Morgunblaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987 27 , , LÆiqOJH , AVISITÖLUALAGI LANA sem veitt voru með lánslgaravísitölu úr Byggingarsjóði ríkisins fyrir 1. september 1983. Framkvæmd lækkunarinnar fer þannig fram Frá og með 1. febrúar 1987 voru grunnvísitölur þessara lána hækkaðar með stuðlinum 1.0288 þannig að eftirstöðvar lánanna með verðbótum lækka um 2.8%. Dæmi 1: Lán að fjárhæð kr. 100.000 sem veitt var í júlí 1982 með grunnvísitöluna 373 verður framvegis með grunnvísitöiuna 384. Lán þetta er með 2.25% vöxtum til 16 ára, fyrsta árið afborgunar- laust, og fjórum gjalddögum á ári. Á gjalddaganum 1. febrúar 1987 á að greiða samtals kr. 8.171 af þessu láni í vexti, afborgun og verðbætur en kr. 8.412 ef til lækkunar hefði ekki komið. Petta er lækkun um kr. 241. Eftirstöðvar lánsins með verðbótum eftir greiðslu á gjalddaganum lækka úr kr. 333.592 í kr. 324.036, eða um kr. 9.556. Leggja verður fram afrit af kaup- samningum vegna íbúða, sem komu til sölu í fyrsta sinn á tímabilinu septem- ber 1983 til janúarloka 1987 og eru með áhvílandi iánskjaravísitölulán. Þetta nær þó aðeins til lána er veitt voru úr Byggingarsjóði ríkisins fyrir 1. september 1983. Þeir sem hafa greitt upp slíklán leggi fram afrít af greiðsluseðli. Þessi afrit ásamt upplýs- ingum um nafn, nafnnúmer og heim- ilisfang verður að senda til Veðdeildar Landsbanka íslands, Laugavegi 77, 101 Reykjavík, fyrir 1. apríl 1987. Margar þessara íbúða hafa verið seldar oftar en einu sinni. í hvert sinn hafa eftirstöðvar með verðbótum veríð ofmetnar. Þeir sem seldu slíkar fbúðir í fyrsta sinn á tímabilinu september 1983 til janúarloka 1987 fá endurgreitt sem nemur lækkuninni (2.8%) á eftir- stöðvunum ásamt ofgreiddum verð- bótum á hverjum gjalddaga frá september 1983 til söludags. Hinir sem eftir koma, kaupa og selja miðað við ranga vísitölu. Þeir fá því hvorki endur- greidda þessa lækkun né endurgreitt vegna ofgreiddra verðbóta, þar sem Byggingarsjóður ríkisins endurgreiðir fyrsta seljanda alla lækkunina á eftirstöðvunum. Dæmi 2: íbúð var seld íjúlí 1985. Á íbúðinni hvíldi lán, sem veitt var úr Byggingarsjóði ríkisins í júlí 1982, upphaflega kr. 100.000. Lánskjör eru sömu og í dæmi 1. Sami eigandi hafði átt íbúðina allan tímann. Eftirstöðvar lánsins með verðbótum þegar íbúðin var seld voru kr. 279.591 en áttu að vera kr. 271.582. Þennan mismun, kr. 8.009, fær seljandinn endurgreiddan ásamt ofgreiddum verðbótum á hverjum gjalddaga frá september 1983 til söludags íjúlí 1985, sem nema um kr. 991. Hann fær því kr. 9.000 ásamt dráttarvöxtum eins og þeir voru á hverjum tíma til greiðsludags. Samtals nemur endurgreiðslan kr. 15.609. í apríl 1987 verður send endur- greiðsla til þeirra, sem voru skuld- arar þessara lána 1. febrúar 1987, sjá þó liði 2 og 3 hér að framan. Endurgreiðslan nemur þeirri fjárhæð, ásamt dráttarvöxtum til greiðsludags, sem ofgreidd var á hverjum gjalddaga á tímabilinu september 1983 til janúarloka 1987. Séu lán í vanskilum verður endurgreiðslunni varið til greiðslu á þeim. Dæmi 3: Sama fjárhæð og sömu lánskjör og í dæmi 1 og 2 hér að framan. Ibúðin hefur verið í eigu sama aðila allan tímann. Hann fær vegna ofgreiddra verðbóta kr. 2.249. Samtals ásamt dráttarvöxtum nemur endurgreiðsian kr. 3.882. í þeim tilfellum þar sem seljendum verður endurgreitt vegna ofmet- inna eftirstöðva, ætti að innheimta sömu fjárhæð hjá núverandi eigendum vegna þess að grunnvísitölur allra þessara lána voru hækkaðar frá og með 1. febrúar 1987 og þar með eftirstöðv- arnar lækkaðar. Eftirgjöfin er þvf framkvæmd tvisvar í þessum tilfellum. Þegar fyrir liggur hvaða íbúðir hafa skipt um eigendur, verður tekin ákvörðun um hvort núverandi skuld- arar verða krafðir um endurgreiðslu. Reykjavík, 1. mars 1987 ^ HúsnæÖisstoínun ríkisins • •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.