Morgunblaðið - 15.03.1987, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
+9
Jón Baldur Hlíðberg fuglateiknari:
„Oásjálegustu fuglarnir
eru yfírleitt erfiðastir“
Morgunblaðið/Þorkell
Hér má sjá sýnishorn af vinnu Jóns, skutulandarkolla fremst, en fyrir aftan standa duggandarkolla t.v.
og skúfandarkolla t.h.
J ón Baidur Hlíðberg
heitir ungur lista-
maður sem hefur á
síðustu misserum
„fundið sinn flöt“ ef
nota má slíkt orðalag,
en sá flötur á lítið skylt
við það sem aðrir teikn-
arar og málarar hér á
landi sýsla við utan e.t.
v. grunnmenntunin sem
Jón fékk á fyrsta vetri
í Myndlista- og hand-
íðaskólanum. Jón sér-
hæfir sig í fuglum og
villtum spendýrum og
minna myndir hans á
afar skýrar ljósmyndir
af viðkomandi dýrum.
Morgunblaðið ræddi
við Jón fyrir skömmu
og bað hann að lýsa list
sinni ogtilurð hennar.
„Ég teiknaði stundum sem
krakki og hafði gaman af eins og
gengur, en þetta á þó varla rætur
að rekja til þess. Hugur minn
stefndi aldrei að þessu marki, það
er kannski miklu nær að segja að
ég hafi reynt svo margt í leit að
föstum punkti, að ég sé kominn
hingað núna. Ég er að reyna þetta
og kann vel við það. Raunar kann
ég alltaf betur og betur við það og
leitinni miklu er því lokið hvað mig
varðar. Það var víða leitað. Ég fór
á sjóinn, á vertíð, afgreiddi í versl-
unum, seldi bíla, bjó í Noregi og
þannig mætti áfram telja. Svo
þurfti að leggja mig inn í sjúkrahús
um hríð og þar hafði ég ekkert
annað að dunda en við lestur og
tímaritið Blika, sem er sérrrit um
fugla, gefið út af Náttúrufræði-
stofnun íslands í samvinnu við
áhugamenn um fugla á íslandi. Ég
var þá aðallega í blýantsteikning-
um. Það var fyrir 3—4 árum sem
þetta byijaði. Svo má segja að þetta
hafi jiróast út í að Náttúrufræðifé-
lag Islands gaf út veggspjald með
teikningum af íslenskum fuglum
og voru þær teikningar eftir mig.
Myndin var gefin út fyrir um ári.
Eftir á að hyggja er ég satt að
segja alls ekki ánægður með minn
hlut. Það er kannski merki um þró-
un hjá mér, að ég er óánægður
með flestar teikningamar á spjald-
inu, hefði breytt þeim öllum og
spjaldinu öllu ef það ætti að endur-
„Ég vil nú taka það strax fram,
að ég er alls ekki bundinn við þessi
viðfangsefni þótt þau hafi tekið
'tíma minn til þessa. Ég stefni fast
og ákveðið að því að vera alhliða-
teiknari og ég finn meðbyrinn. Fólk
er farið að hafa sambánd við mig
og biðja mig að vinna þetta og hitt
fyrir sig. Ég er núna í stóru verk-
efni sem útheimtir alla mína krafta
þannig að ég verð að hafna flestu
og þótt það sé leiðinlegt að segja
fólki að ég geti ekki gert fyrir það
það sem það óskar, þá er það engu
að síður mjög ljúft vandamál fyrir
mig, því það sýnir mér að ég verð
ekki atvinnulaus þótt þörfin fyrir
fuglamyndir minnki eftir því sem
ég afkasta meiru.“
— Hvaða stóra verkefni varst
þú að tala um?
„Ég er að vinna að fuglabók í
samvinnu við fuglafræðing, og er
hún væntanleg á næstunni get ég
sagt. Ég hef setið sveittur við teikn-
ingar í bókina í allan vetur, en þarna
munu birtast yfir 100 teikningar
eftir mig, myndir af öllum íslensku
varpfuglunum og svo umferðarfugl-
um og algengum flækingum.
— En eftir hveiju vinnur þú
og hvað ertu yfirleitt lengi að
teikna einstaka fugla?
