Morgunblaðið - 06.03.1987, Page 12

Morgunblaðið - 06.03.1987, Page 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Ungsál í álögum Rcett við Ingu Kristmundsdóttur um þroskahefta dóttur hennar, Asdísi Ingu Jónsdóttur. Inga með Dísu sem ungbarn ViA hittumst fyrir utan skrifstofu Kópavogshælis, ég og Ásta Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur. Við höfðum aldrei sést fyrr en hún ætlaði að leyfa mér að slást í för með sér þegar hún heimsækti unga vinkonu sína og dóttur sinnar, Ásdísi Ingu, sem verið hefur vistmaður á Kópavogshæli sl. __ fjögur ár. Ásdís Inga og dóttir Ástu hafa oftsinnis verið í sumardvöl saman á Reykjalundi og eru perluvinkonur. Við gengum í febrúar- rigningunni milli hinna mismunandi húsa hæl- isins þar til við römbuð- um á það rétta. Hurðin var læst og Ásta barði að dyrum. Eftir nokkra stund var opnað og við gengum með starfsstúlku inná setustofu deildarinnar. Ég var ekki viðbúin þeim ofsafengnu viðbrögð- um sem Ásdís Inga sýndi þegar hún sá Ástu koma. Hún hló hátt og kallaði já, já og það var ekki um að villast að hún fagnaði komu Ástu innilega. Dísa, eins og hún er kölluð, tók glöð í hendur Ástu og það var barnslegt traust og einlægni í augum þessarar tvítugu stúlku, sem vegna spastískrar löm- unar verður að vera í hjólastól og getur tæpast neitt sagt nema eins- atkvæðisorð. Ásta ók hjólastólnum hennar Dísu á undan sér inn á herbergið hennar og óg fylgdi í humátt á eftir. Ásta talaði við Dísu og spurði hana margs en Dísa var annars hugar og gaut augunum til mín í þögulli spurn. Loks tók hún af skar- ið og benti á mig. Ásta skildi hana strax og sagði henni hvað ég héti. Saman leituðu þær á blissborðinu, sem Dísa notar til að gera sig skilj- anlega, en þar var ekkert merki fyrir nafnið mitt. Hins vegar var þar Guðný og Guðmundur sem Dísa benti á æ ofan í æ, fannst það líkjast mikið nafninu mínu. Við spurðum Dísu hvernig henni líkaði veran á Kópavogshæli, þá dró niöur í henni um stund en síðan benti hún á merki fyrir nafn- ið Jón. Við Ásta urðum eitt spurningarmerki en merking þessa skildist ekki fyrr en Ásta fór fram til að fá lánað aceton til að fjar- lægja gamalt naglalakk af nöglum Dísu. I þeim leiðangri hitti hún kunningja Dísu sem heitir Jón, hann spjallar oft við hana á dag- inn, þá skildum við svar Dísu. Meðan Ásta var frammi að skila acetoninu aftur eftir notkun, lakk- aði ég neglur Dísu með tískubleiku lakki sem Ásta hafði fært henni. Dísa var mikið ánægð með nagla- lakkið og horfði léttbrýnd á hvítar ungmeyjarhendur sínar með bleik- um nöglum hvíla á stólplötunni. Litur lakksins var sá sami og á rósunum á peysunni hennar. Allt í einu heyrðist rödd Jóns frammi á ganginum og Dísa rak upp háan gleðihlátur. Hún er eins og barn, ótamin og skammt á milli hláturs og gráts. Þegar Jón er farinn og við Ásta farnar að tygja okkur til farar bítur Dísa á neðri vörina og verður brjóstumkennanlega einmanleg, þar sem hún situr í hjólastólnum sínum, örlítið innskeif í brúnum uppháum reimaskóm. Svo lítur hún á okkur, augum fullum af sárs- auka, ung sál í álögum þroskahefts líkama. - Svona var heimsókn mín til Ásdísar Ingu á Kópavogshæli. Móðir Dísu, Inga Kristmunds- dóttir er ekkja, átta barna móðir sem orðin er heilsubiluð eftir þrjú áföll sem hún hefur orðið fyrir á síðustu árum. Ég heimsótti hana fljótlega eftir að ég hitti Dísu. Hún er nýlega flutt í íbúð í nýrri blokk við Sæbólsbraut í Kópavogi. Dísa var hjá henni þegar ég kom, hún hafði fengið helgarleyfi en átti að fara aftur heim um kvöldið. Dísa sat ásamt systur sinni Margréti inni í stofu og horfði á sjónvarpið. Hún þekkti mig strax. Mamma hennar spurði hana og hún benti án umhugsunar á nafnið Ásta. Hún mundi greinilega vei eftir að ég hafði verið í fylgd með Ástu móður vinkonu hennar. Inga bauð mér sæti við eldhús- borðið og við tókum tal saman. Inga Sigríður Kristmundsdóttir er fædd í Reykjavík og ólst þar upp. Hún gifti sig 18 ára og bjó við all- góð skilyrði sem kom sér vel því ört fjölgaði börnunum. Hún átti fimm börn þegar hún var 22 ára. Þegar sjötta barnið var á öðru ári og Inga 27 ára gömul drukknaði maður hennar. Það var árið 1958 og þá stóð hún uppi ekkja með barnahópinn, hið elsta níu ára. Móðir hennar bjó í sama húsi og hjálpaöi henni með börnin þegar hún gat. Inga gat unnið úti með hennar hjálp yfir vetrartímann en á sumrin fór móðir hennar til vinnu út á land. Seinna varð Inga að láta tvö af börnum sínum norður