjusamur og umvafinn þeim sem við elskum. Þennan hug hef ég endurvakið þegar ég hugsa til Sigga þar sem hann að morgni er uppfiillur af sínum gamla, góða þrótti og stóram draumum, sem hann óhikað ætlaði að láta rætast og takast á við, en er síðan kvaddur til annars heims síðari hluta dags. Ég hlýt að komast að sömu niður- stöðu. Þetta atriði ætti að vega þungt í minningum ástvina sem eftir lifa og lúta höfði í þökk. t Móðir mín og amma, aðalheiður eðvarðsdóttir frá Helgavatni, Vatnsdal, sem lést þann 23. janúar verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 2. febrúar kl. 10.30. Þeir sem vilja minnast hinnar lótnu láti Hjálparstofnun kirkjunnar njóta þess. Signý Amilfa Hackert, Krlstfn HeiAa Anderson, Rubin Karl Hackert, Eövarð Þór Hackert. Elsku Tóta, böm, Nonni, tengda- foreldrar, foreldrar og systkini. Með þessum orðum vil ég flytja mína samúðarkveðju. Veri Sigurður Guði falinn. Maja Far þú í friði, friður Guðs þig blessi Þetta vora þau orð, sem komu í huga minn og veittu mér huggun, er mér barst sú hörmulega sorgar- fregn, að Siggi frændi hefði farist í bflslysi. Hann var tæplega þrítug- ur, yndislegur fjölskyldufaðir, er kallið kom. I slíkum tilfellum hlýtur Guð að ætla mönnum æðra og göf- ugra hlutverk, er hann kallar þá til sín svo snemma. Við það verðum við, sem eftir lifum, að sætta okk- ur, þó sárt sé, og trúa því, að Siggi sé nú kominn í Guðs faðm og verði þar um ókomna eilífð. Siggi, eða Sigurður Magnús Guð- mundsson eins og hann hét fullu nafni, var einn sex bama hjónanna Guðríðar Þórðardóttur og Guð- mundar í. Ágústssonar, skipstjóra, Hlíðarenda, Vogum. Þar ólst hann upp í faðmi yndislegrar fjölskyldu. Síðan giftist hann sinni góðu konu, Gunnþóranni Þorsteinsdóttur og áttu þau tvö böm, Jóhannes Inga 8 ára og Þóranni Helgu 5 ára. Stórt skarð er nú höggvið í þessa sam- hentu og yndislegu fjölskyldu. Við Siggi voram systkinaböm í báðar ættir og ólumst þar að auki upp í húsum, sem vora hlið við hlið. Við áttum því saman dásamlega æsku og voram daglegir leikfélag- ar. Ég minnist allra þeirra stórfram- kvæmda, er daglega fóra fram í móanum heima — vegir vora lagð- ir, hús byggð, bílar smíðaðir og málaðir. Verkefnin og kraftamir vora óþrjótandi hjá Sigga og bræðr- um hans. Þá þegar kom í ljós sú mikla atorka og framtakssemi, sem Siggi hafði yfír að búa og ein- kenndi hann alla hans ævi — allt til síðasta dags. Ég þakka Guði þá gæfu, að fá að njóta æskuáranna með svo góðum dreng, sem Siggi var. Bjartsýni, dugnaður og lífsgleði einkenndu hann alla hans ævi. Megi minningin um hann verða okkur öllum til fyrirmyndar. Að lokum vil ég votta eiginkonu hans, litlu bömunum hans tveim, foreldram, systkinum og öðram vandamönnum og vinum mína dýpstu samúð. Megi trúin á algóðan Guð og minningin um góðan dreng styrkja ykkur og hugga í þessari miklu sorg. Þuríður Kr. Halldórsdóttir Kveðja frá Kiwanis- félögum. Stórt skarð er hoggið í hóp okk- ar Hofsfélaga. Góður félagi og vinur er horfinn úr hópnum af völdum hörmulegs bifreiðaslyss. Sigurður**- M. Guðmundsson gekk til liðs við Kiwanisklúbbinn árið 1982. Hann var vel metinn félagi og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. M.a. var hann forseti Hofs starfsárið 1985—86. Sigurður var einn þeirra er ætíð brást ljúfmannlega við hverri þeirri beiðni er til hans var beint og kraftur og áhugi einkenndi störf hans. Hofsfélagar kveðja góðan félaga og þakka óeigingjöm störf í þágu klúbbsins. Eftirlifandi konu, böm-'' - um og öðram ástvinum era sendar samúðarkveðjur. Megi almáttugur Guð styðja ykkur á erfíðri stund. Guð blessi minningu Sigurðar M. Guðmundssonar. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, tengdasonar, föður, tengdaföður og afa, SVANS RÖGNVALDSSONAR. Fríða Gústafsdóttir, Gústaf Gestsson, Steinunn Svansdóttir, Gunnar Bjarnason, Sjöfn Svansdóttir, örn Óskarsson, Gústaf Bjarni Svansson, Guðjón Rúnar Svansson, Jóhanna Svansdóttir. t Þökkum samúö og vinarhug við andlát og jaröarför PÉTURS INGJALDSSONAR, Miðbraut 19, Seltjarnarnesi. Guðfinna Ingimarsdóttlr, Erlendur Pótursson, Elísabet Arnoddsdóttir, Ragnheiður Pótursdóttir, Eiríkur Karlsson, Ingjaldur Pétursson, Steinunn Hermannsdóttir, Ásdfs Pétursdóttir Jóhann Hákonarson. t Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móöur minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR, Vitateigi 1, Akranesl. Halldóra Björnsdóttir, Halldóra R. Þóröardóttir, Bjöm Þórðarson, Óskar Þórðarson, Þórður Þórðarson, og barnabarnabörn. Þórður Óskarsson, Gunnar Friögelrsson, Oddbjörg Jónsdóttir, Rósa Jónsdóttir, GuAbjörg ÞórAardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.