Morgunblaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Strokufanginn
ófundinn;
Hresstist
þegar út
var komið
FANGINN, sem slapp frá Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg
á föstudag, er ófundinn.
Það var síðdegis á föstudag sem
fanginn slapp frá lögreglunni fyrir
utan Hegningarhúsið. Þá átti að
flytja hann til læknis, en þegar út
undir bert loft var komið hresstist
fanginn snögglega og hvarf lög-
reglunni sjónum á hlaupum niður
Skólavörðustíg. Hefur ekkert til
^hans spurst síðan.
Seltjarnarnes:
Áhugi á áfengis-
útsölu kannaður
BÆJARSTJÓRN Seltjarnarness
samþykkti á síðasta fundi sínum
að kanna hvort íbúar Seltjamar-
ness væru hlynntir opnun
'C.--^afengisútsölu á Seltjaraaraesi.
Samþykkt var að könnunin færi
fram samtímis næstu alþingis-
kosningum.
Morgunblaðið/Guðmundur Pétureson.
VÍ GSLUDAGUR NÁLGAST
SENN líður að því að nýja flugstöðin á Keflavíkurflug- áformuð um miðjan apríl. Vinstra megin á myndinni
velli verði tekin í notkun en vígsla stöðvarinnar er er hin nýja þjónustubygging Flugleiða, sem er að rísa.
Morgunblaðið/Kr.Ben
Loðnuhrognunum sprautað ofan í frystitækin á millidekki
Grindvíkings GK.
Loðnuhrogn fryst um
borð í Grindvíkingi
Grindavík.
LOÐNUHROGN eru nú fryst sem vinnur á sex tíma vöktum á
dag hvera um borð í Grindvík- meðan vinnslan er í gangi. Hins-
ingi, sem er einskonar fljótandi vegar eru allir á dekki á meðan
frystihús. Willard Ólason, skip- kastað er. Frystigetan er 18 tonn
stjóri, sagði að gæði hrogn- af hrognum á sólarhring miðað
anna, sem fryst eru úti á við að nýtingin sé nægilega góð.
rúmsjó, væru ótvíræð. Kr.Ben
Á skipinu er 16 manna áhöfn,
Hafrannsóknastofnun:
3 5 skyndilokan-
ir frá áramótum
Flestar lokanir vegna smáf iskagöngu á Austfjarðamiðum
HAFRANNSÓKNASTOFNUN hefur auglýst um 35 skyndilokan-
ir frá áramótum. Sólmundur Tr. Einarsson fiskifræðingur segir
að þetta séu mun tiðari lokanir en áður hefur verið. Til dæmis
hefði stofnunin tilkynnt um 80 skyndilokanir allt árið í fyrra,
og hefði það þó verið í mesta lagi.
Flestar skyndilokanirnar hafa
verið á Austfjarðamiðum, á svæð-
unum við Hvalbak og Breiðdals-
grunn. Hafrannsóknastofnun
hefur lokað svæðum þar yfir 20
sinnum frá áramótum, auk þess
sem sjávarútvegsráðuneytið hefur
lokað svæðum með reglugerð.
Sólmundur sagði að árlega kæmi
smáfiskaganga á þetta svæði, en
það væri yfirleitt á tímabilinu
mars til maí. Smáfiskagangan
væri mun fyrr á ferðinni nú og
hefði því orðið að grípa til tíðra
skyndilokana þar sem um 20 tog-
arar væru á svæðinu og aflinn
góður.
Kafari kærir bj örgunar-
sveit fyrir aðstoð við bát
Suðurnes;
KAFARI í Keflavík hefur fyrir hönd Félags íslenskra kafara
lagt fram kæru á hendur Björgunarsveitinni Þorbirni í
Grindavík og útgerðar báts, sem björgunarsveitin aðstoðaði
síðastliðið haust. Telur kafarinn að björgunarsveitarmenn
hafi við aðstoðina farið inn á verksvið kafara án þess að
hafa til þess tilskilin réttindi.
Bæjarfógetaembættinu í Kefla-
vík barst kæra frá kafaranum
síðastliðið haust í framhaldi af
aðstoð björgunarsveitarinnar í
Grindavík við tiltekinn bát, sem
fengið hafði vír í skrúfuna. Kafari
frá björgunarsveitinni kafaði til
að losa vírinn, en kafarinn sem
kærði telur að hann hafi ekki haft
réttindi til þess.
Rannsóknarlögreglan í Keflavík
tók skýrslur af öllum aðilum máls-
ins og sendi rannsóknargögn síðan
til bæjarfógetaembættisins sem
sendi málið áfram til ríkissaksókn-
ara, sem tekur ákvörðun um'hvort
gefin verður út ákæra í málinu.