í land til langdvalar og þriðja barnið aust- ur á land til bróður síns. Árið 1962 tók Inga upp sambúð við föður Ásdísar Ingu og átti með honum, auk hennar, aðra dóttur til, Margréti. Þeirri sambúð var slit- ið skömmu eftir fæðingu seinni dótturinnar. Inga hélt síðan heim- ili fyrir börn sín fimm ásamt móður ER SKi OFDÝRU VERÐI KEYi U að na i etur það verið að líkamsrækt Jsé komin út í öfgar þannig að'nær væri að kalla hana líkams- dýrkun? Er hún of dýru verði keypt? Svo spyrja æ fleiri um þess- ar mundir og styðjast þá m.a. við rannsóknir sem m.a. hafa leitt í Ijós að af öllum „eróbikk“-iðkendum hafi ískyggilega margir orðið fyrir slysum. Til að mynda hafa 75,9% kennara í þessari grein orðið fyrir slysum og 43,3% nemendanna. Þetta eru háar tölur en þess ber þó að geta að fæst þessara meiðsla geta talizt alvarleg. Al- gengustu meiðslin hafa í för með sér tognun vöðva, slit á liðböndum og hásin en brákuð smábein í fót- unum eru heldur ekki fátíð. Robert Lipsyte heitir fyrrum íþróttafréttaritari The New York Times. Hann starfar nú hjá CBS- sjónvarpsstöðinni og nýlega birtist í The New York Times Magazine grein sem hann skrifaði um reynslu sína af ræktun líkamans og segir þar meðal annars: Á sunnudagsmorgni lagði ég leið mína í líkamsræktarstöðina í hverfinu þar sem ég er búsettur og erindið var að fara í „einstakl- ingsbundna skoðun með tilliti til líkamlegrar þjálfunar". Tvö fagur- limuð, hress og jákvæð ungmenni mældu helztu_einkennin og fram- kvæmdu einfaldar tilraunir á vöðvastyrk, sveigjanleika og þoli æðakerfisins. Sveigjanleikinn var fyrir neðan meðaltal en að öðru leyti var ástandið ýmist eðlilegt, dágott, í meðallagi eða viðunandi. Engir rauðir fánar og engar gull- stjörnur. Mér var tjáð á jákvæðan, vinsamlegan en ákveðinn hátt að ég gæti sannarlega bætt um bet- ur. Með því að ganga meira, hlaupa meira, synda meira, stunda þolæfingar, teygjuæfingar og tennis yrði ég stæltari og á þann hátt gæti ég náð af mér þessum fimm aukakílóum og orðið heil- brigðari að öllu leyti. Þau mæltu gegn því að ég stundaöi lyftingar en lögðu til að ég færi meðalveginn og stundaði hóflega líkamsrækt, einkum í fyrstu, að undangenginni nákvæmri læknisskoðun. Þau voru skynsöm og mér hliðholl — og miðað við allt sem ég hef lesið og heyrt höfðu þau algjörlega rétt fyr- ir sér. Og hvað nú? Líkamsræktaræðið sem nú er í algleymingi og yfirgengur allt sem áður hefur þekkzt á þessu sviði hefur haft í för með sér meira af óljósum og jafnvel villandi upplýs- ingum en nokkur ungur íþrótta- maður gæti lyft eða stokkið yfir. Nú er ég 48 ára að aldri og mín eigin líkamsræktarsaga er ofur ein- faldlega sorgarsaga. Ég reyni að Dísa með ömmu sinni Guðnýju Kjartansdóttur sinni og í skjóli þessara tveggja kvenna var Ásdís Inga þar til hún var 17 ára að móður hennar veikt- ist af kransæðastíflu. Ættingar Dísu reyndu að hugsa um hana í nokkra mánuði en það reyndist þeim ofviða þegar Ingu naut ekki lengur við, hún var þennan tíma mest á sjúkrahúsum. Dísu var því komið fyrir á Kópavogshæli í byrj- un árs 1983 og þar er hún enn. „Þegar ég gekk með Dísu“ held- ur Inga áfram frásögn sinni, “var meðgangan fullkomlega eðlileg en fæðingin gekk hræðilega. Dísa var sjöunda barnið mitt og læknirinn hlaupa eða synda a.m.k. þrisvar í viku, en ég ferðast of mikið og of óreglulega til þess að ég sé fær um að halda þeirri áætlun. Og jafn- vel þegar mér tekst að koma því svo fyrir að óg geti haldið áætlun 'er ég ekkert of áfjáður. Ég veit ekki af hverju. Ég hef svo sem gaman af æfingunum og mér líður alltaf betur þegar ég er búinn að gera þær. Eg öfundast svo sem ekki meira út í skárri skrokkana í búningsherberginu en ég ásælist flottu bílana á bílastæðinu. Ég gæti sem bezt hugsað mér einn slíkan en ég er ekki nógu áfjáður til að nenna að hafa fyrir því að eignast hann. Ég hef ekki reykt í nærri tuttugu ár. Eg drekk ekki nándar nógu mikið, ef nýjustu rannsóknir sem gefa til kynna að tvö glös á dag verji mann gegn hjartaáfalli eru marktækar. En ég er alltaf í bílbelti og enginn í fjölskyldunni hefur dáið af völdum hjartaáfalls. Á hinn bóginn fæ ég alltaf neikvætt svar þegar ég svara tilboðum um líftryggingu þegar tryggingamenn- irnir eru búnir að komast að því að fyrir sex árum lauk lyfjameðferð minni vegna krabbameins. Þetta var í eina skiptið á ævinni sem ég hef orðið alvarlega veikur. Upp úr 1960 var ég í ágætis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.