„Ég nota öll þau gögn sem ég
get komið höndum yfir, ljósmyndir,
teikningar og síðast en ekki síst,
hami af fuglunum sjálfum. Ég er
svona að meðaltali 3 daga eða svo
að klára teikningu, eins og t.d.
þessa mynd af stelk sem ég er að
vinna að núna, en þetta getur farið
allt upp í viku og stundum hendi
ég mynd þegar hún er fullbúin af
því að ég sé þá stundum allt í einu
að einhver litur eða lag er ekki eins
og það á að vera. Það er jafn blóð-
ugt að ljúka mynd á þann veg eins
og það er ljúf tilfinning að ljúka
vel heppnaðri mynd,
— En að teikna einhveija fugla-
tegund er meira en að segja það
og það sem hefur vakið hvað mesta
undrun mína síðan að ég fór að
fást við þetta, er hinn ótrúlegi
breytileiki einstaklinga sömu teg-
undar. Fuglar eru eins ólíkir hver
og einn og mennirnir þótt margur
trúi því ekki. Ég er héma með hami
af sjóstelkum. Enginn er eins og
munurinn í sumum tilvikum gífur-
lega mikill. Þetta hefur orðið til
þess að ég sé fugla ekki lengur í
sama ljósi og áður. Þegar maður
var á kafi í fuglaskoðun þá greindi
maður hinar ýmsu tegundir á
ákveðnu látbragði, háttarlagi, hljóði
og meginlitum. Síðan spáði maður
ekki meira í það, maður hafði greint
fuglinn og hugaði þar með fremur
að atferlinu og svo hinu að svipast
um eftir öðrum tegundum. Þessi
vinna mín hefur hins vegar leitt í
ljós að þótt einstakar fuglategundir
virki eins, þá er það missýn. Ekki
einu sinni stokkandarsteggurinn
með sinn græna koll er allur þar
sem hann er séður. Þó verð ég að
segja, að því skrautlegri sem fugl-
inn er, þeim mun auðveldari er
hann viðfangs fýrir mig. Það eru
þessir óásjálegu fuglar, eins og til
dæmis æðarkollur sem reynast erf-
iðastir. Þær eru hvít/grábrúnar og
rauðbrúnar og allar útgáfur af lit-
blæ þar á milli. Ég er ekki farinn
að gera mynd af æðarkollu ennþá
sem ég er ánægður með, en þessu
fylgir, að því þekktari sem fuglinn
er, þeim mun meiri kröfur verð ég
að gera til sjálfs mín að afgreiðslan
sé góð.
— Annað dæmi er t.d. hávellan.
Ég er búinn að skoða hávellur í
krók og kring. Til að ná öllum
meginútgáfum af hávellu verð ég
að teikna 11 fugla og svo eru ótal
millistig, endalaus millistig. Ef þú
horfir yfir fjöru og sérð tugi eða
hundruð lóuþræla, þá virðast þeir
allir vera eins. En þeir eru það ekki.
Svona gæti ég lengi haldið áfram.“
— Hvaða fugl er erfiðastur,
ekki þó æðarkollan?
„Hún er geysierfið eins og ég
sagði áðan, en ekki þó erfíðust. Ég
get nefnt í því sambandi fálka. Af
honum eru þijú meginlitarafbrigði
Jón vinnur að stelksmynd, blýanturinn í annarri hendi, hamurinn í
hinni.
skisserí. Þáverandi vinnuveitandi
minn, Ingþór Haraldsson, sá eitt-
hvað af skissunum, en þær voru
af öllu mögulegu, og hann hvatti
mig til að fara á námskeið í Mynd-
listarskóla Reykjavíkur. Það varð
úr og þá fór þetta að smávinda upp
á sig.“
— Fórstu hægt af stað?
Jón: „Já, maður þurfti að þjálfa
sig upp og framan af var ég heima-
vinnandi í smáum stíl, m.a. fyrir
taka dæmið á einn hátt eða
annan...
— „Smá undið upp á sig,“
sagðir þú. Hvað fá listamenn að
gera sem tengist fugla- og dýra-
teikningum?
Með fullbúna
fálkamynd.