Morgunblaðið - 15.03.1987, Page 3

Morgunblaðið - 15.03.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 B 3 til að byrja með og ýmis millistig. Svo er fálkinn mikill „karakterfugl" og flókinn þar af leiðandi. Það er mjög erfítt að stilla honum upp þannig að það sé sannfærandi. Eg hef verið upp í viku að ljúka fálka- myndum sem ég hef svo ekki verið hreint ánægður með. Erfíðir eru líka og seinunnir lítt þekktir fuglar. Þá fer ekki bara tími í að teikna þá, heldur líka í að viða að sér tor- fengnu efni og lesa sig til í atferlis- lýsingum. Einstakir hlutar á fuglum geta líka gert mannn gráhærðan. Eg er til dæmis enn að streða við að ná höfði á lómi þannig að ég sitji sáttur eftir. Þar er eitthvað erfítt við litinn sem ég hef ekki náð á mitt vald enn sem komið er.“ — En hvernig er að gera myndirnar þannig úr garði að fuglarnir séu eins og í lifanda lífi? Ekki dugar þó að horfa á myndir af þeim þar sem þeir eru i raun „frystir“? „Það er rétt. Góð mynd getur verið ómetanleg, en það jafnast ekkert á við eigin athuganir. Þess vegna má stundum sjá mig sitjandi undir stýri á Álftanesi eða bara ein- hvers staðar með sjónaukann á festingu á stýrinu og blokkina tyllta á stýrið. Þá er ég að fylgjast með fuglum og teiknandi þá í hinum ýmsu stellingum um leið. Þetta hefur allt saman verið gífurlegur skóli í fuglagreiningu og ég bý að því nú að hafa haft bullandi áhuga á fuglum allar götur frá því að ég varð læs. Bullandi áhugi er nauð- synlegur til að geta tekist á við svona verkefni." — Hvað tekur við eftir bók- ina? „Eg er að melta ýmsar hugmynd- ir, enda hef ég hugsað mér að sjá mér áfram farborða í þessu fagi. Helst að ég nefni í stöðunni að mig langar til að teikna hval, seli og físka. Ég hef mikinn áhuga á sjáv- ardýrum ekki síður en fuglum. Raunar hef ég teiknað helstu seli sem hér er að fínna og þær myndir eru til sýnis á Náttúrufræðistofu Kópavogs á sérstakri sýningu sem þar er og heitir „Vargar í Véum“ og fjallar um dýr sem veita mannin- um umtalsverða samkeppni úti í náttúrunni. Ég hef einnig málað utan líkneski af hvalategundum sem fínnast hér við land, og þeir gripir eru geymdir á Náttúrufræði- stofnuninni. Ég hef áhuga á því að taka þessa þætti betur fyrir og gera þeim tæmandi skil. En eins og er á bókin allan hug minn,“ eru lokaorð Jóns Baldurs Hlíðberg. - gg Gtæsilegur danskur sumarfatnaður Litir: Drapp — Dökkbátt — Hvítt — Blágrænt. Stærðir: 36—52. Mjög gott verð v/Laugalæk, sími 33755 HESTAMENN! HESTAMENN! Nú er kominn á markaðinn nýr þrumuhnakkur í algjörum sérflokki. íslensk hönnun, vandaður og léttbyggður. ítaJskur DEIADMÖR ítölsk rúmteppi frá sérstæð, efnismikil, fislétt - draumateppi -. Mikið úrval af teppum á hjónarúm og barnarúm. Þú gengur að gæðunum vísum. Sérverslun með listræna húsmuni Borgartúni 29 Sími 20640 ; v‘ • * ' -ií' jl. i"’ *■'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.