Morgunblaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
Lyfjanotkun
barna
Ungböm verða líka veik, og
þá er eðlilegt að vilja lina sárs-
auka þeirra með lyfjagjöf. En
sé það gert er alveg nauðsyn-
legt að fylgja nákvæmlega
fyrirmælum læknis, þvi öll lyf
geta haft hliðarverkanir, sem
ekki eru alltaf þægilegar.
Við gefum bömunum okkar lyf
til að lækna þau af allskyns sjúk-
dómum. Lyfín vinna gegn sjúk-
dómunum, en öll geta þau haft
miður heppilegar aukaverkanir.
Það em ekki þessar aukaverkanir
sem við sækjumst eftir, en ekki
verður alltaf komizt hjá þeim.
Penisillínblöndur vinna á
margskonar sýklum, sem til dæm-
is valda háls-, eyma- eða lungna-
bólgu. En penisillínið drepur
einnig gerla sem heima eiga í
meltingarfæmm okkar — og ef
bömum er gefíð penisillfn geta
þau hæglega fengið niðurgang.
Vegna aukaverkana lyfja, sem
stundum geta valdið talsverðum
óþægindum, á að sjálfsögðu að-
eins að gefa bömum lyf þegar
nauðsjm krefur.
Hvenærþarf penis-
illín?
Böm þurfa ekki að fá penisillín
í hvert skipti sem þau fá hita.
Oftast fá bömin hita vegna veiru-
smits. Þar gerir penisillfn ekkert
gagn. Flestir foreldrar vita að
ekki þýðir að gefa nein lyf við
sumum algengum bamasjúk-
dómum, eins og mislingum eða
hlaupabólu. Þessir sjúkdómar
læknast af sjálfu sér á nokkmm
dögum.
Ef bamið er með mikinn hita
má oft draga úr hitanum með því
að gefa sjúklingnum magnýl eða
skyld lyf, en hitinn er eðlileg vöm
líkamans gegn margskonar sjúk-
dómum. Þessvegna er það oftast
óráðlegt að minnka hann með
lyfjagjöf.
Þegar bam kvefast fylgir oft
hiti í einn eða tvo daga. Haldist
hitinn lengur, eða ef hann eykst
á ný eftir nokkra daga, getur
verið að kvefíð hafí fætt af sér
annan kvilla, til dæmis eyma-
bólgu, eða jafnvel lungnabólgu.
Ungbamið getur ekki látið vita
að það sé veikt, en hækkun hitans
segir okkur að ekki sé allt með
felldu og við getum gert viðeig-
andi ráðstafanir.
Fylg-ið læknisráðum
Ef læknirinn ákveður að gefa
baminu ljrf er áríðandi að fylgja
fyrirmælum hans nákvæmlega
svo lyfíð hafí tilætluð áhrif og
bamið verði frískt. Hann ákveður
hve oft á dag á að taka meðalið,
hve stóran skammt í einu og í hve
marga daga. Til að tryggja bezta
fáanlega árangurinn í baráttunni
gegn sjúkdómnum ber að fylgja
þessum fyrirmælum í einu og öllu.
Hugsanlega getur bamið virzt
orðið alheilbrigt eftir tveggja daga
ljdjatöku, þótt læknirinn hafí fyr-
irskipað sjö daga kúr. Þá er
sjálfsagt að halda áffam lyijagjöf-
inni í samræmi við fyrirmæli
læknisins, því það er bezta trygg-
ingin fyrir því að bamið losni að
fullu við sjúkdóminn.
Útsala á húsgögnum
5—50% afsláttur Nýborgí#
Skútuvogi 4, sími 82470
SALTKKÍrOG
BAUNIR
Fáðu þér góða baunasúpu á
Sprengidaginn. Veldu þér gott hráefni.
Whitworths baunir gefa rétta bragðið.
Whitworths baunir,
gular og fallegar, viðurkennd gæðavara.
rj] KRISTJÁN Ó.
Ll J SKAGFJÖRÐ HF.
Með einu símtali er hægt að breyta inn-
heimtuaðferðinni. Eftir það verða áskriftar-
gjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslu-
kortareikning mánaðarlega.
SÍMINN ER
691140
691141